Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 12
Gömlu *
leikararnir
Erlingur, Gunnar,
Bessi, Rúrik, Árni Tryggva.
Ofleikurinn enn ekki runninn
af þeim eftir 40 ár á sviðinu.
Vonlausir í bíómyndum.
íslenskar bókmenntir
Við gætum aldrei búið til lista yfir 100
bestu bækur á íslensku, eins og gert var
hjá Random House, það eru ekki til
nema þrjátíu sæmilegar bækur í ís-
lenskum litteratúr.
Fegurð íslenskra kvenna
Sólbekkjabrúnkan ógurlega, feikað Ijóst
hár, hvitar buxur og 20 cm háir sólar:
eins og ofsteiktar kótelettur með glossi.
Stuðmenn
Ákaflega hæfileikaríkir og færir menn
sem ferðast um landið og selja líkið af
ömmu sinni - eins og James Joyce
sagði eitt sinn um Rómverja.
Spaugstofan
Alveg eins og það tók fólk nokkrar vikur
á sínum tíma að fatta að Spaugstofu-
menn væru fyndnir þá er nú að renna
upp fyrir henni að þeir eru það ekki leng-
ur. Húmor eldist verst allra fyrirbrigða og
Spaugstofan hefur lifað sinn tíma.
Hagyrðingar
Búnir að liggja vikum saman yfir öllum
stökunum sem þeir þykjast „kasta fram“.
Reykjavík
Ömurleg borg, köld og dimm, fáránlega
dýr bjór (stór bjór kostar 22 kr. í Prag),
okur á öllum veitingahúsum, gullgrafara-
æði í hótelbransanum, fólkið kann ekki
mannasiði, ekkert svo flottar stelpur, og
aldrei til í tuskið, allar samt með kynsjúk-
dóma, endalaust framhjáhald, enginn
mórall, allir meira og minna eins, enginn
sker sig úr, sveitó samfélag, ekki hægt
að kaupa léttvín úti í búð, ekki Marlboro
Lights, ekkert diskótek, ekkert artí bió-
hús eins og í öllum siðuðum borgum.
Ekkjur
Þar sem svo fátt frægt leggur leið sína
hingað upp á skerið hafa íslendingar á
seinni árum reynt að láta sér nægja að
snobba fyrir ekkjum frægra manna. Þeg-
ar Jaqueline Picasso kom hingað létu
sumir það meira að segja eftir sér að tala
um fyrir hversu miklum áhrifum þeir urðu
af nærveru hennar þótt þetta sé með
frægari skössum myndlistarsögunnar,
unga heimska stúlkan sem stökk á varn-
arlaust gamalmenni og einangraði það
frá umheiminum. Ekkja Johns Lennons
fékk sömu meðferð og nú er verið að
kenna Auði Laxness að vera ekkja Hall-
dórs Laxness svo snobbararnir geti hald-
ið áfram að ástunda ekknasnobbið. í
Vestmannaeyjum er nú stödd ekkja
mannsins sem skrifaði kvikmyndahand-
ritið að Free Willy. Hvað næst?
Eyþór Arn- W *
alds og Móa | ^
Pottþétt par, alveg
eins og maður gæti f
hugsað sér smarta I
nútíma-íslendinga á * þ*
uppleið. En ekkert
umfram það. Eru frekar nothæf
í auglýsingar en viðtöl. Reyna
svo mikið að fitta inn í að þau
hverfa, það veit enginn hvað
þau eru að búa til.
f Ó k U S 11. september 1998 11. september 1998 f Ókus
_____________________________________-________________________________________________________________________-_____________;_________________________________±____________________;________________________ _______________________________________
Ofmetin
fýrirbrigði
Það er löngu liðin tíð að fólk sé metið af verðleikum sínum. Fólk er fyrst og fremst metið eftir því hvernig það fellur að
ákveðnum hlutverkum sem þarf að fylla svo veröldin haldist í réttum skorðum. Einhver þarf að vera hetjan, einhver hættulegur,
einhver gæfusamur, einhver reiður, einhver efnilegur, einhver vitur og þar fram eftir götunum. Og auðvitað hendir það að fólk
sem sett hefur verið í þessi hlutverk stendur ekki undir þeim, hefur aldrei gert það eða er búið að missa töfrana.
