Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 13 Fréttir Vísitala - mæling á verðlagi: Verðhjoðnun er óvenjuleg hér Verðhjöðnun eins og sú sem orð- ið hefur hér á landi síðustu mán- uði er óvenjuleg i landi þar sem mikil verðbólga var landlæg um áratugi. DV bað Björn Rúnar Guð- jónsson, aðstoðarforstjóra Þjóð- hagsstofnunar, að útskýra hvernig verðbólga og verðhjöðnun væri mæld. Hann sagði að vísitala verð- lags væri fundin út frá verðlagi, eins konar innkaupakörfu með alls kyns vöru og þjónustu. Þetta mætti skýra á þann veg að umræddar vörur og þjónusta er keypt og verði hvers þáttar fyrir sig er síðan rað- að inn í ákveðnar formúlur og nokkurs konar meðalverð fundið eftir vægi þáttanna. í upphafi mælingar var sú út- koma sem fékkst úr þessum út- reikningum stillt af við 100. Vísi- tala hvers mælingartímabils kem- ur síðan fram og ræðst af þeim breytingum sem verða á verði um- ræddra vöruliða og þjónustuút- reikningunum. Jákvæð breyting á þessari vísitölu, það er að segja þegar visitalan hækkar, kallast verðbólga, eða verðhækkun, en ef hún lækkar, sem sjaldan gerist, þá er það verðhjöðnun. Þegar talað er um verðhækkanir þá er að sögn Bjöms Rúnars venjulega verið að tala um árshækkun, annaðhvort raunverulega hækkun frá einu ári til annars, eða hækkun á ársgrund- velli. Hækkun á ársgrundvelli er venjulega hækkun milli þriggja mánaða sem uppfærð er á heilt ár. Verðhjöðnun er sama eðlis, nema hún fer í hina áttinu, verð lækkar. -SÁ Landsbanki íslands hf.: Sænsk sendi- nefnd komin Sænsk sendinefnd sérfræð- inga frá sænska SE-bankanum kom hingað til lands í fyrradag til að meta Landsbanka ís- lands. í kjölfar niðurstöðu hennar verður tekin ákvörðun um hvort og hvernig á aö standa að sölu á Landsbankan- um. Vitað er að fulltrúar frá ís- lenskum stjórnvöldum hafa einnig farið út til að kynna sér SE-bankann með tilliti til hugsanlegra kaupa hans á Landsbankanum. -hb Utsala í epcil frá 17.-22. ágúst Góðar vörur á góðu verði epol Skeifunni 6 sími 568 7733 Börnin úr skólagörðunum ásamt Maríu. DV-mynd Eva Hveragerði: Keppni í ormatínslu - eftir góða uppskeru í skólagörðunum DY Hveragerðú Nú er komin smáhaustlægð í börnin í skólagörðunum hér sunn- anlands í ágústlok. Þau eru orðin þreytt á að reyta arfa í rigningunni sem hefur verið hér að undanfomu eftir frábært veður meiri hluta sum- ars. Uppskeran var komin í poka og heim og lítið að gera eftir það. Til þess að lyfta eilítið upp brún- inni á krökkunum tók María Ósk- arsdóttir, sem stjórnar skólagarða- starfinu í Hveragerði, upp á því að láta bömin keppa í ormatínslu, hvert í sínu beði. Veitt vom verð- laun fyrir stærsta og feitasta orm- inn, mjósta orminn, lengsta orminn og minnsta orminn. Ormunum var sleppt að loknu nákvæmu mati og mælingu þannig að ekki náðist mynd af gripunum. Börnin fengu sér síðan hádegis- verð á Heilsustofnun NLFÍ og fóra að honum loknum í gróðurhús stofnunarinnar þar sem þau vora frædd um lífræna ræktun grænmet- is. Verðlaunaafhending fyrir ormana fór síðan fram við Áhalda- húsið og fengu öll börnin afhent lít- ið furatré til þess að gróðursetja í garðinum sínum. -eh AUKAHLUTIR Á FRÁBA.RU VERÐI fyrir GSM sima Hringdu \ síma 564 5300 ^ *r :il og fábu bæklinginn 099^^m TELEO POSTVERSLUN Þiónustusími allan sólarhringinn 564 5300 - fax 564 5301 Pósthólf 479 - 200 Kópavogur UTSOLULOK SPAR SPORT TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI NÓATÚN 17 V S. 511 4747 10% AUKAAFSLATJUR AF ÖLLUWIÚTSÖLUVORUW FILA adidas /// FiveSeasons /// Kilmanock GOLOL NDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.