Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 9
Forvarnarstarf Þjóðminjasafns eflt Sigurjón Tracey keyrir bíl númer 95 hjá Hreyfli ( Vinnudagur leigubílstjórans er langur Sigurjón er sjálfstæðasti íslending- urinn í landinu. Það er ekki til sjálf- * stæðari maður en leigubilstjóri. Sig- urjón hefur verið á þeytingi um göt- ur bæjarins frá árinu nítján hundr- uðu sextíu og átta. Síðrassa buxur unga fólksins koma honum ekkert á óvart. Hann hefur séð allt. „Minn bíll er á verkstæðinu núna og ég er að keyra fyrir félaga minn. Það er bara næstum því betra að keyra fyrir einhvern annan. Dýrt að ( reka bíl í dag. Þungaskattur ef það er dísill, tryggingar, bílaskattar og við- haldið auðvitað. Þetta er orðinn ógur- ( legur kostnaður sem fylgir þessu. En á móti kemur að það er mikil ábyrgð að keyra fyrir annan. Það er leiðin- | legt að skila bíl til félaga ef lítið hef- ur verið að gera. Hann þarf að greiða kostnaðinn af honum rétt eins og ég þarf af mínum bíl. En það er að sjálf- sögðu best að keyra sinn bíl. Þá er frelsið algjört og þú ræður þér meira sjálfur.“ Áður en Sigurjón hóf að aka leigu- bíl vann hann sem járnsmiður. Þá vann hann hjá öðrum og líkaði sæmi- lega. Það er þó engin eftirsjá í að hafa fengið sér leigubíl og orðið sjálfstæð- ur maður í landinu. ( Sigurjón Tracey hefur ekki lesið Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness. Finnurðu fyrir hinu svokallaða góó- (, œri? „Nei. Það er ekkert mikið meira að gera í þessu góðæri. Eru ekki allir að kaupa sér nýja bUa og eiga því lítið afgangs tU að taka leigubíl? Fyrir mér er þetta bara svipað en það hef- ur sem betur fer ekki versnað. Það er nú kosturinn við þetta aUt saman. Vinnudagur leigubUstjórans er nú samt aUtaf jafn langur. Það er ekki hægt að lifa á þessu nema vinna lengi og mikið. Nauðsynlegt að sitja mikið við þetta, sinna þessu af einhveiju viti.“ ( ( ingu. Ekki er ólíklegt að hann sé eini íslendingurinn sem hefur staðið í slíku. Jóhann smíðar líka verðlauna- gripi fyrir félagasamtök og stofnanir. En það er mest að gera í því þegar veiðitímabUið er ekki á fuUu. Þá brýn- ir hann líka hnífa fyrir veitingahús og ýmsa listamenn. Finnurðu fyrir góðærinu af sama þunga og þegar Ferdinand var skot- inn? „Ég veit það hreinlega ekki. Það er . ekkert meiri uppgangur en var héma ( fyrir nokkrum árum. Efast um að þetta lítilræði sé einsdæmi í íslensku efnahagslífi. Góður vinur minn sagði einmitt að það væri bara nóg að skipta um fréttamenn í sjónvarpinu og þá kæmi góðærið af sjálfu sér. En það er nóg að gera hjá mér þó ég beijist auð- vitað fyrir lífi mínu. Er að borga nið- ur mjög dýrt nám og er ánægður á meðan ég hef efni á þessum skuldum sem hvUa á manni.“ Gripirnir keyptir um leið og þeir koma á markað til að forðast söfnunarsl „Þetta var gamalt Supra-tæki, árgerö ‘94, með innbyggðu faxtengi sem þá voru algeng, og fannst fyrir tilviljun undir sæti í gömlum pick-up frá hernum sem íslendingur hafði keypt,“ segir Tindur Magnússon, söfnunarfræðingur hjá Þjóðminjasafninu. Eins og kunnugt er hefur Þjóð- minjasafnið nú lokað dyrum sínum um sinn á meðan unn- ið er að endurbótum á húsnæði þess. Starfsemi safhsins mun liggja niðri næstu tvö árin. Þennan tíma mun starfsfólk nýta til nýrra verk- efna, einkum á sviði forvarnar- starfs þar sem fremur er horft til framtíðar en fortíðar. Á dögunum kynntu forráðamenn Þjóðminja- safnsins stofnun forvamardeildar en á síðustu árum hafa slíkar deildir tekið til starfa í mörgum þjóðminjasöfnum á meginlandinu. Tindur Magnússon söfnunar- fræðingur er nýráðinn deildar- stjóri forvamardeildar Þjóðminja- safnsins. „Forsöfnun er nýtt hugtak í safnafræðinni sem að mínu mati er komið til að vera. Við verðum ein- faldlega að horfast í augu við það að tíminn líður hraðar nú en segjum fyrir tuttugu árum. Gamlar aðferðir gilda ekki lengur og þar er Þjóð- minjasafnið engin undantekning. Nýjungar koma og hverfa á nokkrum árum. Þetta er sérstaklega áberandi í rafmagnsvörum, tölvu- búnaði og fjarskiptatækjum. Fyrir aðeins tveimur árum síðan var faxtækið miðja margra heimila og fyrirtækja en nú hefur raf-póstur- inn, eða emillinn eins og sumir kalla hann, tekið við. í dag era faxtækin orðin jafh fornfáleg og gömlu svörtu skífu-símarnir eða fyrstu vasatölvurnar. Fólk er fljótt að gleyma þessum tækjum, eða hver man til dæmis núna eftir gamla góða reiknistokknum sem var þarfasti þjónninn á flestum verk- fræðistofum fyrir tuttugu árum? Nú er hann eins og hver önnur skytta úr vefstól frá síðustu öld. Reynslan sýnir okkur að menn eru mjög kæralausir þegar kemur að þessum hlutum og henda þeim