Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 3
meömæl i
g f n i
Malt og rúgbrauð í sjoppunnl á Hlemml.
Brauðiö er ekki með of miklu smjöri og
osturinn er alltaf ferskur. Hlemmur
stendur líka tyrir allt sem ungir Reykvík-
ingar, komnir á nýjan bíl, hafa misst
tengslin við.
Að fólk hækkl hltann í kytrunnl slnnl.
Taki til í skápunum og dragi fram mokka-
jakkana. Þeir eru klassískir og standa fyr-
ir sínu. Sérstaklega í góöærinu. Þá er
ekkert vit í aö bera rikidæmiö utan á sér.
Leitaöu uppi kvikmyndina The Klller
Whale meö Richard Harris. Þar er hægt
að sjá Keikó eins og hann er í alvörunni.
Hann runkar sér að vísu ekki en myröir
eins og geösjúklingurinn sem hann er.
Leggöu hjóllnu og hlauptu. Þessi fjalia-
hjól eru orðin svo létt og þægileg aö þú
þrennir engu með því að hjóla. Þetta er
allt í mjúkum gírum og hin eina sanna
áreynsla felst í því að hlaupa upp brekk-
urnar.
Hafsteinn Þórólfsson er aö
opna nýjan klúbb í bænum.
Klúbb sem eflaust á eftir aö
breyta íslensku skemmtanalífi
svo aö um munar.
Diskótæfur og diskótuddar munu vera alisráðandi á skemmtistaðnum Spotlight sem
verður opnaður í gamia Ingólfskaffi í kvöld. Reykvíkingar jafnt sem íslendingar hafa
áttað sig á að homma- og lesbíukúltúr er það sem koma skal.
Vctrarhnd
Valdimar
Bjarnfreðsson
Kaffibollinn
er mitt
Internet
Foreldra sem skíra
börnin sín eftir
Isfólkinu
Herskarar af
Lífum, Þenglum,
Heikirum og
Gabríelum
Jónas Kristjánsson
Við Tjörnina
missir fyrsta sætið 6
Sjálfstæðir menn
Bjartir í miðri
Reykjavík
Hállgrímur
Helgason
skrifar um
Þjóðminjasafnið
Kaupir gripi
þegar þeir
koma á
markað
■V.
Hommar fundu upp
diskótekið og klúbbana
Súper-
grúppan
UNKLE
Helmasíöa Charies Mansons. Á
www.atwa.com getur fólk nálgast Ijóð og
myndir þessa öölings sem fólk viröist
seint ætla aö hætta að óttast. Á síðun-
um má einnig
sjá aö Man-
son hefur
fengiö áhuga
á umhverfis-
málum eins
og fleiri og
hefur á þeim
málum öllum
bæöi skoðan-
ir og lausnir.
En mestan
áhuga hefur hann á sinni eigin lausn og
megniö af vefnum er lagt undir endalaus-
ar náöunarbeiönir þessa fræga skúrks
sem var dæmdur fyrir hjartnær þrjátíu
árum fyrir að fjarstýra fólki til aö myröa
Sharon Tate og félaga hennar.
Giuinar í Krossinum má fara að
vara sig. Hommar og lesbíur eru að
jarða hann. Þau eru ekki bara með
sinn samkomusal, sína útvarpstöð
og sinn skemmtistað heldur njóta
þau meiri velvildar innan samfé-
lagsins. Almenningur hefur áttað
sig á öllu því góða sem komið hef-
ur frá þessum hópi sem fyrir
nokkru var útskúfaður sem ógeðs-
lega syndugur kúltúr.
„Hommar skemmta sér bara bet-
ur. Þetta er ekkert flóknara en það.
Við fundum upp diskótekið og
klúbbastemninguna," segir Haf-
steinn Þórólfsson sem hefur unnið
baki brotnu að opnun nýjasta
klúbbsins, Spotlight.
Hvaö veröur um aó vera á opnun-
inni í kvöld?
„Það verður mjög lókal stemning
til að byrja með. Samtökunum '78 er
boðið í heild sinni ásamt MSC með-
limum. En það er klúbbur sem í eru
karlar í leðri. Síðan verður bara
danstónlist fram eftir nóttu og brjál-
að stuð.“
Er klúbburinn bara fyrir homma
og lesbíur?
