Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1998, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1998
MIÐVTKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1998
41
Iþróttir
Meistararnir aftur
komnir í toppsætið
- höfðu sætaskipti við KR eftir sigur á Fram í Eyjum
íslandsmeistarar Eyjamanna í
knattspyrnu höfðu sætaskipti við
KR-inga um efsta sætið þegar þeir
lögðu Fram, 2-0, á heimavelli í
gærkvöld. Eyjamenn þurftu ekki á
neinum stórleik að halda til að
knýja fram sigur og hafa þeir
reyndar oft í sumar leikið mun
betur. Sigurinn skipti þá auðvitað
öllu máli og var hann sanngjarn á
heildina litið.
Heimamenn voru mun beittari
framan af en gestimir voru lengi í
gang. Ingi Sigurðsson var í tvígang
nærri því að skora í upphafi leiks-
ins en Framarar sluppu með
skrekkinn.
Framarar væru nærri því á 16.
minútu að taka forystu þegar Jón
Sveinsson átti hörkuskot í stöngina
af 25 metra færi.
Aðeins þremur minútum síðar
kom Sindri Grétarsson, sem leysti
Steingrím Jóhannesson af hólmi,
ÍBV yfir með ágætu marki.
Jón Kristján Sigurðsson
skrifar frá Eyjum
Framarar hófu síðari hálfleikinn
af krafti, gerðust ágengir en sköp-
uðu sér ekki hættuleg tækifæri.
Eyjamenn færðust allir í aukana eft-
ir því sem á leikinn leið. ívar
Bjarklind kom sigrinum i örugga
höfn eftir að rangstöðutaktík Fram-
ara gekk ekki upp og eftirleikurinn
var ívari auðveldur.
Vöm ÍBV var sterkasti hlekkur
liðsins í leiknum. Zoran Miljkovic
var mjög traustur ásamt Hlyni Stef-
ánssyni.
Jón Sveinsson var áberandi best-
ur Framara. Ólafur Péturssonmark-
vörður átti einnig góðan leik.
„Ég er ekki rosalega ánægður
með leikinn sjálfan en stigin þrjú
skiptu þó öllu máli í þeirra baráttu
sem fram undan er. Það má ekkert
fara úrskeiðis því KR-ingar em á
bullandi siglingu og gefa sinn hlut
ekki eftir. Það var markmið okar
fyrir mótið að verja titilinn og það
ætlum við okkur að gera. Við eram
komnir í efsta sætið og þar líður
okkur best. Leikimir, sem við eig-
Eyjamenn fagna sigrinum eftir leikinn á móti Fram í búningsklefanum í gærkvöld. Þar með voru þeir búnir að
endurheimta efsta sætið á nýjan leik og var að vonum mikil kátína í herbúðum þeirra. Á innfeldu myndinni fagnar
einn áhangandi ÍBV ívari Bjarklind sem skoraði síðara mark ÍBV t leiknum. DV-mynd Ómar
0 X
KR 15 8 6 1 23-6 30
tBV 15 10 2 3 36-14 32
ÍA 15 8 4 3 24-17 28
Keflavík 15 7 3 5 17-21 24
Leiftur 15 6 3 6 18-17 21
Fram 15 4 4 7 16-18 16
Valur 15 3 6 6 21-28 15
IR 15 4 2 9 17-27 14
Grindavík 15 3 4 8 19-30 13
Þróttur R. 15 3 4 8 22-35 13
16. umferðin hefst á laugardaginn
meö fjórum leikjum. Kl. 14 leika:
Grindavik-ÍBV, ÍR-Þróttur og
Leiflur-Keflavík og kl. 16 KR-ÍA. Á
sunnudagskvöldið kl. 20 mætast svo
Fram og Valur.
Kjarabarátta hjá
körfuboltadómurum
- vilja 20 prósenta hækkun, félögin neita
Körfuboltadómarar eiga þessa dagana í kjaradeilu við félögin um
greiðslur fyrir komandi tímabil. Talsvert ber á milli, samkvæmt heim-
ildum DV, því dómarar vilja 20 prósenta hækkun en samninganefnd á
vegum félaganna hafhar því að hækka greiðslumar.
