Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Qupperneq 10
•ra«aa*j
ln Ferno Minestry of Dance í Kringlunni end-
urflytur Ku prógrammiö frá síöustu helgi í
kvöld og annaö kvöld. DJ norska og DJ Kriss
Anderson verða á svæðinu og má búast viö
ekta sólarlandastemningu í gaddinum.
Bubbi verður á Borginnl á
sunnudagskvöldiö ogtekur
lög af plötunni Lífið er Ijúft
og nýtt efni. Tónleikarnirnir
hefjast kl. 19.
Feiti dvergurinn. Kumpánarnir Rúnar Júl. og
Tryggvi Hubner rokka feitt í kvöld og líka ann-
að kvöld.
Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin meö alheimsvit-
undina, Karma, spilar í kvöld og annað kvöld.
En á sunnudagskvöldið sjá þeir félagar Harold
og Þórlr um fjörið.
Fjörugarðurlnn. Þaö er að sjálfsögðu heljar-
innar víkingaveisla alla helgina og er það að
sjálfsögðu Víklngasveltln sem heldur uppi
fjörinu.
Á Gaukl á Stöng verður hin mikla stemningar-
hljómsveit írafár í kvöld og annað kvöld.
Naustlð. Gleöistund með Ernl Árnasynl leik-
ara verður um helgina. Örn fer á kostum og
hefur sér til aöstoðar pianóleikarann Kjartan
Valdimarsson.
Naustkjallarlnn.
í kvöld mætir
hljómsveit Geir-
mundar Valtýs-
sonar sveiflu-
kóngs á svæðið
og heldur uppi
stuöinu fram eft-
_____ ir nóttu.
Vegamót. I tilefni af Nordisk Rlm
Festival mætir stuðgrúbban Hringir í
kvöld og mun spila eitthvaö aöeins
fram eftir í boði norska sendiráðs-
ins. En annaö kvöld mætir stemning-
armeistarinn DJ Jó Jó á svæöið. .
Við vorum
Kenickie,
hópur af
hálfvitum
Poppbransinn er enginn leikskóli.
Þetta er harður heimur sem segir að
þú sért frábær í dag en ömurlegur á
morgun. Þrjár breskar stelpur og
strákur voru hljómsveitin Kenickie.
Þau gerðu plötu fyrir tveim árum og
voru „bössuð" upp í að vera kölluð
helsta rokkvon Englands. Viðtöl aUs
staðar og þunnildislegt pönkpoppið
voru nýju fótin keisarans. í sumar
kom út plata númer tvö, „Get in!“, en
nú voru rokkhundamir farnir að
riðlast upp við ný læri og litu ekki
við Kenickie. LítU umfjöUun = lítil
útvarpsspUun = lítil sala og nú hefur
bandið ákveðið að hætta, líklega tU
að fá smáathygli í lokin. „Við vorum
Kenickie, hópur af hálfvitum,“ af-
k y n n t i
Lauren söng-
kona síðustu
tónleikana.
Hún ætlar að
snúa sér að
því að kynna
í sjónvarps-
þættinum
The Alphabet
Show en hin
þrjú ætla lík-
lega að halda
áfram í popp-
inu.
íslenski |. i s t i n»i
NR. 295 vikuna 22.10-29.10. 1998
Sæti Vikur
1 8
LAG
FLYTJANDI15/108/10
IF YOU TOLERATE THIS ......MANIC STREET PREACHERS
2 2 SWEETESTTHING...................................U2
3 6 D00 WOP CTHATTHING)........................LAUREN HILL
4 2 MUSIC SOUNDS BETTER WITH YOU ............STARDUST
5 4 SPECIAL ..................................GARBAGE
6 8 WALKING AFTERYOU......................F00 FIGHTERS
7 4 HÚSMÆÐRAGARÐURINN..............................NÝ DÖNSK
8 3 BODY’S MOVIN ........................BEASTIE BOYS
9 3 D0PESH0W...................................MARILYN MANSON
10 7 WHATSITLIKE..............................EVERLAST
11 3 SACREDTHINGS.................................BANG GANG
12 17 I DONT WANTTO MISS A THING ............AEROSMITH
13 3 RELAX.......................................DEETAJ
14 2 GANGSTER TR0ÐÐ0M .....................FATBOY SLIM
15 4 WATER VERVE..............MARK VAN DALE WITH ENRICO
16 1 THANKU...........................ALANIS MORISSETTE
17 2 M0VEY0URB0DY...................................2 EIVISSA
18 3 STANDBYME................................4THECAUSE
19 6 B00TIE CALL ...........................ALLSAINTS
20 1 MY FAVOURITE GAME...................THE CARDIGANS
21 2 DREYMIS .............................LAND OG SYNIR
22 7 LASTTHING ON MY MIND........................STEPS
23 3 OUTSIDE....................................GEORGE MICHAEL
24 3 INSIDE OUT..................................EVE 6