„Nei. Staðurinn er hannaður með
þarfir homma og lesbía í huga en
það eru allir velkomnir. Við erum
ekkert að loka hurðinni á neinn. Það
hefur líka sýnt sig á Tuttugu og
tveimur að þar skiptast samkyn-
hneigðir og gagnkynhneigðir fiftí fif-
tí en samt á sá staður að höfða til
homma og lesbía. Það er bara svo
margt breytt frá því fyrir nokkrum
árum. Fólkið sem er á djamminu í
dag er orðið miklu opnara og er ekki
með sömu fóbíuna og var. Nú geta
allir skemmt sér saman.“
Það er greinileg bylgja í gangi í
skemmtanalífi Reykjavíkur. Útvarp-
stöðin WMCA var opnuð fyrir
skömmu og hefur verið að tæta upp
í stemningunni. Hún spilar þétta
diskósmelli og allt hið góða sem
hommakúltúrinn hefur gefið af sér.
Það er jafnvel stefnt að því að
WMCA verði með beinar útsending-
ar frá Spotlight. Hommakúltúrinn
virðist því vera kominn á þann sess
sem hann á heima.
„Það er pottþétt mál að réttinda-
þróunin er á góðu róli. Þetta er nátt-
úrlega ekki búið en hommar og les-
bíur geta horft fram til sífellt bjart-
ari tíma.“
-MT
Mike Paradenas, öðru nafni u-ziq, mun þeyta
skífur á Kaffi Thomsen á sunnudagskvöld
Tónlistin tapaði miklu
ísland er inn. ísland er heitasti
punktur veraldar. ísland þykir svo
flott úti í heimi að það má ekki
vera fullt nokkrar helgar á Kaffi
Thomsen þá er búið að minnast á
það í breska blaðinu Guardian. Við
erum að lifa ótrúlega tíma. Skítt
með nóbelinn eða óskarinn eða
hvað það nú var. Nú er það Lhooq,
Alda, Gus Gus og Björk. Um helg-
ina er meira að segja enn einn
skífuþeytirinn að koma til lands-
ins.
„Ég hef ekkert heyrt um að ís-
land sé inn í dag. Enda elti ég ekk-
ert bylgjurnar sem eru í gangi dag
frá degi. Ég reyni bara að sinna
minni tónlist og er hvort eð er
hættur að sækja klúbbana. Hef
varla stigið inn á klúbb síðan reifið
drapst. Klúbbarnir misstu kraftinn
þegar fólk hætti að nota ecstacy.
Nú stendur það bara eins og þvörur
og sýnir sig. Mikill hégómi í gangi
í klúbbunum núna og tónlistin sem
er spiiuð er orðin léleg. Diskótekar-
arnir spila að sjálfsögðu bara það
sem fólk vill heyra og fólkið er ekki
að dansa. Þannig að danstónlistin
er ekki eins mögnuð og þegar reif-
in voru.“
Mike býr rétt fyrir utan
Birmingham, fjarri skarkala stór-
borgarinnar London. Þessa dagana
er hann á flakki um heiminn með
Björk nokkurrri Guðmundsdóttur
og líkar vel. Mike er skífuþeytir og
hljóðlistamaður sem notar raftækni
sem tjáningartæki.
Hvaö hefurðu veriö aö gera?
„Síðasta platan mín, Lunatic
Harness, kom út í fyrra og var
svona samkrull. Allt tæknitónlist,
að sjálfsögðu. En það má finna
þama lög með breaktakti og hinar
ýmsu tilraunir sem ég hef verið að
gera. Ég vinn út frá frekar víðum
hugtökum og er ekkert að festa mig
niður á eitthvaö ákveðiö."
Mike er búinn að vera í þessu
nokkuð lengi. Hefur gefið út tíu
plötur og því tekið þátt í þróuninni
á tæknitónlist frá upphafi. Hann er
ótrúlega þéttur plötusnúður og það
verður því forvitnilegt að sjá hann
þeyta skífur næstkomandi sunnu-
dag.
-MT
u-ziq (leslst sem músík) er það sem
þú sérð ekki. Englnn tilgangur í að
sjá það sem er.
Ofmetnir Islendingar
- aðrir en Keikó 12-13
Gagnrýnandi af
götunni
Listamenn
eru
kolvitlausir
aumingjar 14
Oddný Sturludóttir
Gerir margt og hefur
skoðanir á öllu 19
Saving Privat
Ryan
Spielberg
er snillingur
Manson-gengið
Vafrar um Kringluna
í leit að athygli
Hvað er að gerast?
Veitingahús ...................6
Popp..........................11
Klassík.......................13
Leikhús ......................13
Myndlist......................14
Sjónvarp...................15-18
Bfó...........................20
Hverjir voru hvar.............22
^ Fókus
fyigír dv á
æ föstudögum
Forsíðumyndina tók
Hilmar Þór af Manson-genginu.
11. september 1998 f Ókus