Dómarar fá 4900 krónur fyrir leik í úrvalsdeildinni og 8200 fyrir leik í
úrslitakeppninni og í undanúrslitum og úrsiitum bikars. Þeir vilja að
greiðslumar hækki í nálægt 6000 og 10.000 krónum. Félögin hafna þessu
og benda á að dómarar hafi fengið 20 prósenta hækkun á miðju síöasta
tímabili en þá höfðu greiöslumar verið 3900 og 6500 krónur.
Deilan hefur haft áhrif á Reykjanesmótið sem nú stendur yfir. Þar hafa
verið greiddar 2500 krónur á leik en dómarar vilja nú 3500 krónur. Flest
félaganna hafa svarað þvi með því að láta réttindalausa menn dæma leik-
ina, þannig að verkefhi dómara á undirbúningstímabilinu em í lág-
marki. íslandsmótið hefst 1. október og ljóst að stórt vandamál blasir við,
takist ekki að ná sátt í málinu fyrir þann tíma. -VS
Guðjón Þórðarson í Bolton Evening News:
Arnar I mikilli framför
Enska blaðið Bolton Evening
News hefur eftir Guðjóni Þórðar-
syni, landsliðsþjálfara íslands, að
Arnar Gunnlaugsson, leikmaður
Bolton, hafi allt til að bera til að ná
langt í ensku knattspymunni.
„Arnar hefúr burði til að verða
frábær leikmaöur. Hann lagði hart
að sér í landsleiknum við Frakka
og stóð sig vel. Hann hefur greini-
lega tekið miklum framfómm eftir
að hann kom til liðs við Bolton.
Hæfileikamir hafa verið fyrir
hendi, þetta var spuming um
sjálfstraustið sem virðist nú vera
að koma. Ég tók hann af velli í
landsleiknum vegna þess að við
vorum að verja eitt stig og ég þurfti
á líkamlega sterkari leikmanni aö
halda á lokakafla leiksins," segir
Guðjón í samtali við blaðið.
Sagt er að Amar hafi oft leikið
Christian Karembeu, leikmann
Real Madrid, grátt í Frakkaleikn-
um.
Arnar var boðaður á aukaæfmgu
hjá Bolton strax á sunnudag ásamt
þremur öðmm landsliðsmönnum.
Colin Todd framkvæmdastjóri vildi
sjá ástand þeirra fyrir leikinn gegn
WBA í 1. deildinni sem fram fór í
gærkvöld.
-VS
um eftir, em allir úrslitaleikir. Það
er núna í hendi okkar að klára þetta
dæmi og það ætlum við að gera,“
sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði
ÍBV, í samtali við DV eftir leikinn í
gærkvöld.
ÍBV (1)2
Fram (0)0
1- 0 Sindri Grétarsson (19.) eftir
hornspymu Inga Sigurðssonar barst
boltinn til Hlyns sem kom honum til
Sindra sem skoraði af stuttu færi.
2- 0 ívar Bjarklind (81.) slapp inn
fyrir vöm Framara, lék á Ólaf í
markvörð og renndi boltanum i autt
markið.
Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson -
Hjalti Jóhannesson @, Zoran Milj-
kovic ®, Hlynur Stefánsson @,
Guðni Rúnar Helgason - Steinar Guð-
geirsson, Ingi Sigurðsson (ívar
Bjarklind 77.), ívar Ingimarsson,
Kristinn Hafliðason @ - Sindri Grét-
arsson (Jens Paeslack 67.), Kristinn
Lámsson ® (Sinisa Zibljic 85.).
Lið Fram: Ólafur Pétursson @ -
Þorvaldur Ásgeirsson,, Ásgeir Hall-
dórsson, Sævar Guðjónsson, Þórir
Áskelsson - Anton Bjöm Markússon
(Eggert Stefánsson 87.), Baldur
Bjamason (Daði Guðmundsson 82.),
Ámijótur Davíðsson ® (Freyr Karls-
son 70.), Jón Sveinsson @, Ásmund-
ur Amarson - Kristófer Sigurgeirs-
son.
Markskot: ÍBV 9, Fram 9.
Horn: tBV 5, Fram 5.
Gul spjöld: Miljkovic (ÍBV), Sæv-
ar (F), Anton (F).
Dómari: Guömundur Stefán Marí-
asson, ágætur.
Áhorfendur: Um 700.
