Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
25
Fréttir
Tilskipun um tuttugu prósentustiga fækkun afbrota:
Jákvætt skref
- segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á ísafirði
„Mér finnst sjálfsagt að skoða
allar leiðir í því að lögreglan
verði sýnilegri og láti almenning,
sérstaklega þá viðskiptavini sína
sem brjóta lög, vita af sér,“ segir
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafirði, um tilskipun
ríkislögreglustjóra varðandi
fækkun afbrota.
I tilskipuninni segir að fækkun
afbrota á næsta ári um 20% sé
markmið sem lögreglustjórar
gætu sett sér og ætti það sérstak-
lega við um innbrot, þjófnaði, lík-
amsárásir, rán og eignaspjöll.
“Að sjálfsögðu munum við taka
þátt í því að fækka afbrotum,"
segir Ólafur Helgi, „en ég hygg að
það geti orðið tvíhliða því auðvit-
að byggist það á því að þeir sem
Ólafur Helgi Kjartansson.
fremja afbrotin hætti við að
fremja þau.“
Þá leggur ríkislögreglustjóri til
að fjölgað skuli lögreglumönnum
sem klæðast einkennisbúningum,
nýta enn betur vélhjól og bifreið-
ar merktar lögreglunni og auka
almennt eftirlit. „Við höfum
smám saman verið að gera lög-
regluna sýnilegri í samfélaginu,
m.a. með því að beita í auknum
mæli göngueftirliti og leggja
meiri rækt við umferðareftirlit. Á
þeim tölum sem ríkislögreglu-
stjóri tók saman fyrir síðasta ár
sé ég að við stöndum framarlega í
löggæslu hér á ísafirði," segir
Ólafur Helgi enn fremur. -jtr
Breyting á Fljótaá:
Laxveiði góð en
bleikja í lágmarki
Gunnar Sigurðsson úr Reykjavík með lax úr Fljótaá. DV-mynd Örn
Leiðrétting við kjallara-
grein Geirs H. Haarde
DV, Fljótum:
Ágæt laxveiði hefur verið í
Fljótaá í Fljótum undanfamar vikur
og þegar ágústmánuður var hálfnað-
ur voru komnir tæplega 190 laxar
úr ánni sem er 70 löxum meira en
veiddist allt sumarið i fyrra. Það
sem hins vegar skyggir á nú er að
bleikjuveiði er ekki nema svipur
hjá sjón miðað við undangengin
sumur þegar þær hafa skipt þús-
undum. Nú hafa aðeins fengist lið-
lega 400 bleikjur.
„Menn eru engu að síður nokkuð
brattir með veiðina þótt bleikjuna
vanti. Það virðist talsvert af laxi í
ánni og hann dreifist nokkuð vel
um alla á,“ sagði Sigurður Hafliða-
son, formaður Stangaveiðifélags
Siglufjarðar, sem er leigutaki árinn-
ar, i spjalli við fréttamann.
Það er því Ijóst að haldist svipuð
laxveiði áfram gæti þetta hæglega
orðið með betri veiðisumrum í
ánni. Hún hefur mest gefið liðlega
300 laxa á sumri en nokkur undan-
farin sumur hafa þó verið langt frá
því svo gjöful. Þess má geta að
stærsti fiskur til þessa í sumar er
16,4 pund en algengasta stærðin er
4-7 punda fiskar. -ÖÞ
Hestamaður varð fyrir bíl:
Mikið
slasaður
Hestamaður varð fyrir bíl hjá
Vatnahverfi á Skagastrandar-
vegi um 2 km frá Blönduósi að-
faranótt sunnudags. Hann var
einn á ferð með sjö hross þegar
bíll ók á hann með þeim afleiö-
ingum að hann kastaðist upp á
bílinn og hafnaði svo í vegkant-
inum. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var kölluð út rétt um hálftvö
leytiö um nóttina en hún gat
ekki lent á Blönduósi og var því
ekið áleiðis til Reykjavíkur með
manninn. Þyrlan gat svo lent á
Laugarbakka í Miðfmði og var
hinn slasaði þá fluttur með þyrl-
unni á Sjúkrahús Reykjavíkur.