Ofmetnir íslendingar
- og fólk sem er einskis metið, vanmetið og fýrst og fremst ofmetið af sjálfu sér
Vigdís Finn-
bogadóttir
Vigdísi tókst í forsetatíö
sinni að snobba fyrir
embættinu sem hún
gegndi. Með tímanum
færðist þetta snobb yfir
á hana sjálfa. Fyrir utan
að hafa hvatt landsmenn
til trjáræktar er flest sem
frá Vigdísi kemur eins
konar uppsuða úr ungmennafélagsanda Jónasar
frá Hriflu. Og eins og hjá Jónasi jaðrar þjóðernis-
hyggja Vigdísar við að vera rasismi, eins og
nóbelsskáldið Seamus Heaney benti á eftir ávarp
Vigdísar í Osló um daginn.
Jóhannes
Nordal
Maðurinn sem stýrði
lífeyrissjóðanefndinni
til engrar niðurstöðu á
sautján/átján árum og
er nú orðinn formaður
auðlindanefndar. Ekk-
ert mál er svo að-
kallandi að Jóhannesi
takist ekki að drepa
því á dreif. Helsti ráð-
gjafi verstu efnahagsstjórna i seinni tíma sögu
Vesturlanda. Naut virðingar fyrir að ísiendingar
héldu að enginn annar gæti slegið Hambros-
bankann um lán með ríkisábyrgð. Gerði Seðla-
bankann að eins konar lífsnautnahöll með lista-
verkasafni, sælkeramötuneyti, glæsihýsi, tón-
leikaflygli og geirfugli. Þegar hann hætti var
byggð heil hæð ofan á Einholtsútibú Seðlabank-
ans svo hann gæti dundað við hugðarefni sín í
viðeigandi umhverfi.
Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Foxtrott, Nei er ekkert
svar, Blöðruveldið, Spor-
laust. Sveinbjörn hefur
fundið frábæra aðferð til
að koma sér áfram.
Hann er bara. Hann titl-
aði sig handritshöfund
og beið. Eftir nokkur ár
spurði einhver einhvers
staðar: En hvað með Sveinbjörn? Hvernig væri að
fá hann í þetta. Og hann fékk verkefni. Og hélt
áfram að bíða. Og fékk aftur verk. Nú er svo komið
að hann hefur gert þó nokkuð, þeir sem ekki hafa
séð myndirnar gætu jafnvel haldið að hann væri
nokkuð lunkinn úr því að hann hefur fengið svona
mikið að gera. Og það er alltaf til fólk sem leitar
frekar til þeirra sem hafa þó gert eitthvað en að
leggja á sig einhverja vinnu til að finna hæfileika.
Sigurður
Helgason
Hefur rekið Flugleiðir
með botnlausu tapi ár
eftir ár en stundum
tekist að laga útkom-
una á ársreikningun-
um með því að selja
pantanir félagsins á
vélum frá Boeing.
Tekur nýjan pól í
hæðina við hvert áfall,
stundum að sigra heiminn með útþenslu
næsta dag að skera fyrirtækið niður í ekki
Hefur verið svo lengi í panik að fólk er hætt
taka eftir því.
Karl
Sigurbjörnsson
Prestarnir kusu hann af því
þeir þráðu aftur biskupstíð
pabba hans, biskupsins
sem þjóðin elskaði. Líklega
hefði verið hreinlegra að
klóna Sigurbjörn. Karl hefir
hvorki hita né persónutöfra
til að heilla fólk, hann dregst
inn í sig í margmenni og er
því í raun í vitlausu starfi sem prestur. Hefur ekki lagt í
baráttu gegn efnishyggjunni, neyslunni, upplausn fjöl-
skyldunnar, fylliríinu, syndunum, tilgangsleysinu og
lagst í skæruhernað uppi í Hvalfirði í von um að koma
höggi á Staupastein álf, veru sem ekki einu sinni er til.