25 6 BURNING ................................BABYBUMPS
26 1 ATARI .....................................ENSÍMI
SUBSTITUTE FOR LOVE.......................MADONNA
BIG NIGHTOUT...................FUN LOVIN' CRIMINALS
PURE MORNING .............................PLACEBO
30 1 SOMEONE LOVES YOU HONEY ..........LUTRICIA MCNEAL
31 5 TEARDROP (FLAVA MIX)..................LOVESTATION
32 2 ROLLERCOSTER ...........................B'WITCHED
33 4 CELEBRITY SKIN...............................HOLE
34 2 ENOLAGAY .............................OMDFEATSASH
35 7 MILLENNIUM........................ROBBIE WILLIAMS
36 1 I HAD NO RIGHT .........................PM DAWN
37 5 FINALLY FOUND ..............................HONEYZ
38 5 NEEDIN'U ................DAVID MORALES FEATTHE FACE
39 1 FROM RUSH HOUR WITH LOVE ...............REPUBLICA
40 1 MIAMI ..................................WILLSMITH
1 1
27 8
28 2
29 10
35 -
2 2
l!UAI
7 33
3 3
21 21
25 27
19 19
5 4
28 21
11 9
13 37
27 -
6 5
| N Ý T T I
17 -
10 10
14 15
Inytt
33 -
22 23
30 35
38 40
12 7
ÍNYTT
8 6
29 -
23 9
Inýtt
18 16
40 -
16 11
37 -
15 13
mm
24 28
20 17
Inýtt
1 N Ý T T I
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu.
Ðnnig getur fólk hringt f sfma 550 0044 og tekifi þátt í vali
listans. íslenski listlnn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunnl kl. 20.00 og er blrtur á hverjum föstudegi f DV. Ustinn
er Jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
q 16.00. Ustinn er birtur, a8 hluta, f textavarpi MTV sjdnvarps-
jr stöSvarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem
VJtMteWMwn ^arn^eicl^ur er Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann
l:am€cFJfcli / á Evrdpulistann sem blrtur er f tónlistarblaðinu Music &
Media sem er rekifi af bandarfska tónlistarblaðinu BiHboard.
Yfirumijén me5 skofianakönnun: HaHdéra Hauksdóttir - Framkvarmd könnurwr Markaftsdelld DV - TöKuvinnsla: Dádó
Handrtt, helmildaröflun og yfirumsjón meí framlelWu: ívar Guómundsson - Leknistjóm og framleiSsla: Forstelnn Asgeirsson og Káinn Stelnsson
Útsendingastjám: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnlr f dtvarpi: ívar GuSmundsson
f Ó k U S 23. október 1998
Erntt
Erfitl
,,bössinu“
Það hefur varla verið meira
„böss“ í gangi í músíkheiminum
vegna nokkurrar plötu þetta árið
en nýjustu plötu Mercury Rev.
Áður en platan, sem heitir „Des-
erter’s songs“, kom út höfðu orðin
„besta plata ársins" heyrst itrekað
af vörum pælaranna sem allir
höfðu fengið eintak fyrirfram.
Platan hefur svo fengið gegnum-
gangandi góða dóma alls staðar,
Rolling Stone, NME og Biilboard
hafa t.d. ekki haldið vatni af hrifn-
ingu: „Hljómar eins og „Pet
Sounds" ef Neil Young hefði ver-
ið með“, sagði einhver. Aðrir tón-
listarmenn slefa líka, Tom
Rowland úr Chemical Brothers
segir t.d.: „Þetta er langbesta plata
ársins til þessa."
Mercury Rev hefur starfað í ein
tíu ár. Á fyrri plötum hefur fljót-
andi rokkið verið tilraunakennd-
ara og fríkaðra en á „Deserter's
songs“ eru lögin orðin skínandi
tær en þó yfirbyggð með ílóknu
hljóðfærasamspili. í höndum
minni spámanna hefði platan get-
að orðið ofhlaðin en hjá Mercury
Rev passar hver einasti tónn.
Bandið notar m.a. strengjasveitir,
kóra, sagir og gamaldags orgel og
tónlistin er eins og tónlist úr gam-
Aður en nýjasta plata
Mercury Rev var tilbúin
var farið að tala um
hana sem plötu ársins.
Og eftir að hún kom
hefur hún fengið góða
í músíkpressunni eins
og hún leggur sig.
Hvers konar tónlist
er þetta? Eins og úr
gamalli Walt Disney-
mynd, blandað saman
við hipparokk, pönk
og kántrí, segir
Dr. Gunni.
alli Walt Disney-mynd, blandað
saman við hipparokk, pönk og
kántrí. Þetta lítur kannski ekki
vel út á prenti en trúðu mér, þessi
plata er frámunalega góð.
