Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Síða 18
18
íþróttir
Fimm fulltrúar eru frá íslandi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum
íþróttum sem hefst í dag í Búdapest í Ungverjalandi. DV hefur fengið
Jón Þorvald Heiðarsson til að segja álit sitt á möguleikum íslendinganna
sem keppa á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Búdapest.
Jón Arnar Magnússon, Tindastól, í tugþraut:
Jón Amar er 29 ára og á íslandsmetið í tugþraut, 8.573 stig, og í
sjöþraut, 6.170 stig. Jón er fjórði á Evrópulistanum en hann varð í 12.
sæti á Ólympíuleikunum í Atlanta 1996 en vann brons á EM innanhúss
1996 og HM innanhúss 1997.
„Jón Amar hefur sjóast mikið síðustu ár og hefur jafnframt tekið ör-
uggum framfórum. Það heyrir nú til undantekninga að hann klúðri
þraut þó slíkt geti alltaf hent tugþrautarmenn. Jón er nú alveg við topp-
inn i greininni og er til alls líklegur. Ef hann fer i þriðja sinn á árinu
yfir 8500 stig þá hefur hann unnið afrek sem aðeins þeir bestu státa af.
Þýskir spekúlantar spá því að Erki Nool sigri og Jón Arnar verði í 4.-5.
sæti og tel ég það raunhæft mat. Líkumar á verðlaunasæti em þó tölu-
verðar og möguleikar á Evrópumeistaratign eru til staðar. Ég spái Jóni
3.-5. sæti og hann fái 8500 stig.“ Jón Amar hefur keppni á miðvikudag.
Vala Flosadóttir, ÍR, í stangarstökki:
Vala Flosadóttir er 20 ára og setti tvisvar sinnum heimsmet innanhúss
í vetur. Hún hefur stokkið 4,36 metra í sumar og er það bæði íslandsmet
og Norðurlandamet en Vala er fjórða á Evrópulistanum. Hún varð
Evrópumeistari innahúss 1996 og fékk brons á EM innanhúss í vetur.
„Vala stökk 4,36 m fyrripart sumars og hefur verið að stökkva oft um
4,20 m það sem af er sumri. Hún hefur ekki getað beitt sér mikið síðustu
daga og vikur vegna þursabits í baki. Líklegt er að hún verði þó tilbúin
í slaginn á EM. Auk þess að vera ein af bestu stangarstökkvurum kvenna
í heiminum er Vala mikil keppnismanneskja og stendur sig jatnan vel
þegar mikið liggur við. Hins vegar em margar stúlkur að stökkva svip-
aðar hæðir og Vala og samkeppnin því hörð. Ég spái Völu 3.-5. sæti og
hún stökkvi 4,25 eða 4,30.“ Vala hefur keppni í undankeppni í dag.
Guörún Arnardóttir, Ármanni, í 400 m grindahlaupi
Guðrún Amardóttir er 27 ára gömul og á hún íslandsmet í 400 metra
grindahlaupi. Hún hefur best hlaupið á 55,60 sekúndum í sumar sem
kemur henni í 8. sætið á Evrópulistanum.
„Ég er nokkuð bjartsýnn á gengi Guðrúnar í Búdapest. Hún var að
vísu í smá meiðslavandræðum í vor, fékk i hásinamar eins og tvær aðr-
ar íslenskar stúlkur sem æfa á sama vellinum í Georgíu (nú er verið að
gera völlinn upp). Guðrún er nú samt öll að koma til og er búin að keppa
á nokkram mótum með bærilegum árangri. Mér finnst allt eins líklegt
að hún bæti Islandsmet sitt sem er 54,79 sek. Hún ætti altént að komast
í úrslitahlaupið og þar spái ég henni 4.-6. sæti og tímanum 54,70 sek.“
Þórey Edda Elísdóttir, FH, í stangarstökki:
Þórey Edda Elísdóttir er 21 árs gömul og á best 4,21 metra í
stangarstökki. Hún varð Norðurlandameistari unglinga í sumar en er í
13. sæti á Evrópulistanum.