Skilyröi: Vöilurinn góður og gott
veður til knattspynuiökana.
Maöur leiksins: Zoran Milj-
kovic, ÍBV. Sýndi mjög góða bar-
áttu allan leikinn og var eins og
klettur 1 vöminni.
Steingrimur Jóhannesson missti af
fyrsta deildaleik ÍBV síðan í ágúst
1992. Hann hafði leikið 108 leiki í röð
meö liðinu í efstu deild frá þeim tima.
Ásgeir Halldórsson lék sinn fyrsta
leik í sumar með Fram en hann átti i
langvarandi meiðslum.
Bland í poka
Fimm leikmenn úr úrvaisdeildinni í
knattspymu vora úrskurðaðir í eins
leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í
gær. Þetta er KR-ingamir Siguröur
Örn Jónsson og Sigþór Júltusson,
Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ingvar
Ólason úr Þrótti og Valsmaðurinn
Stefán Ómarsson. Þeir leika því
ekki með liðum sínum um næstu
helgi.
Brann tryggöi sér sæti í undanúr-
slitum norsku bikarkeppninnar í
knattspymu í gær með því að vinna
stórsigur á Molde, 4-0. Ágúst Gylfa-
son lék allan tímann með Brann en
Bjarka Gunnlaugssyni var skipt út
af á 57. mínútu. I undanúrslitunum
mætb- Brann liði Rosenborg og Moss
liði Stabæk.
Moss lagöi Strömsgodset, 3-1, i
norsku úrvalsdeildinni í gær. Hvorki
Óskar Hrafn Þorvaldsson né Valur
Fannar Gislason léku með Ströms-
godset.
Breiöablik lagöi Stjömuna, 3-1, i úr-
valsdeild kvenna í knattspymu 1 gær.
Margrét Ólafsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Breiðablik og Kristrún Liija
Daöadóttir eitt en Erna Siguröar-
dóttir skoraöi mark Stjömunnar.
Þýska handknattleiksliöiö Gum-
mersbach er mjög illa statt flárhags-
lega. Leikmenn liðsins hafa ekki
fengið greidd laun sín í marga mán-
uði og félagiö er á barmi gjaldþrots.
-GH
íþróttir
Olga Færseth, markadrottningin í úrvalsdeild kvenna, hampar íslandsmeistaratitlinum og með henni í fögnuðinum eftir leikinn eru, frá vinstri: Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir, fyrirliði, og Sigríður Pálsdóttir.
DV-mynd Brynjar Gauti
íslandsmeistarar annað árið í röð eftir sigur á Val í hreinum úrslitaleik
KR vann Val með sigurmarki fyrir-
hða síns Helenu Ólafsdóttur í Frosta-
skjólinu í gær og tryggðu KR-konur
um leið áframhaldandi vem íslands-
bikarsins í bikarsafni KR-inga næsta
árið. Hver veit nema hann fái félags-
skap í vetur því KR er líka komið í
bikarúrslitin gegn Breiðabliki þar
sem þær hafa aldrei fagnað sigri áður.
KR spilaði mjög skynsamlega í
leiknum enda með vænlegri stöðu fyr-
ir leikinn þvi Valsstelpum dugði ekk-
ert annað en sigur í leiknum til að
næla í bikarinn. Þær spiluðu með 9
menn i vöm mestan hluta seinni hálf-
leiks og héldu marki sínu hreinu.
Leikurinn byrjaði ekki vel og ein-
kenni fyrri hálfleiks var mikil tauga-
spenna innan beggja liða. KR hafði þó
undirtökin og fékk flest þau færi sem
buðust en Valur komst þó næst því aö
skora er Hjördís Símonardóttir átti
skot í slá beint úr aukaspymu á 33.
mínútu. Olga Færseth ásamt Guð-
rúnu Jónu Kristjánsdóttur stríddi
Valsstelpum stíft og stöðugt allan
hálfleikinn og það var í framhaldi af
góðu skoti Olgu sem Helena Ólafsdótt-
ir kom KR yfir og gerði stöðu Vals
þegar á reyndi allt of erfiða. Valsstelp-
ur vissu að til að eiga möguleika
máttu þær alls ekki fá á sig mark því
þá þurftu þær að skora tvö mörk til
aö ná í bikarinn. Þær vom því nokk-
uð stuðaðar það sem eftir var hálf-
leiksins og Guðrún Jóna hefði allt
eins getað nánast tryggt sigur KR er
hún komst í gegn eftir einleik en góð-
ur markvörður Vals, Ragnheiður
Jónsdóttir, varði vel.
