Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 34
42
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998
Afmæli
Halldór Blöndal
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra, Kaupvangstræti 1, Akureyri,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófl frá MA 1959, hóf nám í lög-
fræði við HÍ, lauk upphafsprófum
en hætti námi.
Halldór vann við hvalskurð í
hvalveiðistöðinni í Hvalfirði á
flmmtán vertíöum frá 1954-74, var
kennari við Réttarholtsskólann,
Gagnfræðaskólann á Akureyri, MA,
Lindargötuskóla og Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1959-71, var blaðamað-
ur við Morgunblaðið 1961-63, 1967—
68, 1971-72 og 1978-79, erindreki
Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra 1963-1967 og vann
á Endurskoðunarstofu Bjöms
Steffensen og Ara Ó. Thorlacius á
Akureyri 1976-78.
Halldór var vþm. Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra 1971-79, er alþm. kjödæmis-
ins frá 1979, var landbúnaöar- og
samgönguráðherra 1991-95 og er
samgönguráðherra frá 1995.
Halldór var m.a. formaður Varð-
ar, FUS á Akureyri, Sjálfstæðisfé-
lags Akureyrar, SUS á Norðurlandi
og kjördæmisráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Norðurlandskjördæmi
eystra, sat í stjórn SUS 1965-71, í
miðstjóm Sjálfstæðisflokksins
1973-79 og frá 1991, var formaður
Félags framhaldsskólakennara á
Norðurlandskjördæmi eystra.
Halldór var yfirskoðunarmaður
ríkisreikninga 1976-87, í úthlutun-
amefnd listamannalaima 1978-87, í
stjóm Framkvæmdastofnunar ríkis-
ins, síðar Byggðastofnunar, 1983-91,
í stjóm Slippstöðvarinnar hf.
1984-89, í bankaráði Búnaðarbanka
íslands 1985-91, sat allsherjarþing
SÞ og þing Alþjóðaþing-
mannasamhandsins 1983
og þing Evrópuráðsins
1984-86, var formaður
nefndar um háskóla-
kennslu á Akureyri og
hefúr setiö í fjölda ann-
arra nefnda.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 16.4.
1960 Renötu Brynju Krist-
jánsdóttur, f. 31.10. 1938,
d. 3.6. 1982. Þau skildu
1967. Hún var dóttir Kristjáns P.
Guðmundssonar, f. 8.3. 1913, d. 6.12.
1991, forstjóra og útgerðarmanns á
Akureyri, og k.h., Úrsúlu Beate
Guðmundsson, f. Piemey, f. 4.12.
1915, húsmóður.
Dætur Halldórs og Renötu eru
Ragnhildur. f. 21.9. 1960, bókasafns-
fræðingur; Kristjana, f. 28.12. 1964,
uppeldisfræðingur.
Halldór kvæntist 27.12. 1969
Kristrúnu Eymundsdóttur, f. 4.1.
1936, kennara við VÍ. Hún er dóttir
Eymundar Magnússonar, f. 21.4.
1893, d. 13.1. 1977, skipstjóra í
Reykjavík, og k.h., Þóru Ámadótt-
ur, f. 28.2. 1903, húsmóður.
Sonur Halldórs og Kristrúnar er
Pétur, f. 6.12. 1971, blaðamaður.
Synir Kristrúnar og fóstursynir
Halldórs era Eymundur Matthías-
son Kjeld, f. 1.2.1961, eðlis- og stærð-
fræðingur; Þórir Bjarki Matthías-
son Kjeld, f. 20.11. 1965.
Systkini Halldórs: Benedikt, f.
11.1. 1935, d. 22.4. 1991, hæstaréttar-
dómari; Kristín, f. 5.10.1944, d. 11.12.
1992, kennari; Haraldur, f. 6.7. 1946,
hrl.; Ragnhildur, f. 10.2. 1949, bóka-
safnsfræðingur.
Foreldrar Halldórs: Láras Þórar-
inn Haraldsson Blöndal, f. 4.11.1905,
fyrrv. alþingisbókavörður í Reykja-
vík, og k.h., Kristjana Benedikts-
dóttir, f. 10.2.1910, d. 17.3.
1955, húsmóðir.
Fósturmóðir Halldórs
var Margrét Ólafsdóttir,
f. 4.11. 1910, d. 7.6. 1982,
húsmóðir.
Ætt
Láras er sonur Haralds
Blöndals ljósmyndara,
bróður Jóseflnu, móður
Lárusar Jóhannessonar,
alþm., og ættfræðings, og
móður Önnu, móður
Matthíasar Johannesen ritstjóra.
