Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 7 Fréttir Vilhjálmur á þing Meðal nýrra manna sem hafa hug á að verða í öruggu sæti á lista Sjálfstæöisflokksins við þingkosningamar í vor er Vil- hjálmur Þ. Vil- hjálmsson borg- arfulltrúi. Hann er einn reynd- asti sveitar- stjórnarmaður flokksins, hef- ur verið sterk- ur foi-maður Sambands ís- lenskra sveit- arfélaga og gert þá stöðu nánast að ígildi ráð- herrastóls. Þó hann sé í minni- hluta í borginni er hann samt talinn þriðji valdamesti borgar- fúlltrúinn, á eftir þeim Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur og Alfreð Þorsteinssyni. Þó minnkandi líkur séu á prófkjöri er hann talinn öruggur um gott sæti... Svanur heitur Einn af þeim sem hafa hug á að spreyta sig í prófkjöri um sameinaðan lista vinstrimanna í Reykjavík er Svanur Krist- jánsson, prófess- or viö félagsvís- indadeild Há- skólans. Hann hefúr um árabil barist fyrir sameiningu vinstrimanna og tilheyrir Þjóðlífshópn- um svokallaða sem hefur sterk tengsl í báðum A-flokkunum. Meðal þess sem Svanur hefur sér til ágætis er að starfsbróðir hans, Hannes Hólmsteinn Gissur- arson, er með Svan á perunni og getur helst ekki skrifað bók án þess að geta hans með nokk- urri ógleði... Hægri hönd borgarstjórans Mörgum kom á óvart þegar allaballinn Ámi Þór Sigurðs- son var ráðinn til að aðstoða borgarstjóra eftir að Kristin Ámadóttir fór í ársfrí, ekki síst keppinaut hans, Helga Hjörvar. Árni Þór hefur verið orðaður við prófkjör um sæti á þinglista sam- eínaðs fram- boðs í höfuð- borginni þar sem ýms- ir vilja líka sjá Helga. Tilvon- andi forseta borgarstjómar létt- ir því líklega aö lesa hér að í kafiistofu Ráðhússins segja menn fullum fetum að áður en Ámi Þór var ráðinn hafi hon- um verið sett það skilyrði að hann færi ekki í þingframboð... Smásögur Eldjárns Einn besti rithöfundur þjóð- arinnar, Þórarinn Eldjárn, hefur nú flutt sig til Vöku- Helgafells. Fyrir ekki margt löngu gaf hann út bókina Brota- höfuð sem byggði á örlög- um íslensks gáfudrengs sem lenti í dýflissum Dana í Höfn. Þórarinn er iðinn viö kolann og um næstu jól er von á smásagna- safni af hans hendi sem Vaka- Helgafell gefur að sjálfsögðu út Umsjón Kjartan Björgvinsson Netfaiig: sandkom @ff. is Hvalfj arðargöngin: Borga sig á sex árum - verði umferð áfram sú sama og verið hefur frá opnun Hvaifjarðargöngin: Umferö um þau hefur veriö meiri en gert var ráð fyrir. Umferð um Hvaifiarðargöngin hefur verið talsvert meiri en reiknað var með þann mánuð sem liðinn er síðan þau voru opnuð fyrir almennri umferð. Ef umferð- in heldur áfram að vera þessi gætu göngin verið búin að borga sig upp á aðeins sex árum í stað 20 árum eins og áætlanir Spalar hf„ eignar- haldsfélags ganganna, gera ráð fyrir. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Vegagerðinni hafa að meðaltali farið rúmlega 5.200 bílar um göng- in á dag. Fullt veggjald um göngin er 1000 krónur. Ef maður á hinn bóginn gefur sér að meðaltekjur af hverjum bíl séu um 500 krónur þegar búið er að draga frá kostnað við rekstur gangnanna og gera ráð fyrir hlutfalli bíla sem um göngin fara á afsláttarkjörum koma í kassann um 950 milljónir króna á ári. Það þýðir að hægt yrði að greiða göngin upp á um sex árum í stað 20. Gísli Gíslason stjórnar- formaður telur að ekki sé hægt að endurmeta áætlanir svo mark sé á takandi fyrr en eftir hálft ár hið minnsta. Sá tími sem liðinn er síðan göngin voru opnuð sé allt of skammur til að draga miklar ályktanir. „Þetta er svo lítið sýnis- hom af umferðinni sem komið er að það er mjög erfitt að segja neitt um málið. Fyrsti mánuður- inn er hins vegar vel yfir þeirri meðaltalsumferð sem við reiknum með. Ef framhaldið verður eins og það hef- ur verið em tveir möguleikar: Annaðhvort að halda greiðslutím- anum og lækka veggjaldið eða greiða göngin upp fyrr. Þetta geta menn þó ekki skoðað fyrrr en eftir einhverja mánuði," segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarformaður Spalar, I sam- tali við DV. Verksamningurinn um Hval- fiarðargöngin hljóðaði upp á um 4,6 milljarða króna og er líklegt að heildarkostnaðin- við þau nemi um 4,8 milljörðum þegar búið er að taka tillit til gengis og annarra breytuþátta, að sögn Gísla. Loka- uppgjör fer nú fram og er þess vænst að því verði lokið um 10. september nk. -SÁ Hvalfjarðargöngin Áætlaöur grelöslutíml Utlit fyrlr aö grelöslutími veröl Fljótt skipast veður í lofti á Seyðisfirði DV, Seyðisfirði: Síðasti miðvikudagur var sól- ríkasti og fegursti dagur þessa veðurleysu- og þokusumars hér á Austurlandi. Sól skein af heiðum himni mikinn hluta dagsins og fegurra varð bæði yfirbragð bæj- arins og íbúa hans. Margir voru því á ferðinni nm kvöldið, nutu veðurblíðunnar, litu inn á tónleika í Bláu kirkj- unni hjá Mull Worden eða á lif- andi jass hjá Einari Braga og fé- lögum hans á Hótel Snæfelli. Kvöldið var sannarlega eins og þau verða fegurst í ágúst. Nú fór aftur á móti svo sem stundum gerist, veðrið breytist á stuttri stund. í aftureldingu hvessti snögglega af ASA og tölu- verð rigning fylgdi. Tjaldbúar voru því snemma á fótum og fremur vonsviknir og hnípnir við samantekt ferðabúnaðar síns og tjalda. Klukkan 9 lagðist Norræna að hafnarbakkanum með rúmlega 600 farþega og 215 ökutæki ýmissa gerða. Það hefur löngum vakið töluverða athygli hve vel og ró- lega afgreiðsla skipsins tókst hér fyrr á tíð þegar aðbúnaður var frumstæðari og húsnæðið þröngt og mjög takmarkað. í fyrravor var stökkbreyting á þeim málum og var þá m.a. tekið í notkun nýtt húsnæði fyrir Toll- gæsluna sem nú er því bæði skil- virkari og þægilegri fyrir alla sem það snertir. Stundvíslega kl. 13.00 voru landfestar leystar og skipið lagði af stað til Færeyja með 500 far- þega og 190 ökutæki. Sá sem átt hefði leið um hafnarsvæðið skömmu siðar hefði tæplega grun- að að á annað þúsund farþegar hefðu hlotið komu- og brottfarar- þjónustu þama á fiómm klukku- stundum. Norræna siglir inn Seyöisfjörð. DV-mynd JJ z NYR SENDIBILL -J.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.