Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 22
26 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 Hringiðan A föstudaginn opnaði Gólfefna- búðin upp á gátt f Borgartúni 33. Sigurður Kr. Jónsson og Sig- urður Eiríksson byggingameistar- ar sáu nýju búð- ina opna. VT*Í Gestur Þorgrímsson, Sigrún Guðjónsdóttir (Gestur & Rúna) og Guðný Magnúsdóttir opnuðu fjölbreytta og skemmtilega listasýningu á vinnustofunni Aust- urgötu 17 í Hafnarfirði á laugardaginn. I Kristín Guðmundsdóttir, Elísa ■ Ýr Sverrisdóttir og Sirrý Ár- W sælsdóttir voru á Broadway á W laugardagskvöldið. Þar hlýddu f þær á hljómsveitina Sóldögg sem lék fyrir dansi að iokinni Abbasýningu og jólahlaðborði. Læknavaktin vfgði nýtt og glæsilegt húsnæði í Smáranum f Kópavogi á laugardaginn. Starfsemin hefst svo af fullum krafti í Smáranum í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Guðmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri, Ragnheiður Haraldsdóttir og Valdimar K. Jónsson skoðuðu nýja húsnæðið við vígsluna. Heilbrigðisráðherra, Ingi- björg Pálmadóttir, klippti á borðann við vígslu nýs húsnæðis Læknavaktar- innar. Aðsetur vaktarinnar færist því af Barónsstíg alla leið i Smárann í Kópa- vogi. Það var ekkert lát á stuðinu á Broadway á laugardags- kvöldið. Hljómsveitin Sóldögg hélt uppi stuðinu og hit- aði upp fyrir áramótafagnaðinn sem verður á sama stað. Silla dansaði við sviðið eins og fleiri þetta kvöld. Hebert Guðmundsson sendi frá sér á dögunum breiðskífuna Faith sem inniheldur 20 lög, þar af 5 ný. Poppgoðið hélt svo út- gáfuteiti á Nelly’s í Bankastræti á föstudagskvöldið þar sem hann tók að sjálfsögðu lagið fyrir við- stadda. DV-myndir Teitur/Hari Sigríður Mar- grét Guð- mundsdóttir, Kjartan Ragn- arsson og Edda Þórarinsdóttir voru á frumsýn- ingu leikritsins Abel Snorko býr einn á Litla sviðinu. I Leikritið Abel Snorko býr einn eftir heim- ' spekinginn Eric Emmanuel-Schmitt í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur var frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins á föstudagskvöldið. Ólafur Egilsson og Esther Talfa voru á frumsýningunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.