Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Blaðsíða 6
m a t u r f Ó k U S 11. september 1998 Argentína ★★★ Barónsstíg Ua, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýr- ustu og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safarikar og áður." Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Einar Ben ★★ Veltusundl 1. 5115090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og veröur þvl seint jafnvinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood." Op/'ð 18-22. Café Ópera ★ Lækjargötu 2, s. 522 9499 „Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu og þar virðist vera takmarkaöur áhugi á mat- reiðslu." Op/'ð frá 17.30 til 23.30. Fiðlarinn á þakinu ★★★ Sklpagötu 14, Akureyri, s. 462 7100 „Matreiðslan stóð ekki undir háu verði en hún hefur batnað. Þjónustan var alltaf góð en nú er of mikiö treyst á lærlinga." Op/ð 12.30-14 og 18-22. Hard Rock Café ★★ Krlnglunni, s. 568 9888 „Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað en skyndibita ogvill ekki annað en skyndibita; fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða ham- borgara og daufa ímynd þess að vera úti að borða." Op/ð 11.30-23.30. Hótel Holt ★★★★★ Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. „Listasafniö á Hótel Holti berí matargerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Op/ð 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Óðinsvé ★★ v/Óölnstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafn- vel í einni og sömu máltíð." Op/ð 12-15 og 18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id. Ítalía ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. „Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir og gæðaþjónustan er hálfítölsk. Það, sem tæpast hangir í Itðlskunni, er matreiðslan." Op/ð 11:30-11:30. Játvarður ★★★ Strandgötu 13, Akureyrl, 461 3050 „Skemmtilega hannaður staður með fínlegri matreiðsiu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elsku- legri þjónustu sem getur svarað spurningum um matinn." Op/ð 11.30-14 og 18-22. Lauga-ás ★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg- ur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda I kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða- menn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki uppar né ímyndarfræðing- ar.“ Op/ð 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka ★★ Bankastræti 2, s. 551 4430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, frambærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri hendinni eru gerðar forvitnilegar til- raunir en með hinni er farið eftir verstu hefðum." Op/'ð md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30. Mirabelle ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir I profiteroles og créme brulée. Mirabelle er komin á gott skrið." Op/'ð 18-22.30. Pasta Basta ★★★ Klapparstig 38, s. 561 3131 „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af góðum pöstum en Htt skólað og of uppá- þrengjandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. La Primavera ★★★★ Austurstræti 9, s. 561 8555 „Sjálfstraust hússins er gott og næg inni- stæða fyrir því." Op/ð 12,00-14,30 og 18,00- 22,30 virka daga og um helgar frá 18,00- 23,30. Rauðará ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús. Nautasteikin getur verið góð, en hún getur llka verið óæt. Yfirþjónninn er svo önnum kafinn við að vera kammó að hann tekur ekki alvarlega ábendingar um að nautakjöt sé skemmt." Op/'ð frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn. Skólabrú ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fln, vönduð og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hóf- söm." Op/Ö frá kl. 18 alla daga. Smiðjan ★★★ Hafnarstrætl 92, Akureyrl, s. 462 1818 „Smiðjan hefur árum og sennilega árum sam- an verið eini staðurinn á Akureyri þar sem er þorandi að borða fisk." Op/'ð 18.00-22.00. ITI.O JLJT 3. 