Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
^92
Afmæli
Ingvar J. Helgason
Ingvar Júlíus Helgason forstjóri,
Vonarlandi við Sogaveg, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ingvar fæddist að Vífílsstöðum og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Samvinnuskólanum í Reykjavík
1948.
Ingvar hóf þá störf hjá Helga
Lárussyni frá Klaustri, sem rak
Packard-umboðið, Fataverksmiðj-
una Sunnu og sá um útgáfu tímarits
Jónasar Jónssonar, Ófeigur. Hann
starfaði siðan hjá Innkaupastofnun-
ar rikisins 1951-60.
Ingvar sneri sér alfarið að rekstri
eigin fyrirtækis, Ingvars Helgason-
ar hf., árið 1960 sem þá flutti inn
leikföng og gjafavöru og seldi í
heildsölu. Fyrirtækið hóf síðar inn-
flutning og sölu bifreiða, þ.á m.
Trabant, Wartburg, Nissan og
Subaru. Einnig flytur fyrirtækið
inn landbúnaðarvélar og tæki, þ.á
m. Massey Ferguson dráttarvélar,
Linde lyftara, Claas heyvinnutæki,
Kverneland hey- og jarðvinnslutæki
o.m.fl.
Árið 1993 stofnaði Ingvar og fjöl-
skylda fyrirtækið Bílheima ehf. sem
flytur inn Opel, Isuzu, Saab og GM
bifreiðar. IngVcir Helga-
son hf. og Bílheimar ehf.
eru í sameiningu stærstu
fyrirtæki i bifreiðainn-
flutningi á íslandi.
Ingvar var meðal stofn-
enda Junior Chamber á
íslandi og var fyrsti for-
seti sambandsins 1960-61.
Hann átti sæti í stjórn
Bílgreinasambandsins
1984-88.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 13.11.
1948 Sigríði Guðmundsdóttur, f.
19.6. 1926, forstjóra Bjarkeyjar ehf.
Hún er dóttir Guðmundar Ágústs
Jónssonar og Elisabetar Einarsdótt-
ur.
Börn Ingvars og Sigríðar eru
Helgi, f. 9.4. 1949, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Sigríði Gylfadóttur
og eiga þau eitt barn; Guðmundur
Ágúst, f. 13.4. 1950, framkvæmda-
stjóri og formaður HSf, kvæntur
Guðríði Stefánsdóttur og eiga þau
þrjú böm; Júlíus Vífill, f. 18.6. 1951,
framkvæmdastjóri og borgarfull-
trúi, kvæntur Svanhildi Blöndal og
eiga þau fjögur börn; Júlía Guðrún,
f. 7.8.1952, kennari, gift Markúsi K.
Möller og eiga þau þrjú böm; Ás-
laug Helga, f. 21.6. 1954,
kennari og á hún þijú
börn; Guðrún, f. 20.7.
1955, sölustjóri Bjarkeyj-
ar ehf., gift Jóhanni G.
Guðjónssyni og eiga þau
þrjú börn; Elísabet, f.
20.7. 1955 d. 24.6. 1958; El-
ísabet, f. 5.9. 1957, fram-
kvæmdastjóri Bjarkeyjar
ehf., gift Gunnari Hauks-
syni og eiga þau þrjú
börn; Ingvar, f. 5.6. 1960,
læknir, kvæntur Helgu
H. Þorleifsdóttur og eiga
þau íjögur börn.
Systkini Ingvars: dr. Guðrún
Pálína, f. 19.4. 1922, fyrrv. skóla-
stjóri; dr. Láms Jakob, f. 10.9. 1930,
yfirlæknir; Sigurður, f. 27.8. 1931, d.
26.5.1998, fyrrv. sýslumaður á Seyð-
isfirði; Júlíus f. 24.12. 1936, d. 27.2.
1937; Júlía, f. 14.7. 1940, d. 17.6. 1950.
Foreldrar Ingvars voru dr. Helgi
Ingvarsson, f. 10.10. 1896, d. 14.4.
1980, yfirlæknir á Vífilsstöðum, og
k.h., Guðrún Lárusdóttir, f. 17.3.
1895, d. 4.3. 1981, húsmóðir.
Ætt
Systur Helga voru Ingunn, amma
Vigfúsar Ingvarssonar, pr. á Egils-
stöðum, og Soffia, borgarfulltrúi i
Reykjavík, amma Sveinbjarnar I.
