Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Qupperneq 30
< 34 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 Afmæli Þorsteinn Gíslason Þorsteinn Gíslason, skipstjóri og fyrrv. fiskimálastjóri, Sunnuvegi 9, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Þorsteinn fæddist í Kothúsum í Garði og ólst upp á Krókvelli í Garði. Hann tók kennarapróf frá KÍ 1952, próf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1953, stundaði fram- haldsnám í stjómun og tæknigrein- um sjávarútvegs í Danmörku og Noregi 1975-76 og í Bandaríkjunum 1978 og hefur sótt fjölda námskeiða i stjómun og á tæknisviði, hér á landi og erlendis. Þorsteinn var kennari í Gerða- skóla í Garði 1953-54 og skólastjóri þar 1954-1960. Hann var stýrimaður og skipstjóri á summm frá 1953-80 og landsþekkt aflakló. Þorsteinn var kennari í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1960-82, varafiskimála- stjóri 1969-83 og fiskimálastjóri 1983-93. Hann var vþm. Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík 1967-71, sat í stjóm Fiskifélags íslands 1969-82, í stjórn Síldarverksmiðju ríkisins frá 1971 og stjómarformaður þar 1977-95, í stjórn BÚR 1976-82, í stjórn Aflatryggingasjóðs og stjórn- arformaður hans 1983-86, í stjóm Bjargráðasjóðs 1983-93, í stjórn Haf- rannsóknastofnunar 1983-93 og hef- ur setið í fjölda stjórnskipaðra nefnda er fjalla um fræðslumál og önnur mál- efni sjávarútvegsins. Þorsteinn hefur skrifað fjölda greina í innlend og erlend tímarit um sjávar- útveg og sjávarútvegs- fræðslu. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist 1.1. 1954 Vilborgu Vilmundar- dóttur, f. 31.7. 1931, handavinnukennara. For- eldrar hennar: Vilmundur Gíslason, bóndi í Króki í Garðabæ, og k.h., Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir. Böm Þorsteins og Vilborgar era Vilmundur Þorsteinsson, f. 8.10. 1954, stýrimaður og byggingameist- ari, kvæntur Bjameyju Sigurleifs- dóttur og eiga þau fjögur börn; Gísli Þorsteinsson, f. 16.5.1957, lektor við KHÍ, búsettur í Kópavogi, kvæntur Guðnýju Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn; Hrefna Björg Þor- steinsdóttir, f. 18.2. 1967, arkitekt í Reykjavík en maður hennar er Guð- mundur Löve; Þorbjörg Stefanía Þorsteinsdóttir, f. 22.11. 1969, kenn- ari við KHÍ, en maður hennar er Aðalbjörn Þórólfsson og eiga þau eitt barn. Bræður Þorsteins era Eggert, f. 12.5. 1927, skipstjóri og aflakóngur, búsettur í Reykjavík; Árni, f. 25.2. 