Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 16
Wenning ■ ik ik MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 JLj"V Útgefandinn er að verða óþarfur Heyrst hefur að Þorgeir Þor- geirson sé hættur að gefa út bæk- ur eins og annað fólk. Hann hafi tekiö tæknina í sína þjónustu og sé nú allur á Internetinu. Þegar ég hitti Þorgeir í Leshúsi, þar sem hann hefur hreiðrað um sig með tölvur, bækur og bakkelsi, byrjaði ég náttúrlega strax að for- vitnast um þetta. Þorgeir segir að hér áður hafi hann verið með tvo forleggjara, annan fyrir frum- samdar bækur og hinn fyrir þýð- ingar. En svo kom það babb í bát- inn að hann lenti upp á kant við ríkisvaldið en þær deilur stóðu í níu ár. Og þegar Þorgeir lét sig ekki þá fór að fara um menn og að lokum tilkynntu útgefendurn- ir honum að því miður þyrftu þeir á lánum að halda hjá ríkis- bönkunum til þess að standa straum af útgáfunni og hann væri sprengiefni sem þeir þyrðu ekki að eiga í sínum fórum. „Mér þótti þetta ekkert skrýt- ið,“ segir Þorgeir, „á þessum tíma var ég að skrifa hluti sem þóttu ekki fínir og þykja ekki enn. Ég var að skrifa um þjóð- skipulagið en allt byrjaði þetta með tveimur greinum um lög- regluofbeldi sem ég var kærður og dæmdur fyrir af Hæstarétti. Ég var dæmdur eftir 108. grein hegningarlaganna. Sú grein hljóðaði upp á að óviðurkvæmi- leg ummæli um opinberan starfsmann varðaði sektum, þó sönnuð væri. Sú grein var siðan felld niður eftir að ég vann mál- ið í Strasbourg." Þorgeir segist lengi hafa furðað sig á því að í hundrað og fimmtíu ár hafi islensk blaðamanna- stétt sætt sig við að í lögum væri bann við því að sinna frumskyldum blaðamannsins. „Kjörorð heiðarlegs blaðamanns er að segja sannleikann eftir bestu vitund og í réttmætum tilgangi. Þetta er alþjóðleg skilgreining á tján- ingarfrelsi blaðamanna. En íslensk blaðamanna- stétt lét sig hafa það í hundrað og fimmtíu ár að vinna undir lagaákvæði sem bannaði þetta ef opinber starfsmaður átti í hlut. Þeim mun leng- ur sem líður þá furða ég mig meira á því að þetta skyldi gerast. Að stéttin skyldi vaxa upp við þessi skilyrði. Þetta er eins og bam sem vex upp án þess að fá nokkum tima að borða.“ Þorgeir fagnar því að nú hafi Hæstarétti verið kenndir mannasiðir hvað þetta varðar. Auövitað eigi tjáningarfrelsi að vera fullkomið. En ef menn fara með rógburð og rangt mál þá eigi vitaskuld að dæma menn fyrir það. Þegar Þorgeir er spurður hveiju hann vildi helst breyta i þjóðskipulaginu þá segir hann að það sé svo sem ekki margt. Hann vilji bara breyta grundvellinum. En það sé óþarfi að vera að setja á langar tölur mn það. Tvenns konar læsi „Ég er alveg flúinn inn á Netið,“ segir Þorgeir þegar ég grennslast frekar fyrir um bókaútgáfu hans. „Þetta er orðinn svo skrýtinn heimur sem við lifúm í. Hann krefst tvenns konar læsis. Annars vegar þarftu að þekkja bókstafina, sem hefur þurft síðan á dögum Gutenbergs, og hins vegar þarftu að vera tölvulæs. Og þó að ég sé orðinn gamall og sljór og gleyminn og heimskur þá hefur mér opnast á Internetinu heill heimur af nýjum möguleikum sem mér finnast nú orðn- ir sjálfsagðir.