Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 8
Utlönd
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
Stuttar fréttir
Québec:
Aðskilnaðar-
sinnar unnu
kosningarnar
Flokkur aðskilnaðarsinna hélt
völdum í fylkiskosningunum í
Québec í Kanada í gær. Úrslitin
eru talin auka líkurnar á að aftur
verði boðað til þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði héraðsins
þar sem íbúamir eru frönsku-
mælandi.
„Við fórum fram á umboð til að
skapa aðstæður fyrir þjóðarat-
kvæði um fullveldi Québecs,"
sagði hinn 59 ára gamli Lucien
Bouchard sem var endurkjörinn
forsætisráðherra fylkisins til
næstu fimm ára.
Sigur flokks aðskilnaðarsinna
var naumari en búist var viö.
Hann var engu að síður mikil nið-
urlæging fyrir Jean Charest, leið-
toga Frjálslynda flokksins, sem
fyrir aðeins einum mánuði var
hylltur sem hinn nýi bjargvættur
Kanada og besta von þeirra sem
vilja stööva aðskilnaðartilburðina.
Flokkur aðskilnaðarsinna fékk
rúm 44 prósent atkvæða en frjáls-
lyndir tæp 43 prósent.
Dauðafanginn
er enn ófundinn
Meira en fimm hundruð lög-
regluþjónar leita enn dæmds
morðingja sem slapp úr dauða-
deild rammgirts fangelsis í Texas
um helgina. Laganna verðir nota
þyrlur, hitaskynjara og hunda við
leitina.
Þótt ekkert hafi enn spurst tU
moröingjans telur lögreglan að
hann sé enn í felum í þéttum
skóginum nærri fangelsinu. Þetta
er i fyrsta sinn síðan 1934 aö
fanga tekst aö flýja af dauöadeild-
inni í Texas.
EFTA semur við
Palestínumenn
Fríverslunarsamtök Evrópu
(EFTA) undirrituðu viðskipta-
samning við heimastjórn Palest-
ínumanna í gær. Samningurinn
nær til viöskipta með iðnvaming,
fiskafurðir og unnar landbúnað-
arvörur.
Chilestjórn vill ekki að Spánverjar rétti yfir Pinochet:
Andrúmsloftið
fjandsamlegt
José Miguel Insulza, utanríkis-
ráðherra Chile, hvatti spænska
embættismenn í gær til að koma I
veg fyrir framsal Augustos Pin-
ochets, fyrrum einræðisherra Chile.
Insulza sagði að Pinochet fengi ekki
réttláta dómsmeðferð á Spáni.
Skömmu eftir komuna til Madríd-
ar í gær sagði Insulza við frétta-
menn að ekki ætti að senda hinn 83
ára gamla fyrrum einræðisherra til
Spánar þar sem hann er eftirlýstur
fyrir þjóðarmorð, pyntingar og
hryðjuverk.
„Pólitískt andrúmsloft á Spáni er
ekki hliðhollt Pinochet og það hefur
áhrif á dómskerfið, jafnvel þótt
dómaramir vilji vera óhlutdrægir,"
sagði Insulza eftir fyrsta fund sinn
með spænskum þingmönnum.
Insulza sagði að rétta ætti yfir
Pinochet heima og hann hvatti þjóð-
ir heims til að bera virðingu fyrir
réttarfarinu í Chile. Við það tæki-
José Miguel Insulza, utanríkisráö-
herra Chile, er nú á Spáni aö ræöa
um örlög Augustos Pinochets, fyrr-
um einræöisherra.
færi benti hann á að lýðræðislega
kjörin stjórn hefði farið þar með
völd undanfarin átta ár.
Pinochet var handtekinn í
London 16. október að beiðni
spænsks dómara sem vill fá hann
framseldan til Spánar. Æðsti dóm-
stóll Bretlands úrskurðaði svo í síð-
ustu viku að Pinochet nyti ekki
friðhelgi og opnaði þar með fyrir
möguleikana á að framsalsbeiðni
yrði tekin fyrir í breska dómskerf-
inu.