„Þórey hefúr tekið gríðarlegt stökk upp heimsafrekalistann í sumar og
er nú komin í fremstu röð í heiminum. Hún hefur bætt sig jafnt og þétt
í sumar og er nú komin í 4,21 m og ekki kæmi mér á óvart þótt hún bætti
sig enn frekar í Búdapest. Hins vegar er nokkuð nýtt fyrir Þóreyju að
keppa á svo stóru móti og því fróðlegt að sjá hvemig til tekst. Ég ætla
samt að leyfa mér að vera svo bjartsýnn að spá því að hún komist í úr-
slitakeppnina og verði þar í 6.-12. sæti og stökkvi 4,15 m.“ Þórey hefur
keppni í dag.
Pétur Guðmundsson, kúluvarpi:
Pétur Guðmundsson er 36 ára gamall og á hann íslandsmetið í
kúluvarpi sem er 21,26 metrar. Pétur á best 19,04 metra í ár sem kemur
honum í 40. sætið á Evrópulistanum.
„Pétur hefur ekki verið að stunda kúluna af sama krafti síðustu ár og
þegar hann var upp á sitt besta og setti íslandsmet. Er hann nú að kasta
um metra styttra en hann gerði þá. Hann náði samt settu EM-lágmarki,
meira að segja á alþjóðlegu stigamóti. Það er meira en margir geta sagt
sem sendir hafa verið til þátttöku á stórmót. Ég spái að Pétur kasti 18,60
m i undankeppninni og veröi nokkuð frá því að komast í úrslit."
„Ég spái því að íslendingar komi með ein verðlaun og eitt íslandsmet
frá Búdapest," sagði Jón að lokum.
-JÞH/ÓÓJ
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
„Vafasamt"
- Arnór rekinn af velli og Keflavík jafnaði, 2-2
Mikil dramatík átti sér stað í leik
Keflvíkinga og Valsmanna í Keflavík í
gærkvöld þegar liðin skildu jöfn, 2-2.
Valsmenn voru með leikinn í hendi sér
þegar þeir vora í stöðunni 1-2, allt
þangað til á 67. mínútu, þá fær Arnór
Guðjohnsen, besti maður vallarins,
rautt spjald og er vikið af leikvelli fyr-
ir grófan munnsöfnuð við Ara Þórðar-
son aðstoðardómara, að sögn Braga
Bergmann dómara eftir leikinn.
Leikurinn snerist Keflvíkingum í
hag sem réðu gangi leiksins það sem
eftir var og 5. mínútum síðar jafna
Keflvíkingar og hver annar en bjarg-
vætturinn, Þórarinn Kristjánsson.
Keflvíkingar reyndu að leggja allt kapp
í sóknina og fengu hverja sókn á fætur
annarri og tvívegis skall hurð nærri
hælum við mark Valsmanna og í bæði
skiptin var Ólafur Ingólfsson i aðal-
hlutverki. Valsmenn voru greinilega
orðnir þreyttir og máttu ekki við meiri
hraða í leikinn og það einum manni
færri og voru hvíldinni fegnastir þegar
flautað var til leiksloka. Keflvíkingar
misnotuðu vítaspymu í fyrri háflleik
þegar Láras, markvörður Vals, varði
frá Marco Tanasic. Valsmenn vora
betri aðilinn í leiknum en leikurinn úti
á velli var ekki rismikill hjá liðum en
góð marktækifæri sáust og fjögur góð
mörk en mörkin hefðu getað verið mun
fleiri. Amór Gúðjohnsen mataði félaga
sína með hverri stórsendingunni á fæt-
ur annarri en félagar hans sáu um að
klúðra þeim með tilþrifum.
Bjarki, markvörður Keflvíkinga,
stóð sig mjög vel. Þórarinn átti mjög
góðan leik, skoraði eitt og lagði eitt
upp.
