Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Blaðsíða 16
OVAN MAGFMTA
16
\
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
0
>
)
5
Ber að ofan
Haukur Snær Hauksson er
ungur, efnilegur knatt-
spyrnumaöur sem segist
vera Frammari í húð og hár. „Ég
spilaði á sínum tíma með 16 og 18
ára unglingalandsliði íslands en
nú er stefnan tekin á 21 árs lands-
liðið.“ Haukur hefur miklar skoð-
anir á því hvað felst í karl-
niður Esjuna
mennsku.
„Karlmennska er að mæta illa
klæddur í vinnuna þó að maður
viti að það sé vont veður úti og
jafnvel í sláttuvinnufótunum sín-
um í boð til forsetans. Karl-
mennska er að ganga ber að ofan
niður Esjuna með lúpínu í buxna-
strengnum og baða sig svo í læk
neðar í hlíðinni. Karlmennska er
að klæða sig upp í kvenmannsfót,
fara niður á Ingólfstorg með fána
af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og
mótmæla stöðu kvenna í kring-
um síðustu aldamót. Karl-
mennska er að sjá til þess að fólk
standi við loforð sín þó það gæti
eyðilagt mannorð manns.“ Það
þarf greinilega að leggja ýmislegt
á sig til að vera sannur karlmað-
ur en hvernig á hinn „sanni karl-
maður" að vera skapi farinn?
Haukur er ekki í vandræðum
með að svara því.
„Karlmaður á að vera sjálfsör-
uggur, dugandi, sjálfstæður og
svolítið ágengur. Hann á að hafa
stjórn á tilfinningum sínum og
staðfastar skoðanir á heimsmál-
um. Hugsunarháttur alvöru karl-
manns er auga fyrir auga, tönn
fyrir tönn.“ Þá vitið þið það,
strákar, og ekki seinna vænna en
að fara að sýna hvers þið eruð
megnugir! -me
Karlmenn:
Töffarar efy
í íslendingasögunum voru hugdirfska, hófsemi
og drengskapur höfuðdyggðir karlmannsins.
Sæmdin var karlmanninum mjög dýrmæt og ef
hann átti um tvo kosti að velja valdi hann
ti Ifin ningaverur?
einatt þann sem leiddi til dauða fremur
en að varpa skugga á mannorð sitt.
En hvernig skyldi málunum vera
háttað í dag? Hvað þurfa sannir
karlmenn að hafa til
að bera og hvernig
eiga þeir að vera? í
hverju felst karl-
mennskan og hvað
gera menn til að
sanna að þeir séu „alvöru" karl-
menn en alls engar gungur?
DV hitti fjóra íslenska karlmenn.
Er í eðlinu
i
Karlmenn í kreppu
Þegar talað er um karl-
mennsku er oft bent á
íþróttamenn eða aðra
sterka og hrausta menn. DV
hitti Magnús Scheving og spurði
hvernig hann teldi karlmenn
eiga að vera. „Ég held að karl-
menn í dag viti ekki hvemig
þeir eigi að hegða sér og séu i
mikilli sálarkreppu. Eiga þeir
að vera harðir naglar sem láta
ekkert buga sig eða mjúkir og
tilfinninganæmir? Þetta var svo
auðvelt héma í gamla daga þeg-
ar konan var heimavinnandi
húsmóðir og karlmaðurinn var
hin sterka fyrirvinna og andlit
heimilisins. í dag vita karlmenn
ekki til hvaða ímyndar
þeir eiga að
h o r f a
eða hvernig
nútímakonan vill
hafa þá. Þetta er
erfitt tímabil fyrir karl-
menn og sagði vinur minn,
sem er sálfræðingur, mér að
það væri yfirfullt hjá sér af
karlmönnum sem vita ekk-
ert hvernig þeir eiga að
vera. Ég held að þegar öllu
er á botninn hvolft sé hinn
sanni karlmaður
sá maður sem er
samkvæmur og
trúr sjálfum
sér.“
-me
Magnús segir að þegar öllu sé á
botninn hvolft sé hinn sanni karl-
maður sá maður sem er sam-
kvæmur og trúr sjálfum sér.