Pinochet hefur nú verið gert að
yfirgefa sjúkrahúsið í Lundúnum
þar sem hann hefur beðið örlaga
sinna. Forráðamenn sjúkrahússins
segja að hann þurfi ekki lengur á
aðhlynningu þeirra að halda. Von-
ast er til að Pinochet finni annan
ívemstað hið allra fyrsta.
Bandarlsk stjórnvöld blönduðu
sér í fyrsta sinn í gær í deiluna um
hvað eigi að gera við Pinochet. Þau
sögðu að bera ætti virðingu fyrir
andstöðu stjórnar Chile við því að
réttað verði yfir honum á Spáni.
Maöurinn meö þetta myndarlega skegg heitir Ellahi Bakhsh Baluch og er frá Pakistan. Hann tók þátt í fjöldasam-
komu í Islamabad í gær þar sem Pakistanar voru aö hylla þjóöfána sinn. Annars hefur maöur þessi öölast mikla
frægö út á skeggiö og hefur hann tekiö þátt í margvíslegum uppákomum. Hann hefur meðal annars dregiö flugvél,
vöruflutningabíl og fleiri farartæki á hátíðum í borginni.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Selvogsgata 14, 0101, Hafnarfirði, þingl.
eig. Brynja Olgeirsdóttir, gerðarbeiðandi
Húsnæðisstofnun ríkisins, föstudaginn 4.
desember 1998, kl. 10.30.
Sléttahraun 24, 0101, Hafnarfirði, þingl.
eig. Guðmundur Georg Guðmundsson,
gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarbær og
Húsnæðisstofnun ríkisins, föstudaginn 4.
desember 1998, kl. 11.00.
Smárabarð 2, 2104, Hafnarfirði, þingl.
eig. Jóhann Einarsson og Esther Judit
Steinsson, gerðarbeiðendur Húsnæðis-
stofnun ríkisins og sýslumaðurinn í
Kópavogi, föstudaginn 4. desember
1998, kl. 11.30._______________
Stapahraun 3, 2102, Hafnarfirði, þingl.
eig. Hörður Þór Harðarson, gerðarbeið-
andi Hafnarfjarðarbær, föstudaginn 4.
desember 1998, kl. 13.00.
Strandgata 19, 0201, Hafnarfirði, þingl.
eig. Sólveig Margrét Magnúsdóttir og
Stefán Karl Harðarson, gerðarbeiðendur
Hafnarfjarðarbær, Húsnæðisstofnun rík-
isins og Ríkisútvarpið, föstudaginn 4.
desember 1998, kl. 13.30.
Vesturbraut 1, 0101, Hafnarfirði, þingl.
eig. Una Ósk Kristinsdóttir, gerðarbeið-
andi Landsbanki íslands hf., aðalbanki,
föstudaginn 4. desember 1998, kl. 14.00.
Þúfubarð 13, 0201, Hafnarfirði, þingl.
eig. Guðmundur Karl Guðnason, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins, föstu-
daginn 4. desember 1998, kl. 14.30.
Aukauppboð
Lækjargata 34B, 0403, Hafnarfirði, þingl.
eig. Kristinn R. Hermannsson, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins, föstu-
daginn 4. desember 1998, kl. 15.00.
SýSLUMAðURINN í HAFNARFIRÐI
Norski forsætisráðherrann:
Kann ekki á tölvu
DV, Ósló:
„Það er fólk hér á skrifstofunni
sem notar tölvu, rafpóst og Netið.
Sjálfur hefur forsætisráðherrann of
mikið að gera til að setja sig inn í
þessa hluti,“ svaraði aðstoðarmaður
séra Kjells Magnes Bondeviks, for-
sætisráðherra Noregs, þegar upp
kom að æðsti ráðamaður landsins
er alls ófróður um tölvur.
Þegar betur var að gáð kom í ljós
að það sama gildir um flesta aðra
stjórnmálamenn í Noregi. Thor-
björn Jagland, formaður Verka-
mannaflokksins og fyrrum forsætis-
ráðherra, skrifar líka bara með
penna og segist ekki geta vanið sig
á annað.
