Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Síða 36
44
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 I>"V
\
onn
Ummæli
Hópur andmæl-
enda stækkar ört
„Nú má þó búast við, að bor-
mönnum íslands sé orðið
nokkuð órótt því
nú er ekki lengur
aðeins við fa- I
, mennt lopapeysu-
landvarnarliö að
etja. Hópur and-
mælenda stækk-
ar ört og hann
fylla listamenn,
vísindamenn og hagspekingar
og allt þar á milli, enda svo
sannarlega lika veigamikil at-
vinnu- og efhahagsleg rök gegn
þessum ósköpum. Við því
verða bormenn að bregðast,
þótt þeir telji sig geta afgreitt
náttúruverndina léttilega."
Kristín Haltdórsdóttir, þing-
kona Kvennalista, í DV.
Man tímana tvenna
„Ég var fyrstur á íslandi
með það að vera í tveimur
skyrtum með bindi á innri
skyrtunni. Svo hef ég verið
með tvö til þrjú úr. Af hverju?
Það er bara húmorinn. Mér
finnst þetta skrautlegt og
skemmtilegt. Úrin vekja mikla
athygli. Þegar ég er spurður að
ástæðunni svara ég oft: „Þá
man ég tímana tvenna.“ Ég hef
haft gaman af þessu.“
Ragnar Sigurjónsson, ráðs-
maður í Viðey, í Degi.
Er enn að læra
„Ég er ekki ánægður með
niðurstöðuna, að
enda í fjórða sæti,
því það er ekki
við neinn annan
að sakast en mig
að hafa ekki ver-
ið ofar, en svona
er þetta, ég er
alltaf að læra.“
Jón Arnar Magnússon tug-
þrautarmaður í Mbl.
Lítilsvirðing
„Verndari þessara Hval-
fjarðarganga er tekinn úr fom-
eskju og hjátrú fólks og það á ’
alls ekki heima í kristnu þjóð-
félagi. Þetta er lítilsvirðing við
guðstrú í landinu."
Gunnar Þorsteinsson, for-
stöðumaður Krossins, í DV.
Veik staða
„Það er ljóst að staða neyt-
andans sem ein-
staklings er miklu
veikari en fyrir-
tækja, þó svo að
fyrirtækin séu;
missterk. Og
lengi vel settu
fyrirtækin ein-
hliða skilmála sína.“
Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtak-
anna, í Mbl.
J_f
W/TSTR
, 3KR.EFIP ER'RP
SKIPF? NEFUD SEM EFTIf? Vf
/LECrfí RTHLiQtAN ÓRSKUQÐFIR 3=RNN
'kHOHERDH SEM VTÐ R’EIKTNUM HE€?
t=JÐ SÆKIUH HÆTFRSTP7N 3HElRf?F7 '
TVEG<23R TUGF7 ÖMMXöENPH
EÐF7 SvO SEM VT-E> EKOM
Vt)N F^?
i\m
A&
Bjarni Bjarnason fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar:
Maðurinn á bak við orðin
Bjarni Bjamason er 32 ára gamall
og býr í lítilli risíbúð í Þingholtun-
um. Hún var upphaflega gerð fyrir
vinnufólkið í húsinu. Hann er
spurður um fjölskylduhagi. „Það
eru mest ímyndaðar persónur," seg-
ir hann og kímir. Hann er einhleyp-
ur. „Það ríkir fullkominn friður á
heimflinu."
Fyrir tveimur árum kom út
skáldsaga eftir Bjarna sem heitir
Endurkoma Maríu. Hann var til-
nefndur til íslensku bókmennta-
verðlaunanna fyrir þá bók. Á þessu
ári sendi hann handritið að Borg-
inni á bak við orðin í samkeppni
um Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar. Hann bar þar sig-
ur úr býtum.
