Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Side 6
6
MIÐVTKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
Neytendur
Verökönnun á skyndibitum:
Mikill munur á ham-
borgurum og hristingi
Hvað kostar skyndibitinn?
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 130 kr.
Ostborgari 460 kr.
Pylsa m. öllu 160 kr.
Kók 125 kr.
Ostborgari 420 kr.
Pylsa m. öllu 170 kr.
Kók 140 kr.
Ostborgari 420 kr.
Pylsa m. öllu 160 kr.
Kók 130 kr.
Ostborgari 440 kr.
A
Pylsa m. öllu 130 kr.
Kók 130 kr.
kOstborgari 435 kr.
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 120 kr.
Ostborgari 390 kr.
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 120 kr.
Ostborgari 380 kr.
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 110 kr. I
Ostborgari 250 kr/
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 110 kr.
Ostborgarl 400 kr.
Pylsa m. öllu 150 kr.
Kók 110 kr.
Ostborgari 260 kr.
Skyndibitinn kostar sitt, sama hvort hann er keyptur á Akureyri eða á Selfossi.
ódýrastur á Olísstöð-
inni á Selfossi á 660
krónur. Þar á eftir
kemur söluturninn
Ný-Ung í Keflavík
með sama pakka á 710
krónur. Næst í verð-
röðinni er síðan Shell-
skálinn í Borgarnesi
sem selur herlegheitin
á 825 krónur.
Á eftir Shellskálan-
um í Borgamesi kem-
ur síðan Söluskáli
KHB á Egilsstöðum
sem selur þessa mál-
tíð á 835 krónur. Þar á
eftir kemur Veitinga-
skáli Esso í Hornafirði
sem selur pakkann á
850 krónur. Rétt er þó
að taka fram að Veit-
ingaskálinn í Horna-
flrði selur ekki mjólk-
urhristing og því var
tekið meðalverð
Nú styttist í verslunarmannahelg-
ina með tilheyrandi ferðalögum vítt
og breitt um landið. Mörgum finnst
alveg ómissandi þegar ekið er inn-
anlands að stoppa öðru hvoru og fá
sér eina pylsu og kók eða annan
skyndibita áður en haldið er á
næsta áfangastað. Þjóðvegasjoppur
landsins eru ótalmargar og bjóða
upp á ýmislegt fleira en pylsur og
kók. Neytendasíða DV fór því á stúf-
ana og kannaði verð á pylsu með
öllu, hálfum lítra af Coca-Cola í
plasti, hamborgara með osti, sósu
og grænmeti og litlum mjólkurhrist-
ingi.
Kannað var verð í tíu sjoppum
víðs vegar um landið. Þær eru:
Shellskálinn við Brúartorg í Borgar-
nesi, Staðarskáli í Hrútafirði,
Blönduskálinn á Blönduósi, Kaupfé-
lag Skagfrrðinga í Varmahlíð, Vega-
nesti á Akureyri, Shellstöðin við
Héðinsbraut á Húsavík, Söluskáli
KHB á Egilsstöðum, Veitingaskáli
Esso að Nesjum i Homafirði, Olís-
stöðin við Arnberg á Selfossi og Ný-
Ung við Hafnargötu í Keflavík.
Skýrt skal tekið fram að hér er
einungis um verðkönnun að ræða
og því ekkert tillit tekið til gæða eða
þjónustu.
Minnstur munur á kóki
í heildina litið er minnstur mun-
ur í könnuninni á hálfum lítra af
kóki í plastflösku
eftir verslunum. Ódýrast er kókið
í Ný-Ung í Keflavík, á Olísstöðinni á
Selfossi og í Veitingaskála Esso í
Hornafirði. Þar kostar flaskan 110
krónur. Dýrast er flaskan hins veg-
ar í Blönduskálanum á Blönduósi
þar sem hún kostar 140 krónur.
Munurinn á hæsta og lægsta verði
er þó 27% sem verður að teljast tals-
verður munur.
Þriðjungsmunur á pylsum
Þriöungsmunur var á hæsta og
lægsta verðinu á einni pylsu með
öllu í könnuninni. Pylsa með öllu er
með tómatsósu, sinnepi, remúlaði,
steiktum lauk, hráum lauk og í
sumum tilfellum kokkteilsósu.
Ódýrust er pylsan með öllu í
Veganesti á Akureyri þar sem hún
kostar 130 krónur. Algengasta verð-
ið fyrir pylsuna var hins vegar 150
krónur sem hún kostar í Homafirði,
á Egilsstöðum, á Selfossi, í Varma-
hlíð, í Keflavík og í Borgarnesi. Dýr-
ust var pylsan i Blönduskálanum á
Blönduósi þar sem hún kostar 170
krónur. Munurinn á hæsta og
lægsta verði er því 31%.