Gunnar Dal
Það segir allt um and-
legt hrun í nútímanum
að Gunnar Dal sé álitinn
vitur maður. Hann tíndi
speki sína af indverskum
kornflexpökkum og sauð
hana í hafragraut handa
íslendingum. Óljós grun-
ur um mátt sálarinnar og
sigur andans yfir efninu
og sveitaleg sannfæring
um ágæti íslendinga, skreytt með endalausum
fróðleik úr uppflettibókum. Gunnar er svo barns-
lega glaður yfir sjálfum sér að hann lætur eins og
hann hafi uppgötvað þær bækur sem hann tekur
að sér að þýða. Kahil Gibran hefði þannig ort og
bullað til einskis ef Gunnar hefði ekki rekist á
Spámanninn í Ameríku (Spámaðurinn var þá -
eins og nú - seldur í hverri einustu bóksölu í ver-
öldinni).
sgrímsson
Halldóri hefur tekist að gefa
fólki þá mynd af sér að
hann sé yfirvegaður þar
sem hann er alltaf svo fúll,
klár þar sem hann segir
svo fátt, traustur þar sem
hann er svo sljór til
augnanna og virðist þvi
ekki kippa sér upp við
neitt. Ráðherravandræði Framsóknar í sumar afhjúp-
uðu hins vegar að Halldór er fyrst og fremst tuska,
hann lætur allt yfir sig ganga og getur hvorki né þorir
að taka ákvarðanir. Hann er meðfærilegur og því auð-
veldur í samstarfi, ólundarlegur vegna þess að hann
hefur ekki tök á atburðarásinni og líklega segir hann
fátt vegna þess að honum dettur fátt í hug.
Guðrún
Pétarsdóltir
Dæmi um konu sem tal-
ar áður en hún hugsar
og er álitin röggsöm fyrir
bragðið. Bauð sig fram
til forseta áður en hún
áttaði sig á í hverju það
fólst. Tjáir sig um allt
milli himins og jarðar af
því hún þráir að hlusta á
sjálfa sig. Hefur verið
otað hingað og þangað fyrst og fremst af há-
skólafólki sem finnst að veröldin yrði betri ef víðar
væri að finna vel menntað fólk með bein í nefn-
sjátfu
Helgi Hjörvar
í raun er Helgi ekki póli-
tíkus heldur innflytjandi.
Hann er gulldrengur nýju
vinstrimannanna sem vilja
ekki vera villtir eins og í
gamla daga heldur penir
og smart. Þess vegna eru
þeir að freista þess að
flytja inn Blair/Clinton-að-
ferðina til Islands; stefnu- ||Í....®______;SHI
leysi klætt í yfirlætisfulla sannfæringu um að þeir séu
kyndilberar góðmennskunnar. Og eins og Blair/Clinton
hikar Helgi ekki við að koma vinum sínum í bobba ef
það hentar honum pólitískt. Síminn hafði ekki hringt
tvisvar þegar Helgi var búinn að afneita Hrannari þrisvar.
Vaametnir
JðJajJiJjjJijiJj'
Fjölnir Þorgeirsson
Eina almennilega íslenska stjarnan með
stórum staf - gerir lífið skemmtilegra.
aStefán Jón Hafstein
Dagur Tíminn afhjúpaði að á bak við
reffilega framkomu Stefáns Jóns býr
óttalega hæfileikasnauður og stefnulaus
maður. Stefán þráir ekkert heitar en að
vera innan um fólk sem hann heldur að
hafi völd og áhrif. Hann styður því hug-
myndir þeirra sem hann heldur að líti á
sig sem vin í von um að það muni tryggja
honum aðgang að réttu veislunum þegar fram líða stundir.
sem hefur
verið potað
of langt
(stundum af flokknum
sínum, stundum af því
það er kvenkyns.)
[ fyrsta lagi er Keikó aðalleikarinn í dauðri bíómyndaseríu. Það væri meiri
happafengur að fá Charlton Heston hingað. Apaplánetumyndirnar eru þó dálít-
ið cult. Free Willy munu hins vegar gleymast innan tveggja ára. Keikó verður
þá álíka mikil lyftistöng fyrir Vestmannaeyjar og Bobby Harrison var fyrir
Reykjavík. Hver er Bobby Harrison? Trommuleikari sem kom við í Procul Har-
um en endaði ferilinn á Café Romance. [ öðru lagi er Keikó perri og foreldrar
sem láta börnin sín horfa upp á kvikyndið runka sér á uppblásinni dekkja-
slöngu lenda í barnaverndarstofu, umboðsmanni barna og Stígamótum.
Kannski verður Keikó á endanum sendur til Tailands á eftir Steingrími Njáls-
syni. ( þriðja lagi fylgir Keikó mest þreytandi fólk í heimi, sjálfsbyrgingslegir og
amerískir náttúruverndar-ofstopamenn. Þeir eiga eftir að gera út af við Eyja-
menn, krefjast lífrænt ræktaðra linsubauna í Kaupfélaginu, kæra Vinnslustöðina
fyrir að nota of mikið af freóni í frystigeymslunni og banna hljómsveitarböll á
Þjóðhátíð þar sem Keikó eigi erfitt með svefn.
