Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 I>',V Ummæli imerkur- ganga Fram- sóknar „Nú er það staðfest að um- , hyggja Framsóknar , fyrir Fjalla-Eyvindi og HöÚu kemur frá , hjartanu. Varðinn i sem Frammarar , reistu útlögunum tveim i búri á Hveravöllum í sumar er sjálfs- mynd Framsóknar- flokksins í næstu kosningum og heitir Eyöimerkurgangan i kjörklefanum." Ásgeir Hannes Eiríksson, í DV. Tenórinn baulaði „Tenórinn Francesconi var í efnisskránni sagður heims- frægur, en þrátt fyrir frægöina heppnaðist drykkjusöngurinn ekki nógu vel, tenórinn var falskur, röddin rám og gróf, og útkoman eins og hvert annað baul.“ Jónas Sen, í tónlistargagn- rýni í DV. R-listinn eyðir skattalækkunum „Skattalækkunin sem ríkið er að framkvæma á að koma til framkvæmda 1. , janúar. Hana ætl- ar R-listinn að hirða að fullu upp í eyðslu hjá sér.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra, í DV. R-listinn hefur gefist upp „Það er greinilegt að R-list- inn hefúr gefist upp á fjármála- stjóminni í Reykjavík.“ Inga Jóna Þórðardóttir borg- arfulltrúi, í DV. Vélstjóri á stóru fleyi „í þessu starfi upplifi ég mig éins og vélstjóra á . stóra fleyi sem er sífellt á þönum á bak við tjöldin með skiptilykil- inn til að reyna að herða hér og þar og jafnvel að hringja eftir varahlutum." Sigurður Valgeirsson, dag- skrárstjóri á Sjónvarpinu, í Degi. Asninn sem ég dró „Illu heilli gerðist það þegar Sverrir hrökklaðist úr bankan- um að ég dró þennan asna inn í herbúðimar." Bárður G. Halldórsson, form. Frjálslynda lýðræðisflokks- ins, í DV. & j á l Gunnar Öm Gunnarsson, verðandi framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar: Fer úr góðu starfi en það er nauðsynlegt að breyta til DV, Akureyri: nokkum tíma að taka þessa ákvörð- un en ég læt slag standa," segir Gunnar Öm Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri framleiðslu- deildar Marels hf., sem hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Kísiliðjunnar í Mý- vatnssveit og tekur við því starfi um áramót. Gunnar er Reykvíkingur en á þó ættir að rekja í Þingeyj- arsýslur þar sem starfsvettvangur hans verður inn- an skamms. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um við Sund árið 1978, stund- aði síðan nám í vélaverkfræði við Háskóla ís- lands og lauk þaðan prófi 1982. Eftir framhalds- nám í Dan- mörku starfaði hann um árabil hjá íslenska álfé- laginu í Straums- vik, síðast sem deild- arstjóri í steypuskála. Þá starfaði hann hjá íslenska saltfé- laginu en síðan árið 1994 hefur hann starfað hjá Marel. „Ég fer úr góðu starfi en það er nauðsynlegt að breyta til annað slagið. Ég hlakka til að takast á við nýtt verkefni, það er óvissa varðandi ýmsa þætti hjá Kísil- iðjunni en einnig ýmis tækifæri sem gaman verður að glíma við.“ Gunnar segir að undanfarin ár hafi ekki gefist mikil tími fyrir tómstundir. „Áhugamálin gætu vissulega verið fleiri en ég er með stóra íjölskyldu, fjögur böm sem ég reyni að sinna eins og hægt er ásamt eiginkonunni. Ég hef stund- að kórsöng í mörg ár og söng í Mótettukór Hallgrímskirkju þang- að til það var ekki hægt lengur vegna tímaskorts, en eftir nokkurt hlé frá söngnum er ég farinn að syngja með Söngsveitinni Fílharm- oníu. Þar fyrir utan hef ég gaman af að ferðast. Ég er hrifnæmur og er viss um að ég á eftir að kunna því vel að upplifa fegurðina við Mývatn. Útivera heillar mig og ég hef gam- an af stangveiði. Menn hafa einmitt sagt við mig að það verði stutt fyr- ir mig að fara í góða veiðiá þar sem Laxá er.