Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 Spurningin Hvað borðar þú fisk oft í viku? Kristína Jensen verkakona: Um þrisvar sinnum. Kári Sverrisson verslunarmaöur: Einu sinni í viku. Jóna Diljá Jóhannsdóttir, tveggja ára: Hún borðar ekki fisk. En hún ætlar að gera það í framtíðinni ef amma hennar fær að ráða. Hanna Níelsdóttir skrifstofu- stjóri: Tvisvar í viku. Steinunn Jóhannsdóttir: Einu sinni í viku. Hjördís G. Thors húsmóðir, nemi og tvíburaamma: Þrisvar sinnum í viku. Lesendur VW-bjallan er komin aftur Skarphéðinn Einarsson skrifar: Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem les dagblöð, íslensk og erlend, að gamla góða VW-bjallan er nú komin á almennan markað í Bandaríkjunum. En Islendingar þurfa að bíða í eitt ár þar til þeir verða fáanlegir í Þýskalandi. Að vísu voru flutt inn nokkur eintök af umboðinu frá Bandaríkjunum sem keypt voru af þarlendum bílasölum. Margir eiga góðar minningar um bjölluna hér á landi sem annars stað- ar. Sagan segir að þegar hún hafi fyrst verið kynnt í Bandaríkjunum eftir stríð 1948 hafi kanar fengið taugaáfall er þeir litu gripinn enda vanir stórum köggum er einkenndu bandarískan bílaiðnað eftirstríðsár- anna. En þær hrakspár sem bjallan fékk þar í landi áttu eftir að breytast og sagt er að 2 milljónir bíla hafl selst þar þegar framleiðslu var hætt 1976. En minningin um bjölluna lifir og nú er hún komin aftur. Ég er viss um að hún mun slá í gegn enn á ný Hin nýja VW-bjalla, en bréfritari hvetur bílainnflytjendur til að flytja hana inn sem allra fyrst. um allan heim og færa VW-verk- smiðjunum fúlgur fjár. Ég skora á þá mörgu aðila sem fást við innflutning á bílum frá Bandaríkjunum að bjóða þennan bíl hér á landi sem allra fyrst. Það er víst að hann mun ekki rykfalla í geymslum skipafélaganna. Sigríður fer hvergi Eyjólfur Eysteinsson, stjómar- maður kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins í Reykjaneskjör- dæmi, skrifar: Ég tel rétt að taka fram vegna skrifa um Sigríði Jóhannesdóttur, þingmann Alþýðubandalagsins á Reykjanesi, í Sandkomsdálki blaðs- ins á dögunum, að það stendur ekki til að skipta um þingmann í Reykja- neskjördæmi. Sigríður tókst á hendur erfitt hlutverk þegar hún gekk inn í störf fráfarandi þing- manns, Ólafs Ragnars Grímssonar, en hún hefur leyst þau af stakri prýði. Almennt ríkir mikil ánægja með störf þingmannsins, sem með- al annars sat i fjárlaganefnd, erflð- ustu þingnefndinni, og stóð sig þar mjög vel eins og hennar er von og vísa. í dálki blaðsins er á meiðandi hátt vísað til þess sem óumdeildra sanninda að það hafi verið ákveðið að skipta henni út og ákveðnir ein- staklingar nefndir sem hugsanlegir fulltrúar. Það eru tiltölulega ný vinnubrögð í pólitík að framtíð stjórnmálamanna sé ákveðin í kaffistofum fjölmiðlanna og störf þess sama fólks séu að engu gerð ef hagsmunir þess skarast við þá sem taka þátt í því kaffiboði hverju sinni. Sigriður hefur sem þingmað- ur lagt áherslu á lýðræðisleg vinnu- brögð og í krafti þess studdi hún sameiningartillögu Margrétar Frí- mannsdóttur á landsfundinum, ásamt viðauka sem miðaði að því að ná sáttum milli stríðandi afla í flokknum. Þingmaðurinn gekk enda ekki gruflandi að því að sterk- ur stuðningur var við tillöguna i kjördæminu. í „fréttinni" er það þó talið henni til lasts að hafa ekki básúnað þessa afstöðu sína, en til þess er henni flokkurinn of mikil- vægur ög fólkið sem innan hans starfar. Það eru umbrotatímar á vinstri væng stjómmálanna og því er það mikilvægt að þeir sem hafa valist til trúnaðarstarfa komi fram af heilindum og drengskap svo að þær hugsjónir sem hafa lengst af verið aðalsmerki vinstri hreyfing- arinnar glatist ekki í atinu. Það hef- ur Sigríður gert og mættu fleiri taka sér hana til fyrirmyndar. Af hverju sleppa bankastjórarnir? Hrafn Hauksson skrifar: Ég var að hlusta á pistil Illuga Jökulssonar í útvarpinu í morgun þar sem fjallað var um ókeypis lax- veiði bankastjóra. Ég verð að játa að óneitanlega fór margt um huga mér meðan á lestrinum stóð. Niður- staöa mín er að lögin gildi ekki fyr- ir alla. Sumir sleppa en aðrir ekki. Ég á vin sem í