Holrsnsteinn
Gissurarson
Eftir að skoðanabræður Hannesar
komust til valda hefur hann í raun verið
boðberi viðtekinna skoðana. Og þar
sem hann hefur haldið sér á lofti í tutt-
ugu ár kunna allir orðið utan að hvernig hann matreið-
ir þessar skoðanir. Fólk getur því hent nótunum og tal-
að sjálft fyrir munn Hannesar.
Mattiiías Johartnessen
Á sínum tíma var Matthías fulltrúi
hægri manna í menningunni og þar
sem lítið framboð var af slíkum mönn-
um var hann alls staðar. Eftir að Mál og
menningar-gengið ákvað að grafa sem
fyrst yfir kalda stríðið hefur það tekið til
við að hampa Matthíasi í tíma og ótíma
til að sanna sáttarvilja sinn. Matthías er
því tilnefndur til allra verðlauna og flýtur alltaf með
þegar lesa á upp íslensk Ijóð í ýmsum Gerðubergum
heimsins. Hann á svo sem nógu margar Ijóðlínur til að
standa undir þessu en hugsunin á bak við þær er helst
til þunn.
Rannveig
Guðmundsdóttir
Karl Steinar
Guðnason
Haraldur
Johannessen
Birgir Isleifur
Gunnarsson
Ingibjörg
Pálmadóttir
Markús Örn
Antonsson
Arni Johnsen
Gerir lífið skemmtilegra, búið að
níðast nóg á honum.
Arni Bergmann
Eini almennilegi íslenski in-
tellektúalinn, vannýttur sem slíkur.
Siggi Hall
Mesta náttúrutalent í íslensku sjón-
varpi, fyndinn by existence. Hann er
hins vegar ofmetinn sem kokkur. »
Hann býr ekki til góðan mat.
Megas
Mesta núlifandi Ijóðskáld íslands, ætti að
vera kominn á heiðurslaun fyrir tíu árum en
alþingis-bókmennta-elítan þráast
við.
Húbert Nói
Besti málari landsins.
Indriði G.
Þorsteinsson
Gleymdur rithöfundur, einn sá besti á öld-
inni, dæmdur hart af vinstrimönnum fyrir
bílinn sem hann ók, einn
skemmtilegasta penni landsins.
Loftkastaiamenn
Eru búnir að breyta íslensku
menningarlandslagi með
nokkrum GSM-símum
Kvískerjabræður
Gleymdir snillingar.
Ólafur Jóhann Ólafsson
Tæplega miðlungsgóður reifarahöfundur. Gengi
hans ræðst af þeim misskilningi að gæfusamt fólk
skrifi góðar bækur sem er álíka traust kenning og
að fallegt fólk eldi góðan mat eða að greindir menn
segi alltaf satt.
Davíð Þór Jónsson
Davíð er Mr. Besservisser himself.
Og eins og besservisserum er
tamt finnst honum að allir þeir
sem eru búnir að fá leið á honum
hafi rangt fyrir sér. Hann tvíeflist
því í sjálfsbyrgingshættinum, viss
um að hann muni geta sannfært
fólk um að hann sé víst skemmti-
legur og klár. Við það missa fleiri lystina. Og Davíð verð-
ur kappsfyllri. Og svo koll af kolli.
Tómas ingi Olrich
Tómas heldur að það sé virðing-
arvert starf að vera alþingismaður
- alveg eins og honum fannst að
hann ætti að njóta vissrar virðing-
ar sem menntaskólakennari löngu
eftir að samkennarar hans höfðu
látið mynda sig og taka við sig
viðtöl sem fátæklinga og einskis
metna aumingja í von um að það
hækkaði launin þeirra um 10 þúsund kall á mánuði.
Tómas er blindur fyrir því að ekkert starf í veröldinni er
tilgangslausara en óbreytts stjórnarþingmanns. Hann er
ánægður með sig og árangur sinn í lífinu og trúir ekki
öðru en að aðrir sjái sig í sama bjarmanum og
hann sjálfur.
Guðný
Guðbjörnsdóttir
Sannfærð um eigið ágæti,
ekki bara sem einstaklings
heldur sem konu og
menntaðrar manneskju.