Þar gekkst hann undir aðgerö
en að sögn vakthafandi læknis
er hann höfuðkúpubrotinn og
mikið slasaður. -hb
í kjallaragrein Geirs H. Haarde,
„Ögmundur og einkaframkvæmd-
in“, er birtist í DV í gær, mánu-
dag, brenglaðist málsgrein sem
hér birtist nú orðrétt. DV biður
greinarhöfund velvirðingar á mis-
tökunum.
„Hins vegar er hugmyndin um
samstarf einkaaðila og hins opin-
bera í rekstri þjónustustofnana í
raun engin nýjung hér á landi.
Má í því sambandi vísa í áratuga-
gamalt og afar farsælt samstarf
ríkisins við einkaaðila í velferðar-
þjónustu. Hér á ég m.a. við þann
rekstur sem sjálfseignarstofnanir
á borð SÍBS, Hrafnistu og Grund
hafa staðið fyrir. Mörg fleiri
dæmi eru um slíkt samstarf, eins
og allir vita.“
Ólafur Briem og Halla Sigrún búa sig undir að fljúga um loftin blá vélarafls-
laust á norrænum svifflugsdögum sem haldnir voru um helgina. Svifflug
nýtur vaxandi vinsælda hér á landi enda ekki amalegt að geta flogið um
frjáls og náttúruvænn eins og fuglinn.
Samvinnuháskólinn:
Lægri meðalaldur
DV.Vesturlandi:
Um 120 manns munu stunda
nám við Samvinnuháskólann á Bif-
röst í vetur að sögn Jónasar Guð-
mundssonar, rektors skólans. í
frumgreinadeild verða um 20
manns, í rekstrarfræðadeild I um
70 manns og í rekstrarfræðadeild II
verða um 30 manns. Meðalaldurinn
verður um 29 ár sem er aöeins
lægra en á síðasta ári. í haust opn-
ar upplýsingamiðstöð skólans í
nýju húsnæði en þar verður bóka-
safnið og aðgangm- að upplýsinga-
bönkum í gegnum tölvukerfi skól-
ans. „Þá er að hefjast bygging fjög-
un-a íbúða fyrir starfsmenn Sam-
vinnuháskólans," sagði rektor í
samtali við DV. DVÓ
Tumi Tómasson:
Markviss þróunaraðstoð
Tumi Tómasson, fiskifræðingur
og forstöðumaður Sjávarútvegshá-
skóla Sameinuðu þjóðanna, vill
taka fram vegna myndatexta með
viðtali við hann í DV í gær að hann
telur þróunaraðstoð íslendinga hafa
verið markvissa. Annað mátti lesa
úr myndatextanum.
Vinningshafar í
Krakkaklúbbs-horninu.
6 VILLUR
Grufl- spil sem heldur athyglinni óskiptri.
Guðrún S. Unnarsdóttir nr. 13085
2 sett með 8 ísskápsseglum sem þið útbúið sjálf.
íris D. Árnadóttir nr. 12478
Sigurlinn Kjartansdóttir nr. 11753
5 litabækur og litir.
Sólrún U. Þorláksdóttir nr. 240190
Arnar Þ. Halldórsson nr. 8770
Þórey J. Óskarsdóttir nr. 13659
Agnar I. Traustason nr. 12539
Heiða B. Guðjónsdóttir nr. 6273
4 Barbie-sett með blýanti, reglustriku, strokleðri og
yddara.
Tinna Ó. Grímarsdóttir nr. 12480
Lísa R. Arngrímsdóttir nr. 2204
Björgvin Björgvinsson nr. 5553
Þórir K. Guðmundsson nr. 7383
Krakkaklúbbur DV og Kjörís óska vinningshöfum til
hamingju og þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna.
Vinningshafarnir fá vinningana senda í pósti næstu
daga.