Baldvinssonar rithöfundar. Helgi
var sonur Ingvars, pr. á Skeggja-
stöðum, Nikulássonar. Móðir Ingv-
ars var Oddný, systir Jóns, langafa
Jónatans, föður Halldórs, forstjóra
Landsvirkjunar. Oddný var dóttir
Jóns dýrðarsöngs í Haukatungu,
Pálssonar.
Móðir Helga yfirlæknis var Júlía,
systir Páls á Þingskálum, afa Magn-
úsar Kjaran stórkaupmanns, föður
Birgis alþm. Júlía var einnig systir
Jóns, afa Jóns Helgasonar, skálds og
prófessors. Júlía var dóttir Guð-
mundar, ættföður Keldnaættarinn-
ar, Brynjólfssonar, b. á Vestri-
Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Árbæ,
Bjarnasonar, ættföður Víkingslækj-
arættarinnar, Halldórssonar.
Guðrún Lárusdóttir var systir
Páls, föður Lárusar leikara. Guðrún
var dóttir Lámsar, smáskammta-
læknis í Reykjavík, Pálssonar, b. í
Arnardrangi í Landbroti, Jónsson-
ar, pr. á Kálfafelli, Jónssonar. Móð-
ir Páls var Guðný Jónsdóttir eld-
prests, Steingrímssonar.
Móðir Guðrúnar Lárusdóttur var
Guðrún Þórðardóttir frá Höfða á
Vatnsleysuströnd. Móðir Guðrúnar
var Sesselja Þórðcirdóttir.
Ingvar Júlíus
Helgason.
Sævar Jónsson
Sævar Jónsson kaupmaður, Súlu-
nesi 16, Garðabæ, er fertugur í dag.
>Starfsferill
Sævar fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Víghólaskóla í Kópa-
vogi.
Sævar stcirfaði við verslun föður
sins frá tólf ára aldri. Hann festi
kaup á versluninni Kosta Boda 1985,
stofnaði verslunina Leopold 1991 og
hóf rekstur þriggja verslana í Leifs-
stöð á þessu ári.
Sævar er í hóp þekktari knatt-
spymumanna hér á landi á siðari
ámm. Hann æföi og keppti í knatt-
spymu með öllum yngri flokkum
Vals, hefúr orðið íslandsmeistari
með öllum flokkum félagsins og þ.á
m. fjórum sinnum með meistara-
tflokki Vals, 1978, 1980, 1985 og 1987,
varð bikarmeistari með liðinu 1988,
1990, 1991 og 1992, lék sextíu og niu
A-landsleiki fyrir íslands hönd á ár-
unum 1979-93 og lék fimmtán lands-
leiki með unglingalandsliðinu 21
árs og yngri.
Sævar stundaði atvinnuknatt-
spymu frá 1981 með Cercle Bmgge í
Belgíu, frá 1985 með Brann Bergen
í Noregi og frá 1988 með Solothum í
Sviss.
Fjölskylda
Kona Sævars er Helga Daníels-
dóttir, f. 10.4.1966, verslunarmaður.
Hún er dóttir Daníels Emilssonar,
húsgagnasmiðs í Reykjavík, og
Ernu Þórarinsdóttur kennara en
þau hafa auk þess verið hótelstjórar
við Hótel Eddu á Laugarvatni sl.
þrjátíu og fimm ár.
Sonur Sævars frá fyrra hjóna-
bandi er Andri Pétur Sævarsson, f.
18.4. 1983.
Böm Sævars og Helgu em ísa-
bella Erna Sævarsdóttir, f. 27.6.
1994; Gabríela Rut Sævarsdóttir, f.
30.5. 1996; Daníela Sara Sævarsdótt-
ir, f. 5.12. 1997.
Systkini Sævars em Guðný Rut
Jónsdóttir, f. 15.12. 1950, leikskóla-
kennari, en maður hennar er Lárus
Valberg offsetfiölritari; Ólafur
Haukur Jónsson, f. 20.4. 1953, fram-
kvæmdastjóri Samlífs, en kona
hans er Inga Lára Helgadóttir leik-
skólakennari.
Foreldrar Sævars eru Jón Þórar-
insson, f. 28.12. 1926, fyrrv. kaup-
maður i Vörðufelli, búsettur í Kópa-
vogi, og Guðlaug Ólafs-
dóttir, f. 9.2. 1928, fyrrv.
verslunarmaður.
