Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 13 Fréttir Slæmt efnahagsástand 1 Rússlandi: Óvissa í útflutningi Slæmt ástand efnahagsmála í Rúss- landi og óvissa um pólitíska forystu þar í landi hefur komið fjármálamörk- uðum heimsins í uppnám. Hlutabréf í vestrænum kauphöUum hafa fallið í verði og taugar eru þandar meðal íjár- festa. Á íslandi er hugsanlegt að áhrifa gæti með tvennum hætti. Útflutningur minnkar í fyrsta lagi er hætt við að geta rússneskra aðila til þess að kaupa ís- lenskar vörur minnki. „Útflutningur frá íslandi til Rússlands hefur aukist mikið sl. 2-3 ár,“ segir Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar. „Árið 1997 var útflutningsverð- mætið 2,4 milljarðar kr. Það er rétt innan við 2% af vöruútflutningi ís- lendinga. Á árunum 1995-1997 tvöfald- aðist hann á milli ára. Samkvæmt töl- um frá fyrri hluta þessa árs leit út fyr- ir að sú þróun héldist áfram. Nú er óvissan hins vegar meiri,“ segir Frið- rik. Aðallega er um sjávarafurðir að ræða. Biðstaða hjá útflytjendum „Fyrstu 7 mánuði á þessu ári flutt- um við á þetta svæði um 16 þús. tonn af sjávarafurðum. Þetta eru um 4,5% af útflutningsverðmæti okkar en um 17% í rnagni," segir Kristján Hjalta- son, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. „Staðan í dag er biðstaða. Við höf- - sjávarafurðir seldar fyrir 2,4 milljarða í fyrra um kaupendur að okkur vöru. Hins vegar er eng- inn kúnni í dag tilbúinn til þess að skrifa undir samninga. Óvissan um hvert raunverulegt gengi rúblunnar gagnvart Bandaríkjadollar er veld- ur þessu. Ástandið hefur verið svona í tvær vikur. Þegar gengið gagnvart dollaranum hefur verið skráð getum við byrjað á samningum. Þá kemur í ljós hversu mikið rúblan hefur fallið og hvort rúss- neskir kaupendur fara fram á verðlækkun. Um þetta er hins vegar erfitt að spá.“ Ovissa er hjá útflytjendum íslenskra afurða til Rússlands vegna efnahagskreppunnar þar í landi. Kallar á breytingar Að sögn Kristjáns eru nokkrar afurðir sem nær eingöngu fara á Rúss- landsmarkað. Fryst karl- loðna og gulllax eru þær helstu. Þá er einnig selt töluvert af soðinni skel- rækju, karfa og grálúðuhausum. Kom- ist ekki stöðugleiki á Rússlandsmark- að er hugsanlegt að framleiðendur hérlendis þurfl að breyta áherslum á vinnslu. Þá bendir Kristján á að lækkandi gengi norsku krónunnar lækki verð á norskum fiski. Með því fái einn aðal keppinauturinn ákveðið forskot. Keðjuverkan í öðru lagi er hætt við að áhrifa rússnesku kreppunnar gæti hérlendis vegna keðjuverkunar. Verð hlutabréfa á vestrænum mörkuðum hefur farið stöðugt hækk- andi undanfarin misseri. Sérfræðing- ar útskýra þessar hækkanir með því að vísa í traustar stoðir efnahagskerfa og bjartsýni meðal fjárfesta á framtíð- ina. Óvissa um ástand mála í Rúss- landi hefur hefur hins vegar dregið úr bjartsýni ýmissa stórra fjárfesta á hlutabréf. í kjölfarið hefur verð hlutabréfa lækkað. Taki stóru kauphallirnar í New York, London og Tokyo dýfu nið- ur á við fylgja oft smærri kauphallir í kjölfarið. Falli verð hlutabréfa minnkar auð- ur hlutabréfaeigenda. Agóði hlutabréfaeigenda í hættu Sérfræðingar rekja mikinn hagvöxt og neyslu á Vesturlöndum m.a. til þess að einstaklingar telja sig efnaðri vegna ágóða á hlutabréfamörkuðum. Hverfi ágóðinn með hruni á hluta- bréfaverði er hætt við að neytendur dragi úr neyslu og verslun minnki. Ef það verður þróunin og það hægist um hjá viðskiptalöndum ís- lendinga er hætt við að íslendingar færu ekki varhluta af því. Enginn veit þó enn hve mikil áhrif kreppan hefur á fjármálamarkaði. Óvissa er gríðarleg og mikið liggur undir. íslendingar verða eins og aðrir að bíða og fylgjast með. ísland fremur einangrað Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, bendir á að ísland sé að vissu leyti betur varið gegn áhrifum kreppunnar í Rússlandi en ýmis lönd. „Við erum ekki í miklum beinum tengslum við Rússland hvað útflutning varðar. Við höfum ekki lánað Rússum peninga og sömuleiðis eru íslensk fyrirtæki ekki jafn al- þjóðavædd og gerist sums staðar. Að þessu leyti erum við enn tiltölulega einangruð í viðskiptalega tilliti. Þannig er hagsveifla okkar fremur óháð hagsveiflum annarra landa. Verði hins vegar samdráttur á heims- vísu hefði hann að sjálfsögðu áhrif." -JP SOKKAR 5/Pakk 590, 10/Pakk 990 SPORTJAKKAR FÓÐRAÐIR 3.990,- JAKKAR frá 1.990,- VIND JAKKAR 1.990,- INNANHÚSSKÓR 1.990,- ÍÞR.GALU BARNA+ FULLORÐ. 2.990 NÓATÚN 17 S. 511 4747 JOGGING GALLAR FRÁ 2.490,- T-BOLIR 495,- FERÐATÖSKUR 1.490,- HERRA OG DÖMU ÚLPA 4.990,- ||A HERRA OG DÖMU ÚLPA 2.990,- REGNGALLAR FRÁ 2.990,- FLEECE PbYSA 1.990,- FLEECEJAKKI 2.990,- FLEECE PEYSUR 2.990,- FLEECE GALLI 2.990,- VINDJAKKI 2.500,- POLO BOLIR FRÁ SPAR SP0RT TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.