Hjá Valsmönnum var Arnór allt í
öllu, Jón Þ. gerði nokkrum sinnum
mikin usla við mark Keflavíkur með
hraða sínum og Hörður Már var
sprækur, sérstaklega í fyrri hálfleik.
„Ég er mjög fúll yfir þessu, að ná
ekki að knýja fram sigur. Við fengum á
okkur mjög ódýr mörk. Við áttum að
ná að skora fleiri mörk á móti þessu
liði en við voru með mikla yfirburði
þegar þeir urðu einum færri,“ sagði
Kristinn Guðbrandsson, fyrirliði Kefla-
víkur.
„Við getum sjálfum okkur kennt en
við vorum að skapa færin til að skora
3-5 mörk en við nýttum þau ekki. Síð-
an misstum við mann út af við mjög
vafasamar kringumstæður, eins og ég
tel sjálfúr. Maður hefur heyrt ýmislegt
flúka í gegnum tíðina. Menn verða að
skilja það að leikurinn er mjög heitur
og það sleppur oft ýmislegt út úr leik-
mönnum og þjálfuram einnig í hita
leiksins," sagði Kristinn Björnsson,
þjálfari Valsmanna. -ÆMK
Þessir menn eru að eyðileggja leikinn
íþróttir
Bland í polca
Gianluca Vialli, stjóri enska knatt-
spymufélagsins Chelsea, hefur til-
kynnt rúmenska landsliðsmanninum
Dan Petrescu að ekki sé lengur ósk-
að eftir hans kröftum hjá Lundúna-
liðinu.
Dwight Yorke lýsti þvi yfir í gær-
kvöld að hann myndi leika áfram
með Aston Villa í ensku knattspym-
unni. Möguleiki Manchester United á
að krækja i hann er því endanlega úr
sögunni þrátt fyrir gimilegt tilboö.
Georgi Kinkladze, Georgíumaður-
inn snjalli hjá Manchester City, slas-
aðist iúa í leik með liðinu mn helgina
og spilar ekki meira á timabilinu.
Likur voru á að hann yrði seldur til
hollensku meistaranna Ajax.
Matthew Le Tissier kemst ekki í
byrjunarlið Southampton og David
Jones framkvæmdastjóri segir að
hann hafi verið slakur á undirbún-
ingstímabilinu. Hann sé jafnframt til-
búinn til að selja þennan vinsælasta
leikmann félagsins.
Arnar Gunnlaugsson og sjö aðrir
leikmenn Bolton fengu 7 í einkunn
hjá Bolton Evening News fyrir
frammistöðu sina í leik liösins við
Grimsby í 1. deild á laugardag. Hinir
þrír i byrjunarliðinu, þar með talinn
Guöni Bergsson, fengu einkunnina
6. Bolton vann, 2-0, og þykir sigim-
stranglegasta lið deildarinnar.
Eiöur Smári Guðjohnsen lék sinn
fyrsta leik með varaliöi Bolton fyrir
helgina. Hann skoraði eina mark liðs-
ins í 2-1 tapi gegn Middlesbrough.
Sagt var að hann væri óðum að kom-
ast í form og færi eflaust fljótlega að
banka á dyr aðafliðsins.
Úrslitaleikur deildabikars karla í
knattspyrnu, sem frestað var í vor,
verður leikinn miðvikudaginn 26.
ágúst á Laugardalsvellinum. Þar eig-
ast við KR og Valur.
/ blaöinu i gœr var sagt að Golf-
klúbbur Reykjavikur hefði orðið ís-
landsmeistari i sveitakeppni kvenna
í golfi en það er ekki rétt því Golf-
klúbburinn Kjölur úr Mosfellsbæ
vann glæsilegan sigur.
í blaöinu i gœr var sagt að frjáls-
íþróttamaðurinn Geir Sverrisson,
sem náði svo glæsilegum árangri á
heimsmeistaramóti fatlaðra, væri i
Ármanni en það er ekki rétt því hann
keppir nú fyrir Breiðablik. Geir
keppti þó áður fyrir Ármann. Geir
vann 2 gull og 1 brons og hefur þvi á
2 síðustu HM unnið 5 gull og 1 brons.
