Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 ÞÍN FRÍSTUND -OKKARFAG v INTER BÍLDSHÖFÐA - Blldshöfða 20 - Sími 510 8020 Utlönd ^ Jeltsín rak ríkisstjórnina og réð Tsjernomyrdín: Ovissa um efna hagsumbætur HARTOPPAR l-nt BERGMANN?::; og HERKULES ámíu- verðllokkar hi V V * í«SÍ Rakarastofan Klapparstíg Borís Jeltsín, forseti Rússlands, rak Sergei Kirijenko og ríkisstjórn hans í gær og skipaði Viktor Tsjernomyrdín sem starfandi for- sætisráðherra. Þessi ráðstöfun ger- ist nákvæmlega fimm mánuðum eft- ir að Jeltsín rak Tsjernomyrdín og ríkisstjóm hans. Tsjernomyrdín hafði þá gegnt embætti forsætisráð- herra í sex ár og staðið af sér marg- ar hrókeringar í rikisstjóminni. Er talið að tryggð hans við Jeltsín hafi haldið honum á floti. Jeltsín hefur tvær vikur til að ganga endanlega frá skipun forsætisráðherra. Þótt þessar aðgerðir Jeltsíns hafi komið á óvart lék enginn vafl á að langvinn efnahagskreppa var und- irrót þeirra. Efnahagur Rússlands hefur beðið mikinn hnekki í fimm mánaða stjórnartíð Kiríjenkos. Rúblan hefur hriðfallið, erlendar Borís Jeltsín. skuldir stóraukist og tekjur minnk- að vegna olíuverðfalls, traust al- mennings á stjórnmálamönnum far- ið þverrandi og kröfur um afsögn Jeltsíns verið samþykktar á þingi. Er búist við að strax í dag verði hafist handa við umfangsmiklar skuldbreytingar til að lækka greiðslubyrði af erlendum lánum. Efnahagssérfræðingar segja að þótt útlit sé fyrir meiri pólitískan stöðugleika með Tsjernomyrdín við stýrið leiki vafi á hvort nægilega verði að gert til að endurreisa efna- hagslíf Rússlands. Markaðfræðingur í London sagði menn hafa alvarlegar áhyggjur af stefnu mála þegar við stjórnvölinn settist maður sem tókst ekki að framkvæma neinar afgerandi breyt- ingar í efnahagslífinu á sex árum. Prófessor við George Washington háskólann í Bandarikjunum sagði: „Það er Jeltsín sem er vandamálið. Hann hefur engar lausnir að bjóða frekar en fyrri daginn.“ Reuter 1 i 4 4k, J . L Tímareimar Viðurkenndir bílavarahlutir. Breskir vísindamenn á Svalbarða undirbúa uppgröft á sex líkum tornarlamba spönsku veikinnar 1918. Ætlunin er að taka sýni úr lungum og öðrum líffærum í von um að finna vírus þann sem olli veikinni. Takmarkiö er að vinna bóluefni gegn inflúensufaraldri. Símamynd Reuter Sprengjuárásir Bandaríkjamanna: Játning gaf Clinton tilefni af pizzum - taktu með .. eða snæddu á staðnum Opið 11-23.30 og til 01.00 um helgar 0,5 1 á kr. 299 Engihjalla 8 Símt 554 6967 Gildtr einungis í Kópavogi Játning manns, sem átti aðild að sprengjutilræðunum við sendiráð Bandaríkjamanna í Keníu og Tans- aníu, gaf Bill Clinton tilefni til að fyrirskipa sprengjuárásir á meintar skæruliðabúðir í Afganistan og efnavopnaverksmiðju í Súdan. Hler- að samtal tveggja af liðsmönnum Osamas Bins Ladens í farsíma full- vissaði síðan Clinton um aðild hans að tilræðunum við sendiráðin. Bretar segjast einnig hafa aflað sannana um aðild Bins Ladens að tilræðunum og fyrirætlanir um fleiri sprengjutilræði. George Ro- bertsson, varnarmálaráðherra Breta, sagði að árásir Bandaríkja- manna væru ekki hefndaraðgerðir heldur í samræmi við alþjóðalög sem gera ráð fyrir vernd til handa almennum borgurum. Robertsson sagði einnig að Bandaríkjamenn væru þess fullviss- ir að í verksmiðjunni í Súdan, sem heimamenn sögðu framleiða