Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
Fréttir
Garðabær og Seltjarnames skattaparadísir sem ekki hækka útsvar á íbúana:
Viljum að fólk njóti
skattalækkananna
- segir Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri Garöabæjar. Borgin samþykkti hækkun i gærkvöld
„Við erum búnir að ákveða að
hafa útsvarsálagninguna í lág-
marki, í 11,24%, við viljum að fólk
hér í bæ njóti skattalækkana ríkis-
ins sem fram undan eru,“ sagði
Ingimundur Sigurpálsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ, í gær. Reykjavík-
urborg hækkar álagninguna um
0,75% eins og kunnugt er, og ekki er
fráleitt að ætla að Seltirningar
hækki sín gjöld. Útsvarsprósentan
yrði því lægst á landinu í Garðabæ
og á Seltjarnarnesi. í þessum
tveimu skattaparadísum á
höfuðborgarsvæðinu greiða
íbúamir 11,24 prósent af launum í
útsvar.
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á átakafundi í gær að hækka
útsvar á borgarbúa í 11,99 prósent
úr því að vera 11,24 prósent. Þá
hækkaði bæjar-
stjórn Vest-
mannaeyja einnig
álögur á sitt fólk í
gærkvöld í 11,94
prósent. Hörð við-
brögð urðu við
áformum borgar-
innar um þessa
hækkun í gær og
sagði Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra þær vera
óskammfeilni og
verið væri að
hirða af Reykvík-
ingum ávinning-
inn af skattalækkunum. Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra sagði aftm- á
móti á Alþingi í gær að hann hefði
skilning á þörf borgarinnar til að
Ingimundur Sig-
urpálsson -
Garðabær held-
ur sínu striki í
útsvarsálagn-
ingu.
Tjón meðferðarheimilis um 100 þúsund krónur:
Stoliö úr bíl Virkisins
„Mér finnst
menn vera að ráð-
ast á garðinn þar
sem hann er lægst-
ur. Við erum að
berjast fyrir til-
veru okkar með
olnbogaböm lands-
ins. Þessi þjóíhað-
ur er mikiö tjón
fyrir meðferðar-
heimilið. Bíllinn er
okkur mjög mikil-
vægur. Mikið af
innra starfinu
byggist á að fara út
með krakkana í
bílnum og kynna þau fyrir því samfé-
lagi sem þau búa í. Við erum öll mjög
sár og reið yfir þessum þjófnaði,“
sagði Guðmundur Týr (Mummi) Þór-
arinsson hjá meðferðarheimilinu
Virkinu þar sem ungir fikniefrianeyt-
endur era í meðferð.
Stórri rúðu úr bíl heimilisins, Ford
Econoline, var stolið um helgina.
Þjófnaðurinn uppgötvaðist á laugar-
dagsmorgun en þá
hafði bíllinn staðið
fyrir utan heimilið
sem er í Duggu-
vogi 12. Mummi
segir að rúða eins
og þessi kosti um
100 þúsund krón-
ur.
„Við þolum illa
svona hnökra. Ég
skora á alla sem
geta veitt einhverj-
ar upplýsingar um
þennan þjófnað að
láta vita. Svona
rúða fer ekki úr
einum bO í annan nema fólk viti af
því. Þetta var greindega einhver sem
kann td verka. Ég vona að þjófurinn
eða þjófamir fái sektarkennd í hvert
skipti sem hann horfir út um rúðuna
ef hann er búinn að setja hana í ein-
hvem bO. Ef einhver á svona
aukarúðu myndum viö þiggja hana
með þökkum," sagði Guömundur Týr
Þórarinsson. -Ótt
Tilfinnanlegt tjón varö hjá aðstand-
endum Virkisins þegar skemmdar-
vargar réðust á bíl þeirra. DV-mynd
hækka. Ýmislegt bendir til þess að
sveitarfélög hafi haft samráö um að
hækka og borgin riðið á vaðið.
Garðabær heftnr safnað skuldum
vegna fiárfestinga en ekki reksturs.
Á næsta ári gerir fiárhagsætlunin
ráð fyrir að bærinn grynnki skuld-
irnar um 100 milljónir. Garðbæing-
ar og Reykvíkingar skulda svipað á
íbúa, um það bO 150 þúsund krónur.
„Það er verið að réttlæta hækkun
á útsvari í Reykjavík með því að út-
svarstekjur í Garðabæ séu miklu
hærri en annars staðar á svæðinu.
Rétt er það, meðaltekjur íbúanna
hér eru háar. En á móti kemur að
önnur sveitarfélög hafa umstals-
verðar tekjur af fasteignaskatti sem
við höfum ekki. Ég tala nú ekki um
þegar arðgreiðslur af orkufyrirtækj-
um era farnar að spOa stóra rallu.