3l www.visir.is Sagan um Isfólkið hefur hrifið marga Islendinga inn í ævintýralega og spennandi veröld. Síðan bækurnar fóru að koma út hefur orðið æ algengara að foreldrar láti börnin sín heita í höfuðið á ísfólkinu. Sum þessara nafna eru harla óvenjuleg; Heikir, Líf, Þengill og Yrja. Önnur, eins og Daníel, Alexander og Sunna, hafa rokið upp í vinsældum. slenska Isfólki ftstir liúcífers Þegar fólk nennir að lesa sögu sem er svo löng að hún fyllir fjörutíu og sjö bækur hlýtur að vera eitthvað varið í hana. Jafn- vel þó hún fáist úti í sjoppu og flokkist ekki undir heimsbók- menntir (kannski einmitt vegna þess). Sagan um ísfólkið hefur verið lesin af fjölda fólks, aðallega kvenna, sem hafa sogast inn í sög- una og ekki getað hætt fyrr en að öllum bókunum loknum. Rafgul augu Sagan fjcdlar um ætt eina sem kennd er við ísfólkið, afkomendur Þengils hins illa. Hann seldi Satan sál sína fyrir mörgum öldum. Bölvun hvílir þvi á ætt hans og einn og einn afkomandi fæðist bannfærður og á að ganga í þjón- ustu kölska og vinna illvirki. Þeir bannfærðu þekkjast á rafgulum augum og yfirnáttúrulegum krafti. Um 1500 fæðist einn bann- færður, Þengill hinn góði, og þá byrjar sagan. Hann reyndi að vinna góð verk í stað vondra og fjallar sagan um afkomendur hans og baráttu þeirra við að tor- tíma Þengli hinum illa sem lifir í mörg hundruð ár, fjarri manna- byggðum. ísfólksæði Þessi tilbúna ísfólksætt hefur orðið svo mikill áhrifavaldur í lífl svo margra að höfundurinn, Margit Sandemo, hlýtur bara að vera steinhissa. Á lesendur virð- ist renna eitthvert æði og þeir nefna jafnvel bömin sin eftir per- sónum sögunnar. Fyrsta bókin, Álagaijötrar, kom út árið 1982. Eins og línuritin sýna hefur börnum sem bera nöfn sögupersónanna fjölgað jafnt og þétt síðan. Líf er nafn sem þekktist varla áður en sú bók kom út en núna ber hjörð stúlkubarna nafnið, ýmist sem aðal- eða Forustan gefin eftir Saga 4sfólkið hefur göngu sína Saga Líf ásamt mömmu sinni, Guölaugu Karlsdóttur, og litla bróður, Sigþóri Andra. Líf Ein helsta ættmóðir (sfólksins. Fæddist árið 1583 og var dóttir Siiju Arngrímsdótt- ur og Þengils hins góða af ætt ísfólksins en þau eru einar fyrstu persónur hinnar löngu sögu. Líf var góð og greind, lifði lengi og var virt af ættmennum sínum og afkomendum. Stúlkur sem heita Líf að fyrra nafni Fæddar fyrir ísfólkið: 1 Fæddar eftir Isfólkið: 12 -ísfólkið hefur göngu sína millinafn. Einnig eru dæmi um að stúlkur hafi látið breyta nafninu sínu í Líf. Nafnið Yrja þekktist ekki fyrr en eftir tíma ísfólksins og nú bera það fimm stúlkur sem aðalnafn. Sama máli gegnir um karlmannsnafnið Heiki sem eng- inn ber fyrr en eftir ísfólk. Þengill er nafn sem tekur kipp á þessu tímabili og svipaða sögu má segja um nöfn eins og Gabríelu, Alex- ander, Mikael, Daníel, Sögu og Sunnu. Saga Líf Fjórtánda júlí árið 1996 fæddist lífleg lítil stúlka sem síðar hlaut nafnið Saga Líf. Hún er dóttir Guðlaugar Karlsdóttur og Sig- Orðið saga á sænsku þýðir ævintýri og Saga lenti svo sannarlega í þeim. Hún var með Ijósgræn augu og var „útvalin", hárið kolsvart og féli í lokkum. Hún var áhyggju- laus og hugrökk, tók öllu með virðugleika, einstaklega góð í sér og með ríka kímni- gáfu. Hún var eins og ævintýraprinsessa. Átti í ástarsambandi við sjálfan Lúcífer og eignaðist með honum tvíbura, annan „bannfærðan". Saga fæddist árið 1836 og dó 1861. Stúlkur sem heita Saga að fyrra nafni Fæddar fyrir ísfólkið: 8 Fæddar eftir Isfólkið: 62 Sunna Silja fann hana í fangi látinnar móður sinn- ar