lyf, hefðu verið framleidd efnavopn eða efni til að gera slík vopn, t.d afar banvænt taugagas. Þá sagði hann Breta hafa sannanir þess efhis að Bin Laden hefði sóst mjög eftir slík- um vopnum. Súdanir ítrekuðu beiðni til örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna um að fram færi rannsókn á sprengjuárás Bandaríkjamanna. Reuter Lauslat falsgyðja Einungis um 2 þúsund manns skráðu sig í gönguferð í London sömu leið og lík Díönu var flutt daginn sem hún var jarðsungin. Vegna rigningar er þó talið að aðeins um 200 hafi tekið þátt í göngunni. manns Skipu- leggjandi göngunnar átti von á 15 þúsund þátttakendum. Bakslag virðist komið í áhuga á eins árs dánarafmæli Díönu. í gær sagði erkibiskupinn af Kantaraborg að Díana væri lauslát falsgyðja. í París flykkist fólk enn að göng- unum þar sem slysið varð. Ferða- menn hafa gert minnismerki úr árituðum kortum og miðum sem hengdir eru upp nálægt gangamun- anum. Reuter Stuttar fréttir dv Þriðjungur óákveöinn Skoðanakannanir sýna að tæp- ur þriðjungur sænskra kjósenda er óákveðinn í afstöðu sinni til flokkanna. Þingkosningar verða i Svíþjóð 20. september. Róleg hátíðahöld Benjamin Netanyahu var víös fjarri þegar þess var minnst í Ósló í gær að 5 ár eru frá undir- ritun Óslóarsamningsins um frið milli ísraela og Palestínumanna. Hátíðahöldin þóttu róleg enda dimmt yfir friðarferlinu. Mörgum yrði flökurt Tímaritið Newsweek segir að margir muni kasta upp við lestur skýrslu Kennets Starrs um kynferðis- samband Bills Clintons og Monicu Le- winsky. Hart barist Uppreisnarmenn undir forystu tútsa, sem reyna að velta Laurent Kabila, forseta Kongós, úr sessi, sögöust hafa náð þriðju stærstu borg landsins á sitt vald en um leið tapað mikilvægri birgðastöð. Á móti umferðinni 61 eins árs Japani var handtek- inn eftir að hafa ekið 28 km drukkinn á vitlausum hraðbraut- arhelmingi. Skógareldar Skógareldar geisuðu í norður- hluta Korsíku og í skógum við frönsku Rívíeruna. Dýrt folald Sheik í Dubai greiddi ríflega 115 milljónir króna fyrir 17 mán- aða folald í Frakklandi. Handabandameistari Newt Gingrich, forseti fulltrúa- deildar banda- ríska þingsins, brosti og tók í hendur 3.609 manns á fimm klukkustundum í Seattle. Hann segir það nægja til að komast í heimsmetabók Guinness undir flokknum „flest handabönd stjómmálaforingja". " Olíumengun Pólskir björgunarmenn unnu við að hreinsa upp olíu á 10 km kafla í ánni Oder áður en hún bærist til Þýskalands. Sprengjuregn Serbar létu sprengjum rigna yf- ir þorp í Kosovo mestallan sunnu- daginn. Hundmð lögðu á flótta. Sendir ekki dauðasveitir Tony Blair, forsætisráðherra Breta, sagöist ekki ætla að beita sérsveitum til að hafa uppi á og drepa meðlimi „Hins raunveru- lega írska lýðveldishers". Fellibylur Fellibylurinn Bonnie „safnaði kröftum" við Bahamaeyjar. Búist er við að hann nái austurströnd Bandaríkjanna á miðvikudag. Sigurviss Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, sagði 18 þúsund stuðn- ingsmönnum í Dortmund að hann mundi bera sigurorð af Gerhard Shröder i kosn- ingunum 27. september. Hann sagði jafnaðar- menn ógna öryggi landsins og hagsæld. Lögbrot Herforingjastjórnin í Burma sagðist mundu brjóta lög ef farið yrði að kröfum stjómarandstöð- unnar um að kalla þingið saman. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.