Ætt
Jón er sonur Þórarins,
kennara við Austurbæj-
arskólann í Reykjavík,
Einarssonar, b. á Hauka-
bergi á Barðaströnd,
Guðmundssonar, b. í
Hvammi á Barðaströnd,
Jónssonar. Móðir Þórar-
ins var Jarþrúður Guð-
mundsdóttir, b. á Amórsstöðum á
Barðaströnd, Jónssonar.
Móðir Jóns kaupmanns var Guð-
ný Jónsdóttir, b. á Eyri í Gufudals-
sveit, Amfinnssonar og Elinar Guð-
mundsdóttur.
Guðlaug er dóttir Ólafs, b. á Efri-
Brúnastöðum á Skeiðum, Gestsson-
ar, b. á Húsatóftum, Eyjólfssonar.
Móðir Ólafs var Guðlaug Ólafsdótt-
ir, b. í Eystra-Geldingaholti, bróður
Sigríðar, langömmu Ingigerðar,
móður Guðrúnar Helgadóttur rit-
höfundar. Ólafur var einnig bróðir
Margrétar, móður Brynjólfs Jóns-
sonar á Minna-Núpi. Ólafur var son-
ur Jóns, b. á Baugsstöðum Einars-
sonar. Móðir Guðlaugar
var Gróa Jónsdóttir, b. á
Hrygg í Flóa, Einarssonar,
og Guðlaugar Helgadóttur,
systur Bjama, langafa
Guðbjarna, föður Sig-
mundar, fyrrv. rektors HÍ.
Móðir Guðlaugar var Sig-
riður, systir Ólafs, b. í
Eystra-Geldingaholti, föð-
ur Jóns, b. þar. Sigríður
var dóttir Jóns, b. í
Eystra-Geldingaholti,
bróður Guðlaugar á
Húsatóftum. Móðir Sig-
ríðar Vcir Ingunn, hálfsystir Vigdís-
ar í Miðdal, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur og Errós. Ingunn
var dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ,
bróður Elínar, langömmu Sigur-
geirs Guðmannssonar, fram-
kvæmdastjóra ÍBR. Eiríkur var son-
ur Hafliða, b. á Birnustöðum, Þor-
kelssonar, og Vigdísar Einarsdótt-
ur. Móðir Ingunnar var Ingveldur
Ófeigsdóttir, ríka á Fjalli og ættföð-
ur Fjallsættarinnar, Vigfússonar,
bróður Sólveigar, langömmu Guð-
nýjar, föður Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Móðir Ingveldar var
Ingunn Eiriksdóttir, ættföður
Reykjaættarinnar, Vigfússonar.
Sævar Jónsson.
Guðmundur S. Guðjónsson
Guðmundur Sævar
Guðjónsson, trésmiður
og vörubílstjóri, Kríu-
bakka 4, Bíldudal, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á
Patreksfirði og ólst þar
upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá
Héraðsskólanum á Núpi
1964, stundaði nám við
Jðnskólann á Patreks-
firði, lærði trésmíði, lauk
sveinsprófi í þeirri grein og öðlaðist
síðan meistararéttindi.
Guðmundur hefur lengst af og
einkum unnið við trésmíðar og
vörubílaakstur.
Guðmundur er formaður sjálf-
stæðisfélags Amarfiarðar, var for-
maður fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Barða-
strandarsýslu 1984-87, sat
í stjórn kjördæmisráðs
sjálfstæðisfélaganna á
Vestfiörðum 1983-69 og
formaður þess 1987-89,
hefur setið í héraðsnefnd
Vestur-Barðastrandar-
sýslu, situr nú í stjóm
sjálfstæðisfélags Arnfirð-
inga, sat í hreppsnefnd
Bíldudalshrepps í tólf ár
og var oddviti hennar síð-
ustu fiögur árin fyrir
sameiningu hreppanna í
Vesturbyggð.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 26.10. 1969
Sigríði Bjamadóttur, f. 2.10. 1949,
húsmóður. Hún er dóttir Bjama
Hannessonar, f. 30.5. 1912, d. 6.3.
1968, og Vigdísar Finnbogadóttur, f.
25.8. 1925, bænda á Litlu-Eyri í
Bíldudal.
Böm Guðmundar og Sigríðar eru
Vignir Bjarni Guðmundsson, f. 30.7.
1969, vélstjóri á Patreksfirði, en
kona hans er Margrét Guðmunds-
dóttir og er stjúpsonur hans Sindri
Kristjánsson; Gyða Guðmundsdótt-
ir, f. 27.8. 1974, nemi við KHÍ, búsett
í Reykjavík en maður hennar er
Þorleifur Örn Bjömsson; Ásdís Snót
Guðmundsdóttir, f. 3.11. 1975, nemi,
búsett í Bíldudal en dóttir hennar er
Viktoría Lif, f. 9.12. 1997.
