Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 7
7
MIÐVIKUDAGUR 22. JULI 1998
Helga í Seðlabankann
Nú eftir að ákveðið hefur verið
að ráða Friðrik Sophusson for-
stjóra Landsvirkjunar án þess að
auglýsa stöðuna þykir eðlilegt að
næst þegar ráðið
verður í einhverja
af æðstu stöðum
þjóðfélagsins verði
einhver framsókn-
armaður fyrir val-
inu. Eftir að
Steingrímur
Hermannsson
hætti sem seðla-
bankastjóri er
auðvitað allt annað fásinna en
að einhver annar framsóknarmað-
ur veröi fyrir valinu sem næsti
bankastjóri. Er talið nokkuð ör-
uggt að Helga Jónsdóttir borgar-
ritari og eiginkona Helga H. Jóns-
sonar, fráfarandi fréttastjóra,
muni fá að skipa næstu stöðu
seðlabankstjóra íslands...
Byltingin lifir
Á fóstudaginn hélt Ögmundur
Jónasson, alþingismaður og for-
maður BSRB, upp á fimmtugsaf-
mæli sitt með miklum mannfagn-
aði við hús sitt á
Grímshaga í
Reykjavík þar sem
slegið var upp
stóru veitinga-
tjaldi og vinir
hans fluttu hon-
um ræður og
söng. Ögmundur
hefur aldrei legið
á róttækum skoðun-
um sínum þó blessuð byltingin
sem margir hafa heðið eftir sé týnd
og tröllum gefm. Af því tilefni
færðu nokkrir vinir hans úr BSRB
honum fallegan bol. Á honum stóð
letrað stórum stöfum: Lifi bylting-
in - hvar í andsk. sem liún er ann-
ars niöur komin...
Herbert á fullu
Gamalkunnur poppari, Herbert
Guðmundsson, er fluttur aftur til
íslands frá Sviþjóð þar sem hann
rak meðal annars ísbúðir. Á sínum
tíma var hann ein af
sprautunum í
hljómsveitum á
borð við Eik,
Pelíkan og Tilveru
sem skallakynslóö-
in man vel eftir.
Seinna gaf hann
út sína eigin
diska og í haust
er von á safndiski frá
Herbert þar sem bestu lögin verða
tínd fram með einhverju nýju góð-
meti. Meðfram tónlistinni vinnur
Herbert sem sölu- og markaðsstjóri
hjá Kórand við að selja heimasíður
sem eru vistaðar hjá íslenskri
margmiðlun. En Herbert hefur
lengi komið nálægt sölustörfum og
er einhver harðasti sölumaður sem
Island hefur enn alið...
Samkeppni
Allt eins er gert ráð fyrir því að
samkeppnin á útvarpsmarkaðnum
fari harðnandi á næstu misserum.
Fínn miðill hf., sem rekur m.a. út-
varpsstöðvamar
FM957 og X-ið, hef-
ur gífurlega hlust-
un og viðtökurnar
við nýju útvarps-
stöðinni Gulli era
langtum betri en
menn áttu von á.
Sagnir herma að
Fínn miðill hafi
mikinn áhuga á því að koma af
stað dægurmálaútvarpi í beinni
samkeppni við Þjóðbraut Bylgj-
unnar og Dægurmálaútvarp Rásar
2. Er talið að Fínn miðill komi til
með að hefja undirbúning rásar-
innar þegar í haust svo Þjóðbraut-
armenn mega fara að vara sig, líka
Brynhildur Þórarinsdóttir sem
er víst langt frá því að vera V. Þór-
arinsdóttir eins og sagt var frá í
sandkorni í vikunni...
Umsjón Hjálmar Blöndal
Netfang: sandkom @ff. is
Fréttir
Landslið valið á Norðurlandamótið í hestaiþróttum:
Allir hestarnir að
láni erlendis frá
Sigurður Sæmundsson hefur skotið
saman landsliði fyrir Norðurlanda-
mótið sem verður haldið á Hedeland í
Danmörku i ágústbyrjun. í landslið-
inu er blanda reyndra knapa og ný-
liða en allir hestarnir koma að utan.
