Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 18
18
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998
r
Síðari umferð heimsbikarmótsins í torfæruakstri:
Torfæran
Margir keppendanna í torfærunni
hafa veriö aö minnka aflið í vélum
sínum til að hafa bílana ekki of erf-
iða. Gangur vélanna verður þá jafn-
ari, öruggari og betri og auöveldara
verður að ráða við bílana.
Þaó er mikilvcegt fyrir ökumennina
að hafa nóg afl þegar á þarf að halda.
Þó er ekki siður mikilvægt fyrir öku-
mennina að vanda sig i keppni, hitta
á hliðin og mæta á réttum tíma á rás-
linuna til að fá ekki refsistig.
Þaó eru oft þeir ökumenn sem lítið
ber á sem skila árangri. Þeir aka
brautimar að því er viröist fyrirhafn-
arlaust og taka ekki óþarfa áhættu.
Gott dæmi um það er Siguröur Arn-
ar Jónsson sem tryggði sér heims-
bikarmeistaratitilinn í ár með slikum
akstri.
Rafn Haröarson lenti í vandræðum
með framdrifið í annarri brautinni.
Það hafði hrokkið úr sambandi og
átti hann i erfíðleikum með að tengja
það. Hann tapaði dýrmætum stigum
þar.
Gisli G. Sigurösson átti hrikaleg-
ustu veltuna i þessari keppni þegar
hann endastakkst niður 5. braut.
fslandsmeistaratitlarnir í báðum
flokkum eru nú þegar fráteknir.
Gisli G. Jónsson og Gunnar Pálmi
Pétursson tryggðu sér þá með frá-
bærri frammistöðu í 4 fyrstu umferð-
unum.
Síöasta torfœrukeppni sumarsins
verður haldin á Hellu 12. september.
Það er síöasta umferð íslandsmeist-
aramótsins.
-JAK
Ásgeir Jamil Allansson sigraði
örugglega í götubílafiokki í Jósefs-
dal og flýgur hér af krafti yfir eina
hindrunina.
DV-myndir JAK
Frissi var frískur
- Helgi vann í Jósefsdal en Sigurður varð heimsbikarmeistari
„Ég er mjög ánægður með sigur-
inn í þessari keppni," sagði Helgi
Schiöth eftir að hann stóð uppi sem
sigurvegari í seinni umferð heims-
bikarsmótsins í torfæruakstri sem
haldið var í Jósefsdal á laugardag-
inn. Helgi ók glæsilega og sýndi
hvers Frissi fríski er megnugur.
„Ég hef staðið í bölvuðu basli með
bílinn í sumar vegna eilífra bilana.
Ég reif Dana 300 millikassann úr
bílnum fyrir þessa keppni og setti
New Process 208 kassa í staðinn,
gamli kassinn var ónýtur, þoldi
ekki átökin,“ sagði Helgi.
Fjórða sætið dugði Sigurði
Sigurði Amari Jónssyni, Akur-
eyringnum unga, tókst að tryggja
sér heimsbikarinn eftir yfirvegaðan
og öruggan akstur þrátt fyrir að
hann endaði í 4. sæti þessarar
keppni. Bjó hann þar að sigrinum í
fyrri umferð mótsins þar sem hann
kom svo skemmtilega á óvart. Það
varð honum til happs í þessari
keppni að Þorlákshafnarbúanum,
Gísla G. Jónssyni tókst ekki að
komast fram fyrir hann þrátt fyrir
hetjulegar tilraunir og frábæran
akstur.
„Ég er verulega ánægður með
þessa niðurstöðu," sagði Sigurður
Amar. „Ég reyndi að aka brautim-
ar skynsamlega, passaði mig á
dekkjunum og mætti í allar brautir,
það gefur mikið,“ sagði hinn nýbak-
aði heimsbikarmeistari.
Sá strax að ég myndi sigra
Ásgeir Jamil AUansson kom, sá
og sigraði í götubílaflokknum. Ás-
geir Jamil hóf keppnistímabUið í
sérútbúna flokknum en skipti um
flokk um mitt sumar og hefur hon-
um gengið vel í götubUaflokknum.
