Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 22
Símsvarar á flelrl en elnu tungumáll. „Já, þetta er hjá Jóni, lestu inn skilaboð - This is at Johns, say your message - Uh, este ce Jose, mensagem og allt það." Hvað er að þessu fólki sem talar inn á símsvarann á öðr- um tungumálum en íslensku? Heldur þetta fólk að útlendingar séu það heimskir að þeir fatti ekki hvað er í gangi þegar hljómgæði ís- lensks símsvara ómar í eyrunum á þeim? Það er öruggt að hver heilvita útlendingur veit að um símsvara er að ræða og bíður bara sjálf- krafa eftir hljóðmerkinu, Rétt eins og landinn gerir þegar hann hringir til Japan og lendir á símsvara. Enda eru þessi tungumál á sím- svörum ekkert fyrir útlendinga. Þau eru svo samlandarnir haldi aö viðkomandi þurfi ekk- ert endilega að vera á Fróni. Það eru upp- skafningar sem lesa hin ýmsu tungumál inn á símsvarann sinn. Hlífið íslendingum við illa frambornum tungumálum á símsvörum. ú r f ó k u s Taka að sér verkefnl í stað þess að selja viö- veru sína á vinnustað. I góðæri er ekkert vit í að hafa vinnu. Þá á hinn almenni vinnu- þjarkur að fá fyrirtækin til að gera tilboð í sig. Það er hreinlega niður- lægjandi þegar fyrirtæki kaupii tíma einstaklings og neyðir hann tii að standa sína vakt. Minnir helst á ógeðfellt þrælahald fyrri alda að selja sjálfan sig líkt og kjötþoka. Það er hreinlega málið að vera ekki I vinnu og segja tengdó að þú takir að þér verkefni. I hallæri merkir slik setning að vísu að þú sért at- vinnulaus en í góðæri merkir það ao þú sért of mikilvægurtil að binda þig við eina vinnu. Tengdó fær það á tilfinninguna að um mjög merkilegan pappír sé að ræöa og að sem flestir vilji njóta hæfileika þinna. Steini ChooChoo á óhefðbundna familíu sem hann lifir fyrir. Þetta er dóp-familía Steini „ChooChoo" í einni af sínum vanalegu Kringluferö- um ásamt Birtu. Þau eru hluti af Manson-familíu sem skelfir verslunarglaöa íslendinga í góöærinu. en dóptegundin er ekki í þeirri mynd sem við þekkjum það. Nýjasta kynsióð dópista er í athyglisvímu. Steinar „ChooChoo“ Sigurðs- son er hluti af Manson-familíu, fimm manna gengi sem er eins og klippt út úr drakúlamynd eftir Ed Wood. Þau eru hvítmáluð i fram- an, með svart naglalakk, göt á ólík- legustu stöðum, í svörtum fötum og sveima um bæinn í leit að at- hygli. Aðspurður hvort það sé einhver innræktun eða kynsvall í gangi innan litlu familíunnar glottir Steini og segir að það verði hver og einn að gera það upp við sig hvað hann haldi. „Nei, það er ekk- ert kynferðislegt samband innan hópsins,“ bætir hann við. „Við lif- um bara fyrir familíuna en gerum samt það sem við viljum.“ Steini ChooChoo kallar vinahópinn fam- ilíu. Afhverju ChooChoo? „Ég er hýperaktivur," svarar Steini ChooChoo og tekur upp Lucky Strike-pakka. Hann reykir bara Lucky og neitar að það sé I /egna Don Johnsons úr Miami I /ice. ' Hvaö er þaö viö hljómsveitina Marilyn Manson sem fœr þig til að fylgja henni í einu og öllu? „Ég fylgi henni ekkert í einu og öllu. Við vorum öll svona áður en hljómsveitin kom en svo fundum við okkur i henni. Boðskapurinn á bara fullkomlega við mig og alla familíuna. Þetta felst allt í setning- unni „Be your self and make a ditference.“ Allir aðrir eru bara einhverjir venjulegir Jónar.“ Hipparnir höföu sýru, pönkar- arnir amfetamín og teknóliöiö al- sœlu. Hvert er Manson-dópiö? „Athyglin. Kikkið við að ganga í gegnum Kringluna á föstudögum með augu alira á sér. Okkar dóp er athyglin." Erfólk fordómafullt gagnvart þér og familíunni? „Já, jú, við verðum fyrir aðkasti. Fólk heldur að við séum satanistar af því við fílum þennan lífsstíl. En við höfum öll mismunandi trú og þetta kemur djöflatrú ekkert við. Þetta er bara okkar lif og við filum alla, lokum ekki á neinn og erum opin fyrir öllu,“ svarar Steini ChooChoo og segir að þau eigi vini utan familíunnar rétt eins og aðrar nátengdar fjölskyldur. En af hverju rakaöiröu af þér augnabrýrnar? „Bara flott. Augnabrýr eru hvort eð er óþarfar." Er einhver munur á þér og ung- frú íslandi? Þú rakar af þér augna- brýrnar og hún plokkar þcer. „Nei, enginn munur ef hún er hún sjálf. Er ekkert að þykjast vera neitt annað en hún er. Þá er hún bara fín og ég sáttur við hana.