„Ég er hvergi banginn," segir Sig-
urður. „Það er alltaf erfitt ef ekki er
hægt að koma með hesta héðan en
þeir koma frá Svíþjóð og Þýskalandi.
Þórir Grétarsson er nýliði en hann
kemur frá Þýskalandi með skeiðhest-
inn Níels frá Árbæ sem er með
fremstu vekringum í Þýskalandi um
þessar mundir og hefur skeiðað 250
metrana á 21,9 sek. Hann keppir í 250
metra skeiði, gæðingaskeiði og 100
metra skeiði með fljúgandi skeiði,
sem er sýningargrein.
Hulda Gústafsdóttir hefur verið í
landsliði áður og kemur með stóð-
hestinn Hljóm frá Brún. Þau keppa í
fimmgangi, tölti og gæðingaskeiði.
Þeim hefur gengið mjög vel í Þýska-
landi í sumar og verið ofarlega á
sterkum mótum.
Einar Ö. Magnússon er eini knap-
inn sem kemur frá íslandi en hann
fær lánaðan stóðhestinn Segul frá
Skarði frá Sviþjóð. Þeir keppa í fimm-
gangi, tölti og gæðingaskeiði. Jóhann
G. Jóhannesson kemur frá Þýska-
landi með stóðhestinn Glað frá Hóla-
baki. Þeim hefur gengið mjög vel á
mótum í Þýskalandi í sumar og voru
stigahæstir nýlega á sterku móti. Þeir
keppa í tölti, fimmgangi, 250 metra
skeiði og gæðingaskeiði.
Reynir Ö. Pálmason er nýliði.
Hann kemur með Þráð frá Hvítár-
holti. Þar renni ég blint 1 sjóinn. Ég
sá þá á myndbandi og ætla að láta á
það reyna hvernig þeir standa sig.
Það verður að gefa nýjum knöpum
tækifæri til að sanna sig. Þeir keppa
í tölti og fjórgangi.
Rúna Einarsdóttir hefur verið að
gera góða hluti með hryssuna Snerpu
frá Reykjavík í fjórgangsgreinunum.
Ég var með þær í myndinni fyrir
heimsmeistaramótið í Noregi í fyrra
en fannst hryssan fullfrískleg en mér
er sagt að hún sé betri núna. Ég hef
miklar væntingar með þetta par.
Herbert Ólason kemur með
vekringinn Spútnik og keppir í 250
metra skeiði og gæðingaskeiði og
einnig 100 metra skeiðinu. Mér skilst
að Spútnik sé í ágætu formi um þess-
ar mundir.
Sigurður Heiðar Óskarsson kemur
með Kát frá Stördal í Þýskalandi og
keppir í tölti. Þeir hafa verið við topp-
inn í allt sumar og nartað í 1. sætið á
mótum í Þýskalandi. Þetta er huggu-
legur klár.
Einnig kemur til greina ungur
knapi, sem er með Eitil frá Akureyri
í skeiði, en það skýrist um næstu
helgi eftir mót sem haldið verður í
Þýskalandi. Ef þeir ná mjög góðum
tíma tek ég þá inn.
Ég hef rætt við fjölda manns um
þetta mót og þurfti að teygja mig víða
Hulda Gústafsdóttir kemur með stóðhestinn Hljóm frá Brún á Norðurlanda-
mótið. DV-mynd E.J.
