Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 22
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 ljV 26 %vikmyndir "k k: Hláturinn lengir lífið Félagamir Jim Abrahams og David og Jerry Zucker hafa með parodíum sínum gefið flissgjömum mEU'gan magahláturinn og þar með lengt líf okkar um allavega ein- hverjar nanosekúndur. Þeir hittust fyrst í skóla og hófu þá strax fram- leiðslu á kvikmyndum og sú fyrsta sem náði vinsældum var hin inn- dæla og háparodíska Airplane! sem varð upphafið af því sem virðist endalaus sería af skopstælingum, bæði í bíói og sjónvarpi. Það er löng og góð hefð fyrir því að taka fyrir ýmis kunn fyrirbæri úr umhverfmu og skopstæla þau. Til þess að dæmið gangi upp þarf eftirmyndin að vera svo lík fyrir- myndinni að hún sé trúanleg - að einhverju marki - og svo þurfa frá- vikin að vera fyndin. Lykillinn að góðri parodiu er þekking á því sem verið er að skopstæla eða hæða, því oft þarf ekki annað en að ýta frum- myndinni aðeins lengra til þess að hún kollvarpist yfir í parodíu. Gott dæmi um þetta era hetju-og-mafíu- myndir, en reyndar má segja að þetta sé formúlan að flestum þeirra parodía sem þeir félagar Zucker, Abraham og Zucker hafa framleitt. Fastir leikarar í myndum þess- arra era gráhæringjar eins og Leslie Nielsen og nýdáinn Lloyd Bridges (pabbi Jeff). Nielsen gerði fyrst garðinn frægan í hinni frá- bæru Forbidden Planet (1956) en varð síðan nokkuð tíðindalaus þar til hann festist í myndum og sjón- varpsþáttum þeirra félaga. ZAZ- myndimar hafa síðan gert hann að heilmikilli stjömu í dag þrátt fyrir að það sé farið að slá dálítið í hann, sérstaklega miðað við ungheitin á bönnuðu plánetunni. Það er ákveðin hefð fyrir fordæm- ingu á grínmyndum, á þeim for- sendum væntanlega að það sem fær fólk til að hlæja sé ekki verðmikið, ekkert annað en trúðsháttur og skrípaskapur sem ekkert varanlegt gildi hafi. Þó er ekki til neitt hressi- legra en skemmtileg grínmynd en að sama skapi er fátt meira pirrandi en misheppnuð grínmynd sem kannski skýrir að einhverju leyti hörð viðbrögð gagnrýnenda og al- mennings við slíkum. Airplane! Þetta var fyrsta myndin sem sló í gegn hjá þeim félögum, sem era all- ir skrifaðir fyrir henni. Þessi stór- slysamynda-parodía ætti að vera í toppformi enn í dag, með þessa nýju stórslysamyndabylgju yfirstandandi. Fullt hús af gríni. Airplane II: The Sequel ★★★★ (Jim Abrahams, David Zucker, Jerry Zucker, 1980), með Leslie Nielsen og Lloyd Bridges. ★★★★ (Ken Finkleman, 1982). Þessi var ákaflega speisuð, frá flug- vél yfir í geimflaug, framtíðarsýn og sona. Ekki síður fynd- in en sú fyrsta, takið eftir fina skjánum sem reynist svo bara vera þokukenndur gluggi. Top Secret ★★★★ (Jim Abra- hams, David Zucker, Jerry Zucker, 1984), með Val Kilmer, Omar Shaariff og Pet- er Cushing. Hérna tímuðu þeir félagar upp aftur með þessa yndislegu nj ósna/striðs-parodíu. Val elskan svona aga- lega sætur og ungur, og Ómar og Pési í góðu stuði. Miklu skemmtilegri en Bond- parodían nýja. Hérna voru þeir félagar líka búnir að uppgötva PLOTTIÐ. The Naked Gun ★★★ (David Zucker, 1988) með Leslie Niel- sen og Pricilla Presley, svo ekki sé minnst á O.J. Simpson. Jú þess- ar urðu illræmdar aft- ur vegna ó djey, hér vora súmmaðir upp sjónvarpsþættir sem tríóið fram- leiddi og gerðir að kvikmynd. Lögguparodía sem skaut í allar áttir og er hreint yndislega fyndin á köfl- um. The Naked Gun 2 1/2 ★★★ (David Zucker, 1991). Fram- haldið var líka skemmtilegt. *** The Naked Gun 33 1/3 The Final Insult ★★ (Peter Segal, 1994). En sú þriðja var aðeins farin að dala. Hot Shots ★★★★ (Jim Abrahams, 1991), með Charlie Sheen, Cary Elwes, Lloyd Bridges. Kona þarf ekki einu sinni að hafa séð Top Gun til að hlæja sig máttlausa að þessari. Frábærlega vel heppnuð skopstæling á hetjum háloftanna, kvikmyndahandbókin ■rrv - Charlie Sheen lék í Hot Shots. „Kona þarf ekki einu sinn að hafa séð Top Gun til að hlæja sig máttlausa af þessari." Val Kilmer lék í Top Secret. ungur...