Seinni hálfleikur var að mestu eign
Valsliðsins en örlítið meiri áræðni
upp við markið vantaði til að þær
næðu að skapa sér eitthvað að ráði.
Þær em tapliö kvöldins en í margra
augum þó sigurvegarar sumarsins og
ömgglega verðandi sigurvegarar
framtíðarinnar.
KR var með iLlviðráðanlegt lið í
sumar og á bikarinn skilinn. Krafa
um meiri meistarabrag í þessum leik
er þó hávær enda hugsuðu KR-konur
aðeins um að halda sínum hlut. Sókn-
arleikurinn sem hafði skilað 59 marki
í 13 leikjum var hvergi sjáanlegur að
þessu sinni.
„Ég tók við góðu búi er við byrjuð-
um í október og það var bara að halda
utan um hlutina, við stefndum á báða
titlana, fyrsti titillinn er nú í höfii og
við stefnum að sjálfsögðu á að ná hin-
um líka en leyfúm okkur að fagna
þessum í nokkra daga. Þetta var rosa-
legt stress en við náöum að skora á
móti vindinum og þá þurftu þær að
skora tvö mörk og það var bara of
mikið fyrir þær,“ sagði Arna Stein-
sen, þjálfari KR. Helena Ólafsdóttir,
fyrirliði KR, skoraði eflaust eftir-
minnilegasta mark sitt er hún tryggði
liði sínu titilinn. „Ég bjóst nú ekki við
að gera það en þrátt fyrir að vera pot-
mark er það eitt það sætasta. Við
vissum að við yrðum að vera á undan
að skora því þá fór öll pressa af okk-
ur og yfir á þær sem þurftu að skora
2 mörk. Nú verður ekki aftur snúið og
nú ætlum við að taka allt og vinna
bikarinn líka“.
„Ef við hefðum byrjað leikinn eins
og við byijuðum seinni hálfleikinn
hefðum við getað gert þetta auðveld-
ara fyrir okkur. í seinni hálfleik þéttu
þær vömina sína mikið og þá var
mjög erfitt að skora," sagði íris Ey-
steinsdóttir, leikmaður Vals.
„Fyrsta markið breytti leiknum,
við þurftum að skora tvö og þær gátu
spilað meiri varnarbolta. Þetta var
góður leikur og við getum þrátt fyrir
úrslitin borið höfuðið hátt. Við erum
með ungt lið sem á eftir að komast í
spor KR-liðsins hér í kvöld, spurning-
in er bara hvenær," sagði Ólafur Þór
Guðbjartsson, þjálfari Vals. -ÓÓJ
Ratliff til ÍA?
DV, Akranesi:
Úrvalsdeildarlið ÍA er að leita sér að
sterkum bandarískum körfuknattleiks-
mcmni fyrir komandi tímabil. Jesse
Ratliff, sem lék með Þórsurum á Akureyri
í fyrravetur, er þar efstur á blaði, en
einnig hafa Skagamenn reynt að ná í Ron-
ald Bayliss, sem lék meö þeim fyrir tveim-
ur árum.
Lijah Perkins, enski risinn sem var til
reynslu hjá ÍA, stóð ekki undir vænting-
um í Valsmótinu á dögunum. Hann er nú
kominn til reynslu hjá KR.
