Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
Útlönd
Friðarviðræður ísraelsmanna og Palstínumanna:
Palestínumenn gefa
sólarhringsfrest
ísrelsmenn áttu í gær þriðja fund
sinn með Palestínumönnum en
viðræður hafa staðið undanfarið.
Með viðræðunum vonast menn til
að hægt verði að komast að sam-
komulagi um öryggisgæslu og
landaafsal samkvæmt tillögu að
friðarsamkomulagi sem Bandaríkja-
menn hafa hannað.
Yasser Arafat, forseti heimastjórn-
ar Palestínumanna, sagði í gær að
samningamenn hans hefðu engar
nýjar fréttir að afloknum tveimur
samningafundum með ísraelsmönn-
um. Þegar Arafat var inntur eftir því
hvort einhver árangur hefði náðst á
fundum og/eða hvort ísraelsmenn
hefðu komið fram með eitthvað nýtt
þá neitaði hann þvi harðlega.
Nabil Abu Rdainah, helsti aðstoð-
armaður Arafats, sagði í samtali við
ijölmiðla í gær að Palestínumenn
væru reiðubúnir að halda viðræðum
með þessum hætti áfram í sólar-
hring, ekki lengur. Að því loknu
mundu Palestínumenn meta stöðuna
og gefa Bandaríkjamönnum skýrslu
ísraelskir lögreglumenn meö sérþjálfaöa hunda til aö leita aö sprengjum
ganga um Jerúsalem. Frá því bílasprengja sprakk í borginni á laugardag
hefur öryggisgæsla veriö hert til muna. Símamynd Reuter
um hvort ísraelsmenn neituðu enn
að ganga að kröfum þeirra.
Viðræður ísraelsmanna og Palest-
ínumanna snúast um þá hugmynd
Bandaríkjamanna að ísraelar láti
Palestínumönnum eftir 13% lands á
Vesturbakkanum gegn því að hinir
síðarnefndu herði öryggisgæslu
sina. Arafat er samþykkur þessum
tillögum en Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels, hefur
hingað til hafnað þeim.
Netanyahu hefur hins vegar boð-
ið Palestínumönnum að 3% af um-
ræddum 13% verði gerð að grænum
svæðum þar sem báðir aðilar heita
því að ráðast ekki í byggingarfram-
kvæmdir. ísraelskir fjölmiðlar telja
líklegt að Palestínumenn geti fallist
á þessa málamiðlun. Þá kom fram í
ísraelska dagblaðinu Maariv að
Israelsmenn væru tilbúnir að slaka
enn á kröfum sínum gegn því að
Arafat kallaði saman Þjóðarráð
Palestínu og á þeim fundi skyldi
ráðið fella úr gildi ákvæöi um að
ísrael skyldi lagt í rúst. Reuter
Fyrrum ungfrú heimur og núverandi frambjóöandi til embættis forseta Venesúela, Irene Saez, hefur ekki undan aö heilsa aödáendum sínum. Irene segist
vera fulltrúi barna og friöar í heiminum og þessi tvö málefni muni hún setja á oddinn nái hún kjöri í forsetakosningunum sem verða í desember á þessu ári.
Símamynd Reuter
Noregur:
Sex látnir
í sjóslysum
DV, Ósló:
Fimm menn drukknuðu þegar
bátskel sem þeir voru á hvolfdi
við Skjervey í Norður-Noregi í
fyrrinótt. Sex voru á bátnum og
komst einn af við illan leik.
Lögreglan telur að báturinn hafi
verið allt of lítill til að bera sex
menn og því hafi honum hvolft.
Veður var gott en enginn um borð
hafði á sér björgunarvesti.
Sömu nótt var báti siglt á sker
úti fyrir Hörðalandi í Suður-Nor-
egi. Þar fórst einn maður en fjór-
ir slösuðust alvarlega. Engin
björgunarvesti voru um borð i
bátnum.
Bæði slysin eru rakin til að-
gæsluleysis og er nú talað um að
skylda notkun björgunarvesta í
smábátum.
Líkin liggja eins og hrá-
viði í þorpum í Kosovo
Líkin liggja eins og hráviði um
allt í þeim þorpum Kosovohéraðs í
Serbíu sem hafa orðið verst úti í
bardögum aðskilnaðarsinna og
serbneskra öryggissveita, að því er
starfsmaður hjálparstofnunar í hér-
aðinu segir.