Systkini Guðmundar eru Krist-
inn Jóhannes Guðjónsson, f. 1.1.
1946, starfsmaður Samskipa, búsett-
ur í Reykjavík; Sigurberg Guðjóns-
son, f. 11.3.1947, lögmaður í Reykja-
vík; Ólafur Grétar Guðjónsson, f.
7.9. 1953, kælitæknir og einn eig-
enda fyrirtækisins GÁ Kuldi ehf,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar: Guðjón
Guðbjartsson, f. 15.5. 1916, d. 12.11.
1993, sjómaður og starfsmaður
Áburðarverksmiðju ríkisins, og
Gyða Jóhannesdóttir, f. 1.11. 1922,
húsmóðir.
Ætt
Guðjón var sonur Guðbjarts Þor-
grímssonar, b. á Látrum, og Guð-
mundínu Ólafsdóttur, b. á Stökkum,
Ólafssonar, Gunnarssonar.
Gyða er dóttir Jóhannesar, b. í
Tálknafirði, og Kristínar Ólafs-
dóttur.
Guðmundur tekur á móti gestum
í félagsheimilinu Baldurshaga
laugardaginn 25.7. nk. milli kl. 19.00
og 22.00.
Guömundur Sævar
Guöjónsson.
Til hamingju
með afmælið
22. júlí
80 ára
Ása Jónsdóttir,
Lindargötu 57, Reykjavík.
Friðgerður
Finnbj ömsdóttir,
Birkiteigi 13, Keflavík.
Jóhanna Guðmiuidsdóttir,
Hátúni 10, Vík.
75 ára
Helga Þorsteinsdóttir,
Ljósheimum 12, Reykjavík.
Inga Jóhanna Ólafsdóttir,
Kópavogsbraut 86, Kópavogi.
Sigurður H. Þórðarson,
Árskógum 8, Reykjavík.
Skúli Magnússon,
Miðtúni 12, Selfossi.
70 ára
Héðinn Baldvinsson,
Ægisgötu 14, Ólafsfirði.
Ingólfur Jónsson,
Helgamagrastræti 53,
Akureyri
Kristinn Sigurðsson,
Svalbarði 8, Hafnarfirði.
60 ára
Bjöm Jónsson,
Álfsstöðum, Skeiðahreppi.
Hann er að heiman.
Anna Edvardsdóttir,
Hrafnabjörgum 3,
Egilsstöðum.
Þónum Á. Sigmjónsdóttir,
Frostaskjóli 11, Reykjavík.
50 ára
Ásta Sigurðardóttir,
Kjarrhólma 4, Kópavogi.
Bjami S. Ásgeirsson,
Álfabergi 22, Hafnarfirði.
Guðjón Smári Agnarsson,
Borgargerði 18, Stöðvarfirði.
Guðmundur Kristinn
Ólafsson,
Vallarhúsum 11, Reykjavík.
Guðrún Kristmimdsdóttir,
Víðihlíð 13, Sauðárkróki.
Gunnhildur A. Fannberg,
Garðastræti 2, Reykjavík.
Sigríður Jakobsdóttir,
Fífuseli 16, Reykjavík.
Sigurður A. Guðmundsson,
Brautarholti 20, Ólafsvík.
Þónrnn Halldórsdóttir,
Sólhlíð 4, Vestmannaeyjum.
40 ára
Anna Rósa Njálsdóttir,
Vættaborgum 72, Reykjavík.
Finnur Jón Nikulásson,
Rauöási 17, Reykjavik.
Guðbjörg Sigurveig
Birgisdóttir,
YrsufeUi 11, Reykjavik.
Heiðar Rafn Sverrisson,
Sléttahrauni 30, Hafnarfirði.
Hlíf Garðarsdóttir,
Hesthömrum 16, Reykjavík.
Kristján Valgeirsson,
Djúpavogi 24, Höfnum.
Gullbrúðkaup
Hjónin Árni Helgason og Anna
Hafliðadóttir frá Neðri-Tungu, Ör-
lygshöfn í Rauðasandshreppi, eiga
fimmtíu ára hjúskaparafmæli laug-
ardaginn 25.7. nk.
Af því tilefni taka þau á móti
gestum í Víkingasal Hótel Loftleiða
á guUbrúðkaupsdaginn kl. 15.00.
Þau vonast tU að sjá sem flesta
vini og ættingja.