Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 11
popp UNKLE er hugarfóstur James Lavelle og DJ Shadow en ásamt þeim koma við sögu Thom Yorke úr Radiohead, Mike D úr Beastie Boys og Richard Ashcroft úr Verve, Mark Hollis (áður í Talk Talk), Jason Newstead úr Metallica, lo-fi teknó- istinn Badly Drawn Boy og Alice Temple. á vinátftu áum plötum hefur verið beðið með jafnmiklum æsingi og plötu UNKLE, „Psyence Fiction". Löngu áður en hún kom út voru spekúlant- ar farnir að kalla hana „plötu árs- ins“. UNKLE er hugarfóstur James Lavelle og DJ Shadow. James stofnaði Mo’Wax útgáfuna 1992 og þróaði hana úr skrifborðsskúffu í eitt af stærstu og áhugaverðustu merkjum dansgeirans. í dag er á merkinu flnt lið eins og DJ Krush, Attica Blues, Money Mark og svo auðvitað DJ Shadow, sem sló í gegn í fyrra með plötunni „Endtrod- ucing“. UNKLE byrjaði sem hliðar- verkefni hjá James, en hann hefur rímixað poppara eins og Beck, Radi- ohead og Verve, auk þess að sinna útgáfunni. Reyndar byrjaði UNKLE án DJ Shadow. Þá vann James með Tim Goldsworthy og Kudo úr japönsku sveitinni Major Force. EP-platan „The Time has come“ gaf smjörþef- Mix Master Mike var bannað að taka þátt í plötusnúðakeppninni Skratch Piklz svo aðrir hefðu að einhverju að keppa: Gaukur á Stöng. Tónlistarviðburðurinn Jazz á ystu nöf um helgina í samvinnu við Rúrek, Party-Zone, Skýjum ofar og Japis. Byrjar klukk- an tiu í kvöld og verður líka annað kvöld. Á sunnudags- og mánudagskvöld mun hin stór- góða hljómsveit Blúsmenn Andreu skemmta gestum Gauksins. Kaffl Thomsen. Á sunnudaginn verður fimmta Hjartsláttarkvöld haldið þar í boði Bjarkar, Gus gus og hr. Örlygs. Byrjar klukkan níu. Vegamót. Eins árs afmæli staðarins annað kvöld og uppskeruhátíð Duff-bræðra um leið. Ýmsir landsfrægir söngvarar munu leggja þeim lið sitt og plötusnúðurinn Andrés ætlar að þeyta sklfum. Svo kemur líka eldgleypir og allt. Grand Hótel. Gunnar Páll klikkar ekki. Hann verður við Sigtúnið um helgina og spilar og syngur frá sjö til ellefu. Catalína í Kópavogi. Útlagar spila I kvöld og annaðkvöld. Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin Hunang verður á staðnum bæði djammkvöldin en á sunnu- dags- og mánudagskvöld ætla Harold og Þórir Úlfars að troða upp. Á þriöjudagskvöld mæta svo Rut Reginalds og Blrglr Birglsson. Naustkjallarlnn. Sævar og Níeis spila undir borðum I kvöld og annað kvöld. Á fimmtudags- kvöldið verður svo dansað í línu eins og venju- lega. Það byrjar klukkan nlu og kostar fimm- hundruðkall. Ódýrara en að fara I bló. Kringlukráln. Sln leikur þar I kvöld, á morgun og á sunnudagskvöldið. í leikstofunni verður hins vegar Ómar Diðrlksson eins og undan- farnar fjöldamargar helgar. Fjaran. Jón Möller verður á slnum stað með rómantísku planótónlistina slna. Leikhúskjallarlnn. Stjórnln veröur á sinum stað um helgina. Húsið er opnað klukkan ell- efu. Fógetinn. Alll Alfreðsson og hljómsveitin hans verða þar I kvöld en Blál flðrlngurlnn annað kvöld. Álafoss föt bezt. Þaö kostar bara sexhundruö- kall inn á svokallað Creedence Clearwater Revlval þar sem ferill rokksveitarinnar er tek- inn fyrir I flutningi mætra Islenskra tónlistar- manna. Gullöldln. Hínir frábæru Svensen & Hallfunkel halda uppi stuðinu um helgina. Hótel Saga. Blrglr og Baldur verða á Mimisb- ar með lifandi tónlist I kvöld og annað kvöld. Café Romance. Llz Gammon spilar fyrir gest- ina og llka fyrir matargesti