Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Qupperneq 14
14
35
4-
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
MIÐVTKUDAGUR 22. JULI 1998
íþróttir
Iþróttir
Golf:
Bæjar-
stjórinn
vann eftir
umspil
Guöjón Karl Þórisson bar sigur
úr býtum í meistaramóti Golf-
klúbbs Borgamess. Hann lék á
314 höggum en annar varð Guð-
mundur Daníelsson á 323 högg-
um og þriðji Stefán Haraldsson á
330 höggum.
í 1. flokki kvenna sigraði Þuríð-
ur Jóhannsdóttir og lék á 379
höggum. Önnur varð Júlíana
Jónsdóttir á 411 höggum. Berg-
sveinn Símonarson sigraði í 1.
flokki, lék á 355 höggum.
Óskar Pálsson sigraði í meist-
araflokki hjá Golfkiúbbi Hellu,
lék á 303 höggum. Ólafur Stolz-
envald kom næstur á 318 högg-
um og þriöji varð Þórir Braga-
son á 336 höggum.
i kvennaflokki sigraði Sigríður
Hannesdóttir á 388 höggum.
Önnur varð Sólveig Stolzenwald
á 414 höggum og þriðja Auður
Kristjánsdóttir á 530 höggum.
Guðmundur Ingvi Einarsson
varð meistari í meistaraflokki
hjá Golfklúbbi Sauðárkróks, lék
á 319 höggum. Óli B. Reynisson
varð annar á 320 höggum og Ein-
ar Haukur Óskarsson þriðji á
323 höggum.
Halla Björk Erlendsdóttir sigr-
aði í kvennaflokki á Sauðár-
króki á 340 höggum. Ámý Lilja
Árnadóttir varð önnur á 350
höggum og Sesselja Barðdal
þriðja á 387 höggum.
ivar Hauksson sigraði í meist-
araflokki karla á meistaramóti
GKG, lék á 293 höggum. Ottó Sig-
urðsson varð annar á 295 högg-
um og Svanþór Laxdal þriðji á
306 höggum.
Sigrún Ragnarsdóttir sigraði í 1.
flokki kvenna og lék á 363 högg-
um.
Ottó Sigurösson setti glæsilegt
vallarmet hjá GKG er hann lék á
67 höggum. Kristinn G. Bjama-
son, GR, átti eldra metið en það
var 70 högg.
Þóröur Emil Ólafsson komst í
hann krappan hjá Golfklúbbnum
Leyni á Akranesi. Honum tókst
þó að verja titil sinn frá í fyrra
og lék á 301 höggi.
Annar varö Ingi Rúnar Gísla-
son á 302 höggum og þriðji Helgi
Dan Steinsson á 305 höggum.
Þaö bar til tíöinda í 3. flokki
karla hjá Leyni að bæjarstjórinn
á Akranesi, hinn lipri íþrótta-
maður Gísli Gíslason, sigraði eft-
ir umspil og lék á 361 höggi.
Arna Magnúsdóttir bar sigur úr
býtum hjá Leyni í kvennaflokki.
Hún lék á 342 höggum og vann
með miklum yfirburðum.
Svanhildur Thorstensen varð
önnur á 407 höggum og Sigríður
Yngvadóttir hafnaði í þriðja sæti
og lék á 417 höggum.
Sigurður Óskarsson sigraði í 1.
flokki hjá Golfklúbbi Dalvíkur,
lék á 341 höggi.
Dóra Kristinsdóttir lék best í 1.
flokki kvenna en hún kom inn á
363 höggum. -SK
Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna:
„Verðum að
góðum úrslitum"
- lA mætir Zalgiris í UEFA-bikarnum á Akranesi í kvöld
Júgóslavi i Stjörnuna
Knattspymulið Stjömunnar hefur fengið liðsstyrk frá Júgóslavíu.
