Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Síða 19
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 Fréttir 19 Ný stjarna á iiímní hryöjuverkanna: Mannvinurinn sem varð höfuðfjandi Skjótt skipast veður í lofti. Mað- urinn sem bandarísk stjórnvöld litu nánast á sem bandamann sinn í heilan áratug og sem furstamir í Sádi-Arabíu kölluðu velgjörðar- mann mannkyns er allt í einu kom- inn í hóp verstu skúrka á byggðu bóli. Já, sádi-arabíski auðkýfmgur- inn og andófsmaðurinn, Osama bin Laden, er kominn í hóp með þeim Saddam Hussein íraksforseta og Gaddaf! Líbíuleiðtoga. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og háttsettir embættismenn vísuðu í mjög afdráttarlaus gögn frá alls kyns leyniþjónustum þegar þeir réttlættu flugskeytaárásirnar á Afganistan og Súdan fyrir helgi, gögn sem að þeirra sögn staðfestu aö bin Laden hefði verið pottiu-inn og pannan á bak við sprengjutilræð- in gegn sendiráðum Bandaríkjanna í Keníu og Tansaníu. En þegar geng- ið var á þá fengust þeir ekki til að veita frekari upplýsingar sem styddu fúllyrðingar þeirra og vís- uðu í að allt væri þetta leynilegt. Osama bin Laden öðlaðist fyrst frægð á níunda áratugnum þegar hann lagði trúbræðrum sínum í Afganistan lið við að hrekja sovéska herinn úr landi. Bin Laden, sem hefur verið líkt við hryðjuverkamanninn Carlos, eða Sjakalann, sem dúsir nú á bak við lás og slá í Frakklandi, vísaði á bug á fimmtudag að hann hefði nokkuð komið nærri tilræðunum við sendiráðin tvö. En jafnvel fyrir sprengjuárásirnar í Keníu og Tansaníu litu bandarísk stjómvöld á hann sem hættulegasta mann í heimi, að því er Vince Cannistraro, fyrrum yfirmaður þeirrar deildar Sádi-arabíski auðjöfurinn Osama bin Laden hefur sagt Bandaríkjun- um og gyðingum heilagt stríð á hendur og vill ráðast gegn þeim hvar sem hægt er. bandarísku leyniþjónustunnar CIA sem berst gegn hryðjuverkum. „Ætlunarverk hans er að drepa eins marga Bandaríkjamenn og hann getur hvar sem hann nær til þeirra," segir Cannistraro í viðtali við blaðið Los Angeles Times. Bin Laden er rúmlega fertugur, með úfið skegg og tilfinningarík augu. Hann er sonur byggingaverk- taka sem eignaðist 52 börn og græddi milljarða dollara á alls kyns framkvæmdum fyrir konungsfjöl- skylduna í Sádi-Arabíu. Bin Laden var 17. í röðinni af tuttugu sonum og hafði allt til alls á meðan hann var að alast upp. Hann hætti hagfræðinámi árið 1979 og gekk til liðs við harð- línumúslíma í Afganistan. Þar fjár- magnaði hann þjálfun hryðjuverka- manna og sá þeim fyrir vopnum. Að sögn yfirmanns bandarísku leyni- þjónustunnar í Afganistan var bin Laden miklu fremur fiáröflunar- maður en bardagamaður. Reyndar varði hann miklum hluta tíma síns í Pakistan þar sem hann aðstoðaði flóttamenn á alla lund, einkum þó ekkjur og munaðarleysingja sem áttu um sárt að binda vegna stríðs- átakanna í Afganistan. Vendipunkturinn á vegferð bin Ladens úr hlutverki bandamanns- ins í hlutverk óvinarins varð árið 1990, í kjölfar Persaflóastríðsins. Hann sagði að íslamstrúin hefði aldrei orðið fyrir meira áfalli en því þegar bandamenn sendu hermenn sina til Arabíuskagans til að reka íraka burt úr Kúveit. Bin Laden flutti til Súdans árið 1991 og hann hefur verið sakaður um aðild að fiölda tilræða um heim allan síðan þá, meðal annars í Jemen og Sómalíu. Dansskáli Heiðars Ástvaldssonar er staltur að kynna: hámskeið Kennarar: 1 Eckstram La So®etjam Innrltun ng upplýsingar í síma 552 0345 kl. 13-19 daglega. Frábær greiðslukjör: Toyota Hiace 4x4 diesel VSK '98, ek. 12 þ.km. v: 2.550 þús. Engin útborgun og lán til allt að 48 mánuða Fyrsta afborgun getur verið eftir allt að 3 mánuði, Visa/Euro Raðgreiðslur til allt að 36 mánuða. Isuzu TrooperXS 3.1 diesel '96, ek. 35 þ.km. v: 2.450 þús. (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöfða 2 • Reykjavík Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf: 587 7605 Saab 900 S sj.sk. '94, ek. 61 þ.km. v: 1.450 þús. Nissan Pathfinder 3.0 V6, '93, ek. 111 þ.km. v: 1.850 þús. Nissan Pathfinder 3.0 V6, '91, ek. 164 þ.km. v: 1.450 þús. Opel Vectra 1.6 16 v. 5 dyra '98, ek. 5 þ.km. v: 1.690 þús. Opel Astra Caravan 1.6 16 v. '97 ek. 33 þ.km. v: 1.350 þús. Fiat Brava 1.6 SX 16v. '98, ek. 5 þ.km. v: 1.320 þús. Nissan Maxima 2.0 V 6 '96, ek. 50 þ.km. v: 2.150 þús. Saab 9000 cs sj.sk. '93, ek. 85 þ.km. v: 1.420 þús. Toyota Corolla 1.3 XL sj.sk. '91, ek. 125 þ.km. v: 570 þús. Nissan Terrano II SE TDI '97, ek. 48 þ.km. v: 2.300 þús. Ford F-250 7.3 D X-cab Lariat '88, ek. 120 þ.km. v: 1.450 þús. Subaru Legacy 2.2 st. 4x4 '97, ek. 7 þ.km. v: 2.280 þús. Suzuki Swift 1.3 CLS '96, ek. 38 þ.km. v: 730 þús. Subaru SVX 3.3, 24 v. 4x4 '93, ek. 8 þ.km. v: 2.550 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.