Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1998, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1998, Qupperneq 32
 iMtrm riðvwum Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Washington [ffUK förtrM, fS-nim Sefur ekki á fundum George Bush, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, hélt því nýlega fram í spjallþætti Davids Frost aö á sínum tíma hefði öll íslenska sendinefndin á leiðtogafundi RÖSE dottað þeg- ar fundur stóð sem hæst. Þetta var á þeim tíma þegar Davíð Oddsson var for- sætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson gegndi starfi ut- anríkisráðherra. DV hafði sam- band við þann síðarnefnda í gær- kvöldi en hann gegnir nú starfi sendiherra í Washington. „Ég hef ekki hugmynd um hvað maðurinn var að taia um,“ sagði Jón Baldvin. „Það er svo einfalt. Ég er þekktur fyrir annað en að sofa á fundum." Á baksíðu DV í gær var stutt spjall við Ólaf Davíðsson, ráðuneyt- isstjóra í forsætisráðuneytinu, og hann hafði ekki heldur vitað um hvað Bush hafði verið að tala. Ætli forsetinn fyrrverEmdi hafi tekið sér skáldaleyfi? -SJ Ögmundur Jónasson: Kvótagróða upptækan Það á að gera allan kvótagróða upptækan," sagði Ögmundur Jónas- son alþingismaður aðspurður um forsíðufrétt DV í gær um kvóta- brask þar sem lít- ill plastbátur í Grindavík var viðkomustaður kvótaviðskipta fyrir hundruð miiijóna króna. Ögmundur sagði að kvóta- kerfið í heild væri hrein ósvinna sem afnema þyrfti þegar í stað. Þjóðin hljóti að krefjast þess og sjá til þess að engin ríkisstjóm komist hjá því að leið- rétta þetta óréttlæti. Nánar á bls. 2. -SÁ Féll og höfuð- kúpubrotnaöi Fullorðinn maður slasaðist alvar- lega þegar hann féll aftur fyrir sig á tröppum húss í Brautarholti í gær- kvöld. Maðurinn var fluttur á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þar ' ^ kom í ljós að hann hafði höfuðkúpu- brotnað. -RR FRETTASKOTIÐ MSIMINNSEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1998 Ogmundur Jonasson. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, húseiganda og tryggingafélagsins Sjóvár-Almennra, Gunnar S. Björnsson, sem er t.h. á myndinni, skoöa brunaskemmdir að Vatnsstíg 11 þar sem kveikt var í í þrígang nýlega. Reykjavíkurborg leigir hús- næöiö fyrir skjólstæðinga Félagsmálastofnunar og húseigandi telur aö brunavarnir hússins séu aö fullu á ábyrgö Reykjavíkurborgar. DV-mynd E. Ol. Mikil öryggisgæsla í Eyjum vegna komu Keikós: Tækifæri er til að skaða Keikó - segir lögreglufulltrúi - Qórða hótunin um að drepa Keikó Miklar öryggisráðstafanir eru í Vestmannaeyjum vegna komu hvals- ins Keikós til bæjarins á morgun. Allt tiltækt lið lögreglu í Vestmannaeyjum verður á vakt auk fjölda björgunarsveitarmanna og annarra gæslumanna. Fjölmiðlum barst í gær fjórða bréfið þar sem hótað er að drepa hvalinn Keikó. Bréfritari segir m.a. í bréf- inu: „Til eru margar aðferð- ir við að fyrirkoma kvikind- inu og verður einskis látið ófreistað við að fullkomna það verk og ekki væri verra ef það tækist í beinni útsendingu." Bréfið er póstlagt í Reykjavík 7. september sl. „Við tökum þessi hótunarbréf mjög alvarlega. Það verður góð öryggis- gæsla hér í Eyjum. Við verðum með allt lögreglulið á vakt auk fjölda ann- arra gæslumanna. Það verður tekinn ákvörðun í dag hvort aukalið lögreglu úr Reykjavík verður sent til Eyja. Því er ekki að neita að það veldur okkur áhyggjum að flutningabíllinn sem flytur