Sasa Tagi, 24 ára leikmaður frá 2. deildar liðinu Sindelik, kom til Stjöm-
unnar í fyrradag og leikur með liðinu í 1. deildinni út tímabilið. Að sögn
Garðbæinga hafa þeir þegar hug á að semja við Tagi til þriggja ára. Hann
er marksækinn miðjumaður og ætti að hressa upp á sóknarleik Stjöm-
unnar sem hefúr verið helsta vandamál liðsins tÚ þessa í sumar.
-VS
Skagamenn era að hefja Evrópu-
vertið sjötta árið í röð. Þeir mæta
Zalgiris Viinius frá Litháen í for-
keppni UEFA-bikarsins á Akranes-
velli kl. 20 í kvöld og þurfa nauðsyn-
lega á sigri að halda til að eiga mögu-
leika á að komast áfram. Þetta er í
fyrsta skipti sem lið frá íslandi og
Litháen mætast í Evrópukeppni í
knattspymu.
„Það er ljóst að ef við ætlum okkur
eitthvað í þessari keppni veröum við
að ná góðum úrslitum hér á heima-
velli,“ sagði Logi ólafsson, þjálfari
Skagamanna, í samtali við DV í gær-
kvöld.
„Það þýðir þó ekki að við munum
vaða á þá í ógáti. Við verðum að taka
okkar tíma í að þreifa á Litháunum
og kanna styrkleika þeirra,“ sagði
Logi.
Ungir og frískir strákar
Lið Zalgiris æfði á Akranesvelli í
gærkvöld og Logi fylgdist dálítið með
þeim þar.
„Þetta eru ungir og frískir strákar
og flestir hávaxnir. Meðalaldurinn í
liðinu er ekki nema í kringum 21 ár.
Þeir hafa flestailir spilað landsleiki á
einhverjum stigum og kjölfestan í lið-
inu er vamarmaðurinn Taraskinas,
Logi Ólafsson teflir fram sinu sterk-
asta liöi í kvöld.
sem er mjög sterkur
og öflugur leikmaður,"
sagði þjálfarinn enn
fremur.
Allir heilir hjá IA
Logi sagði að ekki væri
um nein meiðsli að ræða í
sínum leikmannahópi og allir
væm tilbúnir í slaginn. Skaga-
menn hafa verið á mikilli siglingu á
Islandsmótinu að undanfórnu og
þurfa að halda áfram á þeirri braut
til að eiga möguleika á að halda
áfram í keppninni. -VS
Bergþóra Laxdal sést
hér í baráttu viö einn
varnarmann Fjölnis.
Bergþóra kom
Valsstúlkum á bragðið
í leiknum en alls
skoraði Valur 8 mörk í
leiknum.
DV-mynd Teitur
Margréti ráð-
lagt að hætta
vegna meiðsla
Lykilmaður ÍA í kvennaknattspymunni undanfarinn áratug, Margrét Ákadótt-
ir, þarf líklega að leggja skóna á hilluna af læknisráði.
Hné hennar er mjög illa farið af langvinnum meiðslum og er nú svo komið að
gengið hefur á bijóskið og hafa læknar því
ráðlægt Margréti að hætta iðkun knatt-
spymu. Margrét hefúr þó ekki gefið upp
alla von og í samtali við DV í gær sagði
hún að hún væri búin að afskrifa þetta
sumar en ætlaði jafnvel að fóma hnénu
eitt ár í viðbót á næsta sumri.
Þetta er mikil blóðtaka fyrir kvennafót-
boltann en auk þess að leiða lið sitt
hefur Margrét spilað með íslenska
landsliðinu og er þetta því einnig
missir á þeim vígstöðvum. -ih
Zalgiris Vilnius mætir IA á Akranesi í kvöld:
Stórveldi í Litháen rM
- og sterkt félag á lokaskeiði Sovétríkjanna ^
Skagamenn eiga erfitt verkefni
fyrir höndum i kvöld þegar þeir
taka á móti Zalgiris Vilnius frá Lit-
háen í forkeppni UEFA-bikarsins.
Þetta er fyrri leikur félaganna en
sá síðari verður í Vilnius næsta
miðvikudag.