Annar bróðir Haralds var Jósep, afi
Péturs Blöndals alþm. Haraldur var
sonur Lárasar Blöndal, amtm. og
alþm. á Kornsá, bróður Sigríðar,
móður Magnúsar Th. Blöndals
alþm. og Bjöms Sigfússonar alþm.
Láras var sonur Björns, sýslum. í
Hvammi, alþm. og ættföður Blön-
dalsættarinnar, Auðunssonar. Móð-
ir Haralds var Kristín Ásgeirsdóttir,
b. á Lambastöðum, bróður Jakobs,
langafa Vigdísar Finnbogadóttur.
Ásgeir var sonur Finnboga, verslun-
armanns i Reykjavík, Bjömssonar,
og Amdísar Teitsdóttur vefara
Sveinssonar. Móðir Kristínar var
Sigríður, systir Þuríðar, langömmu
Vigdísar Finnbogadóttur. Hálfsystir
Sigríðar var Rannveig, langamma
Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslason-
ar, fyrrv. ráðherra, föður Vilmund-
ar ráðherra og Þorsteins heimspek-
ings. Sigríður var dóttir Þorvaids,
pr. og skálds í Holti, Böðvarssonar,
pr. í Holtaþingum, Presta-Högna-
sonar.
Móðir Lárusar var Margrét, syst-
ir Sigríðar, ömmu Styrmis Gunn-
arssonar ritstjóra. Bróðir Margrétar
var Halldór, afl Kára Stefánssonar.
Margrét var dóttir Auðuns, b. á
Svarthamri, Hermannssonar, b. á
Vífilsmýrum, Jónssonar. Móðir
Hermanns var Herdís, systir Guð-
nýjar, langömmu Sigríðar, móður
Marsellíusar Bernharðssonar skipa-
smiðs. Bróðir Sigríðar var Eiríkur,
afi Böðvars Bragasonar lögreglu-
stjóra. Herdís var dóttir Árna, b. í
Dalshúsum, Bárðarsonar, ættföður
Arnardalsættarinnar, Ulugasonar.
Kristjana var systir Péturs, alþm.
og bankastjóra, föður Guðrúnar,
forstöðumanns sjávarútvegsdeildar
HÍ; Bjama forsætisráðherra, föður
Bjöms menntamálaráðherra;
Sveins framkvæmdastjóra, föður
Benedikts hrl. og stjórnarformanns
Sjóvár-Almennra, og systir Ólafar
menntaskólakennara, móður Guð-
rúnar Guðjónsdóttur kennara.
Kristjana var dóttir Benedikts,
alþm. N-Þingeyinga, bróður Bald-
urs, afa Gísla Sigurðssonar hjá
Stofnun Árna Magnússonar. Bene-
dikt var sonur Sveins, gestgjafa á
Húsavík, bróður Bjöms, afa Guð-
mundar Benediktssonar, fyrrv.
ráðuneytisstjóra. Sveinn var sonur
Magnúsar, snikkara á Víkinga-
vatni, Gottskálkssonar, bróður Guð-
mundar, afa Jóns Trausta. Móðir
Sveins var Ólöf, systir Þórarins, afa
Þórarins Björnssonar skólameist-
ara.
Móðir Kristjönu var Guðrún,
systir Marenar, ömmu Gísla hjá
Stofnun Áma Magnússonar. Hálf-
systir Guðrúnar var Kristín Bjama-
dóttir, móðir Ragnhildar Helgadótt-
ur, fyrrv. ráðherra. Guðrún var
dóttir Péturs, b. í Engey, Kristins-
sonar. Móðir Péturs var Guðrún,
systir Guðfinnu, ömmu Bjarna
Jónssonar vígslubiskups.
Halldór og Kristrún taka á móti
vinum og frændfólki í anddyri
íþróttahallarinnar á Akureyri
mánudaginn 24.8., kl. 18.00-22.00.
Halldór Blöndal.
Fréttir
Nótin velti
tengivagni
DV, Þórshöfn:
Tengivagn , sem var að flytja nót-
ina úr aflaskipinu Júpiter ÞH, valt á
Langanesveginum á Þórshöfn 17.
ágúst og hafhaði í húsagarði. Nótin,
sem er um 40 tonn á þyngd, bókstaf-
lega velti opnum gámi á tengivagn-
inum sem var á leiö frá höfninni
upp á athafnasvæði Netagerðarinn-
ar Ingólfs, sem er efst í bænum.
Fjaðrabúningur gaf sig og festingar
brotnuðu. Engin slys urðu á fólki.
-HAH
Nótin inni í garði eftir veltuna.
DV-mynd Halldór
Borgey hf.
Seldi hlut í
Óslandi hf.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis snæddi hádegisverð með forsvars-
'mönnum íslandsbanka í síðustu viku. íslandsbanki á nú í viðræðum við rík-
ið um kaup á Búnaðarbanka íslands hf.