miskunnar- laust á haugana. Við erum því enn og aftur að reka okkur á það að for- tíðin hverfur sjónum okkar án þess að okkar hafi tekist að gera henni viðhlítandi skil á safninu." Tindur hefur unnið að forsöfnun á vegum Þjóðminjasafhsins nú um nokkurra mánaða skeið og segir hann að fyrst um sinn hafl hann einbeitt sér að þvi að vinna upp glataðan tíma. „Það má segja að síðasti áratugur hafi verið upphafið af þessum hrað- tima sem við köllum svo. Þá hófst tölvu- og upplýsingabyltingin en við vorum hins vegar engan veginn nógu fljótir að átta okkur á þessum nýju aðstæðum og höfum nú eftir mætti reynt að brúa það bil sem hafði myndast. En sumt er einfald- lega gengið okkur úr greipum og ég lít til dæmis á það sem söfnunarlegt slys að fyrsta kynslóð af Mclntosh- heimilistölvunum hafi horfið spor- laust á haugana. Ég veit að í hugum margra vora þessir gripir hægvirk- ar og þunglamalegar vélar en á sama tíma mynduðu margir mjög persónuleg tengsl við þær, engu sið- ur en fólkið í baðstofunni gerði við rokkinn. Lárus Ingólfsson, sem starfað hefur timabundið sem bók- menntafræðingur á safninu hjá okkur, hefur til dæmis safnað mörg- um munnmælavísum um gamla Makkann sem sýnir og sannar þann sess sem hann átti í hugum þjóðar- innar. í sumar hefur lítill hópur unnið við uppgröft á öskuhaugun- um í Gufúnesi en þó að margt for- vitnilegt hafl komið í leitimar, eins og til dæmis fyrsta Mclntosh-músin, frá 1981, og einnig lyklaborð frá ‘82 sem reyndar var ekki með íslensku stafrófi, þá hefur tölvan sjálf ekki fundist enn. Ég vil endilega biðja fólk um ábendingar ef einhvers staðar í bílskúr eða kjallarageymslu skyldi mögulega leynast gömul Apple-heimilistölva. Við borgum vel fyrir slíkt. Á dögunum áskotn- aöist okkur til dæmis mikill dýr- gripur suður í Reykjanesbæ þar sem okkur tókst að hafa uppi á einu af fyrstu módemunum sem fram- leidd vora. Þetta var gamalt Supra- tæki, árgerð ‘94, með innbyggöu faxtengi sem þá vora algeng, og fannst fyrir tilviljun undir sæti í gömlum pick-up frá hernum sem ís- lendingur hafði keypt. í safnaheim- inum fæst geysilega hátt verð fyrir svona grip.“ í haust mun menntamálaráð- herra leggja fram á Alþingi þingsá- lyktunartillögu um aukafjárveit- ingu til hinnar nýju starfsemi en að sögn Tinds er forsöfnun ákaflega íjárfrek ef vel á að vera. „Erlendis eru menn í auknum mæli að fara út í það hreinlega að kaupa vöruna um leið og hún kem- ur á markað til að tryggja sig fyrir söfnunarslysum liku því sem ég nefndi áðan. Við erum að fikra okk- ur áfram með þetta hérlendis og höfum mætt velvild hjá mörgum fyrirtækjum á meðan ekki hefur verið gengiö frá endanlegri fjár- hagsáætlun og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Síðastliðinn vetur var okkur til dæmis veittur forkaupsréttur á vörum í Elkó og fengum að tryggja okkur þær vörur sem við teljum hafa söfnunargildi áður en búðin opnaði fyrir almenn- ing með þeim látum sem menn muna sjálfsagt eftir.“ Forvamardeildin, eða forsafnið eins og Tindur kýs að kalla það, hefur til bráðabirgða fengið hús- næði á Vagnhöfða til umráða fyrir starfsemina sem enn sem komið er er bundin við hreina söfnun og nokkuð langt í land þar til sýning- arstarfsemi geti hafist. Hér er um að ræða lagerpláss upp á 800 fer- metra en nú þegar er rúmur helm- ingur gólfþlássins fullnýttur og ger- ir umsjónarmaður minjalagers, Gústav Bæring, ráð fyrir að hús- næðið verði orðið of lítið strax á næsta ári. „Það sem er að fara illa með okkur era bílainnkaupin. Við eram að upplifa mikla byltingu í bílategundum, allar helstu verk- smiðjumar era að setja ný módel á markað og bílarnir taka mikið pláss. Við sjáum fram á að þurfa að halda í við okkur á þessu sviði á meðan húsnæðismálin hafa ekki fengið endanlega lausn.“ Tindur Magnússon telur þó að komast megi hjá því að stórauka fjárveitingar til Þjóðminjasafnsins. „Víða erlendis, í Singapúr, Kóreu og fleiri löndum hefur það verið lög- leitt að allir framleiðendur, á hvaða vöru sem er, eru skikkaðir til að af- henda Þjóðminjasafni viðkomandi lands tvö eintök af hverju módeli sem framleitt er. Hjá okkur er þessi regla aðeins virk hjá Landsbóka- safni sem á rétt á eintaki af öllu prentuðu máli. Málin vandast hins vegar þegar framleiðandi og safn eru hvort í sínu landi. Innan Evr- ópusambandsins vinna menn nú að því að víkka þessa reglu út á al- þjóðavísu þannig að ffamleiðendur verði skyldaðir til að gefa vörur sín- ar í öll Þjóðminjasöfn álfunnar og við erum að vonast til að njóta góðs af því.“ Hallgrímur Helgason 11. september 1998 f óktlS 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.