“ Þorgeir segir enn fremur að bókaútgáfan, eins og hún er starfrækt í dag, sé á háskavegum. „Góöur vinur minn, sem starfar i þessum bransa, sagði við mig um daginn: „Það er eng- inn vandi að gefa út bók á íslandi i dag. Þú aug- lýsir fyrir milljón og þá geturðu selt fyrir 950 þúsund. Síðan veröurðu að útvega þér peninga til þess að borga sjálfum þér, prentverkinu, bók- bandinu og höfundinum." Mér skilst að það fari einhvers staðar á milli hálfur og einn milljarð- ur á ári í það að auglýsa bækur í sjónvarpi. Þetta stenst ekki. Bókin er ekki lengur flytjandi boðskapar, fegurðar eða ljótleika, heldur er hún orðin standard gjcifavara. Enda sérðu hvað bókakápur eru orðnar líkar konfektkössum. Margur hefúr sjálfsagt lent i því aö ætla að kaupa bók handa bókelskum vini sínum í jóla- gjöf en óvart gefið honum konfektkassa. En ég veit ekki hversu skelfilegt þetta er, það er kannski göfugt hlutskipti að spandéra milljón- um á milljónir ofan í það að sanna fyrir sjálfum sér að bókin sé enn jafn mikilvæg og áður en all- ir þessir nýju miðlar komu. Auövitað hverfur bókin aldrei en hún getur ekki haldið áfram að vera til nema þeir sem að þessu vinna viður- kenni nýjar aðstæður. Intemetið gæti líklega bjargað þessu en það hefur bara ekki verið rétt notað. Auglýsingar eiga ekki að stýra Intemet- inu, þvi eðli þess er allt annað. Eðli Intemetsins er þjónusta við þá sem vilja lesa og frelsi lesand- ans verður aö vera algjört." Útgáfa á Netinu „Eg held sumsé að útgefandinn sé að verða óþarfur. Þessi sjúklega peningaeyðsla í auglýs- ingar og glamur er ekki endilega tímanna tákn heldur til marks um að útgáfan hefur runnið sitt skeið á enda. Tæki sem leysa útgefandann og prentsmiðj- una af hólmi kosta ekki mikla peninga í dag. Höfundur getur viðurkennt það að bækur era ekki lengur íjöldasöluvara, tekið sina prentun heim og stefnt að metsölunni 150-200 eintök. Ég fer inn á Netið og ég sem á html-formi. Þegar ég er oröinn þokkalega ánægður með textann gef ég bókina út á Netinu þar sem hún er frjáls öll- um og öllum frjálst að senda mér athugasemdir. Þama er höfundurinn kominn með tækifæri á því að rjúfa einangrun sína. Það góða við tölvu- útgáfuna er líka að höfundur getur haldið áfram að vinna í textanum eftir að bókin er komin út. Ég hef gefið út tvær bækur á Netinu í vor og ég er enn að vinna i þeim. Þetta er alveg ný hugs- un og liður í tvíhliða sambandi við lesandann. Þegar textinn er svo kominn á það stig sem ég er þokkalega ánægður með þá kópera ég hann inn á annan stað i tölvunni minni þar sem ég layoutera hann og prenta út nokkur eintök í bókarformi á leysiprentaranum mínum. Aðalatriðiö er að höfundur geti unnið heiðar- lega og frjálst að sínu ritverki, óháður og eigi fyrir salti í grautinn. Þetta em kröfumar. Ég er hér að byggja upp höfundarstúdíó með ótal möguleikum og að nokkru leyti dreymir mig um að byggja upp módel að framtíðarvinnuaðstöðu höfunda. Fyrir fjárfestingu sem er ekki meiri en stór jeppi getur höfúndurinn byggt sér upp að- stöðu til þess að vinna algerlega sjálfstætt, á eig- in vegum um leið og hann er í rauninni á heims- markaði." Þorgeir