sem ógeðsleg pest hafði grandað árið 1581. Þá var Sunna þriggja ára. Fljótlega kom í Ijós að hún var gædd yfirnáttúruleg- um hæfileikum. í rauninni var hún undur- falleg norn. Hún var villt en góð inn við beinið. Tældi með göldrum hvern þann karlmann sem hún girntist, fyrst fjórtán ára gömul. Átti í ástarsambandi við sjálfan skrattann. Eignaðist eina stúlku og dó árið eftir, aðeins rúmlega tvítug. Stúlkur sem heita Sunna að fyrra nafni Fæddar fyrir ísfólkið: 84 Fæddar eftir ísfólkið: 303 þórs Sigþórssonar. Móðir henn- ar játar að hafa heillast af nafninu Líf þegar hún las fsfólkið sem unglingur. „Mér fannst þessar bækur rosa- lega skemmtilegar og sökkti mér í þær. Líf var yndisleg og góð per- sóna úr einni af fyrstu bókunum og ég ákvað að dóttir mln skyldi bera það nafn. Sú ákvörðun Hsfólkiö h gongu si Við Tjörnina ★★★★ Neistaflug hefur minnkað í eld- húsi Tjarnarinnar við Templara- sund. Þar fékk ég tæplega útvatnað- an og þurran saltfísk að hætti þeirra húsmæðra, sem elduðu í gamla daga af því að þær urðu að elda. En þar fékk ég líka ljúfan kola pönnusteiktan, afar franskan, með mildri tarragonsósu, stinnum hrís- grjónum og kartöflum. Einnig meyra og fínlega blálöngu með mildri grænpiparsósu, gulrótarþráð- um og baunum. Bilunareinkenni sjást hér og þar. Kryddblönduð og uppvafin bleikju- flök í turni voru sniðug að sjá, en þurr undir tönn. Aftur á móti var ristaður smokkfiskur meyr og flnn, með tómati, hæfilega litlu karríi og ítölsku blaðsalati. Tjörnin hefur að undanfómu gert bezt í ýmsu öðra en físki. Stórir furusveppir íslenzkir með hæfilega litlum granaosti og madeirasósu voru hápunktur máltíðarinnar, und- ursamlegir í bragði. Grænmetisrétt- ur dagsins var líka frábær, flnlegur baunaréttur með mildri sósu og góðu heildarsamræmi í bragði. Matreiðsla kjöts hefur raunar batnað við brottfór Rúnars. Lamba- steik með döðlum og rauðvínssósu var rósrauð og flnleg. Reyksoðinn svartfugl var faliega upp settur 1 stjörnu ofan á eplasalati, með dopp- um af piparrótarsósu og jarðarberj- um í kring. Auk þess að hafa fjarlægzt flsk má segja um matreiðslu Tjarnarinn- ar, að yflrleitt er hún næm eins og var hjá Rúnari, en fínlegri og dauf- ari að frönskum hætti. Undantekn- ingar eru til, svo sem skemmtilega indversk og mögnuð lime-karrí- kókossúpa dagsins. Eftirréttir eru fáir en góðir. Fyrst er fræga að nefna gamla gúmmulað- ið, súkkulaðitertu Rúnars. Bezt var raunar loftkennd Grand Maraier skyrkaka, notalega létt í maga. ísinn var aftur á móti hversdagsleg tvenna með súkkulaðisósu. Fyrir rúmu ári var Tjörnin bezta veitingahús landsins eftir að hafa í nokkur ár skipzt á um að hafa for- ustuna með Listasafninu á Holti. Nú virðist Tjörnin endaniega hafa gefið forustuna eftir og raunar annað sæt- ið líka, gerir oftast vel, en ekki alitaf og mistekst raunar stundum. „Nú virðist Tjörnin endanlega hafa gefið forustuna eftir og raunar annað sætið líka, gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Bilunin er ekki bara í matnum. Farið er að spara í fleiru en munn- þurrkum í hádeginu. Settur var á vaktina ungþjónn, sem hafði ekki hugmynd um, hvað var í matnum á matseðlinum. Síðan komu elsku- legar þjónustustúlkur og björguðu málum. En til eru staðir í bænum, þar sem starfsfólk veit, hver pant- aði hvað. Verðlag hefur lengi verið fast á Tjörninni. Þriréttað með kaffi kostar 3.560 krónur og súpa og réttur dagsins í hádeginu kosta 1.000 krónur. Andrúmsloft afturhvarfs frá hvimleiðum nútíma er ekki eins notalegt og áður. Ég efast um, að samræmdur litur blár á panil- veggjum og undirdúkum þjóni aft- urhvarfinu. Áður höfðu haldið innreið sína samræmdar ljósakrónur. Jónas Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.