Á skrifstofunni hjá útgáfufyrir-
tækinu situr Jonathan Donahue,
helsti Revarinn, og talar við press-
una. Áttirðu von á þessum frá-
bæru viðtökum? spyr ég í gegnum
síma. „Nei, reyndar ekki,“ segir
Jonathan og hljómar syfjulegur.
„Við vorum að gera eitthvað alger-
lega nýtt svo ég bjóst alveg eins
við að platan yrði flopp. Viðtök-
urnar komu mér eiginlega á óvart
og ég er auðvitað mjög ánægður
með þær.“
Úr hvaða áhrifum smíðuðuð þið
þessa tónlist eiginlega? „Ég myndi
segja að The Band væri helsti
áhrifavaldurinn. Ég ólst upp með
gamalt popp í eyrunum og svo
erum við líka að reyna að láta
áhrif frá klassískri tónlist leka
með. Þetta er mjög einfold klassísk
tónlist hjá okkur.“
Tveir meðlimir úr The Band
spila á plötunni en svo hefur
Mercury Rev einnig unnið með
Chemical Brothers. Hvernig kom
það samstarf upp á? „Ég hitti þá
einfaldlega og við ákváðum að
vinna saman. Við hjálpuðum þeim
á síðustu plötunni þeirra og svo
hef ég verið að semja nokkur lög
með þeim fyrir þeirra næstu plötu.
Þar fyrir utan hef ég lítinn áhuga
á danstónlist."
Minnst hefur verið á að textarn-
ir séu fullir af beiskju og látið líta
út fyrir að Jonathan hafi gengið í
gegnum eitthvað rosalegt. „Æ, þú
veist, það var bara þetta vana-
lega,“ segir hann, afsakandi, „ást,
stelpur - það allt. Ég komst lifandi
út úr því öllu, sem betur fer.“
Hvaó er svo framundan?
„Við erum að leggja upp í tólf
mánaða tónleikaferð um allan
heim. Til að þola slikt verðum við
að vera eins heilbrigð og hægt er,
ekki drekka eða reykja eins mikið
og við vildum."
Framtíðin er þá skínandi björt
fyrir Mercury Rev?
„Naaa, ég myndi ekki segja
skínandi björt. Það hefur verið lát-
ið mikið með okkur svo fólk býst
við miklu. Það verður erfitt og
taugatrekkjandi aö standa undir
því öllu.“ -glh
plötudómur
Þetta er R&B og hip hop: ★★i
Ekki alltaf
Þetta er R&B og hip hop er tvö-
faldur safndiskur.gefmn út af Japis.
Á honum er aðallega að finna R&B
lög ásamt hip hoppi á milli.
Þar sem þetta er safndiskur er
náttúrlega leitast við að velja á
hann lög sem selja en því miður er
það ekki alltaf best sem selst vel.
Eins og áður sagði eru aðallega
R&B lög á diskinum og er svo sem
ekki nema gott um það að segja.
Þama eru mörg ágætislög, t.d. Ev-
eryday & Everynight með Yvette
Michele, I’m not a player með Big
Pun og The night the earth cried
með Gravediggaz en stundum keyrir
allt gjörsamlega um koll í væmninni.
Diskunum er skipt þannig að
seinni diskurinn er aöeins harðari
en sá fýrri, þ.e. það eru fleiri hip
hop-lög á honum, þar er m.a. að
finna How we roll með Canibus,
Luchini með Camp Lo og Guess
who’s back með Rakim.
hettseni
Á diskinum fengu líka að fylgja
með tvö gömul lög sem eru svona
frekar út úr kortinu miðað við
safnið í heild án þess að það sé
nokkuð slæmt. Þar ber sérstaklega
að geta Mama said knock you out
með LL Cool J sem er virkilegt
hardcore hip hop.
Hitt lagið er Nuthin’ but a G
thang með Dr. Dre en það er ögn
rólegra og í meira stíl við diskinn.
Það er skrítið að þó þessi diskur
sé gefinn út af íslendingum er að-
eins að finna á honum tvö íslensk
lög, It’s the Subta með Subterrane-
an og The Force með Quarashi.
Það hefði alveg mátt hafa þau
fleiri.
Þetta er R&B og hip hop er prýð-
isgóður safndiskur sem er vel þess
virði að bregða á ef maður sleppir
remixunum sem dólgurinn Jason
Nevins gerði af Run DMC.
Guðmundur Halldór Guðmundsson
„Þetta er R&B og hip hop
er prýðisgóður safndiskur sem
er vel þess virði að bregða á
efmaður sleppir remixunum
sem dólgurinn Jason Nevins
gerði afRun DMC.“
10