Keikó um bæinn fer mjög hægt. Tækifærið til að skaða Keikó er því til staðar og því verða ör- yggismál að vera í mjög góðu lagi,“ segir Tryggvi Ólafsson, lögreglufulltrúi í Vestmanneyjum, aðspurður. Lögreglan á Eskifirði yfirheyrði í gær mann vegna grunsemda um að hann hafi átt þátt í að senda hótunar- bréfin. Honum var sleppt í gærkvöld og var hreinsaður af öllum grun. Komu Keikós til Vestmannaeyja er beðið með mikilli eftirvæntingu víða um heim. í Eyjum hefur spennan og eftirvæntingin aukist síðustu daga. Rúmlega 300 fjölmiðlamenn, langflest- ir erlendir, eru staddir í Eyjum og munu flytja reglulegar fréttir til allra heimshoma af atburðinum. C-17 flutningavél bandaríska hers- ins mun hefja sig flugs með Keikó inn- anborðs frá flugvellinum í Newport í Oregon klukkan 18 að staðartíma í dag sem er klukkan 1 í nótt að íslenskum tíma. Sjö klukkustunda mismunur er á Oregon og íslandi. Flugið tekur um níu klukkustundh- og er áætlað að Keikó lendi í Vestmannaeyjum klukk- an 10 í fyrramálið. Á hádegi verður Keikó fluttur í nýju heimskynni sín, kvína í Klettsvík. -RR Guðmundur Gunnarsson. Rússadeilan á Selfossi: Alltí háalofti „Það er allt í háalofti hér,“ sagði Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, í samtali við DV í morgun þar sem hann var staddur austur á Selfossi. Allt var við það sama i deilunni við rúss- neska fyrirtækiö Technoprom-Ex- port og vinnu- stöðvun íslenskra starfsmanna við Búrfellslínu hélt áfram. „Þeir svíkja og pretta allt sem að þeim snýr,“ sagði Guðmundur. Ingibjörg Sigtryggsdóttir, formað- ur Verkalýðsfélagsins Þórs, sagðist í morgun eiga von á að málin skýrð- ust eitthvað þegar kæmi fram á dag- inn. Hún sagði að svör við kröfum starfsmanna, sem bárust frá Technoprom-Export í' gær, gætu verið grundvöllur samkomulags með ákveðnum breytingum og von- ast væri til að hitta talsmenn fýrir- tækisins í dag.til viðræðna. -SÁ Keikó-frétta- vefur á Vísi.is Sérstakur fréttavefur á Vísi.is verður helgaður heimkomu Keikós. Fréttamenn DV og Vísis.is munu vinna fréttir beint inn á vefinn frá vettvangi í Vestmannaeyjum þar sem undirbúningur fyrir komu Keikós er í hámarki. Stöðugur fréttaflutningur verður frá Vest- mannaeyjum frá kl. 15.00 í dag, glæ- nýjar myndir af vettvangi munu birtast gestum Vísis.is um leið og þær hafa verið teknar. Á Keikó-fréttavef Vísis.is verður einnig hægt að fylgjast með flutn- ingi Keikós frá Oregon til Vest- mannaeyja í beinni sjónvarpsút- sendingu þegar þar að kemur. í átökum við þjóf Maður slasaðist á hendi þegar hann lenti í átökum við innbrotsþjóf í Ár- bæjarhverfi í fyrrakvöld. Maðurinn, sem var gestkomandi í húsinu, var að fara i geymslu í kjall- ara þegar hann varð var við innbrots- þjófinn. Þjófurinn réðst að mannin- um, sneri upp á handlegginn á honum og hljóp síðan á brott. Maðurinn var fluttur á slysadeild og kom þá í ljós að hann hafði farið úr axlarlið. -RR Veðrið á morgun: Úrkomulaust fyrir sunnan og vestan Á morgun verður áfram all- hvöss og jafnvel hvöss norðanátt um land allt. Rigning eða slydda verður á Norður- og Austurlandi og snjókoma til fjalla en áfram úrkomulaust sunnanlands og vestan. Fremur kalt verður á landinu miðað við árstima. Veðrið í dag er á bls. 53. MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-220 ný véi (slenskir stafir Taska fylgir 8 leturgeröir, 6 stærðir 6, 9, 12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.