1942, fórst í flugslysi í Mexíkó 1997, skipstjóri í Reykjavík, lengi starfsmaður Sam- einuðu þjóðanna við kennslu í fiskveiðum og starfrækti eigið fyrir- tæki, Isco og Ismar, ásamt öðram. Foreldrar Þorsteins era Gísli Árni Eggertsson, skipstjóri í Kothúsum í Garði, og k.h., Hrefna Þorsteinsdóttir. Ætt Föðursystkini Þorsteins voru Þorsteinn, faðir Eggerts, fyrrv. ráð- herra, og Guðmunda, amma Gunn- ars Arnar Gunnarssonar listmálara. Gísli Ámi var sonur Eggerts, b. í Kothúsum í Garði, Gislasonar, b. í Steinskoti á Eyrarbakka, Gíslason- ar, b. í Bjóluhjáleigu í Holtum, Gíslasonar, bróður Margrétar, langömmu Þorgríms, föður Sveins, staðarverkfræðings Blönduvirkjun- ar. Móðir Eggerts var Gróa Egg- ertsdóttir, b. í Haga í Holtum, Egg- ertssonar og konu hans, Þorbjargar Brandsdóttur, skipasmiðs og skálds í Kirkjuvogi í Höfnum, Guðmunds- sonar, b. í Kirkjuvogi, Brandssonar, b. í Rimhúsum undir Eyjafjöllum, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, ættföður Víkingslækjar- ættarinnar. Móðir Þorbjargar var Gróa Hafliðadóttir, b. í Kirkjuvogi, Árnasonar, b. í Hábæ, Þórðarsonar, bróður Hafliða, afa Þorleifs ríka á Háeyri, langafa Jóns Sveinbjörns- sonar prófessors. Hafliði var einnig langafí Einars, langafa Ingvars Vil- hjálmssonar útgerðarmanns. Móðir Gísla Árna var Guðríður Ámadótt- ir, b. í Lunansholti á Landi, Jóns- sonar og konu hans, Helgu Gísla- dóttur, b. í Flagveltu, bróður Guð- mundar á Keldum, langafa Jóns Helgasonar, prófessors og skálds. Gísli var sonur Brynjólfs, b. í Vest- ur-Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Ár- bæ, Bjamasonar, bróður Brands í Rimhúsum. Hrefna er dóttir Þorsteins, sjó- manns í Lambhúsum í Garði, Ivars- sonar, b. í Lambhúsum, Þorsteins- sonar. Móðir Þorsteins var Ólöf, systir Sigríðar, ömmu Jóhannesar Zoega, fyrrv. hitaveitustjóra. Ólöf var dóttir Davíðs, b. í Miðsandi á Hvalfjarðarströnd, Björnssonar, bróður Björns á Breiðabólstað, lang- afa Sigurðar Jóhannssonar vega- málastjóra og Signýjar Sen, fulltrúa lögreglustjóra. Þau hjónin eru stödd á Kanaríeyjum. Þorsteinn Gíslason. Jón Norðfjörð Vilhjálmsson Jón Norðfjörð Vilhjálmsson, raf- veituvirkjameistari og rafvirkja- meistari, Lækjartúni 1, Mosfellsbæ, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var í Miðbæjarskól- anum, Austurbæjarskólanum, stundaði nám við Kvöldskóla KFUM, stundaði nám við Iðnskól- ann í Reykjavík, lærði rafveitu- virkjun hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur og lauk prófi í þeirri grein 1949, stundaði framhaldsnám í straumvinnu, vinnu á háspennu- lögnum undir spennu, í Bandaríkj- unum 1954-55 og stundaði síðan framhaldsnám í stórlínubyggingmn 1958, lauk sveinsprófi í rafvirkjun 1975, öölaðist meistararéttindi í þeirri grein sama ár og öðlaðist meistararéttindi í rafveituvirkjun 1992. Jón var línumaður hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur' og vann jafn- framt við jarðtengingar til 1965, starfaði sjálfstætt við uppsetningar á sjónvarpsloftnetum 1965-68, hóf störf hjá Landsvirkjun 1969 og hefur starfað þar síðan. Jón var þar fyrst eftirlitsmaður við línubyggingu á Búrfellslínu I, síðar við Búrfellslínu II, 1973, við Sigöldulínu og Hraun- eyjarfosslínu