Davíö Már Vilhjálmsson, GKj, sigr-
aði á Top-Flite golfmótinu hjá Golf-
klúbbnum Kili á sunnudag. Hann lék
á 75 höggum en Kári Emilsson, GKj,
kom næstur á 76. Brynjólfur Jóns-
son, GR, sigraði í keppni með forgjöf.
Víöavangshlaup UMSE fer fram á
Dalvík á fimmtudag kl. 20. Mæting er
við heilsugæslustöðina á Dalvík og
skráning þar frá kl. 19.30. Keppt er í
öllum aldursflokkum karla og
kvenna, frá 10 ára og yngri til öld-
ungaflokka.
-ÓÓJ/VS
[£¥) ÚRVALSD. KV.
A-riðill:
Fylkir-Grindavik . 3-3
Grótta-Selfoss . . . 4-1
Grótta 8 6 1 1 28-10 19
FH 7 4 1 2 16-10 13
Grindavík 7 3 2 2 19-14 11
Selfoss 7 1 1 5 9-18 4
Fylkir 7 1 1 5 11-31 4
B-riðill:
Tindastóll-Hvöt . . 2-3
ÍBA 10 8 1 1 31-10 25
Hvöt 11 4 4 3 19-16 16
Leiftur/Dal. 10 2 4 4 15-20 10
Tindastóll 11 2 1 8 15-34 7
C-riðill:
Leiknir F.-Einheiji 0-1
KVA-Höttur 4-2
KVA 11 9 1 1 39-12 28
Einherji 11 8 0 3 45-9 24
Höttur 11 2 1 8 8-36 7
Leiknir F. 11 2 0 9 10-45 6
KVA tryggði sér sæti i úrslitunum
með sigrinum á Hetti. Þar leika
einnig Grótta og ÍBA, og síðan
Grindavík eða FH, sem mætast i loka-
umferð A-riðils.
0 \
* LANDSSÍMA
'^j^'lDElLDIN o
ÍBV 13 9 1 3 34-14 28
KR 13 6 6 1 19-6 24
ÍA 13 6 4 3 20-17 22
Leiftur 13 5 3 5 15-15 18
Keflavík 13 5 3 5 11-19 18
Fram 13 4 4 5 14-13 16
Valur 13 3 5 5 21-25 14
Grindavík 13 2 4 7 19-24 13
Þróttur R. 13 3 4 6 21-29 13
ÍR 13 3 2 8 14-25 11
„Mér finnst mjög harður dómur að fá rautt spjald fyrir að mótmæla dómi. Að maður mótmælir dómi út af innkasti og
hann kallar á dómarann eftir á til að segja hvað ég hafi sagt við sig, finnst mér bamalegt. Það era vissir hlutir sagðir í
hita leiksins og það eru miklu fleiri og verri hlutir sagðir við dómarann en ég sagði. Þessir menn eru að eyðileggja leik-
inn og það þarf að taka á þessu. Þeir eiga aö skilja að fótbolti er leikur tilfmninganna meðal annars og menn era að gera
sitt besta. Þessir menn fá allt of litla krítik," sagði Arnór Guöjohnsen. -ÆMK
Kristján byrjar
glæsilega
- hefur unnið 15 leiki í röð í Bretlandi
Kristján Helgason er á fljúgandi
siglingu á fyrsta
tímabili sínu sem at-
vinnumaður í
snóker. Hann er
kominn í fiórðu um-
ferð á fimm atvinnu-
mótum sem fram
fara samhliða í Bret-
landi, og komist
hann einni umferð
lengra fer hann í
hóp 64 bestu og fer
að spila gegn þeim
bestu í heiminum en
þá mæta 32 þeir
bestu til leiks.