„Ég sá það strax í morgun í fyrstu
braut að ég myndi sigra í keppn-
inni þegar Gunni Gunn. stoppaði í
fyrstu brautinni og gaf mér eigin-
lega titilinn. Þá vissi ég að þaö var
komið að því, ég átti ekki að
klikka," sagði Ásgeir Jamil.
„Ég ætlaði nú að taka tímabraut-
ina af grimmd en braut dempara,
fékk gott högg. En þetta gekk hjá
mér, ég kláraði aUar brautir. Ég
vUdi vinna titUinn með 1. sætinu þó
svo að mér hefði dugað 3. sætið.
Þess vegna lagði ég meira á mig en
ég nauðsynlega þurfti," bætti Ásgeir
JamU við.
Gunnar í vandræðum
Það var Gunnar Gunnarsson sem
stóð best að vígi í upphafi keppninn-
ar eftir sigur sinn í fyrri umferðinni
á Akureyri. Gunnar lýsti gengi sínu
í keppninni svona:
„Ég klikkaði í tveimur fyrstu
brautunum, þriðja þraut var í lagi. í
fjórðu brautinni brotnaði öxuU í
framdrifinu. Svo kemur 5. braut. Þá
brýt ég framdrifið, köggulinn sjálf-
an. Við fengum ekki framdrif fyrr
en nokkrum mínútum fyrir 6. braut-
ina. Við rifum aUt í spað. Mér tókst
að komast í 6. brautina en þar náði
ég einungis 20 stigum. Við vorum á
kafi í viðgerðum þegar okkur var
sagt að þrír bUar væru á undan okk-
ur í 7. braut Við köstuðum bílnum
saman og ég kom keyrandi héma
yfir hæðina. Ég fékk skUaboð um að
tími minn væri að renna út og ég
ætti bara að keyra beint af stað í
þrautina. Þegar ég kom héma yfir
hæðina sá ég síðasta bUinn fara
brautina. Þeir stoppuðu mig og
flögguðu út svo að ég fékk ekki að
aka brautina. Svo virkaði þetta
ágætlega í 8. brautinni."
Eitthvað til f þessu með
svarta köttinn
„Þetta hefur ekki verið minn dag-
ur. Á leiðinni á keppnisstað í morg-
un hljóp svartur köttur fyrir okkur.
Ég er nú ekki talinn hjátrúarfuUur
en það er greinilegt aö það er eitt-
hvað tU í þessu. Ég held að ég trúi á
þetta eftir daginn i dag. ÆUi við för-
um bara ekki í myrkri á HeUu.
sagði Gunnar Gunnarsson og hló
við.
Birtar verða fleiri myndir ffá tor-
færunni næstkomandi fimmtudag.
-JAK
Úrslit
- sérútbúinn flokkur:
1. Helgi Schiöth...........2.200
2. Ragnar Skúlason.........2.130
3. Einar Gunnlaugsson .....2.115
4. Sigurður A. Jónsson ....2.110
5. Gísli G. Jónsson........2.060
6. Gísli G. Sigurðsson ....1.990
7. Gunnar Egilsson ........1.940
8. Ingi Már Björnsson......1.870
9. Sigurður Þ. Jónsson.....1.820
10. Ragnar Róbertsson......1.630
11. Guðmundur Pálsson......1.522
12. Gunnar Ásgeirsson........802
13. Rafn Harðarson ...........40
Götubílaflokkur:
1. Ásgeir Jamil Allansson .... 1.895
2. Gunnar Pálmi Pétursson ... 1.850
3. Hrólfur Árni Borgarsson ... 1.800
4. Rafn A. Guöjónsson......1.710
5. Gunnar Guðmundsson......1.620
6. Gunnar Gunnarsson.........990
7. Daníel G. Ingimundarson .... 580
Heimsbikarmeistarinn Sigurður Arnar Jónsson á fullri ferð.
Sigurvegarinn í sérútbúna fUokknum á laugardag, Helgi Schiöth.