Bjarni lauk ekki menntaskóla-
námi. Hann segist ekki hafa haft
áhuga á því sem þar var í boði. „Ég
hafði áhuga á bókmenntum og sneri
mér að skriftum. Ég skrifaði aðal-
lega leikrit og ritgerðir." Hann er
hæglátur og honum liggur lágt róm-
ur. Brún teygja liðast á milli fingr-
anna meðan hann talar.
Hann var rúmlega tvítugur þegar
hann kvaddi ólokið menntaskóla-
námið. Næstu ár vann hann ýmis
hlutastörf til að hafa ofan í sig og á.
Hann skúraði m.a. á kvöldin. Á dag-
inn hélt hann um pennann en á
kvöldin kom kústurinn í hans stað.
í dag getur hann lifað af ritstörfum.
„Ég hef getað það í og með síðan
1995 og ég get það aftur núna eftir
að ég fékk þessi verðlaun."
Borgin á bak við orðin er um
munaðarlaus- Bjarni Bjarnason
an dreng í rithöfundur.
ónefndri stór-
borg. Hann
segist vera konungssonur og segir
sögur úr einkennilegu miðaldarkon-
ungsríki. Fólk heillast af sögunum
og drengurinn getur framfleytt sér
af því. Svo vaknar sú spurning hjá
Maður dagsins
fólki hvort sögumar séu einhvers
konar veruleiki eða hvort drengur-
inn sé veikur á sinni.
„Bókin tengist
mikið hugsunar-
hætti gullgerðar-
listamanna en
gullgerðarlistin
varð til á undan
kristninni, bæði
á Indlandi,
Grikklandi og i
Kína. Það má líka
segja að bókin sé
undir áhrifum af
kristinni dul-
speki." Endurkoma
Maríu tengist líka
kristninni. Bjarni er
spurður hvort hann sé
mjög trúaður. Hann
brosir og
hugsar
sig
DV-mynd Teitur
um. „Ég held að ég sé ekki vantrú-
aður á trú eða trúaður á vantrú,"
segir hann. „Ég er óskaplega heill-
aður af myndmálinu sem er í
kristninni. Mér finnst að það megi
líka líta á Biblíuna sem listaverk."
Hugmyndaflugið er ótakmarkað
og Bjarni er spurður hvort hann
sjái heiminn í öðru ljósi en við hin.
„Ég veit það ekki. Ég reyni að sjá
hann óskaplega mikið í gegnum orð.
Ég dvaldi í Grikklandi í vet-
ur og reyndi að haga
mér eins og mynd-
listarmaður." í stað
lita notaði hann
orð. „Ég fór út með
minnisbókina,
horfði á fólk og
reyndi að hripa niður
myndir með orðum.
Mér fannst gaman að
sjá hvernig hversdags-
legustu hlutir gátu orð-
ið að sögu.“ Bjarni set-
ur bæði hversdagslega
og ímyndaða hluti í sögurn-
ar sínar. Svo leyfir hann
okkur hinum að njóta.
-SJ
Tré á Islandi eru unglömb
miðaö við elstu tré heims.
Elstu tré
Elsta tré heims sem vitað
er um var broddköngulfura
(Pinus longaeva), kölluð
WPN-114, sem óx í 3.275 m
hæð yfir sjávarmáli í norð-
austurhlið Wheeler-hryggj-
arins í Sierra Nevada í
Bandaríkjunum. Reyndist
tréð vera 5.100 ára gamalt.
Elsta núlifandi tré sem vitað
er um er broddköngulfuran
„Metúsalem", sem vex í
3.050 m hæð Kaliforníumeg-
in í White Mountains. Þykir
fuflsannað að hún sé 4.700
ára. í mars 1974 bárust
fregnir þess efnis að tréð
hefði borið 48 spírandi fræ.
Árshringatímatalsfræðingar
telja að hámarksaldur
broddköngulfuru sé nærri
5.500 ár en risafurur
(Sequoiadendron gigante-
um) lifi ef til vill allt að 6.000
ár. Engin fruma þessara
trjáa lifir lengur en 30 ár.
