Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 Fréttir Mikil fjörumengun viö Húnaflóa: Olíðandi sóða- skapur skipshafna - segir Elínborg Oddsdóttir - kálhöfuð og ílát undan mjólkurvörum meðal rekans DV, Hólmavik: „Við sem búum hér höf- um nú ýmsu kynnst um dagana og marga óvenju- lega sendinguna fengið hér á fjörurnar, en að fá heilu kálhöfuöin og ílát undan mjólkurvörum og vatni frá löndum í Suður-Evrópu er með því sjaldgæfara sem rekið hefur á fjörur hér,“ segir Elínborg Oddsdóttir, húsfreyja á Grund í Kirkju- bólshreppi, en í hafáttinni sem verið hefur viðvarandi hér um slóðir í um tvo mán- uði hefur talsverður reki verið. Timbrið bæöi stórt og smátt er það sem venjuleg- ast er að straumar og hafátt beri upp að ströndinni og er alltaf vel þegið, öðru máli gegnir um það sem áhafnir skipa fleygja í hafið, eins og veiðarfæri og plastefni margs konar. Heimilisfólk á Grund hef- ur í áratugi tekið allt tii handagagns sem á fjörumar hefur komið og hefur aldrei látið við sitja að hirða að- eins um það nýtilega, voru þau langt á undan öðrum í þeim efnum. Elinborg segir að nokkuð hafi dregið úr Alls kyns drasl frá skipum rekur á fjörur Strandamanna. Elínborg með sýnishorn. DV-mynd Guðfinnur sóðaskapnum á fjörunum fyrir nokkrum árum, á meðan mest var talað um bætta umgengni við hafið og skipshafhir voru hvatt- ar til að koma með allt rusl til hafnar, en á allra síðustu misserum hefur allt verið að fara á sama veg og áður, sóðaskapur og kæruleysi sjófarenda er komið í fyrra horf. Óneitanlega liggi áhafii- ir erlendra skipa undir grun þegar mikið berst af umbúðum með útlendum merkingum eins og gerst hafi í sumar í ríkara mæli en fyrr. Elínborg segir lík- legt að erfitt eða ógerlegt sé að hafa uppi á þeim sem spjöllunum Vcddi því óvíða sé auðveldara fýrir hina óábyrgu að fela sig í ann- arra skjóli en óneitanlega eigi þeir, sem annt er um að hreinlega sé gengið bæði um land og haf, ým- islegt ósagt við hina kæru- lausu sjófarendur „því sóðaskapurinn er að verða alveg ólíðandi meö öllu,“ segir Elínborg Oddsdóttir á Grund í Kirkjubóls- hreppi. -Guðfhuiur íslensk erfðagreining nýtir sér almannatengslafyrirtæki í Bandaríkjunum: Á að tryggja jákvæða fjölmiðlaumfjöllun - ekki ljóst hvort bandaríska fyrirtækið hefur starfað á íslandi „Ég get persónulega ekki svarað því hvort við höfum séð um al- mannatengsl fyrir deCode á Islandi. Það fer eftir aðstæðum hverju sinni hvort við sjáum um almannatengsl í heimalandi fyrirtækja eða einunigs í Bandaríkjunum," sagði Emie Kniwitz, starfsmaður bandaríska al- mannatengslafyrirtækisins Noon- an/Russo Communications, sem undanfarið hefúr séð um almanna- tengsl fyrir deCode og íslenska erfðagreiningu ehf. Kniwitz kvaðst aðspurður um málið ekki vera þess fullviss hversu lengi fyrirtækið hefði haft umsjón með almanna- tengslum fyrir deCode en taldi hins vegar aö þaö væri um það bil ár. Fyrirtækið Noonan/Russo Communications sérhæfir sig meðal annars í því að tryggja viðskiptavin- um sínum stöðuga og jákvæða fjöl- miðlaumfjöllun, að því er fram kem- ur í kynningu fyrirtækisins á þjón- ustu sinni. Þar segir einnig að fyrir- tækið sjái viðskiptavinum sínum fyrir reglulegri umfjöllun í stórblöð- um á borð við Newsweek, Wall Street Joumal og Forbes, en allir þessir fjölmiölar hafa fjallað um starfsemi Islenskrar erfðagreining- ar. -kjart Forseti á biskupsstóli Það hlaut að koma að því að Ólafur Ragn- ar Grímsson kæmi róti á samfélagið af hinum tigna stóli á Bessastöð- um. Eftir því hafa menn beðið allt frá því að hann var kosinn í hið virðulega embætti fyrir tveimur áram. Ólafur var nefnilega enginn venjulegur póli- tíkus áður en hann klæddist þjóðhöfðingja- kápunni heldur einn kjaftforasti og bar- dagaglaðasti þingmað- urinn. Þar stóðu hon- um helst jafnfætis Dav- íð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin hefur verið mýldur í Was- hington og má ekkert segja. Sama héldu menn um Ólaf Ragnar á Bessastöðum eftir þögn í þessi tvö ár. Þá er ekki talið með þegar forsetinn gat ekki orða bundist á óvegum Barðastrandarsýslu þá er hann sótti Vestfirðinga heim. Vegurinn var nánast ókeyrandi og aðeins mjúkri fjöörun for- seta-Benzans að þakka að sæmilega fór um far- þegana þá er ekið var yfir grjót og ruðninga. Ýmsum fannst óviðeigandi að forsetinn væri að skipta sér af vegagerð vestra en aðrir töldu orðin tímabær, ekki síst Barðstendingar. Orð forseta urðu enda til þess að bætt var úr ófremdarástand- inu. Þeir sem harðast studdu Ólaf Ragnar hafa leng- ið beðið