Zalgiris hefur verið í fremstu
röð í Litháen síðan sjálfstæð
deildakeppni var tekin upp í land-
inu árið 1991. Frá þeim tíma hefur
það yfirleitt verið í baráttu um
titla og hefur orðið meistari tvíveg-
is og fjórum sinnum bikarmeistari.
Tvö undanfarin ár hefúr Zalgiris
endað í öðru sæti 1. deildar og þátt-
taka í Evrópukeppni hefur veriö
árlegiu- viðburður hjá félaginu.
Ofarlega í sovésku
deildinni
Zalgiris var stofnað árið 1947 og
var öflugasta félag Litháens þegar
landið tiiheyrði Sovétríkjunum.
Það lék í sovésku 1. deildinni frá
1983 til 1990 og komst tvö síðustu
árin í Evrópukeppni.
Frá árinu 1992 hefúr Zalgiris
ávallt komist í Evrópukeppni. Þrí-
vegis hefur liðið verið slegið út í
fyrstu umferð og þrívegis í annarri
umferð, ávallt mjög naumlega.
Sterk lið hafa verið þar á ferð, Fey-
enoord, Trabzonspor og Aberdeen.
Slegiö út í framlengingu
í fyrra lék Zalgiris við Hapoel
Beer-Sheva frá ísrael og var óhepp-
ið að komast ekki áfram. Eftir tvö
0-0 jafntefli tapaði liðið, 2-1,1 fram-
lengingu í ísrael þrátt fýrir að vera
sterkari aöilinn.
Lykilmaður í liði Zalgiris er
vamarmaðurinn Andrius Teres-
kinas. Hann er leikjahæsti lands-
liðsmaður Litháens frá því landið
fékk sjálfstæði og spilaði báða leik-
ina gegn íslandi í undankeppni
HM. Tereskinas er 28 ára og lék
áður með CSKAMoskva í Rúss-
landi.
DeOdakeppnin í Litháen er ný-
hafin og Zalgiris hefúr aðeins spÚ-
að einn leik. Það var gegn meistur-
um Kareda á útivelli og lauk hon-
um með 0-0 jafntefli. -VS
Sex Litháanna
léku hér á landi
í fyrrasumar #
Lið Zalgiris Vilnius sem mætir
ÍA í UEFA-bikamum á Akranesi í
kvöld er með sex leikmenn innan-
borðs sem kannast við aðsíæður
hér á landi.
Andrejus Tereskinas lék
með A-landsliði Litháa
sem gerði 0-0 jafntefli
við ísland í und-
ankeppni HM á Laug-
ardalsvellinum í
fyrra.
Þá em í liði Zalgiris
fimm leikmanna 21-árs
landsliðs Litháens sem
sigraði ísland, 2-0, i Evrópukeppninni á Kapla-
krikavelli í sömu ferð. Þar á meðal em báðir
markaskoraramir í þeim leik, Nerijus Vasili-
auskas og Vidas Kauspadas. -VS
BShfei,
Bland í polca
Davíð Ján Rikharðsson sigraði í krónu-
flokki í rallíkrossi sem fram fór um liðna
helgi. Nafn hans misritaðist í DV á mánu-
dag og er beðist velvirðingar á mistökun-
um.
Breskir dómarar dæma báða leiki ÍBV
við Obilic frá Júgóslavíu í meistaradeild
Evrópu í knattspymu. Peter Jones frá
Englandi dæmir fyrri leikinn sem fer
fram í Belgrad í dag og þann síöari dæm-
ir John Rowbotham frá Skotlandi.
Charles Schaack frá Lúxemborg dæmir
leik ÍA og Zalgiris Vilnius frá Litháen í
UEFA-bikamum í knattspymu sem fram
fer á Akranesi í kvöld. Seinni leikinn í
Vilnius dæmir Nikolas Daina frá Sviss.
Jan Ullrich frá Þýskalandi er kominn í
forystuhlutverkið í Tour de France hjól-
reiðakeppninni eftir 11 keppnisdaga.
