Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 17
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
17
DV
Fréttir
Sumarbústaðaland í súginn:
12 milljónir í
skaðabætur
- til nágranna sorpurðunarstöðvar
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
í gær Sorpstöð Suðurlands til
greiðslu 12 miiljóna króna í skaða-
bætur til eigenda jarðarinnar Auðs-
holts í Ölfushreppi í Árnessýslu. Að
auki er sorpstöðinni gert að greiða
mats- og málskostnað, tæplega 5,1
millj. kr.
Forsaga
Forsaga málsins er sú að árið
1985 fannst heitt vatn á jörðinni
Auðsholti. í kjölfarið hugðust eig-
endur jarðarinnar selja hana undir
sumarbústaði. Ráðinn var lands-
lagsarkitekt árið 1989 sem vann að
skipulagi jarðarinnar. Talið er að
jörðin rými um 100 sumarbústaði og
væri hluti þeirra staðsettur með
fram Ölfusá.
Þessari vinnu var hætt þegar ný-
stofnaðri Sorpstöð Suðurlands var
úthlutaö 20 hekturum lands á ná-
grannajörðinni Kirkjuferjuhjáleigu.
Eigendur Auðsholt töldu ómögu-
legt að selja landið undir sumarbú-
staði með ruslahauga fyrir ná-
granna. Þeir kröfðust því bóta fyrir
rýrnun á eignum sínum. Samkomu-
lag um bætur tókst ekki milli aðila.
Undirmatsmenn mátu fjárhagslegt
tjón eigenda Auðsholts 5 millj. kr. í
yfirmati var tjónið hins vegar metið
rúmlega 19 milljónir króna.
Dómsmáliö
í júní 1997 höfðuðu eigendur
Auðsholts mál á hendur Sorpstöð
Suðurlands. Þeir töldu sorpstöðina
skaðabótaskylda samkvæmt stjóm-
arskrárákvæðum um friðhelgi eign-
arréttarins og almennum reglum á
sviði skaðabótaréttar.
Sorpstöðin krafðist sýknu. Aðal-
lega á grundvelli þess að það væri
við skipulagsyfirvöld að sakast en
ekki sorpstöðina.
Niðurstaða
Dómurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að það sé starfsemi sorpstöðv-
arinnar en ekki skipulag svæðisins
sem valdi tjóni jarðeigenda. Það
þykir sannað að eigendur ætluðu í
raun að selja jörðina undir sumar-
bústaði. Þá þykir einnig ljóst í dóm-
inum að stjóm sorpstöðvarinnar
hafi viðurkennt bótaskyldu á fundi
hennar 29. janúar 1993.
Hins vegar voru dómarar ekki
sammála um upphæð skaðabót-
anna.
Minnihluti, Sverrir Kristjánsson,
löggiltur fasteignasali, taldi haéfileg-
ar -bætur 16 millj. kr. auk vaxta og
kostnaðar.
Meirihlutinn, Kristján Torfason
dómstjóri og Steingrímur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari, dæmdi
hins vegar sorpstöðina til greiðslu
12 millj. kr. skaðabóta og rúmlega 5
millj. kr. í sameiginlegan mats- og
málskostnað. Alls rúmlega 17 millj.
kr. auk vaxta.
-JP
Löng röö myndaöist fyrir utan Aco-Applebúöina í gær þegar auglýst var sérstakt tilboö á Macintosh-tölvuvörum.
Aco tók nýlega við Macintosh-umboðinu frá Radíóbúöinni. DV-Hilmar Þór
Sorpurðunarstöð skaðabótaskyld:
Mikil vonbrigði
- segir Karl Björnsson stjórnarformaður
Má reisa
mastur
Landssíminn hf. og Tal hf.
hafa náð samkomulagi um að
Tal fái að reisa mastur á fjall-
inu Þorbirni við Grindavík
fyrir fjarskiptaþjónustu Tals.
Póst- og fjarskiptastofnun
hafði milligöngu í málinu, en
Tal kvartaði til stofnunarinnar
og taldi Landssímann reyna
að hefta fjarskiptaþjónustu
sína með því að hindra að
mastrið yrði reist. Landssím-
inn hefur 50 ára gamlan leigu-
samning við eigendur Þor-
bjarnar.
„Við höfum reynt að haga starf-
seminni þannig að hún uppfylli all-
ar kröfur laga, reglugerða og starfs-
leyfis. Því höfum við talið að við
væru ekki að valda tjóni eða ónæði.
Þess vegna veldur dómurinn von-
brigðum.
Þetta eru ótrúlega háar upphæð-
ir. Dýr yrði jörðin öll,“ segir Karl
Bjömsson, bæjarstjóri Árborgar og
stjómarformaöur Sorpstöðvar Suð-
urlands hf. „Við höfum fengið þá
dóma frá eftirlitsaðilum, heilbrigð-
iseftirliti og hollustuvemd að við
uppfyllum öll skilyrði og að þvi
leyti ættum við ekki að valda nokk-
urri mengun eða spjöllum."
Stjórn íhugar áfrýjun
Það eru flestöll sveitarfélög á Suð-
urlandi sem eiga Sorpstöð Suður-
lands. Það em því íbúar þeirra sem
munu bera kostnaöinn af skaða-
bótagreiðslum verði dóminum ekki
breytt við áfrýjun. Að sögn Karls fól
aðalfundur sorpstöðvarinnar stjóm
hennar að ákveða hvort áfrýja skuli
dóminum. Þá fékk stjómin umboð
aðalfundar til þess að taka lán ef
ákveöið verður aö áfrýja ekki. -JP
i.\m:
SííteiÉ
m
Til sölu þessi millilangi (MWB)
Toyota Land—Cruiser
meö 4,2 lílra disilvél, silfurgrár að lit, árgerð 1990. Bílnum var breytt nýjum af umboðinu fyrir 36 tommu
dekk. Original i bilnum: Samlæsingar, rafdrifnar rúður, úti-og innihitamælir 24 volta rafkerfi, framstólar
á dempurum og 100% driflæsingar að framan og aftan, sva nokkuð sé nefnt. Auk þessa: dráttorkrákur,
NMT-Mobira farsími og dekkin eru óslitin. Sami eigandi frá 1991. Þjánustu-.viðgeröar- og smurbák frá
upphafi. Ekinn aðeins 135.000 km. Verð 1.900.000, i beinni sölu (enginn skipti).
Upplýsingar í sima: 437 2202 og 852 3357.
Opið í kvöld
10% afsláttur af öllum vörum verslunar
innar á meöön útsalan stendur yfir.
Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin
Sími 55A 6300 ^
Opið frá kl. 10-18, f
laugardaga frá kl. 11-15.
Lokað á sunnudögum.