Færði menntasnobb í æðra
veldi þegar hún afneitaði
foreldrum sínum á elleftu I
stundu þegar hún sagði börnin sín njóta þess að
alast upp hjá menntuðum foreldrum á meðan
hún hafi sjálf alist upp á iðnaðarmannaheimili í
Keflavík.
Páli hefur tekist að selja
þá hugmynd að hann
sé þessi velmenntaði [ . JSk m
fyrirtækjastjórnandi sem . La. ■
hafi kynnt sér vel hvern- i J
ig að málum sé staðið
erlendis. Fyrir utan jðflKt
þetta er afrekaskrá BBH <fe. JBB
hans frekar þunn. Speki hans má líka oftast finna
i ódýrum stjórnunarfræðibókum sem seldar eru í
öllum fríhöfnum. ísland er hins vegar þannig land
að ef þú heldur því fram að þú sért framtíðin þá
verður þú það. Verður jafnvel bankastjóri ef þú
gefst ekki upp.
Stefán
Baldursson
Féll einhvern veginn að
hugmyndum fólks um
menningarlega krafta-
verkamanninn þegar
hann tók við af Gísla Al-
freðssyni, líklega vegna
samanburðar við forvera
sinn. Stefáni hefur hins
vegar tekist að fækka áhorfendum Þjóðleik-
hússins niður fyrir verstu ár Gísla. Það fer heid-
ur ekki mikið fyrir metnaði eða djörfung í verk-
efnaskrá vetrarins.
Gyrðir
Elíasson
Augnayndi bókmenntaelítunnar.
Eintóna höfundur, eins og kvik-
myndatökumaður sem notar
alltaf sama filterinn.
misskilinn eigin metnað og algjöra þurrð á hæfi-
leikafólki sem kýs Framsókn. Tókst að gera léleg-
ustu fréttastofu landsins enn slappari. Gat ekki
setið á sér með að launa sínu fólki stöðuhækkun-
ina og varð hlutdrægur fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar. Ætti að viðurkenna það í stað þess að
látast vera móðgaður.
Ólafur
Ragnarsson
Útgefandi fína fólksins, Lax- s,
ness, Ólafs Jóhanns, Davíðs
og Andrésar Andar. Ólafur er
harmsögupersóna. Hann
þráir virðinguna sem liggur í
bókunum en í hvert sinn sem
hann snertir bók breytist hún
í konfektkassa. Aðaldriffjöð-
urinn í yfirstandandi tilraun til að gera Laxness að
geldu vörumerki fyrir stássstofusnobb.
Ólöf Rún
Skúladóttir
Stíf og óeðlileg á skjánum
og með furðulegan fram-
burð sem margir halda að
sé eitthvað til þess að
verðlauna. Hefur ekki
fréttanef, kannski er það of nett. Þeir sem
trúa því að eitthvað sem er venjulegt og
lýtalaust hljóti að vera satt og rétt vilja
helst heyra hana segja sér fréttirnar.
Sverrir
Hermannsson
Þótt Sverrir sé skemmtilegur og
málsérviska hans sé að verða að
sjálfstæðu listaverki þá ofmetur
hann sjálfan sig sem stjórnmála-
leiðtoga. Hann er enginn Móse.
Hvert ætlar hann að leiða þjóð-
ina? Yfir Hrútafjarðará.____
~ igr
Jonasson
Fullkominn meðal-talent sem varð dýrasti málari landsins af því að ^alar e'ns °9 sa sem vernda muni fátækt fólk og aldraðar ekkjur, ekki
hann er með flott og listrænt skegg og ekur um á Jagúar. Fólk borg- ósvipað og Gvendur Jaki gerði, og lætur eins og hann sé í forsvari fyrir
ar 700.000 krónur fyrir verk sem 700.000 aðrir málarar á meginland- breiða fy|kin9u en er'raun einangraður meðal fárra já-bræðra.
inu eru löngu búnir að mála miklu betur.
Páll Skúlason
Er talinn gáfaður af því hann reykir pípu, er með skegg,
gengur í breskum tweed-jakka og hefur menntað sig til
heimspekings. Metnaður hans stendur til hárra metorða
fremur en hárra hugsana, ef ekki forseti þá rektor.
Ágústssmi
Kraftlaus og litlaus
Ögmundur
stofnanakarl sem á ekk-
ert erindi í sjónvarp.