Hann náði í gær 78 sekúndna forskoti á
næsta mann, Bobby Julich frá Bandaríkj-
unum. Bestum tíma dagsins náði hins
vegar Rodolfo Massi frá Ítalíu. Þessa dag-
ana er hjólað í Pyreneafjöllunum.
-SK/VS
Handknattleikur:
Blandað lið
til Japans
Karlalandsliðið í handknattleik
fór í gær til Japans þar sem það tek-
ur þátt í alþjóðlegu móti sem hefst á
föstudag í Hiroshima.
Þátttökulið eru ísland, Japan,
Kína og 23-ára lið Japans.
Þorbjöm Jensson landsliðsþjálf-
ari fór með blandað liö í þessa lang-
ferð. Nokkra reynda leikmenn og
aðra með litla reynslu.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Reynir Þór Reynisson, KA
Elvar Guðmundsson, FH.
Aðrir leikmenn:
Njörður Ámason, Fram
Björgvin Björgvinsson, Fram
Daði Hafþórsson, Dormagen
Júlíus Jónasson, St. Otmar
Konráð Olavsson, Stjömunni
Ragnar Óskarsson, ÍR
Róbert Sighvatsson, Dormagen
Sigfús Sigurðsson, Cantabria
Gunnar Berg Viktorsson, Fram
Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu.
Fyrsti leikurinn er gegn 23-ára
liði Japans á föstudag. Síðan er leik-
ið við Kínverja á laugardag og loks
við Japani á sunnudag. Heimamenn
gera greinilega ráð fyrir því að það
verði úrslitaieikur mótsins.
-VS
Eyjamenn á Eurosport
Seinni hálfleikur fyrri leiks Eyjamanna og júgóslavnesku meistaranna
Obilic í meistaradeild Evrópu í knattspymu verður sýndur beint á
Eurosport í dag klukkan 16.00. Mikið er í húfi fyrir liðin að komast áfram
enda er það þegar Ijóst að það lið sem kemst áfram mætir Bayem
Múnchen í næstu umferð. -ÓÓJ
Ragnar Óskarsson, ÍR-ingurinn efnilegi, er í íslenska
landsliöinu sem fór til Japans í gær.
Mussayev
kemur til
ÍA í dag
Ruslan Mussayev, knatt-
spyrnumaður frá Azerbaijan, er
væntanlegur í herbúðir Skaga-
manna í dag. Hann kemur til
þeirra á leigu frá Flora Tallinn i
Eistlandi, liðinu sem Skagamað-
urinn Teitur Þórðarson þjálfar.
Mussayev fetar því í fótspor
landa síns, Zaur Tagizade, sem
kom tU ÍA frá Flora fyrr í sumar
en hvarf á braut eftir einn leik
og var rekinn frá Flora eftir að
hafa neitað að fara aftur til ís-
lands.
Varnarmaöur eöa
sóknarmaöur?
í stuttu viðtali á heimasíðu
knattspymuáhugamanns í Azer-
baijan segir Mussayev að hann
heföi fyrst og fremst leikið sem
varnarmaður með Lelle, varaliði
Flora Tallinn, sem einnig spilar
í efstu deildinni í Eistlandi. Logi
Ólafsson, þjálfari ÍA, segir hins
vegar að Mussayev sé fenginn
sem sóknarmaður. -VS
Tottenham er tilbúið að kaupa
Argentínumanninn Mauricio Tarr-
icco frá Ipswich. Kaupverðið verður
nálægt tveimur milljónum punda.
Jose-Luis Chilavert, hinn litríki
markvörður Paraguay, er æfur út i
félag sitt, Velez Sarsfield frá
Argentinu. Forráðamenn Velez hafa
neitað Chilavert mn aö fara til enska
félagsins Liverpool sem vildi fá hann
i sínar raðir.
Chilavert vildi ólmur komast til
Englands og er nú farinn í verkfall.
Hann segist ekki æfa með Velez fyrr
en félagið geri upp skuldir sínar við
sig.