Mér telst tO að Reykjavíkurborg
hafi haft tæpar 150 þúsund í tekjur
á hvem íbúa ef þessi orkuskattur er
tekinn með, en við erum með um
140 þúsund á íbúa. Þama er dulin
skattheimta á ferðinni að mínu
mati,“ sagði Ingimundur Sigurpáls-
son í gær. -JBP/-rt
Frá fundi borgarstjórnar í gær þar sem harkalega var tekist á um útsvars-
hækkunina sem á endanum var samþykkt gegn atkvæðum minnihluta sjálf-
stæðismanna. DV-mynd Pjetur
Bóksölulisti DV:
Þorvaldur í Síld og fisk efstur
- ævisögur og barnabækur vinsælar
Listi
DVl
yfir söluhæstu bækur
1. Þorvaldur Gu&mundsson - Gylfi Gröndal.
2. Áhyggjur Berts - A. Jacobsson og S. Olsson.
3. Steingrímur Hermannsson - Dagur B. Eggertsson.
4. Nóttln llfnar - Þorgrímur Þráinsson.
5. Aldrel aö vlta - Guörún Helgadóttir.
6. Ég heltl Blíöflnnur en þú mátt kalia mlg Bóbó - Þorvaldur Þorsteinsson.
7. Talnapúklnn - Bergljót Arnalds.
8. Elns og stelnn sem hafló fágar - Guöbergur Bergsson.
9. Noróurljós - Einar Kárason.
10. Útkall fram af fjalli - Óttar Sveinsson.
'-■’. ■’ ■ ...
ÍTTOl
Nú er hið árlega jólabókaflóö far-
ið af stað meö tilheyrandi eftirvænt-
ingu höfunda og lesenda um hverjar
metsölubækunar verða í ár.
Bóksölulisti DV birtist nú í fyrsta
skipti fyrir þessi jól og mun hann
birtast alla þriðjudaga fram að jól-
um.
Að þessu sinni tóku Penninn/Ey-
mundsson, Hagkaupsverslanimar í
Skeifunni, Kringlunni, Njarðvík og
á Akureyri, Bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki, Bókval á Akureyri,
Bókabúð Sigurbjöms á Egilsstöðum
og Mál og menning á Laugavegi og í
Síðumúla þátt í gerð bóksölulistans.
Þorvaldur efstur
Ævisögur og alls kyns bamabæk-
ur virðast njóta mikilla vinsælda
fyrir þessi jól. I efsta sæti listans er
ævisaga Þorvaldar Guðmundssonar
í Síld og fiski rituð af Gylfa Grön-
dal.
í öðra sæti er bamabókin Áhyggj-
im Berts eftir Svíana A. Jacobsson
og S. Olsson. Bækumar um Bert
hafa notið óhemju vinsælda hér á
landi og jafn-
an verið með-
al tíu sölu-
hæstu bóka
jólavertíðar-
innar.
Margir
virðast vilja
ffæðast um
ævi og störf
Steingríms
Hermanns-
sonar, fyrr-
verandi for-
sætisráð-
herra. Ævi-
saga Stein-
grims eftir
Dag B. Egg-
ertsson lendir
í þriðja sæti
listans.
Þorgrímur
Þráinsson nýtur alltaf vinsælda sem
barna- og unglingabókahöfundur.
Að þessu sinni sendir hann frá sér
unglingabókina Nóttin lifnar við
sem er sjálfstætt framhald verð-
launasögu hans, Margt býr í myrkr-
inu. Nóttin lifnar viö prýðir fiórða
sæti bóksölulistans.
Barnabækur vinsælar
Eins og áður sagði prýða óvenju-
margar bama- og unglingabækur
bóksölulistann þetta árið eða alls
fimm.
í fimmta sæti listans er einmitt
barnabók eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur sem heitir Aldrei að vita. Þar á
eftir kemur önnur barnabók eftir
höfund Skilaboðaskjóðunnar vin-
sælu, Þorvald Þorsteinsson. Nýja
bókin hans Þorvalds, sem er í sjötta
sæti listans, heitir Ég heiti Blíðfinn-
ur en þú mátt kalla mig Bóbó.
Bergljót Arnalds gat sér gott orð
sem barnabókahöfundur í fyrra
með bók sinni Stafakörlunum. Nú
sendir hún frá sér bók sem nefnist
Talnapúkinn og situr í sjöunda
sæti.
í áttunda sæti er bók Guðbergs
Bergssonar, Eins og steinn sem haf-
ið fágar. Sú bók er framhald verð-
launabókarinnar Faðir og móðir og
dulmagn bemskunnar.