Café Óperu fram eftir kvöldi. Næturgallnn. Lúdó og Stefán trylla iýöinn þar um helgina. Café Amsterdam. Hin nýja og bráöskemmti- lega hljómsveit írafár mun gera allt vitlaust I kvöld og annað kvöld. Felti dvergurlnn. Rúnar Júlíusson og Tryggvl Húbner eru rokkfélagar miklir og ætla að leika um helgina á þeim feita. Sveitaböll Inghóll á Selfossi. R&B meistarinn DJ Svall veröur þar I kvöld ásamt DJ Gumma Gonza- les. Það verður llka hárgreiðslu- og tískusýn- ing frá Mal og X18. Umboðsskrifstofa Eskimo Models mætir á svæðið. Þetta kost- ar þúsundkall og I boöi er fordrykkur. Hótel Mællfell á Sauöárkróki. Greifarnlr end- ast merkilega vel. Nú eru þeir að klára ferða- lagið sitt um landiö og verða á Króknum I kvöld. Hótel Akranes. Þangaö veröa Grelfamlr komnir á morgun. Búðarklettur I Borgarnesi. Hljómsveitin Úlrlk leikur I kvöld og annað kvöld. Langlsandur uppi á Skaga. Svelnn Ingason leikur fýrir gesti Efri barsins I kvöld. Svo verö- ur diskótek á morgun. Rúðlr. Nú eru réttir og það verður dansað á Flúöum I kvöld. Hljómsveitin Skitamórall ætlar að spila og þú verður að vera sextán til að komast inn. Sjallinn á Akureyri. Eftir réttardansleikinn á Rúðum skverar Skítamórall sér norður og leikur I Sjálfstæðishúsinu annað kvöid. Týshelmlllð I Vest- mannaeyjum. í tilefni þess að Tal og Keikó eru komin til Eyja ætlar Sóldögg að leika á vegum Tals hf. á stórdansleik annað kvöld. Ráln I Keflavík. Hafrót verður þar I kvöld og annað kvöld. Skothúslð í Keflavík. 1 kvöld leikur hljómsveitin SSSól ásamt diskótekaran- um DJ. Icem- an, ööru nafni Sigga Diskó. Félagshelmlllð í Árnesl. Annað kvöld veröur SSSól mætt þangaö á árlegt réttarball þeirra Skeiðamanna. inn af því samstarfi en þegar reynt var að búa til meiri tónlist kom í ljós að samstarfsgrundvöliurinn var brostinn. Þá kom DJ Shadow inn í myndina og vinna við nýju plötuna hefur tekið þrjú ár með stanslausum pælingum hans og James. Mörg stórmenni poppsins lögðu sitt af mörkum; Thom Yorke úr Radi- ohead, Mike D úr Beastie Boys og Richard Ashcroft úr Verve semja lög með UNKLE, en einnig koma við sögu Mark Hollis (áður í Talk Talk), Jason Newstead úr Metall- ica, lo-fi teknóistinn Badly Drawn Boy og Alice Temple. Tvímenningarnir hafa verið órag- ir við að líkja plötunni við myndina „Apocalypse Now“; það tók á að búa hana til og útkomuna segja þeir jafn stórfenglega. „Mín uppáhaldsplata var alltaf „Blue Lines" (með Massive Attack)“, segir James, „og ég vildi í raun gera mína eigin „Blue Lines“, plötu sem vitnaði í þá tónlist sem ég ólst upp með en væri samt staðsett í nútímanum." Um samstarfið segir Shadow; „Fyrir mig er platan framlenging á vináttu okkar. Þegar við kynntumst fyrir sex árum snerist spjallið strax um tónlist, kvikmyndir, bækur og myndlist, á sumu höfðum við sam- eiginlegan áhuga en annað kom á óvart. Ég held að hann hafi uppgötv- að að ég var náungi sem skildi hvað hann var að pæla.