Guðlaugur Þór segir karlmennsku vera blöndu af herramennsku og því að gef-
ast aldrei upp þegar á reynir. DV-mynd E.ÓI
Danni er ímynd þessa týpíska karlmanns, hann er töffari og svo-
lítið grófur á yfirborðinu en þegar kemur að kvennamálum mýkist
hann allur upp. Rúnar Freyr er aftur á móti ekki sammála því að
svona þurfi hinn „eini sanni“ karlmaður að vera.
DV-mynd Hilmar
Virðing fyrir konum
Guðlaugur Þór Þórðarson borg-
arfulltrúi segtr karlmennsku
vera einhvers konar blöndu af
herramennsku og því að gefast aldrei
upp. „Sannur karlmaður ber virðingu
fyrir konum og gerir það sem í hans
valdi stendur til að létta þeim lífið.
Hann hopar ekki þegar á reynir held-
ur berst áfram til sigurs. Ég tel karl-
mennsku ekki tengjast líkamlegum
burðum. Menn geta verið mikil karl-
menni án þess að vera eins sterklega
byggðir og Magnús Ver, eða ég vona
það alla vega!
Karlmenn eru í klemmu í
þjóðfélaginu
í dag einfaldlega vegna þess að það
verður stöðugt minni þörf á þeim.
Þetta var allt mjög klippt og skorið
héma áður fyrr, þeir voru fyrirvinn-
umar og á því lék enginn vafi. Á því
leikur stór vafi í dag. Ég held að það
þvælist svolítið fyrir karlmönnum
hvernig konan vill hafa þá. Hún vill
jafnrétti og finnst karlmönnum oft fel-
ast í því hugtaki aö þeir megi ekki
lengur vera herramenn. Karlmenn
hafa tilhneigingu til að reyna að
veröa við óskum kvenna og á meðan
þeir vita ekki hvað þær vilja eru
þeir í vandræðum."
-me
Rúnar Freyr Gíslason hefúr í
sumar slegið rækilega í gegn
sem Danni Zuko í söngleikn-
um Grease. „Danni er einmitt þessi
týpíska karlmannsímynd sem allir
strákar vilja líkjast. Hann er töffari
á yfirborðinu, flottur og svolítið
grófur með strákunum en þegar
kemur að kvennamálum og hann
verður skotinn mýkist hann allur
upp. Ég er aftur á móti ekki sam-
mála því að svona þurfi hinn eini
„sanni karlmaður" að vera. Við eig-
um ekki alltaf að vera að rembast
við að vera einhver mikil karl-
menni. Við erum karlmenn og því
felst karlmennskan fyrst og fremst í
því að vera maður sjálfur. „Þeir sem
hafa farið niður í miðborg Reykja-
víkur eftir klukkan tólf á föstudags-
eða laugardagskvöldi hafa orðið
vitni að því er ungir piltar reyna að
klifa styttu Ingólfs Arnarsonar. Er
þetta ekki einmitt dæmigerður
„rembingur" sem
strákar sýna til
að sanna að þeir
séu alvörumenn?
„Ég er einn af
mörgum sem
hafa klifið
þessa ágætu
styttu. Ég
stend í
þeirri trú
að við
strákarnir
séum ekki
að klífa stytt-
una til að sanna
karlmennsku okkar
heldur gerum við þetta
vegna þess að við erum karl-
menn. Það er eitthvað í eðli
okkar sem gerir það að verk-
um að við höfum einfaldlega
meira gaman af svona hlutum en
stelpur." -me
Haukur setjir að karlmennska felist í
aö þora acfcklæða sig i kvenrnannsft
fara piður ^lnciolfstoiq með fána m<
mynd af Brý-ti Bjarnhéöinsdóttúr og
motmæla s|oou kvenna um siöustu
aldamot. ^ I}V-myncf I
1