eftir því að hann tæki á alvörumáli á for- setastóli i stað þess að halda embættinu stein- geldu eins og það var orðið. Þeim hefur orðið að ósk sinni. Ólafur Ragnar situr á sögufrægum stað á Bessastöðum en nýtti sér annan og jafnvel enn frægari stað í sögu okkar íslendinga, sjálft bisk- upssetrið á Hólum í Hjaltadal, til þess að koma boðskapnum á framfæri. Hinn vopnfimi forseti valdi sér engan aukvisa í skylmingamar heldur þann Islending sem mestum óróa hefur valdið í samfélaginu undanfama mánuði, erfðafræðisér- fræðinginn Kára Stefánsson. Kári varð þjóðkunnur á því andartaki er hann tilkynnti að hann ætlaði sér að selja úr okkur genin fyrir milljarða. Hann fékk ekki minni mann en forsætisráðherrann sjálfan til þess að votta söluna til svissnesks lyfjarisa. Engum hcifði fyrr dottið í hug að gera peninga úr ættfræði- áhuga landans, hvað þá söfnun lífssýna svokall- aðra. Það þurfti lika ævintýramann til þess að láta sér detta í hug að selja ræktaöar vörtur geng- inna forfeðra okkar. Vörtumar, og önnur lífs- sýni, vom ekki talin fimm aura virði. Saklausum sálum þótti þetta því þjóðráð og fógnuðu Kára sem kraftaverkamanni. En Adam var ekki lengi í paradís og fleiri vildu Lilju kveðið hafa. Fleiri læknar vildu græða en Kári Stefánsson og hyggjast því keppa við hann um vörtumar og hin lífssýnin. Aðrir óttast að upplýsingar um viðkvæma sjúkdóma og leyndar syndir leki út. Kári á því orðið marga andskota en lætur þó ekki sinn hlut. Hann má þó taka á öllu sínu í viðureign sinni við þann nýjasta, hinn vigfima forseta á Bessastöðum. Á kannski eftir að reyna á neitunarvald forset- ans? Dagfari. Stuttar fréttir i>v Hækkandi gengi Gengi á hlutabréfum Opinna kerfa hf. hækkaði enn á Verðbréfa- þingi íslands í viðskiptum í morgun úr 58,50 í 60. Gengi bréfanna var 33,70 í ársbyijun, að teknu tilliti til jöfnunar. Álls námu viðskipti með bréfin í morgun á níundu milljón króna. Viðskiptavefúr Vísis greindi frá. Japanir aft veiðum Fimm japönsk túnfiskveiðiskip eru nú að veiðum djúpt suður af landinu rétt innan við 200 mílna fiskveiðilögsöguna, samkvæmt heimildum íslenskra stjómvalda við netfréttir Morgunblaðsins. Fjöldauppsagnir Formaður Sambands ís- lenskra banka- manna, Friðbert Traustason, ótt- ast að um tvö hundruð starfs- menn íslands- banka og Búnaö- arbanka missi vinnuna verði bank- amir sameinaðir. Hann minnir á að frá 1990 hafi bankamönnum fækkað um 700. Bylgjan sagði frá. Neyðarþjónustu hætt Þýsk eftirhtsskip hafa hætt allri neyðarþjónustu við fiskiskip. Þessa þjónustu veittu þau árum saman út- gerðarfyrirtækjunum að kostnaðar- lausu. Bylgjan sagöi frá. Þingforseti kominn Toomas Savi, forseti eistneska þingsins, kom í opinbera heimsókn til Islands í gær í boði Ólafs G. Ein- arssonar, forseta Alþingis. Toomas Savi og eiginkona hans dvelja hér til 21. ágúst. Tal fær leyfi Póst- og fjar- skiptastofhun gaf í gær út rekstrar- leyfi til Tals hf. Samkvæmt því hefur fyrirtækið leyfi til að starf- rækja GSM 1800 símaþjónustu. Fyrir hafði Tal leyfi til að reka GSM 900 símkerfi. Forsijóri Tals er Þórólfúr Ámason. Fullur á rútu Lögreglan á Húsavík tók á laugardag sl. ökumann hópferðabíls grunaðan um ölvun við akstur. Henni höfðu borist ábendingar um að maðurinn hefði verið að staupa sig og stöðvaði bílinn í Kelduhverfi. Öndunarsýni leiddi í ljós að áfengis- magn í blóði mannsins var talsvert yfir leyfilegum mörkum. 12 franskir ferðamenn vom í hópferðabílnum og sá lögreglan um að koma þeim í náttstað. RÚV sagði frá, Frakki flýtti sér Lögreglan í Reykjavík stöðvaði franskan ökumann í fyrrinótt á Suð- urlandsvegi. Hann ók á 150 km hraða og fær ekki að aka meira í bráö. RÚV sagði frá. Valiö um trú Karl Sigm-- bjömsson, biskup íslands, segir ís- lendinga nú í fyrsta sinn í þús- und ár standa frammi fyrir raunverulegu vali mihi heiðni og kristinnar trúar. RÚV sagði frá. Valhöll í vanda Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ákveður í dag hvort Hótel Valhöh á Þingvöhum fær mánaðarfrest tU að gera úrbætur i frárennslismálum eða hvort hótelinu verður lokað. RÚV sagði frá. Hæöarmælingar Unnið hefur verið að því að hæð- armæla landið undanfarin ár í sam- starfi Vegageröar, Landmælinga, Orkustofnunar og Landsvirkjunar. Markmiðið er að koma á fót sam- ræmdu landshæðarkerfi. Hið nýja samræmda kerfi tryggir að aUir þeir sem þurfa á hæöarmælingu að halda vegna mannvirkjagerðar, brú- arsmíði, vegalagningar og annars geta gengið að fostum hæðarpunkt- um visum. „sÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.