Misjafnir borgarar
Mjög mikill verðmunur er á ham-
borgurum á milli staða. Ódýrastur
var borgarinn í Ný-Ung í Keflavík á
250 krónur, þá á Ólísstöðinni á Sel-
fossi á 260 krónur en dýrastur var
borgarinn í KS í Varmahlíð á 460
krónur. Munurinn á hæsta og
lægsta verði er hvorki meira né
minna en 77%.
Rokdýr hristingur
Mestur var hins vegar verðmun-
urinn á litlum mjólkurhristingi á
milli staða.
Ódýrastur var hann á Olísstöð-
inni á Selfossi á 140 krónur, þar á
eftir komu Shellskálinn í Borgar-
nesi og Söluskáli KHB á Egilsstöð-
um með hristinginn á 175 krónur.
Dýrastur var hann hins vegar í
Blönduskálanum á Blönduósi á 310
krónur. Tekið skal fram að magn
lítils mjólkurhristings er ekki ná-
kvæmlega það sama á öllum stöðum
en í flestum tilvikum virtist hrist-
ingurinn vera á bilinu 33-40 sentí-
lítrar. Munurinn á ódýrasta og
dýrasta hristingnum er því 121%.
Ódýrast á Selfossi
Eins og sjá má af þessari litlu
könnun getur það skipt verulegu
máli hvar stoppað er til að kaupa
skyndibitann. I heildina, þ.e. ef
keypt er pylsa, kók, ostborgari og
mjólkurhristingur, er pakkinn
mjólkurhristings á hinum stöðun-
um til að reikna út ímyndað verð
hans á Homafirði.
Akureyringar eru næstir í verð-
röðinni því Veganestið þar í bæ sel-
ur pakkann á 905 krónur. Þar á eft-
ir kemur Shellstöðin á Húsavík með
pakkann á 915 krónur, Staðarskáli á
955 krónur og KS í Varmahlíð er
með pakkann á 990 krónur. Dýrast-
ur er heildarpakkinn svo í Blöndu-
skálanum á Blönduósi sem selur
pylsu, kók, ostborgara og lítinn
mjólkurhristing á 1040 krónur.
-GLM
Pund
Fiugleiðir
Olíufélagið
Skeljungur
Síldarvinnsian
1550
1289,5
74
73
5,5 4,25
Stig A M J J
0,5121
2500
2000
1107,55
1000
ééhUBí
Orku-
sparnaður
Við íslendingar njótum þess
að íslensk orka er að miklu leyti
hrein orka. Slíku er því miður
ekki að heilsa víða erlendis. Þar
er orkan t.d. framleidd með kol-
um, olíu eða jarðgasi sem valda
mengun. En flestir geta sparað
við sig orkuna, sama hvort þeir
búa hérlendis eða erlendis.
Matseld er ein orkufrekasta
aðgerðin á heimilunum. Þess
vegna er áríðandi að orka sé
spöruð við matseld. Kveikið ekki
á ofninum fyrr en sett hefur ver-
ið inn i hann.
Þíðið frystar vörur í kæli-
skáp, þá nýtist kuldinn frá þeim
til orkusparnaðar.
Notið eins lítið vatn í pottana
og þið komist cif með.
Hafið ljósin slökkt i herbergj-
um þar sem enginn er.
Hafið glugga ekki opna nema
þess sé þörf. Best er að lofta út
með því að galopna gluggana i
dálitla stund en loka þeim svo
aftur áður en kólnar í íbúðinni.
Þegar við erum stödd erlendis
megum við yfirleitt búast við því
að talsverð mengandi orka hafi
farið í að hita upp vatnið sem
við notum. Þess vegna er til
dæmis ráðlegt að fara ffekar í
stutta sturtu en bað. Heitt vatn á
alls ekki að renna aö óþörfu, t.d.
við uppþvott.
Æskilegt er að þvottur sé
þurrkaður utandyra, sé það
hægt. Tauþurrkari gleypir nefni-
lega mikla orku.
Umhverf-
isvæn á
ferða-
laginu
Mikilvægt er að hafa í huga
þegar ferðast er:
Skiljum aldrei eftir rusl á
víðavangi
Förum varlega með eld úti í
náttúrunni. Eldur í gróðurlendi
getur valdið óbætanlegu tjóni.
Einkum er ástæða til að fara var-
lega með sígarettur og grillkol.
Ökum aldrei utan vega.
Skemmdir á gróðri vegna akst-
urs utan vega er erfitt að bæta.
Fylgjum merktum stígum og
gönguleiðum þar sem um slíkt er
að ræða.
Þegar farið er í ferðalög reyn-
um við að takmarka notkun
einnota umbúða og áhalda.
(Heimild: Græna bókin).
-GLM