Kristján komst í
vetur í hóp 192 atvinnumanna sem
taka þátt í stærstu mótunum. Með
frammistöðu sinni er hann kominn
upp um ein 100 sæti og þó hann næði
ekki lengra í ár hefur
hann þegar tryggt sér
rétt til að sleppa fyrstu
umferðum mótanna á
næsta ári. Hann hefur
nú unnið 15 leiki í röð á
mótunum.
„Þetta er glæsileg
frammistaða Kristjáns
og vonum framar. Tak-
ist honum að komast
enn lengra er þetta
frammistaða sem aöeins
menn á borð við Ronnie
O’Sullivan hafa sýnt á
fyrsta ári sem atvinnu-
menn,“ sagði Brynjar
Valdimarsson, formaður Billiardsam-
bands íslands, í samtali við DV í gær-
kvöld. -VS
Sigurður Ragnar
ekki meira með
Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
markahæsti leikmaður Skaga-
manna í úrvalsdeildinni í knatt-
spymu, spilar ekki meira með
þeim á þessu tímabili. Sigurður
Ragnar, sem hefur skorað 7
mörk í deildinni, fer til náms í
Bandaríkjunum í dag. -VS
Orgryte leitar
hér á landi
Sænska sjónvarpið sagði frá þvi í
gærkvöld að menn frá liðinu Ör-
gryte væru að leita aö leikmönnum
á íslandi þessa dagana. Liðiö berst
fyrir sæti sinu í deildinni og ætlar
að styrkja sig fyrir lokaátökin.
-EH/JKS
Nýliðamet Gunnleifs
Það vakti mikla athygli þegar Atli Eðvaldsson setti Gunnleif Gunnleifs-
son í byrjunarlið KR eftir 1-3 skell gegn ÍBV í Eyjum. Þeirri ákvörðun hans
hafa síðan fáir andmælt enda hefur þessi 23 ára markvörður haldið hreinu
í Qóram leikjum í röð.
Þetta gerir 360 minútur og met í 10 liða efstu deild þvi Gunnleifur er
fyrsti markvörðurinn til að halda hreinu í fjórum fyrstu heilu efstu deild-
arleikjum sínum. Láras Sigurðsson, núverandi markvörður Vals, átti áður
metið en hann hélt hreinu í þremur fyrstu heilu leikjum sínum 1990-92. KR
hefur nú haldið hreinu 365 mínútur og að auki í 356 mínútur á heimavelli.
Þá era 480 mínútur síðan lið skoraði hjá KR utan af velli á KR-vellinum.
Gunnleifur lék sinn fyrsta leik uppi á Skaga er hann kom inn á sem vara-
maður og fékk þá á sig eitt mark en síðan hann byrjaði fyrst inni á hefur
enginn fundiö leiðina fram hjá honum og KR-vörninni. -ÓÓJ
Islenska landsliðið:
Steinar inn
fyrir Sigurð
Ein breyting verður á leikmanna-
hópnum í knattspyrnu sem Guðjón
Þórðarson landsliðsþjálfari valdi fyrir
helgina og mætir Lettum í vináttuleik
á morgun á Laugardalsvelli.
Sigurður Jónsson meiddist með
Dundee United sl. laugardag gegn He-
arts og í hans stað hefur Steinar Adolfs-
son, ÍA, verið valinn.
-JKS
Enska úrvalsdeildin:
Meistararnir
lögðu nýliðana
Arsenal lagði Nottingham Forest,
2-1, á Highbury í Lundúnum í gær-
kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik
færðist meira fjör í leikinn f siðari
háfleik.
