Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Side 16
16
Fréttir
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
Fókus, Mono og Vísir.is kynna TALh/öid á
Astró, leitað er að tyndnasta manni
þjóðarinnar.
Uppistandið hefst kl 22:00 i kvöld
'nnir: Jón Gnarr
Bein útsending á www.visir.is i
samvinnu við Xnet hefst kl 22:00 í kvöld
Aðgangseyrir aðeins kr. 500*
TALsmenn fá frítt inn gegn framvísun kortsins*
bjór með hverjum miða
www.visir.is
ókus
þj átt orðið
Láttu sjá þig á Astró í kvöld!
Systurnar með berjafötuna - Hulda til vinstri. DV-mynd Þórarinn
Austurland:
Bláber sjást varla
- en allt blátt fyrir vestan
DV, Eskifirði:
„Það er nánast engin spretta í
bláberjum í nágrenni Eskifjarðar.
Ég var 30 mínútur að fylla gler-
augnahúsin mín og kemst nú ekki
mikið í þau,“ sagði Hulda Rós-
mundsdóttir á Eskifirði. Lítið er af
beijum á Austurlandi en finna má
lítil krækiber sums staðar.
Hins vegar kom systir hennar,
Elma, færandi hendi úr Skutulsfirði
þar sem hún hafði dvalið um tima á
ísafirði. Gaf hún systur sinni 10
lítra af aðalbláberjum sem hún
hafði ekið með hátt í 900 km. Hafði
hún tínt tugi lítra vestra og var ekki
lengi að því.
„Það er allt morandi í berjum
fyrir vestan og alveg sama hvar þú
sest niður, alls staðar er nóg bæði af
blábeijum og krækiberjum," sagði
Elma Rósmundsdóttir Hún lét sér
ekki nægja að færa Huldu ber held-
ur kom hún við á Húsavík á leið-
inni austur og losaði sig þar við 10
lítra. Síðan ætlaði hún að fara með
annað eins á Neskaupstað.
Hulda ætlar að búa til sultu úr
berjunum og einnig ætlar hún að
setja í frost. • -ÞH
Hótel Skaftafell í Freysnesi. Það hefur stækkað á hverju ári en þó vantar fleiri
rúm þegar ferðamannatíminn stendur yfir. DV-mynd Júlía
^ Takið þátt í \
krakkapakkaleik
Kjörís og DV!
Klippið út Tígra og límið á
þátttökuseðil sem fæst á næsta
sölustað Kjörís krakkapakka.
Sendið svo inn ásamt
strikamerkjum af
^ krakkapökkum. ^
(./ ' -
KLIPPTU ÚT1
Nöfn vinningshafa
birtast f DV
á miðvikudögum.
staðgreiðslu- og greíðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
IFICT
550 5000
Hótelið í Freysnesi:
Stækkar á hverju ári
- annar þó ekki eftirspurn yfir hásumarið
DV, Höfn:
„Þetta hefur verið mjög gott sum-
ar hjá okkur hér í sýslunni í ferða-
og gistiþjónustunni," sagði Ás-
mundur Gíslason, stjómarformaður
Ferðamálaþjónustu Austur-Skafta-
fellssýslu, I samtali við DV.
Flestir ferðamennirnir, sem
heimsækja sýsluna, eru útlendingar
og mikið er um hópferðir. Þá hefur
útlendingum á eigin farartækjum
fjölgað mjög. Alls eru í sýslunni 20
gististaðir, misstórir, og gistirúm
eru eitthvað á sjöunda hundraðið.
Þess dagana er Ferðamálafélagið
að undirbúa þátttöku sína í ferða-
kaupstefnu sem verður haldin í
Reykjavík 17.-18. september. Þar
kynna ísland, Færeyjar og Grænland
ferðaþjónustu sína. Þar verður félag-
ið og Jöklaferðir með sýningarbás.
Hjá Önnu Maríu Ragnarsdóttur,
hótelstjóra í Hótel Skaftafelli í
Freysnesi, hefur nánast verið full-
bókað í sumar og mörgum þurft að
vísa frá vegna plássleysis. Hótelið
var stækkað í sumar og bætt við níu
tveggja manna herbergjum ásamt
stórbættri aðstöðu fyrir starfsfólk.
Hótelið hefur verið stækkað á
hverju ári undanfarin ár.
Ferðaþjónustufólk í sýslunni er
bjartsýnt á framhaldið og segir að
pantanir fyrir næsta ár lofi góðu.
-JI