í níunda sæti er síðan hinn vin-
sæli höfundur Einar Kárason með
skáldsögu sína Norðurljós, og í tí-
unda sæti bókin Útkall fram af fialli
eftir Óttar Sveinsson.
-GLM
Stuttar fréttir dv
Eyðnibóluefni?
Margrét
Guðnadóttir pró-
fessor hefur upp-
götvað bóluefni
sem virðist duga
gegn hæggeng-
um veirasýking-
um í sauðfé.
Vonir standa því
til að bóluefnis gegn eyðni sé
skammt að bíða. RÚV sagði frá.
Siðareglur í erfðafræði
í vikunni verður haldin ráð-
steöia á vegum UNESCO um sið-
ferði í lífeðlis- og erfðafræði. Vigdís
Ifinnbogadóttir, fyrrverandi forseti
íslands, mun halda erindi á ráð-
stefiiunni. Liklegt þykir að málefni
íslenskrar erfðagreiningar beri á
góma á ráðstefnunni.
Eigið fé lækkað
Borgarstjóm Reykjavíkur sam-
þykkti í gærkvöld að lækka eigið fé
veitustofnana borgarinnar niður
undir 70% eiginfiárhlútfall. Það
sem tekið verður úr stofnunum
skiptir milljörðum og verður fært í
borgarsjóð.
Einkaleyfi á lífssýnum
Bandariskt erfðarannsóknarfyr-
irtæki hefúr fengið einkaleyfi vest-
anhafs til rannsókna á lífssýnum úr
íslenskum konum sem Krabba-
meinsfélag íslands hefúr safnað um
árabil. Stöð 2 sagði frá.
Litlir eftirskjálftar
Ragnar Stefánsson jarðeðlisffæð-
ingur sagði í samtali viö Bylgjuna
að eftirskjálftar eftir skjálftaim í
gærmorgun við Kleifarvatn hefðu
verið óverulegir. Von kunni þó að
vera á fleiri skjálftum.
Hækkun samþykkt
Borgarstjóm
Reykjavíkur sam-
þykkti í gærkvöld
að hækka útsvar
Reykvíkinga úr
11,24% í 11,99%.
Tekjur borgarinn-
ar aukast við
þetta um tæplega
milljarð króna á næsta ári. For-
mannafundur ASÍ hefur mótmælt
harðlega útsvarshækkuninni og skor-
að á borgarstjóm að hætta við.
Bensín ódýrara
Bensínlítrinn lækkaði um 1,70
kr. í morgun. Lækkunin er um 20
aurum meiri en DV spáði í síðustu
viku. Hjá Esso og Skeljungi kostar
lítri af 95 oktana bensíni nú 72,60
kr. og 77,30 kr. af 98 oktana bensini.
Dugar ekki fyrir launum
Fyrstu skiptafundir vora haldnir
í gær i þrotabúum Apple-umboðsins,
Radíóbúðarinnar og Bónus-radíó.
Fyrirtækin voru lýst gjaldþrota 17.
ágúst i sumar. Heildarkröfúr nema
um 400 milljónum króna. Skipta-
stjóri á ekki von á að eignir dugi fyr-
ir forgangskröfum sem era aðallega
launakröfúr. RÚV sagði frá.
Dýrari leikskólar
Bæjarráð Kópavogs hefur sam-
þykkt hækkun á leikskólagjöldum.
Átta tíma vistun hækkai- úr 19.000
krónum í 19.300 krónur. Forgangs-
gjaldskrá hækkar ennfremur um
20% að jafnaði. Nýja gjaldskráin tek-
ur gildi um áramót. RÚV sagði ffá.
Finnur fyrir
80 af hverjum
hundrað þátttak-
endum í atkvæða-
greiðslu á Vísi
töldu að kosning
Finns Ingólfsson-
ar í embætti vara-
formanns Fi’am-
sóknarflokksins
væri flokknum ekki til framdráttar.
Þátttakendur í atkvæðagreiðslunni
voru um 1300. Einungis eitt atkvæði
er talið ffá hverri tölvu í atkvæða-
greiðslu á Vísi.
Huröarás um öxl
Nýir greiðsluhættir í bílavið-
skiptum hafa orðið til þess að fiöl-
margir hafa lent í vandræðum
vegna bílakaupa. 25.000 fólksbílar
hafa verið fluttir til landsins á
þessu ári og i fyrra. Fjöldi fólks hef-
ur leitaö til FÍB og Ráðgjafarstöðv-
ar heimilanna vegna bílakaupa-
vandræða. RÚV greindi frá. -SÁ