Emmanuel Petit opnaði markareikn-
inginn hjá Arsenal á þessu tímabili
með marki á 58. mínútu. Gestirnir jöfn-
uðu síðan á 77. mínútu og var Geoff
Thomas þar að verki. Aðeins þremur
mínútum síðar innsiglaði Hollending-
urinn Marc Overmars sigurinn fyrir
meistarana. -JKS
Geir Sverrisson heiðraður fyrir góð afrek
Geir Sverrisson var í gær heiöraöur fyrir frábæra frammistööu á heimsmeistaramóti fatlaöra sem lauk um helgina í
Birmingham á Englandi. Það var félag Geirs, Breiöablik í Kópavogi, sem heiöraöi hann í sérstöku hófi í gær. Geir
vann sigur í tveimur greinum á heimsmeistaramótinu, í 100 og 200 metra hlaupum, og aö auki náöi hann í
bronsverðlaunum í 400 metra hlaupi. DV-mynd Sveinn
Páll Guðlaugsson, þjálfari Leifturs á Ólafsfirði:
„Dýrkeypt mistök"
„Eg held að það sjái hver heilvita
maður að við Leiftursmenn eram
ekki ánægðir með dómgæsluna í
leiknum gegn KR-ingum sl. laugar-
dag. Leikmenn og þjálfarar allra
liða í deildinni eru metnaðarfullir
að gera vel. Það er því ansi hart að
verða fyrir þannig dómgæslu að
kostar okkur stig og þetta er ekki í
fyrsta sinn sem það gerist hjá okk-
ur. Þegar atvikið er skoðað í sjón-
varpi er ekkert athugavert við
markið sem við skoraðum og er síð-
an dæmt af. Síðar í leiknum skora
síðan KR-ingar mark sem er ólög-
legt því það
kemur greini-
lega í ljós að
Guðmundur
Benediktsson
tekur boltann
niður með
hendinni,"
sagði Páll
Guðlaugsson, þjálfari Leifturs, í
samtali við DV í gærkvöld.
Páll sagði að í tilvikinu þar sem
markið er dæmt af bregðist aðstoð-
ardómarinn algjörlega að sínu viti.
„Ég legg mig allan framan í starf-
inu tU að ná sem bestum árangri. Á
sama tíma er grátlegt að þurfa að
missa stig fyrir hrein og klár mis-
tök. Þau eru dýrkeypt og geta vegið
þungt þegar upp verður staðið í lok-
in,“ sagði Páll.
-JKS
Pétur efstur í stigum
- hjá Expressen sem telur hann einn besta leikmann deildarinnar
DV, Sviþjóð:
Pétur Marteinsson, landsliðsmað-
ur í knattspymu, hefur leikiö mjög
vel með Hammarby í sænsku úr-
valsdeildinni í sumar. í sænska
blaðinu Expressen er Pétur í efsta
sæti í stigagjöf þegar frammistaða
UMSK ekki með í
bikarkeppninni
- Skagfiröingar fá 1. deildar sætiö
UMSK, lið Kjalnesinga, hefur hætt við þátttöku í 1. deild bikarkeppninnar í
frjálsum íþróttum sem fram fer 29.-30. ágúst. Lið Skagfirðinga, UMSS, tekur sæti
UMSK en Skagfirðingar urðu neðstir í 1. deild í fyrra.
Breiðablik og Afturelding, stærstu frjálsíþróttafélögin innan UMSK, munu í
staðinn senda lið í 2. deildar keppnina sem fram fer í Kópavogi sömu helgi.
Tímabært að Kópavogur ætti sérstakt lið
„Viö töldum tímabært að Kópavogur, annað stærsta bæjarfélag landsins, ætti
sérstakt lið í deildakeppninni. Það hefur líka orðið mikil aukning í þátttöku hjá
okkur í Breiðabliki og aðstaðan á Kópavogsvelli er orðin glæsileg, þannig að við
ákváðum að keppá undir eigin nafni,“ sagði Einar Sigurðsson, formaður frjáls-
íþróttadeildar Breiðabliks, í samtali við DV. -VS
leikmanna í deildinni er skoðuð.
Blaðið gefur leikmanni 1 til 5 í ein-
kunn fyrir hvem leik og hefúr Pét-
ur að meðaltali feng-
ið yfir þrjá í einkunn
blaðsins.