“ Hvertfer Manson-familían út aö skemmta sér? „Það er enginn staður sem hent- ar okkur. Helst ef það eru ein- hverjir almennilegir tónleikar. Annars förum við bara í partí eða bara töltum um bæinn. Það vantar almennilega senu 1 Reykjavík. Þetta er allt bara eitthvað klöb happening.“ Týpískur föstudagur hjá ChooChoo er að hann vaknar upp úr ellefu, tekur sig til og dressar sig upp, athugar naglalakkið, rak- ar það sem þarf að raka og hringir í fjölskylduna. Hann athugar hver staðan sé, hvort eitthvað liggi fyr- ir. Yfirleitt liggur ekkert fyrir og þá töltir hann út og sýnir sig á Laugaveginum. Hann skelfir að sjálfsögðu og líður vel. Hann er á þessu athyglisdópi sínu. Eftir mið- bæjarrúnt reynir hann að hitta familíuna og fara með öllum með- limunum upp í Kringlu. Hún er hápunktur vímunnar. Þar, ef ein- hvers staðar, er hægt að fá verð- skuldaða athygli. Stelpurnar í Sautján stara, öryggisverðirnir lyfta brún, virðulegar húsmæður úr Grafarvogi tapa áttum og Man- son-genginu líður vel. Eftir að Kringlunni er lokað er haldið í partí eða ráfað um miðbæinn eða bara slakað á heima í sófa. Steina flnnst oft bara fínt að hanga yfir góðum vídeóspólum til að hlaða rafhlöðumar. Aö lokum, hvaö œtlaröu aö veröa þegar þú veröur stór? „Vá, ég veit það ekki. Ég býst við að ég reyni að komast í leik- húsforðun. Ég væri til i að vinna við það.“ -MT "V Töffararnir! franska lands- liöinu settu svip á bæinn um síðustu helgi. Eftir að hafa kyngt jafnteflinu héldu þeir út á llfið og skemmtu sér hið besta. I boði staöarhaldara á Astró voru meðal annars Zidane, DJorkaeff, Le- boeuf, Thuran og Karem- eu. Þeir voru í privatinu og fór vel á með þeim og Óskari Magnússynl og fieirum. FJölnlr var aö sjálfsögðu þarna í toppgír, kom- inn með Musso-jeppann á götuna og allt klárt. Stelnl söngvari í Vinum vors og blóma var mættur og líka Svava og Bolll I Sautján. Einn flottasti gæinn í dag, Mörður Gunnars, var þarna á Stró- inu og með honum Jöl á Mono sem er ekki minna flottur gæi. Slmbl klippari lét sig ekki vanta og ekki heldur Systa á KFC og fólkiö hennar. Sóley á Ob- session, Elsa Lyng, Yasmlne á Planet Pulse og drottningarnar Lovísa, Arna og Arngunnur geisluðu sem aldrei fyrr. Frakkarnir frægu litu líka við á Skuggabar þar sem fullt af góðu fólki veitti þeim félags- skap. Þar voru til dæmis Ingvar Þórðar og hinn órakaöi Baltasar Kormákur, Valtýr Björn og Snorrl Már af Bylgjunni. Selma BJörns- dóttlr lét fara vel um sig I Gyllta ásamt Guðrúnu á Flugleiöum. Þarna voru lika Rlkkl Daða og Helgl Kol. úr f ó k 11. september 1998 Á föstudagskvöldiö sátu á Kaffibarnum Damon Albarn, einn Quarashi-gæi og tveir blaðasnápar; Andrés Magnússon af Mogganum og Mikael Torfason, nýi gæinn á Fókusi. Þar voru líka einhverjir fieiri. iandsliöinu, Skúll Mogensen og Guð- Jón í Oz. Ingl, Sólbaðsstofan Sælan, Blggl Kllpp, Svavar Örn og Svennl Mirabelle létu sig heldur ekki vanta. Kvöldið áður var líka fullt af fólki á Skugga- barnum. Hér verða taldir upp Þór Bærlng og Jón Gunnar Gelrdal af FM957 og gengi frá GK, Gunnl, Arnar Geuti og Kolla. BJörk Guð- mundsdóttlr var þarna með einhverjum útlend- ingum og Pétur Ottesen, Herbakóngur ísiands. Ungfrú ísland hélt upp á tuttugu ára afmælið sitt í röðinni en komst ekki inn þar sem aldurstakmarkiö er tuttugu og tvö ár. Æ. æ. Á Kaffi List sat Eglll Ólafsson og lét fara vel um sig. Það gerði einnig pí- anóleikarinn Þ o r s t e I n n Gautl. Egill sást ITka á Vegamótum sem og BJörk og Damon. Á laugardeginum var þar bunki af fyr- irsætum, Krlstín Ásta, Árný, Ásta Eskimo og systurnar Elma Lísa og Nina. Þá sást í lista- manninn Ara Alexander og Greasepariö Rún- ar og Selmu. meira sl www.visir.is í C i « Q « G « « «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.