“ Eiginkona Gunnars er Olga Bergljót Þorleifsdóttir, sem er kennari að mennt, og þau eiga fjög- ur börn á aldrinum 2 til 14 ára. -gk Gunnar Örn Gunnarsson. Maður dagsins „Það er vissulega ekki auðvelt að yfirgefa fyrirtæki eins og Marel. Ég lít hins veg- ar þannig á að ég sé ungur enn og held að ég hafi getu til að takast á við það að vera einn í brúnni og stjóma ferðinni í fyr- irtæki eins og þessu. Það tók mig Fatnaður frá Dýrinu verður sýndur f Kaffileikhúsinu í kvöld. Tíska, trúðar, upp- lestur og söngur í kvöld fagna verslunin Dýrið og Kaffileikhúsið fúll- veldisdeginum með ein- stakri sýningu á fatnaði frá Dýrinu. Sýndur verður fatnaður frá Humanoid, Paulinha Rio, Margaret Mannings, Japonica og Antoine e Lili. Svavar Öm sér um hár og förð- un. Einnig verður boðið upp á skemmtiatriði og munu trúðamir Barbara og Úlfar gefa gestum Kaffileikhússins splatter- sýnishom, Gerður Kristný les upp úr nýút- kominni bók sinni Eitruð epli og Magga Stina og Steinunn Ólina syngja við undirleik Sýmpolkasveitar- Skemmtanir innar Hringa. Kynnir kvöldsins er Eva María Jónsdóttir. Húsið opnar kl. 20.30, aðgangur er ókeypis og em allir velkomnir. Hjalti Rögn- valdsson er einn margra leikara sem les úr Ofjarl- inum í Borgar- leikhús- inu annað kvöld. Ofjarlinn Annað kvöld heldur áfram leik- lestrarsyrpa Leikfélags Reykjavík- ur og verður þá lesið úr leikritinu Ofjarlinn (Le Cid) eftir Frakkana Pierre Comeille í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Þetta er annar lestur af fjóram á klassískum leik- ritum sem Helgi Hálfdanarson hefur þýtt og ekki hafa komið fyr- ir sjónir íslendinga áður. Eftir áramót verða leiklesin Kóríólanus eftir William Shakespeare og Hyppólítos eftir Evrípídes. Pierre Comeille (1606-1684) er eitt höfuðskáld Frakka ásamt Jean Racine og Jean Baptiste Moliére. Hann lagði granninn að sígildri leikritun Frakka. Þótt hann hafi einkum samið harm- Leikhús leiki þá skrifaði hann einnig gam- amleiki. Comeille varð afar vin- sæll leikritahöfundur í lifanda lífi. Ofjarlinn er langþekktast af öllum hans þrjátíu og þremur harmleikjum. Þeir sem lesa upp úr Ofjarlin- um annað kvöld era Bjöm Ingi Hilmarsson, Halldór Gylfason, Halldóra GeirhcU’ðsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Jón Hjartarson, Margrét Ólafsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Valgeröur Dan, Þór- hallur Gunnarsson og Þorsteinn Gunnarsson. Brídge Óhætt er að segja að spil dagsins sé hreinræktuð perla. Það kom fyr- ir í sveitakeppnisleik i Danmörku. Sagnhafi var H.K. Sörensen en hann náði í þessu spili bæði svokallaðri „intrasvíningu" og endaspilun. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og AV á hættu: * DG8 * ÁK103 •f Á96 * G105 4 K106 * 94 f KD7 * ÁD963 * 952 •f D82 f G8432 * 74 Austur Suður Steen H.K.S. pass pass pass 2 ♦ Vestur Norður Godtfr. Pabst 1 grand dobl p/h Grandopnun Godtfredsen í vestur lofaði 12-14 punktum og dobl norð- urs var tillaga um refsingu. H.K. Sörensen var lítið hrifinn af því að freista gæfunnar í þessum samningi og fékk að eiga 2 tígla. Út- spil vesturs var laufás, siðan kom lauf á kónginn og lauf sem Sörensen trompaði heima. Sagnhafi spilaði næst hjarta á kóng og tígli á átt- una. Vestur drap á drottningu og spilaði hjarta. Sörensen hleypti hjartanu heima á drottningu og lagði af stað með tígulgosa. Vestur lagði kónginn á og ásinn i blindum felldi tíu austurs. Sörensen tók síð- asta trompið með níunni en var nú klemmdur inni í blindum. Hann ákvað að spila sig út á spaðadrottn- ingu. Vestur fékk slaginn á kóng- inn, vildi ógjama gefa sagnhafa fría svíningu í spaða og spilaði þess vega laufi. Blindur henti spaða, austur sömuleiðis en sagnhafi trompaði heima. Hann spilaði nú einfaldlega spaða, austur fékk á ás- inn en varð að spila frá G7 í hjarta upp í K10 í blindum. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.