Blessuð veröld
Fjærst öðrum trjám
Það tré sem talið er að
vaxi fjærst öðrum trjám er
norskt grenitré, eina tréð á
Campbefl-eyju við Antark-
tíku. Næsta tré er að líkind-
um í 145 km fjarlægð á
Auckland-eyjum.
Heimsmetabók Guinness.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2184:
.. « 31AHDAÐI,
‘ B/iJPA VATHÍ UT l
’ÓSA'UA'A - DO S2ACO
' HVAP ec. QJO
T/c.. /LL-
V I■ > «•'
7 . A
©Z/PV
-EYÞOR,-
Öskukarl
Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn.
Bessi Bjarnason.
Þjónn í súpunni
Leikritið Þjónn í súpunni, sem
sýnt er í Iðnó, hefur slegið í gegn
í sumar. María Sigurðardóttir er
leikstjóri en hún leikstýrið Sex í
sveit.
Þjónn í súpunni er sérstakt að
því leyti að það gerist á veitinga-
húsi og er sýningargestum boðið
upp á mat og drykk meðan á sýn-
ingu stendur og má segja að allur
salurinn og rúmlega það sé leik-
sviðið. í salnum eru bæði alvöru-
þjónar sem og leikarar sem leika
þjóna.____________________
Leikhús
Leikararnir eru ekki af verri
endanum. Bessi Bjarnason og
Edda Björgvinsdóttir hafa í gegn-
um tíðina skilað gamanhlutverk-
um sem eftirminnileg eru. Mar-
grét Vilhjálmsdóttir og Kjartan
Guðjónsson eru leikarar í yngri
kantinum og léku meðal annars
saman í Stonefree og Veðmálinu.
Stefán Karl Stefánsson er yngstur
í hópnum en hann útskrifast frá
Leiklistarskóla íslands eftir eitt
ár.
Bridge
Þetta spil er sérlega fróðlegt frá
sjónarmiði bæði sóknar og varnar.
Þegar það kom fyrir í leik sveita
Shwartz og Wolfson í fjórðungsúr-
slitum Spingold útsláttarkeppninn-
ar í Bandaríkjunum var samningur-
inn þrjú grönd á báðum borðum. Á
öðru borðanna var útspflið hjartaás-
inn og vestur skipti strax yfir í
spaða. Eftir það átti sagnhafi enga
möguleika á að standa spilið. Á
hinu borðinu var útspilið lítið
hjarta og sagnhafi drap fyrsta slag-
inn á drottningu.
* A5
2
* G10982
* 109652
* 742
G1086
* 76
* D874
é K863
ÁK53
♦ K543
* 3
N
* DG109
D974
* ÁD
* ÁKG
Suður Vestur Norður Austur
1 * * dobl 3 * pass
3 grönd p/h
Sagnirnar bentu til þess að hjart-
að skiptist 4 4 hjá andstöðunni.
Sagnhafi á alltaf vinning í spilinu
eftir þessa byrjun. Hann byrjar á
því að leggja niður laufásinn og
spila síðan tíguldrottningu. Ef vest-
ur drepur á kóng og spilar ekki
spaðakóng þá
fást 9 slagir auð-
veldlega. Ef
hann drepur og
spilar spaða-
kóng er hægt að
fá 9 slagi með laufsvíningu. Ef vest-
ur hins vegar leyfir sagnhafa að
eiga slaginn á tíguldrottningu verð-
ur sagnhafi að spila næst laufgosan-
um. Sagnhafi fær 9 slagi ef vörnin
tekur þann slag og spflar spaða-
kóngi. Ef austur drepur á lauf-
drottningu, spilar lágum spaða og
vestur setur lítið spil fær sagnhafi 3
slagi á hálitina, tvo á tígul og 4 á
lauf. Af þeim sökum verður austur
að gefa laufgosann. í þeirri stöðu
getur sagnhafi einfaldlega spilað
spaða á ás og meiri spaða. Þá fær
sagnhafi 5 slagi á láglitina, einn á
hjarta og 3 á spaða. Flókið en þó ein-
falt! ísak Öm Sigurðsson