Laminn með flösku
Ungur maður var handtekinn eftir
að hafa lamið annan í höfuðið með
flösku á Akureyri aðfaranótt sunnu-
dagsins. Atvikið átti sér stað eftir að
kastast hafði í kekki á milli mann-
anna. Sá sem fyrir flöskunni varð er
ekki talinn hafa slasast alvarlega en
- ökumenn „1 lagi“
var fluttur á sjúkrahús.
Lögreglan á Akureyri segir að
helgin hafi að öðru leyti verið mjög
róleg. T.a.m. hefðu um eitt hundrað
ökumenn verið stöðvaður i þeim tO-
gangi að kanna bílbeltanotkun,
hvort menn væra með ökuskírteini
Borgey hf. á Homafirði seldi 80%
eignarhlut sinn í fiskimjölsverk-
smiðjunni Óslandi ehf. á dögunum
og er ætlunin með sölunni að
tryggja fjármögnun nýrrar fiski-
í höfuðið
eða hvort fólk hefði hugsanlega neytt
áfengis áður en sest var undir stýri.
„Útkoman úr þessu sýnir að þetta
virðist yfirhöfuð vera í besta lagi hjá
ökumönnum," sagði talsmaður lög-
reglu á Akureyri. -Ótt
mjölsverksmiðju í bænum. Hún
mun koma í stað núverandi verk-
smiðju sem uppfyUir ekki mengun-
arvamakröfur.
Jafnframt hefur verið gerður
viðskiptasamningur milli Borgeyj-
ar hf., Skinneyjar hf. og Óslands
ehf. sem ætlað er að styrkja sam-
keppnishæfni þessara fyrirtækja
um uppsjávarfisk, hvort sem er tU
manneldisvinnslu eða bræðslu. Að
lokinni uppbyggingu fiskimjöls-
verksmiðjunnar er áætlað að
vinnslugeta þessara fyrirtækja
muni nema sem svarar 1250 tonn-
um á sólarhring, þar af 500 tonn til
manneldis.
DV
Til hamingju
með afmælið
24. ágúst
80 ára
Anna Axelsdóttir,
Fífusundi 9, Hvammsstanga.
Elín Þorsteinsdóttir,
Grænumörk 5, Selfossi.
Jenslna Jensdóttir,
Austurströnd 8, Seltjamam.
Sæmundur Þorsteinsson,
Hryggjum, Mýrdalshreppi.
75 ára
Ámi B. Jóhannsson,
Hjaröarhaga 62, Reykjavík.
Ámi Þorvaldur Jónsson,
Fjarðarstræti 2, ísafirði.
Esther Ámadóttir,
Þórufelli 12, Reykjavík.
Ragnar Bjömsson,
Hjaltabakka 4, Reykjavík.
Sigríður
Methúsalemsdóttir,
Boðagerði 1, Kópaskeri.
70 ára
Anna Guðjónsdóttir,
Suðurengi 32, Selfossi.
Ágústa Ásgeirsdóttir,
Múlavegi 20, Seyöisfirði.
Jóhann Þorsteinsson,
Logafold 130, Reykjavík.
Jóhanna F. Karlsdóttir,
Hlíðarsmára 5, Kópavogi.
Lilja Bjamadóttir,
Langholtsvegi 183, Reykjavík.
Marta O. Hagalínsdóttir,
Laugamesvegi 100, Reykjavík.
60 ára
Hrefha Jónsdóttir,
Hliðarvegi 84, Njarðvík.
Sólveig Kristbjörg
Gísladóttir,
GuUsmára 9, Kópavogi.
50 ára
Auðunn Sigurjónson,
ÆsufeUi 2, Reykjavík
Ása Sæmundsdóttir,
Eyjabakka 32, Reykjavík.
Jónas Bergsteinsson,
Dverghamri 5,
Vestmannaeyjum.
Sigríður Gunnarsdóttir,
Fjarðarlgötu 53A, Þingeyri.
Viðar Bjömsson,
Gnoðarvogi 66, Reykjavík.
40 ára
Einar Valur Guðmundsson,
Hlíðarvegi 26, ísafirði.
Emil Jóhannsson,
Meðalholti 11, Reykjavík.
EyjóUúr Jónas Ólafsson,
Vesturfold 19, Reykjavík.
Haraldur Baldursson,
Víghólastíg 8, Kópavogi.
Hákon Sveinsson,
Grettisgötu 64, Reykjavík.
Helga Eyfeld,
FífuhjaUa 4, Kópavogi.
Sigríður Jónsdóttir,
Sólhrekku 21, Húsavík.
Stefanía Ása Ásgeirsdóttir,
Grænukinn 9, Hafnarfirði.
www.visir.i3
NVR HEIMUR A NETINU