Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Side 9
FTMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 9 i>v Stuttar fréttir Klámhundar teknir Um eitt hundrað manns í tólf löndum eru nú á bak við lás og slá eftir einhveijar umfangsmestu aðgerðir gegn barnaníðingum sem nota Netið við iðju sína. Breska lögreglan skipulagði að- gerðimar og voru meðal annars meira en eitt hundrað þúsund klámmyndir af bömum allt niður í tveggja ára aldur gerðar upptæk- ar hjá bandarískum samtökum. Kohl sækir á Tvær skoðanakannanir sem birtust í gær sýna að flokkur Helmuts Kohls Þýska- lándskanslara hefur saxað á forskot jafnað- armannaflokks- ins. Þegar tæp- ar fjórar vikur eru til kosninga munar tæpum sex prósentustig- um á fylkingunum. Claes fyrir rétt Willy Claes, fyrrum forstjóri NATO og aðstoðarforsætisráð- herra Belgíu, er nú fyrir rétti ásamt ellefu öðmm, sakaður um spillingu og fjársvik í tengslum við þyrlusölu. Rigning á Flórída Hávaðarok, grenjandi rigning og mikill öldugangur gerðu íbú- um norðvesturhluta Flórída lifið leitt í nótt þegar fellibylurinn Earl fór þar yfir. Clinton til írlands Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom til Norður-írlands í dag til að leggja sitt af mörkum til að friður megi komast þar á. Friðarhorfúr þykja nokkuð vænlegar nú eft- ir að Sinn Fein, pólitískur arm- ur Irska lýðveldishersins, lýsti yf- ir því að vopnuð barátta heyrði sögunni til. Kabila ásakar Kabila Kongóforseti hefur sak- að nágrannaríkin Rúanda og Úg- anda um fjöldamorð. _________________Útlönd Færeyskur ráð- herra sakaður um nauðgun John Petersen, sjávarútvegs- ráðherra Færeyja, hefur veriö sakaður um að hafa nauðgað sext- án ára gamalli stúlku fyrir nokkrum áram. Færeyska vikublaðið Oyggja- tíðindi skýrði fyrst frá málinu fyrir hálfum mánuði. í gær birti blaðið svo bréf frá ónafngreindri vinkonu sextán ára stúlkunnar þar sem frásögn Oyggjatiðinda er staðfest. John Petersen hai'ðneitar að nokkuð sé til í þessum ásökunum og hefur stefnt Dan Klein, rit- stjóra Oyggjatiðinda, fyrir æru- meiðingar. Samkvæmt frásögn Oyggjatíð- inda leigði umrædd sextán ára stúlka hjá ráðherranum og átti að sinna þar ýmsum heimilisstörf- um. Þaö var svo einhverju sinni eftir miðnætti að landstjórnar- maðurinn boðaði stúlkuna upp í eldhús til sín þar sem hann þyrfti að ræða eitthvað mikilvægt við hana. Hann á síðan að hafa haft í hótunum viö stúlkuna og að lok- uð nauðgað henni inni i hjónaher- berginu. Jeltsín býr sig undir lokaátök Borís Jeltsín Rússlandsforseti er nú aftur farinn að snúa sér að stjórnmála- og efnahagskrepp- unni í landinu eftir tveggja daga fúndi með Bill Clinton Banda- ríkjaforseta. Þar hét Jeltsín því að hopa ekki af braut efnahagsum- bóta. Róðurinn verður hins vegar þungrn- fyrir Rússlandsforseta þar sem Dúman, neðri deild þingsins þar sem kommúnistar hafa tögl og haldir, er staðráðin i að hafna tilnefningu Viktors Tsjemomyrd- íns í embætti forsætisráðherra öðra sinni á morgun. Þrátt fyrir pattstöðuna kallaði Tsjemomyrdín bráðabirgðastjórn sína saman til að ræða leiðir til að afstýra hruni efnahagslífsins. Dúman samþykkti í gær ýmsar aðgerðir í anda sovéttímans en samþykktin er ekki bindandi. Óeirðalögregla í Asan í Suður-Kóreu gerði í morgun áhlaup á bifreiöaverksmiðjuna Mando til að binda enda á verkfall sem staðið hefur yfir frá því í síöasta mánuði. Símamynd Reuter Monica Lewinsky: Boðið hlutverk í sápuóperu Monica Lewinsky, fyrrverandi lærlingur í Hvíta húsinu, íhugar nú boð um hlutverk í sjónvarpsmynda- flokki. Bandaríska blaðið New York Post greindi frá þessu í gær. Vitnaði blaðið í heimildarmenn innan skemmtanageirans. Framleiðandi sjónvarpsmynda- flokksins Days of our Lives er sagð- ur hafa mikinn áhuga á að fá Mon- icu Lewinsky til liðs við aðra leik- ara. Sagði New York Post að Monica ætti að leika lærling í kvikmyndafé- lagi og yrði hún með i þremur þátt- um sápuóperunnar. Sjálf á Monica að hafa lýst því yfir að hún sé dyggur áhorfandi sjónvarpsþátt- anna og að hún sé svolítið spennt fyrir boðinu. Talskona á vegum framleiðenda sjónvarpsmynda- flokksins segir orðróminn um þát- töku Monicu hlægilegan. Bill Clinton Bandaríkjaforseti losnaði ekki við skugga Monicu í Moskvu þar sem hann hefúr setið fundi með rússneskum stjórnmála- mönnum. Á fúndi með fréttamönn- um i gær spurðu bandarískir frétta- menn forsetann hvort hann ætti ekki eftir að biðjast afsökimar á sambandinu við Monicu. Forsetinn roðnaði og kvaðst hafa beðið um fyrirgefningu. Þegar Clinton hafði farið af fund- inum með fréttamönnum sagði einn af héraösstjórum Volguhéraðsins við fréttamenn: „Bill Clinton er al- mennilegm- karl. Monica Lewinsky getur prísað sig sæla.“ Starfsmenn saksóknarans Kenn- eths Starrs yfirheyrðu Monicu í síð- ustu viku. Lögmaður Monicu neit- aði í gær að greina frá því um hvað yfirheyrslan hefði snúist. Panasonic -------------NV-HD630 Fullkomið Nicam HiFi Stereo myndbandstæki í tilefni af 20 ára afmæli Japis, bjóðum við nú í samvinnu við Panasonic, nýjasta Nicam HiFi Stereo myndbandstækið. Tækið er með N.T.S.C. afspilun, 4 hausa Long Play og fjöldanum öllum af frábærum eiginleikum sem myndbandstæki af bestu gerð prýða. SUPB? DRÍVS MULTI-INTEUICBNT CONTROL H ONTROL • AUTO TUNER PRESET • AUTO CLOCK SET ■ • REC/ V /\ OTR f \ VPS/PDC ON-SCREEN OISPLAY } 'j ! i I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.