en hefur starfað sem rafvirki við spennistöðvar frá 1983. Jón hefur alla tið verið mikill áhugamaður um líkamsrækt og íþróttir. Hann hóf að æfa hnefaleika hjá ÍR 1946 en æfði síðan og keppti í hnefaleikum með KR frá 1948. Þá æfði hann jafnframt hnefaleika með Ármenningum um skeið. Jón varð þrisvar sinnum íslandsmeistari í hnefaleikum. Jón er félagi i Kiwanisklúbbnum Esju, hefur setið í stjórn hans og var þar gjaldkeri um skeið. Fjölskylda Jón kvæntist 1956 Svövu Gunnarsdóttur, f. 11.6. 1934, húsmóður. Hún er dóttir Gunnars Eyjólfssonar, f. 24.4. 1894, d. 10.10. 1969, bónda í Þykkvabæ, og k.h., Guð- rúnar Jónsdóttur, f. 5.2. 1898, d. 23.12. 1960, hús- freyju. Börn Jóns og Svövu era Ásthildur, f. 7.9. 1954, starfsmaður við meðferð- arheimili í Ósló en maður hennar er Ásgeir Guðmundsson bifreiðastjóri og eiga þau tvö börn; Helena Dag- björt, f. 9.9. 1956, húsmóðir í Kaup- mannahöfn en maður hennar er Jónas Ingi Ottósson, starfsmaður við Kastrap-flugvöll, og á hún fjögur böm; íris, f. 16.7. 1958, starfrækir megranarstöð í Reykjavík og á hún tvær dætur; Reynir, f. 13.5. 1960, línumaður við Búrfellslínu III; Guðrún, f. 5.2. 1962, starfar að ferðamálum í Flórída og á hún einn son;Gunnar, f. 27.12. 1963, starfsmaður við Reykjalund; Þorleif- ur, f. 3.10.1965, starfrækir pizzufyrirtækið Eldsmiðj- una. Jón er sonur Vilhjálms Björgvins Guðmundsson- ar, (Vilhjálms frá Ská- holti), f. 29.12. 1907, d. 4.8. 1963, skálds og verslunarmanns í Reykjavik, og Guðmundu Dagbjart- ar Guðmundsdóttur, f. 20.2. 1908, húsmóður í Garðabæ. Jón og Svava eru í útlöndum um þessar mundir. Jón Norðfjörð Vilhjálmsson. Reynir Sigurður Gústafsson Reynir Sigurður Gúst- afsson rafvirkjameistari, Grandargötu 49, Grund- arfirði, er sextugur í dag. Starfsferill Reynir fæddist að Laugavegi 65 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann gekk í Laugamesskóla, Lindargötuskóla og síðan í Iðnskólann i Reykjavík þar sem hann lauk prófi í rafvirkjun 1958. Reynir flutti til Grund- arfjarðar 1965. Þar vann hann við rafvirkjun og línulagnir hjá Raf- magnsveitu ríkisins og stundaði sjó- mennsku. Reynir starfrækti Rafmagnsverk- stæði Grundarfjarðar á árunum 1970-89 er hann stofnaði Rafmagns- og bif- reiðaverkstæðið Rafhesti í Grundarfirði. Reynir var lengi i stjórn rafverktaka á Vestur- landi. Hann starfaði mik- ið að slysavamamálum, var einn af stofhendtnn Björgunarsveitarinnar Klakks í Grandarfirði og gegndi þar formennsku í átján ár. Einnig var hann lengi umdæmis- og svæð- isstjóri björgunarsveita á Vestur- landi. Fjölskylda Reynir kvæntist 9.6. 1962 Elísabet Árnadóttur, f. 20.2. 1943, verslunar- manni. Hún er dóttir Áma Jóhanns- sonar, verkamanns í Reykjavík, sem er látinn, og Ingibjargar Álfs- dóttur húsmóður. Böm Reynis og Elísabetar eru Árni Ólafur, f. 19.7. 