Það er hámark niðurlægingar frétta-
stofu Ríkisútvarpsins að menn skuli
horfa tii hans í von um endurreisn.
Skemmtihúsið, Laufásvegi 22. Ferðlr Guðríð-
ar föd. 11/9, kl. 20, Id. 12/9, aukasýning.
Sími fyrir miðapantanir er 530-3030.
Iðnó sýnir leikritið Rommí 12/9, kl. 20.30,
örfá sæti laus, sud. 13/9, kl. 20.30, örfá
sæti laus. Sími 530-3030.
Þjónn í súpunnl föd. 11/9, uppselt, Id. 12/9,
kl. 15, uppselt, sud. 13/9, nokkur sæti laus,
fid. 17/9, laus sæti. Sími 530-3030.
Lelkhússport í Iðnó mán. 14/9, kl. 20.30.
Sími 530-3030.
Lelkfélag Reykjavíkur. Grease á Stóra sviðinu
kl. 20, föd. 11/9, uppselt, Id. 12/9, kl. 15,
uppselt, sud. 13/9, nokkur sæti laus, fid.
17/9, laus sæti. Síminn er 568-8000.
Sex í sveit í Borgarlelkhúslnu Id. 12/9, upp-
selt. Slminn er 568-8000 fyrir þá sem vilja
panta miða.
í Kaffileikhúsinu er sýnt spennuleikritið Svika-
mylla Id. 12/9, kl. 21. Síminn er 551-9055.
Hellisbúlnn er sýndur í íslensku óperunnl föd.
11/9, kl. 21, uppselt, Id. 12/9, kl. 21, upp-
selt, sud. 13/9, uppselt. Síminn í Óperunni er
551-1475.
Ávaxtakarfan í Óperunn! sud. 13/9, kl. 14,
sud. 13/9, kl. 17. Síminn í Óperunni er 551-
1475.
Fjögur hjörtu er sýnt á Renniverkstæðinu á
Akureyri föd. 11/9, kl. 20.30, uppselt, Id.
12/9, kl. 20.30, uppselt, sud. 13/9, kl.
20.30, uppselt. Síminn I miðasölu er 461-
3690.
í Bæjarleikhúsinu I Vestmannaeyjum er leikrit-
ið Á sama tíma að ári sýnt föd. 11/9, kl.
20.30, Id. 12/9, kl. 20.30. Sími fýrir miða-
pantanir er 481-1841 og 481-1285.
Bugsy Malone í Loftkastalanum sud. 13/9,
kl. 16. Sími 552-3000.
Hafnarfjarðarlelkhúslð Hermóður og Háðvör.
Síðastl bærinn í dalnum sud. 13/9, kl.
13.30. Sími 555-0553.
meira st
www.visir.is
Sænski gítarleikarinn Göran Söllscher er eitt
af stærstu nöfnunum í heimi klassískrar gítar-
tónlistar. Hann mun leika á tónleikum í Sel-
tjarnarnesklrkju 12. september kl. 17.
Sunnudaginn 13. september klukkan 16 held-
ur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands tónleika að
Lónkotl i Skagafirði.
Sunnudaginn 13. september kl. 20.30 verða
tónleikar i Bústaðaklrkju á vegum Kam-
merklúbbsins. Hljóðfæraleikarar eru: Slgrún
Eövaldsdóttir, fiðlu, Slgurlaug Eðvaldsdóttlr,
fiðlu, Helga Þórarlnsdóttir, lágfiðlu, Rlchard
Talkowsky, knéflðlu, og Guðmundur Krlst-
mundsson, lágfiðlu. Leikin verða verk eftir Jos-
eph Haydn, Wolfgang Amadeus Mozart og
Antonín Dvorak.
Trlo Romance, skipað Martlal Nardeau, Guö-
rúnu Blrglsdóttur flautuleikara og Peter Máté
píanóleikara, heldur tónleika sunnudaginn 13.
september kl. 16 í Seyölsfjarðarklrkju. Aðrir
tónleikar þeirra verða sama dag en þá í Safn-
aöarheimlll Norðfjaröarklrkju kl. 21 en síð-
ustu tónleikar þeirra verða mánudagskvöldið
14. september kl. 20.30 í Hafnarklrkju á
Hornafirði.
IHOXXT3. SL
www.visir.is
13