“ Þegar vinna við plötuna hófst árið 1995 hafði Massive Attack nýgefið út plötuna „Protection" og Tricky og Portishead voru að skríða á listana með rétt dagsins, tripp-hoppið. „Ég horfði i kringum mig og hugsaði, ég get ekki gert svona tónlist," rifjar James upp. „Ég varð að halda áfram þó að hugmyndimar væru svipaðar og ég væri að vinna á svipuðum nót- um og nota söngvara." Hann þver- tekur fyrir að val hans á söngvurum hafi eitthvað að gera með gríðarleg- ar vinsældir þeirra, segir að As- hcroft og Yorke hafi hvorugir verið súperstjömur þegar þeir tóku upp sína parta fyrir UNKLE. „Ég vil að platan verði dæmd af eigin verðleik- um, ekki út frá því hvaða fólk er á henni. Þessi plata var ekki sett sam- an eins og reikningsdæmi, hún kem- ur beint frá hjartanu." -glh Þegar IMix Master Mike var 16 ára breikdansari og byrjandi í tón- list ákvað hann að það væri kom- inn timi til að hætta í skóla, láta drauminn rætast og veröa hipp- hopp plötusnúður. Foreldrarnir urðu fyrir áfalli en Mike var ekki í neinum vafa; „Ég elskaði hipp- hopp og þar að auki lærði ég ekk- ert af viti í skólanum." Tólf árum síðar er Mike einn af fæmstu og frægustu plötusnúðum heims. Hann er meðlimur i Invisi- ble Skratch Piklz-plötusnúðsgeng- inu sem vann stærstu plötusnúða- keppni heims (DMC-keppnina) þrisvar i röð og var bannað að taka þátt í fleiri keppnum því nær- vera þeirra fældi aðra keppendur frá. í staðinn fengu þeir að dæma i keppninni. Mike er frumkvöðull í „turntablism", það að nálgast plötuspilarann sem tónlistarmað- ur frekar en tæknimaður. Hann hefur gefið út helling af mix-spól- um sem hafa undir eins horfið úr plötubúðunum en nú hefur hann hækkað standardinn með sinni fyrstu sólóplötu, 31-laga flykki fullt af rispum, breikbíti og geimaldarhávaða. „Anti-Theft Device" nefnist flykkið og er sýn- ishorn af útúrspeisuðum huga Mikes. „Ég geri „serial-wax-killer tónlist““, segir hann, „en þetta gæti alveg eins kaUast „fljúgandi- kolkrabbi-með-leysibyssu tónlist“. Þetta eru ævintýri í gegnum hljóð- ræn ormagöng." Þýðingu takk! „Þetta er „tumta- blism“ á músikalskan hátt. Þegar þú mixar spólur, blandarðu saman tónlist annars fólks. Ég gerði alla taktana á plötunni og ég rispa allt - hom, fiðlu, konga-trommur - þess vegna hljómar þetta eins og al- vöm hljómsveit." Rispaði sig inn á Beastie Boys Mixmasterinn rispar á nýjustu plötu Beastie Boys, „Hello Nasty“, og flækist nú með þeim um heim- inn á tónleikaferðum. Þetta er vafalítið hápunktur ferilsins og byrjaði þannig að Mike hitti Skepnustrákana 1995 og skiptist á símanúmerum við þá. Hann fór að skilja eftir fáránleg rispuð skilaboð á símsvaranum hjá þeim. „Þetta varð geðveikara og geðveikara og að lokum föttuðu Beastie Boys að þeir urðu að fá mig til að spila með sér því ég kem greinilega frá árinu 2010!“ Á tónleikum með Beastie Boys notast Mike við sömu tækni og frá dögum hans í plötusnúðskeppnun- um. „Ég nota tvo plötuspilara og hljóðnema, allt vinýl-plötur, engin „sömpl” og ég ýti ekki á aðra takka en stopp-takkann,“ segir hann hreykinn. „Stundum hoppar nálin á plötunni, en hei, það er hipp- hopp!“ Hverjar eru ráðleggingar meist- ara Mike til ungra plötusnúða? „Ég hvet ykkur til að hlusta á alls kon- ar tónlist. Ég hlusta t.d. á Johnny Cash, Mozart, Jimi Hendrix og Muddy Waters og það heyrist á plötunni minni. Ég hvet ykkur líka til að lesa bækur og ná ykkur í svo- lítinn fróðleik áður en þið farið að plötusnúðast. Sjáið „Godzilla" og „Ultra Man“-myndbönd, lesið „Dune“. Lærið að byggja ykkar eig- in piramída og verðið ykkar eigin byggingameistarar. Ég lærði með því að leika mér með Legó-kubbum þegar ég var lítill." Hér rennur upp ljós fyrir honum; „Þannig séð er ég enn þá að leika mér með Legó. Nú eru þetta bara Legó-kubbar í hljóð- rænu formi.“ -glh |meira á. w w w. v i s i r. i s Enn að leika '- ó-kubh 11. september 1998 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.