Talsverðar líkur vom á að Grindvíking-
urinn Unndór Sigurðsson gengi til liðs viö
ÍA. Hann ristarbrotnaði á dögunum og
verður frá keppni í nokkrar vikur, og þar
með verður sennilega ekkert af því að
hann fari á Skagann. -DVÓ
Sá sjötti á 8 árum
Þrátt fyrir að hafa ekki haft
hendur á sjálfum íslandsbikam-
um í þetta skiptið var Ásthildur
Helgadóttir, sem er farin út i
nám til Bandaríkjanna, að vinna
sinn 6. íslandsmeistaratitil á síð-
ustu 8 árum. Hún hefúr unnið 4
með Breiðabliki (1991, ‘92, ‘95 og
‘96) og tvisvar með KR (1993 og
‘98). Hin 2 árin 1994 og ‘97 var
hún síðan í 2. sæti. „Við söknuð-
um Ásthildar enda hún góður
leikmaður en vora bara enn stað-
ráðnari í að þjappa okkur saman
og vinna titilinn fyrir hana,“
sagði Arna Steinsen þjálfari KR
um fjarveru Ásthildar. -ÓÓJ
„Alla leið í ár“
- hjá Rögnu Lóu
Ragna Lóa Stefánsdóttir, aðstoðarþjálf-
ari og leikmaður hjá KR, missti af sigur-
hátíð sinna stelpna í fyrra sökum fót-
brots en nú fékk hún að vera með alla
leið til enda.
„Það er alveg frábært að fá að taka þátt
í þessu og vera með alla leið til enda. Ég
skrapp heim í leikinn enda farin út til
Englands. Leikurinn var erfiður en ég
held að það hafi aldrei verið spuming
um að KR væri með besta liðið í ár.
Okkur dugði jafntefli og þvi ákváðum
við að detta í vöm og halda okkar hlut.
Við tökum næsta leik með stæl og þá
munu KR-ingar sýna hvað þeir geta,“
sagði Ragna Lóa eftir leik. -ÓÓJ
Iþróttir einnig á bls. 42
Ama Steinsen, þjálfari KR, er hér lengst til vinstri í sigurvímu ásamt
stelpunum si'num úr KR. DV-mynd Brynjar Gauti
KR (0)1
Valur (0)0
1-0 Helena Ólafsdóttir (38.) fylgdi
eftir skoti Olgu Færseth utan teigs
sem Olga fékk eftir mistök í vöm
Vals og skoraöi af markteig.
Liö KR: Sigríöur Pálsdóttir - Elln
Jóna Þorsteinsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir,
Olga Einarsdóttir - Guölaug Jóns-
dóttir (Sigurlín Jónsdóttir 88.), Guð-
rún Jóna Kristjánsdóttir, Edda Garð-
arsdóttir, Kristbjörg Ingadóttir
(Embla Grétarsdóttir 78.) - Olga Fær-
seth, Helena Ólafsdóttir.
Lið Vals: Ragnheiöur Jónsdóttir -
Erla Sigurbjartsdóttir (Ema Erlends-
dóttir 76.) , íris B. Eysteinsdóttir,
Soffia Ásmundsdóttir (Elísabet Gunn-
arsadóttir 85.), Rósa Steinþórsdóttir -
Hjördís Símonardóttir (Katrín Heiða
Jónsdóttir 86.), Laufey Ólafsdóttir,
Hildur Guöjónsdóttir, Rakel Loga-
dóttir - Berþóra Laxdal, Ásgerður
Ingibergsdóttir.
Markskot: KR 15, Valur 10.
Hom: KR 3, Valur 8.
Gul spjöld: engin
Dómari: Eyjólfur Ólafsson.
Áhorfendur: Um 300
Skilyrði: Kaldur vindur á annað
markið en völlurinn ágætur.
Maöur leiksins: Helena Ólafs-
dóttir, KR. Fyrirliðinn sá um aö
tryggja titilinn í vesturbæinn ann-
að árið i röð.
W'jk ÚRVALSD. KV.
Lokastaðan 1998:
KR 14 13 0 1 60-7 39
Valur 14 12 0 2 50-13 36
Breiöablik 14 9 2 3 31-12 29
ÍBV 14 6 2 6 33-34 20
Stjaman 14 5 2 7 28-28 17
ÍA 14 2 3 9 20-35 9
Haukar 14 2 1 11 6-49 7
Fjölnir 14 2 0 12 5-55 6
Markahæstar sumarið 1998:
Olga Færseth, KR ..................23
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val ... 16
Laufey Ólafsdóttir, Val ............15
Helena Ólafsdóttir, KR.............12
Kristrún L. Daðadóttir, Breiðab. . 11
Ásthildur Helgadóttir, KR..........10
íris Sæmundsdóttir, ÍBV............10
Grindavik tekur sæti Fjölnis í deild-
inni og Haukar mæta ÍBA í auka-
leikjum um úrvalsdeildarsæti.