en tel að við séum með góðan hóp
sem gæti staðið sig vel á Norður-
landamótinu. Vissulega erum við að
keppa við sterka andstæðinga og tel
ég Svíana mjög erfiða á fimmgangs-
vængnum og Danina á fjórgangs-
vængnum en þar er Jóhann Skúlason
með sterkan klár. Gull geta dreifst
viða á svona mótum og oft hefur sára-
litlu munað en ég fer rólegur út,“ seg-
ir Sigurður. Æskulýðsnefnd hefur
einnig valið fimm knapa á Norður-
landamótið. Þau era: Rakel Róberts-
dóttir (Geysi), Pála Hallgrímsdóttir
(Gusti), Dagný B. Gunnarsdóttir
(Létti), Sigurður Straumíjörð Pálsson
(Herði) og Ingunn B. Ingólfsdóttir
(Andvara). -EJ
Þaö rauk í tvígang sama daginn upp
úr jörðinni í Fossvogi eftir að bíræfnir
náungar höfðu kveikt í sinu í fyrradag.
Vítislogarnir náðu tökum á nokkrum
trjám og höfðu þar með örlög þeirra í
hendi sér. Slökkviliðiö og lögregla
komu á staöinn og reyndu að hafa
hemil á óvættinum. DV-mynd S.
Leiðrétting
Rangt var farið með upplýsingar
um styrkveitingar vegna byggingar
nýs skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
í Breiðuvík sem greint var frá í DV á
mánudag. Hið rétta er að Umhverfís-
sjóður verslunarinnar styrkti skála-
bygginguna um eina milljón króna og
Ferðamálasjóður styrkti byggingu
hreinlætishúss um 250 þúsund. Þá var
ekki rétt með farið að Þórhallur Þor-
steinsson sé formaður Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs. Hann er formaður
byggingamefndar Breiðuvíkurskála.
Þorlákshátíð í Skálholti:
Minning heilags Þorlaks heiðruð
Kaþólskir íslendingar héldu lands-
mót sitt í Biskupstungum um síðustu
helgi. í tengslum við mótið var hald-
in Þorlákshátíð í Skálholti í fyrsta
sinn. Hátíðin tengist Þorláksmessu á
sumri, en 800 ár eru liðin síðan helg-
ir dómar Þorláks biskups Þórhalls-
sonar voru skrinlagðir í Skálholti,
þann 20. júlí 1198.
Landsmótið hófst í Aratungu á
fóstudagskvöld með kvöldvöku við
varðeld. Á laugardag hófst dagskrá í
Við minnisvarða Jóns Arasonar. Sr. Jakob Rolland flytur bæn. Við hliö hans
er hr. Jóhannes Gijsen, biskup í Landakoti. DV-myndir SÁ
Skálholti með morgun-
bænum en að þeim
loknum fluttu fyrir-
lestra sr. Sæmundur
Vigfússon, Jón Böðv-
arsson og Kári Bjarna-
son. Eftir hádegið söng
herra Jóhannes Gij-
sen, biskup kaþólskra
íslendinga, hámessu í
Skálholtsdómkirkju,
en að henni lokinni
gengu prestar og
kirkjugestir í skrúð-
göngu að minnisvarða
um Jón Arason Hóla-
biskup í Skálholti. Á göngunni var
sungið kvæði Stefáns frá Hvítadal um
Þorlák biskup helga en við minnis-
varðann flutti sr. Jakob Rolland,
sóknarprestur í Landakoti, bæn.
Síðdegis á laugardag voru tónleik-
ar í Skálholtskirkju þar sem flutt
voru verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Einar Jóhannesson, Szymon Kuran
Prestar og kirkjugestir ganga úr Skálholtskirkju að
aftökustaö og minnisvarða Jóns Arasonar Hóla-
biskups. Fremstur fer Jóhannes Gijsen, biskup í
Landakoti.
og W.A. Mozart o.fl. Um kvöldið var
kvöldvaka í Aratungu sem haldin var
með þátttöku islenskra og erlendra
gesta á Þorlákshátíðinni. Að sögn sr.
Jakobs Rolland tókst hátíðin afar vel,
en auk íslendinga tóku allmargir er-
lendir ferðamenn þátt í henni, þeirra
á meðal stór hópur skáta frá Caén í
Frakklandi. -SÁ