Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
9
Utlönd
Æskuheimili Pauls McCartneys í Liverpool opnað almenningi:
Húsið þar sem
Bítlarnir urðu til
Æskuheimili Bítilsins Pauls
McCartneys, við Forthlingötu 20 í
Liverpool, verður opnað almenningi
þann 29. júlí næstkomandi.
McCartney bjó í húsinu á ung-
lingsárunum, nánar tiltekið á árun-
um 1955 til 1964 en þá flutti hann
ásamt fóður sínum og bróður í ann-
að húsnæði. Á þeim tíma var frægð-
arsól Bítlanna farin að skina og
erfítt að verjast æstum aðdáendum í
litla húsinu við Forthlingötu.
„Þetta er merkishús því hérna
varð til tónlist sem átti eftir að hafa
áhrif á milljónir manna um heim
allan,“ sagði Martin Drury, formað-
ur breska þjóðminjaráðsins, en ráð-
ið eyddi um fimm milljónum króna
í breytingar á húsinu. Þetta er í
fyrsta sinn sem breska þjóðminja-
ráðið kaupir og opnar
almenningi hús núlif-
anda einstaklings.
Paul McCartney kvað
vera mjög stoltur af
nýja safninu og hann
segir í kynningarbæk-
lingi um húsið að hann
sé viss um foreldrar
hans hefðu átt erfitt
með að trúa þessu. Hús-
ið sé hlaðið minningum
frá uppgangstímum
Bítlanna og hann hafi
átt margar góðar stund-
ir með vini sínum og fé-
laga, John Lennon, í
húsinu.
íhúsinu er að finna
fjöldann allan af ljós-
Forthlingata hefur lengi veriö vinsæl hjá feröamönnum sem
hingaö til hafa þó einungis getaö bariö húsiö augum utan frá.
Nú geta gamlir Bítlaaðdáendur skoöaö hvernig
innanstokksmuni McCartney-fjölskyldan haföi á heimili sínu.
myndum sem faðir
Pauls, Mike McCartn-
ey, tók á þeim tíma
þegar fjölskyldan bjó í
húsinu. Myndirnar
þykja góð heimild um
hvemig húsið leit út að
innan á árum áður en
þeir feðgar, Paul og
Mike, unnu náið með
starfsmönnum hins
nýja safns.
Safnstjómin býst við
miklum mannfjölda og
hefur þegar verið
tilkynnt að sökum
smæðar hússins verði
fólk að panta skoð-
unarferðir fyrirfram.
Reuter
Dægrastytting
en ekki vændi
Kanadísk svipukona segir að
kynlífsleikirnir sem hún bjóði
viðskiptavinum sínum séu aðeins
upplyfting en ekki vændi.
Konan er nú fyrir rétti í
Toronto, ákærð fyrir að selja
blíðu sína. Ef blíðu skyldi kalla
því kona þessi er þekkt undir
nafninu Madame de Sade í heimi
þeirra sem stunda sadómasókískt
kynlíf.
Leki til fjölmiðla
í máli Clintons
kannaður
Kenneth Starr, sérlegur sak-
sóknari sem rannsakar meint
kynlífshneyksli Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, reyndi í gær
að fá áfrýjunarrétt til að hnekkja
úrskurði dómstóls um að hann
léti lögmönnum forsetans í té
ákveðin gögn sem þeir óskuðu eft-
ir. Lögmenn forsetans ætla að
reyna að sanna að starfsmenn
Starrs hafi á ólögmætan hátt gef-
ið fréttamönnum leynilegar upp-
lýsingar um gang rannsóknarinn-
ar fyrir ákærukviðdómi.
Auk Starrs voru í réttinum lög-
menn bæði Clintons og Monicu
Lewinsky, fyrrum lærlingsins í
Hvita húsinu sem forsetinn er
sagður hafa átt í ástarsambandi
við.
Heimildarmenn segja aö Starr
hafi farið fram á að fá frest til að
fara að úrskurðinum.
Barnaskóútsala
smáskór
í bláu húsi v/Fákafen • sími 568-3919
^úðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl.
T
..og ýmsir fylgihlutir
psf>
skiou
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
leto) stfeátta
..meo skátum á heimavelli
síml 562 1390 • fax 552 6377
Hitabylgjur stíga upp úr jöröinni í Washington DC borg í Bandaríkjunum en ekkert lát er á hitabylgjunni þar í landi
og hafa tugir manna látiö lífiö vegna óbærilegs hitans. Reiknað er meö aö hitinn veröi nálægt fjörutíu stigum í dag.
Símamynd Reuter
Krókur á móti bragði í Lockerbiemálinu:
Bandaríkin íhuga
réttarhöld í Hollandi
Bandarfsk stjómvöld komu með
nýtt útspil í gær í deilu sinni við lí-
býsk stjórnvöld vegna sprengjutil-
ræðisins yfir Lockerbie í Skotlandi
og sögðust vera aö skoða hvort hægt
væri að rétta í málinu i Hollandi.
Tveir líbýskir menn eru grunaðir
um að hafa sprengt flugvél Pan Am
í loft upp yfir skoska bænum árið
1988. Tvö hundruð og sjötíu létu líf-
ið í tilræðinu.
Líbýumenn stungu upp á sömu
lausn fyrir mörgum árum en bæði
Bandaríkjamenn og Bretar tóku til-
lögunni fálega. Sameinuðu þjóðim-
ar beita Libýu nú refsiaðgerðum
þar sem stjómvöld þar neita að
framselja mennina tvo.
Bandaríkjamenn hafa sem sé
Madeleine Aibright, utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna.
skipt um skoðun en bresk stjóm-
völd sögðu i gær að þau héldu enn í
þá kröfu að réttarhöldin yfir mönn-
unum fæm fram annað hvort í
Skotlandi eða Bandaríkjunum.
Það vora Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, og
Sandi Berger, þjóðaröryggisráögjafi
Bills Clintons Bandarikjaforseta,
sem lögðu fram tillöguna á fundi
með ættingjum fómarlamba Locker-
bies-tilræðisins.
Clinton sagði að þessu nýja út-
spili væri ætlaö að koma hinum
grunuðu undir manna hendur svo
rétta mætti yfir þeim. Clinton bætti
því þó við að ekki væri ljóst hvort
hægt væri að flytja réttarhöldin til
þriðja lands.
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Skeiðarvogur - Miklabraut,
gatnamót, breyting á aðalskipulagi.
Auglýst er tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykja-
víkur 1996-2016, þar sem athafnasvæði og almennu
útivistarsvæði er breytt í veghelgunarsvæði, skv. 18 gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Kynningin fer
fram í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00 - 16:15 og
stendur til 21. ágúst 1998.
Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar
kynningar, ef einhverjar eru, skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 4. september
1998.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Borgarskipulag Reykjavíkur