vetur var dæmdur fyrir að veita öðrum kjaftshögg. Það var vissulega ekki til eftirbreytni. Báðum þótti okkur þó sektardómur- inn nokkuð þungur. En þessi vinur minn borgaði sína sekt og þakkaði bara fyrir að hún var ekki hærri. En nú er komið að tilefni þessara skrifa. Hefði hann sloppið við sektina ef yHIG^OM þjónusta allari sólarhringii I sima 5000 milli kl. 14 og 16 Sólon Sigurösson er einn bankastjóranna sem bréfrit- ari telur að hafi komið betur út úr „laxveiöimálunum" en þeir hafi átt skilið. hann hefði sagt að hann vissi ekki að hann væri að gera rangt? Að mál- ið hefði verið mis- skilningur af hans hálfu og hann lof- aði að gera þetta aldrei aftur? Er það svona sem verjendur framtíð- arinnar eiga að meðhöndla sín mál? Hann vissi ekki að hann væri að gera neitt rangt og er alveg til í að þetta verði rann- sakað. Er það svona sem saka- mál framtíðarinn- ar verða afgreidd? Við þessu væri gott að fá einhver svör frá einhverju ráðuneytanna því þar virðast menn á sama máli, að glæpur sé ekki sama og glæpur. Er í lagi að stela bara sjónvarpinu en láta græjurnar vera? Er í lagi að fara í óleyfilega laxveiði á kostnað almennings en lögbrot að stela úr búð? Fókus flottur Vinkonur skrifa: Við viljum þakka fyrir Fókus sem DV er farið að gefa út fyrir ungt fólk. Það er mjög gott. Það mætti samt vera meira um fot og tísku, sérstaklega unglingatisku. Það mætti líka skrifa um ýmis- legt sem kemur ungu fólki við, eins og af hverju það eru engir skemmtistaðir fyrir okkur. Ung- lingar og ungt fólk verða alltaf útundan í öllum fjölmiðlum. Fókus er flottastur! Umhverfi Seltjarnarness Sveinn K. hringdi: „Um daginn hringdi skokkari og hrósaði Seltjamarnesbæ fyrir að hafa lagt malbikaðan stíg með fram sjónum sem menn geta gengið eða skokkað. Þetta er gott og blessað. En ég held að viðkomandi lesandi hafi verið heldur fljótur á sér að hrósa bæjaryfirvöldum á Seltjarnar- nesi fyrir framlag til umhverfis- mála. Hvað blasir við þar sem stígnum sleppir? Vegur sem liggur með fram ströndinni alla leið út í Gróttu. Skokkarinn hef- ur greinilega verið svo upptek- inn við að hlaúpa að hann hefur ekki tekið eftir að þessi vegur, sem bæjaryfirvöld bera ábyrgð á, eyðileggur þessa fallegu strandlengju algerlega. Hann er algjör hneisa." Hávaði á Hverfisgötu Vestfirðingur hringdi: „Ég hef um skeið búið á Hverf- isgötunni í Reykjavík. Þegar um- ferðinni loksins léttir á kvöldin glymur samt hávaöinn úr stræt- isvögnunum langt fram yfir mið- nætti. Fyrir ofan mig býr síðan maður sem greinilega er með klassíska tónlist á heilanum. Hann spilar fram á nótt með græjurnar stilltar á fullu. Beet- hoven er ágætur í bland við glymjandann í strætó en þetta er orðin afar óheppileg blanda sem erfitt er að sofna við. Menn ættu að taka meira tillit til nágranna sinna og SVR ætti að hafa í huga að borgarbúar þurfa að sofa.“ Konur taka yfir M.Hj. hringdi: „Nú er ung kona nýlega orðin formaður Prestafélags íslands. Konur eru líka að sækja á innan kirkjunnar og orðnar prestar mjög víða. Ég held að þetta sé góö þróun. Þær eru afar vel fallnar til að hugga þá sem eiga í erfiðleikum. Þær eru líka ekki eins líklegar til að standa í deil- um til að ota sínum tota heldur vinna meira í kyrrþey. Ég tek líka eftir því aö deilumar sem hafa sett svip sinn á þjóökirkj- una eru miklu minni núna en fyrir örfáum misserum. Kanski verður þessi jákvæða þróun til aö þeim fækki sem segja sig úr kirkjunni." Áhyggjur Sverris Helga Jónsdóttir hringdi: Hvað er eiginlega að gerast í pólitikiimi? í gær heyrði ég frétt- ir af því að Sverrir Hennanns- son hefði verið á fundi hjá ungu alþýðubandalagsfólki. Ekki kem- ur mér við með hverjum það ágæta fólk heldur fundi en ég hefði þó haldið aö það gæti fund- ið sér heppilegri fundargest. Mig rak þó fyrst í rogastans að heyra að Sverrir varaði þetta unga fólk viö að fórna hugsjónum í utan- ríkispólitíkinni. Síðan hvenær var Sverrir á móti Nató? Eru engin takmörk fyrir því sem tækifærissinnaðir stjómmála- menn segja til að ganga í augun á þeim sem þeir eru að tala við í það og það sinn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.