1962, rafvirki í Reykjavík, en sambýliskona hans er Sólveig Aðalbjömsdóttir húsmóðir og era synir þeirra Engilbert Norð- fjörð og Vilhelm Norðijörð en sonur Áma frá því áður er Smári; Helga Ingibjörg, f. 7.10. 1963, fóstra í Grundarfirði en sambýlismaður hennar er Bent Ch. Russel stýri- maður; Anna María f. 28.5. 1965, gjaldkeri í Grundarfirði, en maður hennar er Ágúst Jónsson sjómaður og eru börn þeirra Álfheiður, Lauf- ey Lilja og Sigurður Helgi; Reynir Freyr, f. 16.8. 1979, nemi. Einnig á Reynir soninn Grétar Þór, f. 18.2. 1963, bóndi í Höll í Þver- árhlíð, en sambýliskona hans er Svandís Hallbjörnsdóttir húsmóðir og era börn þeirra Arnar, Ingunn og Svanur. Systur Reynis eru Svala Sigurðs- son, f. 25.12. 1939, búsett i Svíþjóð; Helga f. 8.5. 1959, sölumaður, búsett I Reykjavík. Foreldrar Reynis vora Gústaf A. Valdimarsson, f. 17.2. 1912, d. 7.11. 1989, rakarameistari í Reykjavík, og Helga Sigrún Zoéga, f. 19.9. 1917, f. 6.1.1989, húsmóðir í Reykjavík. Reynir verður að heiman á af- mælisdaginn. Reynir Sigurður Gústafsson. Tíl haxningju með afmælið 1. desember 80 ára Sigþrúður Friðriksdóttir, Árlandi 3, Reykjavík. 75 ára Friðdóra H Jóhannesdóttir, 'ÍTl Brekkugötu 20, Hafnarfirði. ^ A í tilefni afmælisins r Æ tekur hún á móti ættingjum og vinum í sal Haukahússins í Hafnarfirði þann 5.12. kl. 16. Jóhann F. Guðmundsson, Sléttuvegi 11, Reykjavík. Eiginkona hans er Lára Vigfúsdóttir. Þau eru að heiman. Leifur Eiríksson, Akurgerði 1, Reykjavík. 70 ára Kristín Nikulásdóttir, Bólstaðarhlíð 60, Reykjavík. Rólant Christiansen, Fljótaseli 26, Reykjavik. Gunnar J. Bjömsson, Lindarflöt 30, Garðabæ. Lárus Konráðsson, Brúsastöðum, Áshreppi. Sigrún María Bjarnadóttir, Bleiksárhlíð 14, Eskifirði. 60 ára Jón Kjartansson, Garðsenda 5, Reykjavík. Árni Hróbjartsson, Bjamastaðavör 8, Bessastaðahreppi. HaUdór Helgason, Túngötu 18, ísafirði. Guðrún Elísabet Friðriksdóttir, Grundargötu 6, Siglufirði. Ólafur Þór Haraldsson, Hlíðarvegi 33, Siglufirði. Guðrún Jónsdóttir, Hlíðarvegi 75, Ólafsfirði. 50 ára Björg Edda Friðþjófsdóttir, Austurkoti, Vogum. Kristinn Bjömsson, Skarðshlíð 24f, Akureyri. Helgi Benediktsson, Austvaðsholti 1 C, Holta- og Landsveit. 40 ára Hákon Már Oddsson, Frakkastíg 22, Reykjavík. Alda Þorsteinsdóttir, Leifsgötu 10, Reykjavík. Bára Þorsteinsdóttir, Leifsgötu 10, Reykjavík. Hallsteinn S. Gestsson, Barmahlíð 35, Reykjavík. Júlíus Þ. Steinarsson, Meistaravöllum 9, Reykjavik. Svanhvít Ásmundsdóttir, Reykási 29, Reykjavík. Ingibjörg Ólafsdóttir, Holtagerði 68, Kópavogi. Páll Heimir Ingólfsson, Eyjum 1, Mosfellsbæ. Eva Sigurðardóttir, Eskihlíð 9, Sauðárkróki. Ambjörn Arason, Hlíðarvegi 48, Ólafsfirði. Margrét Sigtryggsdóttir, Háteigi, Vopnafirði. Ásrún Traustadóttir, Heimahaga 4, Selfossi. Kristín Sigurðardóttir, Kirkjuholti, Selfossi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.