Fjölmiðlar eru
samstiga í því að Pét-
ur sé einn besti leik-
maðurinn í deildinni
en hann leikur stöðu
miðvarðar hjá
Hammarby.
Pétur og félagar
tróna í efsta sætinu
en staðan í sænsku knattspymunni
hefur ekki í langan tíma verið eins
jöfti og spennandi.
Gífurleg toppbarátta
Aðeins tvö stiga skilja efsta
liðið og það sem er í sjöunda
sætinu. Hammarby er með
27 stig. Síðan koma Helsing-
borg, Örebro, AIK og
Frölunda, öll með 26 stig.
Norrköping og Halmstad
hafa 25 stig.
-EH/JKS
Enginn koss í Laugardalnum
- Fabien Barthez meiddist um helgina
Svo gæti farið að íslenskir knatt-
spymuáhugamenn fái ekki að sjá
hinn litríka markvörð heimsmeist-
araliðs Frakka, Fabien Barthez, þeg-
ar þeir leika á Laugardalsvellinuin
5. september. Þá verður væntanlega
enginn koss á skalla hins skemmti-
lega markvarðar í upphafi leiks líkt
og á HM. Barthez fékk aðeins tvö
mörk á sig í 7 leikjum Frakka á HM
og þar af var annað úr víti.
Barthez meiddist á nára um helg-
ina í deildarleik með Mónakó og
hinn nýi þjálfari, Roger Lemere,
hefur þegar kallað til Bemard Lama
sem mun spila æfingaleik gegn
Austurríki í vikunni en svo er að
sjá hvort Barthez nær sér í tíma fyr-
ir leikinn gegn íslandi. -ÓÓJ
Aöeins örlítiö í viöbót og þá hefst
þaö, gæti Vala Flosadóttir veriö aö
segja. DV-mynd Pjetur
Keflavík (1) 2
Valur (2) 2
0-1 Ingólfur Ingólfsson (14.) með
skalla frá markteig eftir sendingu frá
Amóri Guðjohnsen.
0-2 Jón Þ. Stefánsson (33.) með
góðu skoti rétt fyrir utan vítateig eft-
ir sendingu frá Mark Ward.
1- 2 Snorri Már Jónsson (35.) með
skalla frá markteigslínu eftir send-
ingu frá Þórami Kristjánssyni.
2- 2 Þórarinn Kristjánsson (72.)
meö skoti utarlega i teignum eftir
sendingu frá Sasa Pavic
Lið Keflavíkur: Bjarki Guö-
mundsson @ - Snorri Már Jónsson,
Kristinn Guðbrandsson @, Guð-
mundur Oddsson (Vilberg Jónasson
87.), Karl Finnbogason - Georg Birg-
isson, Gunnar Oddsson @, Eysteinn
Hauksson (Ólafur Ingólfsson 77.),
Marco Tanasic, Sasa Pavic - Þórar-
inn Kristjánsson @@.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson -
Bjarki Stefánsson @, Vilhjálmur Vil-
hjálmsson @, Stefán Ómarsson, Guð-
mundur Brynjólfsson - Jón Þ. Stef-
ánsson @ (Tryggvi Valsson 82.),
Mark Ward, Salih Heimir Porca,
Ingólfur Ingólfsson (Grimur Garðars-
son 69.), Hörður Már Magnússon @ -
Amór Guðjhonsen @@.
Markskot: Keflavik 11, Valur 15.
Horn: Keflavík 2, Valur 10.
Gul spjöld: Láms (V), Ingólfur
(V).
Rautt spjald: Amór (V).
Dómari: Bragi Bergmann, ágætur
en smámunasamur eftir að Amóri
var vikið af leikvelli.
Áhorfendur: Um 500.
Skilyrði: Hægur andvari, milt og
gott veöur. Völlurinn sæmilegur, en
slæmur i markteiginn.
Maður leiksins: Arnór Guöjohn-
sen, Val. Átti góöan leik og ban-
eitraðar sendingar.