Daley Thompson, þrefaldur Ólym-
píumeistari í tugþraut, hefur verið
með leikmenn Wimbledon í sérstakri
meðferð undanfamar tvær vikur.
Thompson var falið að koma leik-
mönnum liðsins í æfingu og stóðu
æfingamar i allt að íjóra tíma á dag.
Gátu sumir leikmannanna varla
gengið eftir fyrstu dagana.
Jimmy Floyd Hasselbaink hjá Leeds
og Samassi Abou hjá West Ham vora
í gær úrskurðaðir i eins leiks bann í
úrvalsdeildinni. Það er vegna synda i
lok síðasta tímabils og þeir missa þvi
af opnunarleikjum sinna liða.
Vidar Riseth, norskur leikmaður hjá
LASK í Austurríki, er eftirsóttur í
Englandi. Coventry, Derby, West
Ham og Southampton eru öll á
höttunum á eftir pilti. -SK/VS
Einvigi KR
og Vals um
íslandsmeistara-
titil kvenna í
knattspymu hefúr nú
snúist upp í baráttu um
betri markatölu. Bæði lið
blésu til sóknar I gær og skor-
uðu samtals 15 mörk gegn and-
stæðingum sínum. Nú munar 3
stigum og einu marki á lið-
unum. Valur er yfir á
stigum en KR á marka-
tölu.
Sjö mörk Vals í fyrri hálf-
leik
Vcdsstúlkur unnu 8-0 sigur á
Fjölni á Hiíðarenda en sjö af
mörkunum komu i fyrri hálfleik
þar sem Valsstúlkur settu á svið
stórskotahríð að marki Fjölnis.
Ásgerður Ingibergsdóttir gerði
fhnm mörk og þær Bergþóra
Laxdal, Laufey Ólafsdóttir og
Rósa Steinþórsdóttir eitt mark
hver. Mark Laufeyjar var glæsi-
legt, beint úr aukaspymu. Valur
lék án fjögurra fastamanna en
þær Bima Bjömsdóttir, Hjördís
Símonardóttir, Hildur Guðjóns-
dóttir og Rakel Logadóttir vora
ekki með.
Marka
stríð
15 mörk Vals og KR í baráttu um betri markatölu
Olga komin meö 14 mörk
KR-stúlkur unnu 7-0 sigur á Haukum á
Ásvöllum. Olga Færseth gerði fimm mörk
og Ásthildur Helgadóttir hin tvö. Olga hefur
nú skorað 14 mörk í 8 leikjum og er marka-
hæst í meistaradeild kvenna en Olga og Ást-
hildur hafa gert 22 af mörkum KR í sumar.
Bikarkæru svaraö
Eyjastúlkur létu Stjömustúlkur fá að
5 mork Asgerðar
Valsstúlkan Ásgeröur Ingibergs-
dóttir skoraði 5 mörk í gær gegn
Fjölni, þar af 4 f fyrri hálfleik.
5 mörk Olgu
Olga Færseth úr KR skoraði sína
þriðju þrennu í sumar og bætti við
tveimur mörkum að auki.
kenna á því er þær unnu 6-1 stórsigur á
stúlkunum í Garðabæ úti í Eyjum. ÍBV
haföi mikla yfirburði en þetta var annar sig-
ur liðsins á Stjömunni á einni viku. ÍBV sló
Stjömuna út úr bikamum en Stjarnan
kærði leikinn og vinnur næsta ömgglega þá
kæru. Þetta höföu Eyjastúlkur eflaust í
huga því þær yfirspiluðu Stjömuna lengst-
um. Þess má geta að Stjaman vann fyrri
leikinn í deildinni, 5-1. Hjördís Halldórs-
dóttir og Olga Stefánsdóttir skoruðu tvö
mörk hvor, Bryndís Jó-
hannesdóttir og íris
Sæmundsdóttir eitt en
Rósa Dögg Jónsdóttir
svaraði fyrir Stjömuna.
