Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 29
Flækjufótur Mummi Siggi Lísa og Láki Andrés önd Gissur gullr ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 33 fí (ð N 5h (Ö E-t 3 r—H r-H O u K • rH +-» > co M (ð Myndasögur HVAP 5KULDARÐU MER MIKLA PENINGA NÚNA? k MAN ALVEG EFTIR PVl, SKULDA PÉR HUNDRAÐ KALL. T 'd' "'W F'S J§lf3S3m£iV‘ VÆMGBARÐA, STELFLATA, LENDINGAHJOLA FYRIR UTAN HÆ£> \^0G HRAÐA. GETUR ÞU IMYNDAÐ PER HVAÐ GERDIST EF HANN REYNDI AD LÆRA A UPPÞVOTTAVELINA, SOLVEIG? Veiðivon Lax hefur tekið í Ytri-Rangá. Veiðieyrað Veiðin í Miðfjarðará gengur vel þessa dagana og minnir þetta óneit- anlega á gömlu góðu dagana í Mið- firðinum þegar stundum var mokveiði. Gárungarnir segja að skýringin á þessari góðu veiði sé komin. Tumi Tómasson sé farinn af svæðinu og laxinn láti því sjá sig aftur. Tumi var nefnilega alltaf að krukka í laxinn, alla vega laxaseið- in, og svo klakfiskinn á haustin. Og laxinn var búinn að fá alveg nóg og kom ekki. Reyndi að leigja bæjarlækinn Vatnið hefur verið vandamál í sumar, fyrst alltof lítið en núna sums staðar alltof mikið. Eitthvað hefur verið um að árleigjendur hafi þurft að borga veiðileyfm til baka. Við heyrðum af einni veiðiá sem Umsjón GunnarBender varð alveg þurr á tímabili í sumar. Hún rann varla og veiðileyfin voru borguð til baka. Spumingin er bara hverjir eigi að bera tjónið, sá sem leigir ána eða sá sem leigði leigutak- anum þennan læk? Fyrst við erum að tala um læki skulum við láta fljóta með söguna af vininum sem ætlaði að leigja út bæj- arlækinn hjá sér til veiða. Ekki það að það væri fiskur í honum heldur ætlaði vinurinn að græða. Og svo þegar næst komu stórflóð fór hann á stúfana og vildi ólmur leigja út læk- inn sem var í vexti. En enginn vildi leigja hann þótt vatnið væri nóg þvi enginn hafði heyrt um veiði í lækn- um. Svo vinurinn varð að hætta við öll áformin um stóru ána og veiða bara þarna sjálfur. Sumarið eftir veiddi hann einn silungstitt í lækn- um og það þótti mjög gott. En hvert skyldi leiguverðið hafa átt að vera? Kom laxinn í lok apríl? Laxá í Aðaldal er einhver fræg- asta stórfiskaveiðiá landsins og þótt víðar væri leitað. En önnur sem var fræg til skamms tíma, Víðidalsá í Húnavatnssýslu, hefur ekki gefið þá marga stóra í sumar. Enda tala menn um að smálaxinn sé „bara“ kominn á áður en þessi stóru taki. Það er nokkuð til í því. Bæði fiski- fræðingar og veiðimenn hafa verið að spá í hvenær þessi stóri sem veiddist í Vitaðsgjafanum skyldi hafa komið í ána. Hann var orðinn rosalega leginn enda hefur hann lík- lega komið snemma í maí eða jafn- vel í lok apríl. Maökurinn sterkur Maðkurinn getur verið sterkur þegar hann kemur út í ána eftir að flugan hefur verið í mánuð eða meira. Við heyrðum af einni á á Vesturlandi þar sem veiðin hafði verið góð i flugunni en einn hylur hafði ekkert gefið. Síðan kom maðk- urinn og viti menn, laxinn var á í hverju kasti. Það veiddust allir lax- arnir í hylnum, tíu talsins. Þó hann hafi verið dýr í sumar er hann feikna sterkur. Þetta er ekki stigi frekar en ég Stigamálið í Blöndu er að verða eitt það heitasta norðan heiða. En menn greinir svo sannarlega á um hvort þetta sé stigi yfirhöfuð. Málið barst í tal við einn af fræðingunum á Veiðimálastofnun sem þekkir stiga út og inn. Hann hafði kíkt þarna inn eftir á svæði fjögur í Blöndu fyrir tveimur árum og sagði bara þetta um stigamálið. „Þetta er ekki stigi frekar en ég ...“ -G. Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.