Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 21
b í ó
Stjörnubíó frumsýnir Himnabál, ástralska vegamynd um bankaræningja á flótta.
Ræningjar hreppa brúði
Tíu bestu strfðsmyndimar {
um seinni heimsstyijöldina
1 The Bridge on the River Kwai 1957
Leikstjóri: David Lean
2, Schindler's List 1993
Leikstjóri: Steven Spielberg
3. From here to Eternity 1953
Leikstjóri: Fred Zinnemann
4 Patton 1970
Leikstjóri: Franklin Schaffner
5 Das Boot 1981
Leikstjóri: Wolfgang Petersen
6 They Were Expendable 1945
Leikstjóri: John Ford
. Stalag 17 1953
Leikstjóri: Billy Wilder
Soldier of Orange 1978
Leikstjóri: Paui Verhoeven
9 The Longest Day 1962
Leikstjórar, Ken Annakin, Andrew Marton
og Bernhard Wicki
10. The Great Escape 1963
Leikstjóri: John Sturges
Gífurlegur fjöldi kvikmynda hefur verið gerður
um síðari heimsstyrjöldina og hefur þessi styrj-
öld, sem sumir vilja kalla síðasta stóra stríðið,
verið gjöful fyrir kvikmyndagerðarmenn. Víst
má telja að Saving Private Ryan eigi eftir að
skipa sér í hóp bestu kvikmynda sem gerðar
hafa veriö um síðari heimsstyrjöldina og slðar
á þessu ári eða snemma á því næsta verður
frumsýnd A Thin Red Line, sem Terence Malick
leikstýrir og er hennar beöið með mikilli eftir-
væntingu. Hún gerist einnig í slðari heimsstyrj-
öldinni svo þessi listi yfir tíu bestu síðari
heimsstyrjaldarmyndir sem gerðar hafa verið
gæti því breyst verulega á næsta ári.
Brúin yfir Kwai-fljótiö. Wiliiam Holden,
til vinstri, í hlutverki amerísks fanga.
Stjörnubíó tekur til sýningar í
dag Himnabál (Heaven's Burning)
sem er áströlsk vegamynd krydduð
með svörtum húmor. Mynd þessi
hefur víðast hvar fengið góðar við-
tökur. Fjallar hún um japanska
brúði, Midori, sem eyðir hveiti-
brauðsdögum sínum í Ástralíu.
Upp úr þurru segir hún skilið við
eiginmann sinn, fer í banka og
skiptir ferðatékkum sínum. Hún er
ekki heppnari en svo að um leið
eru bankaræningjar að ræna bank-
ann. Ránið fer út um þúfur og ræn-
ingjamir taka Midori sem gísl. í
helstu hlutverkum eru Russell
Crowe, Youki Kudoh, ein
þekktasta leikkona og söngkona
Japans nú, Kenji Isomura og Ray
Barrett. Leikstjóri er Craig
Lahiff, þekktur kvikmyndagerðar-
maður í heimalandi sinu sem byrj-
aði í kvikmyndum þegar Ástralir
voru að setja mark sitt á heims-
byggðina með kvikmyndum á borð
við Picnic at Hanging Rock og
Breaker Morant.
Russell Crowe er á hraðri leið
upp á stjömuhimininn um þessar
mundir. Hann er ekki ástralskur,
eins og flestir halda, heldur nýsjá-
lenskur, en hann var aðeins fjög-
urra ára þegar hann flutti ásamt
fjölskyldu sinni til Sydney. Þar
lagði hann snemma leiklistargyðj-
unni lið. Þekktur varð Russell
Crowe í Ástralíu fyrir leik í
Romper Stomper, en hann hlaut
ástralska „óskarinn" fyrir leik
sirrn í þeirri mynd. Crowe hefur
gengið vel í Bandaríkjunum eftir
að hann fluttist þangað og ber þar
hæst leikur hans í L.A. Confidenti-
al. Af öðmm bandarískum kvik-
myndum sem hann hefur leikið í
má nefna Virtuosity, Breaking Up,
The Quick and the Dead og No
Way Back. Himnabál er sautjánda
kvikmyndin sem Russell Crowe
leikur í.
-HK
Regnboginn
Fairy Tale: A True Story *** Álfasaga er
hugljúf mynd en líöur svolítiö fyrir þá sök að
handritshöfundurinn getur ekki gert uþp hug
sinn. Stúlkurnar eru annaðhvort litlir svindlar-
ar eða börn sem vissulega búa í undraverö-
um heimi. Myndin sveiflast milli þessara skýr-
inga og ómögulegt er aö segja fyrir um hvort
álfarnir séu raunverulegir eða ímyndun. -ge
Næturvörðurinn Hvernig á að meta og
dæma mynd sem er nákvæm eftirgerð á
annarri, bætir engu við; en tekur hún þá frá?
Einhvern veginn var hinn bandariski Næturvörð-
ur ekki eins heillandi og sláandi upþlifun og sá
danski. Aðalleikaraparið McGregor og Arquette
ná sér aldrei á strik og það vantaði líka mikið
upþ á að Nick Nolte væri nógu góður. -úd
Les visiteurs 2 * Þótt Jean Reno sé skemmti-
legur leikari með mikla útgeislun getur hann
ekkert gert til þess að bjarga þessari mynd sem
líður fyrir óvenju vont handrit. Þegar upp er stað-
ið er myndin ekkert annað en tímaeyösla. -ge
Senseless * Marlon Wayans, með öllum sín-
um kjánalátum, nær stundum upp ágætri
stemningu og sumir brandararnir eru nógu fá-
ránlegir til að vera sniðugir en eins og með
nokkra kynbræður hans I leiklistinni, sem hafa
sérhæft sig í farsakenndum eftirlíkingum af
götulífi I úthverfum stórborga, þá fær maöur
fljótt leið á einhæfum leik hans. Nokkrar auka-
persónur lífga upp á myndina. -HK
Stjörnubíó
Godzilla **★ Godzilla er skemmtileg en
ekki gallalaus. En hún hefur þaö sem máli
skiptir: Godzillu. Og hún er stór, og hún er
flott og hún er afskaplega tæknilega fullkom-
in; og hún er myndin. Emmerich tekst að ná
flottum senum með magnaðri spennu, sér-
staklega var lokasenan algerlega frábær og
nægir ein og sér til að hala inn þriöju stjörn-
una. -úd
He Got Game *** Spike Lee er kominn
aftur á blað eftir skrykkjótt gengi að undan-
förnu. Hann missir aöeins tökin á góðri sögu
í lokin en þegar á heildina er litið er myndin
gott drama þar sem Lee liggur sem fyrr ekki
á skoðunum sínum á ýmsum þáttum mann-
lífsins. Densel Washington nær sem fyrr í
myndum Lees að sýna störleik. -HK
meira á.
www.visir.is
11. september 1998 f Ó k U S