segir að markhópur Leshússvefset- ursins sé námsfólk. Þeir útlendingar sem em að læra íslensku og fslendingar sem eru að læra eitthvað af þeim átta tungumálum sem þar er ritað á. Eins allir þeir sem vilja forvitnast um þýðingar. Þarna eru kvæði sem þýdd em á hin ýmsu tungumál, tímarit Leshúss, kaflar úr rit- verkum, bæði á frummáli og í þýðingu, auk ým- issa kafla úr því sem Þorgeir hefur verið að fást við um dagana. Slóðin er htpp://www.centr- um.is/~leshus, en vefsetrið er partur af Mennta- netinu. Þorgeir setur nú bækur sínar inn á Netið þar sem allir geta haft afnot af þeim. Raddir fortíðar Jóhanna Þráinsdóttir mun fjalla um minni spámenn fombókmennt- anna í þáttaröðinni Raddir fortíðar á rás 1 í dag og næstu mánudaga. Háðfuglinn Lúkíanos var uppi á annarri öld eftir Krist. í þættinum í dag er fjallað um æviferil og sam- tíma Lúkíanosar og lesnir kaflar úr verkum hans, Dauöa Peregrínusar og Alexander. í næsta þætti verður lesinn kafl- inn Á sælueyju meö sáluðum köpp- um úr Sannri sögu eftir Lúkíanos. Þátturinn hefst kl.15.03. Hitlers- mynda- sögur Gefin hef- ur verið út i Bandaríkj- unum grið- arvinsæl teikni- mynda- saga sem ber nafnið Adolf - die Nazi-Sau, sem útleggst Nasista- svínið Adolf, og sækir að sjálfsögðu fyrirmynd sína í illmennið Adolf Hitler. Höfundurinn er hinn fer- tugi Walter Moers og hann er alveg hissa á vinsældum bókarinnar en á tveimur mánuöum hefur hún selst í yfir 50.000 eintökum. Sagan gengur út á það að Hitler hafi búiö neðanjaröar, í bókstaf- legri merkingu, með rottum og við- bjóði, síðan í stríðslok. Allt í einu dúkkai' hann upp árið 1998 og er ansi fúll yfir endalokum stríðsins og hinum andnasíska áróðri. Hann lendir svo í ýmsum ævintýrum. Auðvitað er þetta til gamans gert, en hversu gaman er þaö? Sumir vifja meina að ekki sé mögu- legt að hlæja mikið að Hitler, hlát- urinn hljóti að verða að ískyggileg- um kekki í hálsinum. Það sé ekki til neitt í veröldinni sem geti sýnt spaugilega hlið á nasismanum og Þriðja ríkinu. Aðspurður segir Walter Moers ástæðuna fyrir útgáfunni liggja í því hve auðvelt sé að teikna Hitler. Nýlistasafnið á næst- unni Um helgina var opnuð sýning á verkum fjögurra listamanna í Ný- listasafninu. Þetta eru listamenn- imir Daníel Þ. Magnús- son, Juan Geuer, Hrafnhild- ur Amar- dóttir og Finnur Amar. Daníel Þ. Magn- ússon sýnir húsgögn ásamt listleysum, svoköll- uðum landslagsmálverkum, unn- um með slembiúrtaki. Hrafnhildur Amardóttir er af Laugarvatnsætt- inni og gerði sér lítið fyrir og teiknaði hana alla upp. Finnur Amar fjallar í sinni sýningu um framtíöardrauma og áætlanir. Hann vinnur mikið með hafnfirsku hljómsveitinni PPPönk en sú hljómsveit tróð einmitt upp á opn- uninni á laugardaginn. Juan Geuer sýnir jaröskjálfta- mæli sem er leysivirkur og sýnir því meira en venjulegir jarð- skjálftamælar. Geuer vann áður viö að hanna mælitæki og jarð- skjálftamælir hans er því alvöm- jarðskjálftamælir. Einnig er Geuer með tvö speglaverk á sýningunni. Nýlistasafnið er opið alla daga nema mánudaga, frá kl. 14-18. Umsjón Þórunn Hrefna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.