Athugun á tölvukunnáttu ann-
arra sýndi að fáir stórþingsmenn
hafa reynt sig á Netinu en margir
sögðust myndu hafa það sem nýárs-
Kjell Magne Bondevik.
Símamynd Reuter
heit að tengjast Netinu. Þeir þing-
menn sem notuðu Netið sögðu að
nettenging Stórþingsins væri alveg
óhæf. Aðrir virtust ekki vita að þar
væru vandamál á ferðinni. GK
Spánn ógnar Schengen
Spánverjar hóta að rifta Schen-
gen-samkomulaginu milli EFTA
og Evrópusambandsins samþykki
EFTA-löndin ekki kröfur Spán-
verja um lán til fátækustu svæða
Evrópu.
Forstjóri handtekinn
Forstjóri og margfaldur millj-
ónamæringur í Kaupmannahöfh
hefur verið handtekinn vegna
gruns um að hafa fjármagnað
hasssmygl.
Aftur tii Rússlands
Italir kunna að senda PKK-leiö-
togann Abdullah Öcalan aftur til
Rússlands.
Fréttastofan It-
ar-Tass hefur
þetta eftir
Itölskum stjórn-
arerindrekum.
Lamberto Dini,
utanríkisráð-
herra Ítalíu,
ræddi mál Öcalans við rússneska
ráðamenn í Moskvu í gær. Dini
sagði málið ekki ástæðu Moskvu-
ferðarinnar. Ferð hans hefði ver-
ið bókuð mörgum vikum áður en
Öcalan var giúpinn í Róm við
komuna frá Rússlandi.
Tyrklandsher varar við
Herinn í Tyrklandi varaði í
gær stjórnmálamenn við að
blanda hemum inn i stjómar-
myndunarviöræöur.
Klæðskiptingur rekinn
íbúar í Quellendorf í Þýska-
landi greiddu á sunnudaginn at-
kvæði með því aö borgarstjórinn
þeirra, sem er klæðskiptingur,
hætti störfum. Borgarstjórinn,
sem er tveggja bama faðir, mætti
síðastliðið sumar í pilsi og blússu
og málaður til vinnu sinnar í ráð-
húsinu.
Viil gefa 28 milljarða
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lagði til 1 gær að Bandaríkin
veittu Palest-
ínumönnum
sem svarar 28
milljörðum is-
lenskra króna
aukalegá í að-
stoð. Áður
höfðu Banda-
ríkin veitt
Palestínumönnum um 30 millj-
arða króna í aöstoð frá því að frið-
arumræöur hófust 1993.
Niðurskurður hjá Volvo
Sænski bílarisinn Volvo græðir
of lítið og neyðist nú til niður-
skurðar. Ætlar verksmiðjan að
leggja niður 5300 stöður. Efha-
hagskreppan í Asíu er sögð orsök
niðurskurðarins.
Olíuverð lækkar enn
Olíuverð lækkaði enn á mörk-
uðum í New York í gær. Fór verð-
ið niður í 10,82 dollara. Dow Jo-
nes-vísitalan lækkaði um 2,3 pró-
sent i gær.
Rót alls vanda
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins, James Rubin,
sagði í gær aö Slobodan Milos-
evic, forseti
Júgóslavíu,
væri rót alls
vanda á
Balkanskaga.
Sagði Rubin að
Milosevic væri
ekki hluti af
vandamálunum
heldm- væri hann sjálfur vanda-
mál.
30 létust í jarðskjálfta
Fjöldi látinna í jarðskjálftanum
sem reið yfir austurhluta
Indónesíu á sunnudagskvöld er
nú kominn upp í 32. Björgunar-
menn leita enn slasaðra og lát-
inna.
Andófsmenn gripnir
Kínverska lögreglan hefur
handtekið fimm andófsmenn í
þremur borgum, samkvæmt upp-
lýsingum mannréttindasamtaka.