Margar fjölskyldur eru innilokað-
ar í hálfónýtum húsum og búa við
mjög þröngan kost, án rennandi
vatns og rafmagns.
„í þorpinu Prejlep er mikil eyði-
legging og mikill náfnykur. Hræ af
hestum og nautgripum liggja á göt-
um úti og rotna og okkur var sagt
frá líkum sem enginn hefði hirt,“
sagði maðurinn, sem alls ekki vill
láta nafns síns getið, í viðtali við
fréttamann Reuters.
Þessir íbúar Kosovohéraös sluppu lifandi frá átakasvæöunum nærri bænum
Orahovac þar sem aöskilnaöarsinnar berjast viö serbneskar sveitir.
Stuttar fréttir i>v
AIK á fullu í Nígeríu
Nígeríubúar búa sig nú sem óð-
ast undir að stofna nýja stjórn-
málaflokka fyrir þingkosningarn-
ar í maí á næsta ári.
Ekki sopið kálið
Háttsettur aðstoðarmaður
Keizos Obuchis, utanríkisráð-
herra Japans, sagði í morgun aö
likumar á að
ráðherrann
verði næsti for-
sætisráðherra
landsins væru
ekki jafn miklar
og Qölmiðlar
vilja vera láta.
Talað hefur ver-
ið um að Obuchi hafi svo gott sem
tryggt sér sigurinn í atkvæða-
greiðslu í stjómarflokknum á
föstudag.
Grafið og brennt
Björgunarsveitamenn í Papúu
Nýju-Gíneu kepptust í morgun
við að grafa eða brenna lík fóm-
arlamba flóðsins mikla sem reið
yfir norðurströnd landsins á
fóstudag. Þúsunda er enn saknað.
Efnahagslíf í lagi
Alan Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, gaf banda-
rísku efnahagslífi ágætiseinkun í
gær. Hann varaði þó við því að
aukin verðbólga og erfiðara efna-
hagsástand í Asíu gætu breytt öllu.
Sænskur raðmoröingi
Tuttugu og þriggja ára gamall
sænskur maöur, sem játað hefur
á sig þrjú morð, er ennfremur
grunaður um að hafa framið hið
fjórða. Þá er verið rannsaka hvort
hann hafi átt þátt í þremur morð-
um til viðbótar.
Gore í austurveg
A1 Gore, v£iraforseti Bandaríkj-
anna, heldur til Rússlands og
Úkraínu í næstu viku til að ræða
við þarlenda
ráðamenn um
efnahagsum-
bætur. Ástandið
í þeim málum
er ekki eins og
flestir hefðu
óskað sér. Þá
mun varaforset-
inn heimsækja Tsjernobýl kjam-
orkuverið.
Menem hættur við
Carlos Menem, forseti Argent-
ínu, tilkynnti í gær að hann
mundi ekki sækjast eftir forseta-
embættinu í þriðja sinn á næsta
ári. Tilburðir forsetans í þá átt
höfðu vakið litla hrifningu.
Lyfta fellur af háhýsi
Eldri kona lést og nokkrir slös-
uðust þegar vinnupallar og bygg-
ingalyfta féllu niður af háhýsi og
á Times-torgið I New York í gær.
Ekkert í fréttinni
Vamarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þess efnis að fréttaflutningur
CNN-sjónvarpsstöðvarinnar af
meintri eiturgasnotkun banda-
ríska hersins gegn liðhlaupum í
Víetnam sé ekki á rökum reist.
Sömu vandamál
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afriku, er í opinberri heimsókn í
Brasilíu. Hann sagði í gær að lönd-
in tvö ættu við
sömu vandamál
að glíma; fátækt
og félagslegt
ójöfnuð. Báðar
þjóðir þyrftu að
minnka bilið á
milli fátækra og
ríkra, skapa at-
vinnu og búa til velferðarþjóðfélag
sem allir gætu notið.
Enginn árangur enn
Samningaviðræður á milli Kaþ-
ólikka við Garvachygötu og Óran-
íumanna hafa enn engan árangur
borið. Samningamenn ræða saman
í gegnum þriðja aðila og eins og er
þá er ekki vitað hvenær næsti
fundur i deilunni verður haldinn.