Olga Stefánsdóttir kom
inn á í hálfleik og átti
stórleik ásamt Svíanum
Önnu Rentsheer.
Markverðir í aöal-
hlutverki
Að lokum tryggði Sigríð-
ur Þorláksdóttir Breiða-
bliki 1-0 sigur á ÍA í
Kópavoginum. Leikurinn
var frekar tíðandalítill og
það vora helst markverð-
irnir sem voru í aðhlut-
verki í Kópavognum og
þá aðallega Dúfa Ás-
bjömsdóttir markvörður
ÍA. -ÓÓJ/ÓG/i
m ÚRVALSD. KV.
Valur 8 8 0 0 36-6 24
KR 8 7 0 1 34-3 21
Breiðablik 8 5 1 2 19-9 16
ÍBV 8 3 1 4 17-20 10
Stjarnan 8 3 1 4 14-17 10
Fjölnir 8 2 0 6 3-29 6
ÍA 8 1 2 5 7-16 5
Haukar 8 0 1 7 2-32 1
Markahæstar:
Olga Færseth, KR .................14
Laufey Ólafsdóttir, Val ..........11
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val ... 11
Ásthildur Helgadóttir, KR..........8
Helena Ólafsdóttir, KR ............7
Bergþóra Laxdal, Val ..............6
Kristrún Daðadóttir, Breiðabliki .. 6
Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki .. 5
Ekeren frá Belgíu sigraði
Sarajevo frá Bosniu, 4-1, I
fyrri leik liðanna í forkeppni
UEFA-bikarsins í knattspymu
í gærkvöld.
Sarajevo er fyrsti fulltrúi
Bosníu sem tekur þátt i Evr-
ópumótum félagsliða. Félagið
lék síðast í Evrópukeppni
fyrir 13 ár-
um, þá sem
meistari
gömlu Júgó-
slavíu.
Zoran Ljubicic, leikmaður
Grindavikur, var þá að hefja
sinn feril hjá Sarajevo en hann
spilaði með félaginu í mörg ár
í júgóslavnesku 1. deildinni.
Michael Johnson frá Banda-
ríkjunum náði i nótt besta
tíma ársins í heiminum í 400
metra hlaupi. Hann sigraði á
43,76 sekúndum í greininni á
Friðarleikunum í New York.
DeDee Nathan frá Bandaríkj-
unum er með forystu í sjö-
þraut kvenna eftir fyrri keppn-
isdag greinaritmar á Friðar-
leikunum. Hún er með 3.867
stig en Jackie Joyner-Kersee,
landi hennar, er næst með
3.833 stig.
Jackie
Joyner-
Kersee,
sem
hættir eftir þetta
tímabil, á sex bestu afrekin
sem unnin hafa verið i sjö-
þraut í heiminum frá upphafi.
Rússar féllu út úr körfuknatt-
leikskeppni leikanna í nótt
þegar þeir töpuðu fyrir Arg-
entínu, 69-65.
Maurice Greene frá Banda-
ríkjunum vann góðan sigur í
100 m hlaupi karla í nótt á 9,96
sekúndum.
-ÓÓJ/VS
X'^3. DEIID KARLA
D-riðill:
Hvöt-Nökkvi.....................4-1
Magni-Neisti, H.................3-0
Magni 8 7 1 0 26-9 22
Hvöt 8 6 1 1 23-5 19
Neisti, H. 8 2 15 13-17 7
Nökkvi 8 2 15 10-17 7
HSÞ, b 8 1 0 7 8-32 3
Magnifrá Grenivik tryggði sér sæti
i úrslitakeppninni með þessum sigri
og Hvöt þarf aðeins eitt stig til
viðbótar til að fara líka í úrslitin.
Gisli Torfi Gunnarsson skoraöi
þrennu fyrir Hvöt gegn Nökkva.
Hann hefur skorað í öllum átta leikj-
um Blönduóssliðsins í deildinni í
sumar og er búinn aö gera 14 af 23
mörkum liðsins í heild.
fr_