“ National Lampoon s Loaded Weapon ★★ (Gene Quintano, 1993), Emilio Estevez, Samuel L. Jackson, Tim Curry, Willi- am Shatner, Whoopi Gold- berg, Brace Willis, Charlie Sheen. Þessi er hötuð af gagnrýnendum, hvers vegna veit ég ekki, því mér fannst þessi stæling á Let- hal Weapon bara þónokkuð fyndin, sérstaklega Ghost- atriðið. ,Val elskan svona agalega sætur og Spy Hard min spottaði vísanir í The Fabulous Baker Boys, Gone with the Wind, Dances with Wolves og siðast en ekki síst, 9 og 1/2 Weeks. Mikil hamingja. Fjórar stjömur. Hot Shots Part Deux ★★★ (Jim Abrahams, 1993) með Charlie Sheen, Lloyd Bridges. Ég hló mig líka í hel að þessari, þó ég hafi aldrei treyst mér í Rambó. *** Dracula: O (Rick Friedberg, 1996) með Leslie Nielsen. Ákaflega misheppn- uö og auðgleymanleg parodía á Bond-myndir og aðra njósnara. Sleppið þessari. Down Periscope ★★ (David S. Ward, 1995) með Kelsey Grammer, Lauren Holly, Harry Dean Stanton, William H. Macy. Þessi er ekki heldur ZAZ- tengd, en ansi fyndin samt, mest- megnis er það þó góðum leikuram að þakka. Frasier er nokkuð skond- inn sem kafbátaskipherra i hrakn- ingum og hér era Red October og fleiri bátar skotnir í kaf. Dead and Loving It Repossessed ★ (Mel Brooks, 1996) Leslie Nielsen, Mel Brooks og Anne Bancroft. Fyrir þá sem þekkja vampíra-myndir eins og vígtennumar sínar inniheldur þessi parodía nokkur góð skot. Brooks reynir að endurvekja magík- ina sem gerðu Young Frankenstein að klassík, en mistekst. ★★(Bob Logan, 1990) með Leslie Nielsen og Lindu Blair. Líkt og með Dracula-skopið þá gengur þessi bara fyrir þá sem þekkja fyrirbærið vel. Það er greinilegt að Linda skemmtir sér konunglega, en Leslie náði sér aldrei á strik. -úd www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Mafia Blóðleysi ★ Mafia er ein af langri og merkri röð grínmynda sem taka fyrir og hæða tiltekin fyrirbæri úr kvik- myndaheiminum, í þetta sinn mafíu-myndir, líkt og titillinn bendir til. Guðfaðir Coppola og langhundur Martins Scorsese, Casino, era aðalskotmörkin en hin- ar og aðrar myndir fljóta með, allt frá Jurassic Park til Problem Child. Góði sonur klaufalega guðfoðurins Don Cortinos stýrir spilavíti í Vegas og græðir óstjómlega þar til hann heillast af ljósku nokkurri og missir tökin á spilavítinu og lífi sinu. Líkt og í Casino heyrum við og sjáum svo ævisögu piltsins og föður hans, allt frá fátækt í þorpinu Salmonella á Sikiley til æðstu metorða í mafiunni. Það veitti svo sem ekki af að skjóta dálítið á mafíu-mynda-æðið en myndir þessar um ítalska bófa hafa af ókenndum hvötum notið bæði heilla og virðingar sem - þrátt fyrir fina takta inn á milli - þær eiga alls ekki skilið. Það vora þvi nokkur vonbrigði að sjá hversu illa tókst upp í Mafiu, því af nógu ætti að vera að taka, mafiu-myndir era eins og mý á mykjuskán. Háðið var allt hálfvolgt, sem lýsti sér kannski best í því hvað ofbeldisatriðin voru blóðlaus; mafíu-myndir hafa helst getað státað sig af elegant útfærslu á skot- bardögum, blóðpollum og ýmissi sundurlimun en hér Lloyd Bridges leikur Vincenzo Cortino, höfuð glæpa- fjölskyldu. er valin sú leið að gera ofbeldið að eins konar absúrd dúkkuleik sem hvorki er hæðinn né fyndinn. í þessu sem öðra virtist hugmyndaleysið falla með síðum að- standenda Mafiu. Þrátt fyrir nokkuð góða byrjun og skondin atriöi inn á milli nær Mafia ekki einu sinni að vera meðalhundur i þessum parodíu-bransa Leikstjóri: Jim Abrahams. Handrit: Jim Abrahams, Greg Norberg, Michael McManus. Aðalhlutverk: Jay Mohr, Billy Burke, Christina Applegate, Pamela Gidley, Olympia Dukakis, Lloyd Bridges. Úlfhildur Dagsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.