Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
Neytendur
Bl-vítamín
Bl-vítamín,
ööru nafni
þíamín, er
vatnsleysan-
legt og á það
þvi sammerkt
meö öllum
hinum B-
vítamínunum
að alit um-
frammagn
þess skilst út
úr líkaman-
um en geym-
ist ekki. Því
þarf að full-
nægja B-vítamínþörf einstak-
lingsins á hverjum degi.
B-vítamínin eru samvirkin
sem þýðir að þau virka betur
saman en þegar þau eru tekin
hvert í sínu lagi. Bl, B2 og B6
ættu að vera í sömu hlutföllum
til að gefa sem bestan árangur
(þ.e. 1 mg af Bl, 1 mg af B2 og 1
mg af B6).
Ráðlagður dagskammtur
(RDS) fyrir fullorðna er 1,2 til 1,4
mg af Bl-vítamíni.
Bamshafandi konum og
brjóstamæðrum er ráðlagt að
taka 1,4 mg á dag. Þörf fyrir B1
eykst við veikindi, streitu og
uppskurði.
B1 er stundum kallað „upp-
byggingarvítamínið" vegna
hinna góðu áhrifa sem það hefur
á taugakerfið og viðhorf.
B1 örvar þvagmyndun lítil-
lega.
Gagnsemi
B1 getur stuðlað að vexti, bætt
viðhorfin, auðveldað meltingu
kolvetna, viðhaldið eðlilegri
starfsemi taugakerfis, vöðva og
hjarta, haldið flug- og sjóveiki í
skefjum, dregið úr sársauka eftir
tannholdsuppskurð, hjálpað til
við meðferð veirusjúkdóms í
skyntaugum.
Matvæli
Matvæli sem innihalda B1 eru
m.a.: þurrkað ger, hrísgrjóna-
hýði, heilhveiti, haframjöl, jarð-
hnetur, svínakjöt, flest græn-
meti, klíð og mjólk.
Eiturvirkni
B1 hefur enga þekkta eitur-
virkni. Allt umframmagn skolast
út með þvaginu og geymist því
ekki að neinu ráði í líffærum né
vefjum.
Meðal sjaldgæfra umframá-
hrifa eru riða, áblástur, bjúgur,
taugaveiklun, ör hjartsláttur og
ofnæmi.
Heilræði
Ef þú reykir, drekkur eða not-
ar mikinn sykur þarfnastu
meira Bl-vítamíns en ella.
Ef þú ert barnshafandi, með
bam á brjósti eða notar getnað-
arvamarpillur þarftu líka meira
B-vítamín en ella.
Við allar streituaðstæður, s.s.
sjúkdóma, áhyggjur, áföll og eft-
ir skurðaðgerð, skyldi auka inn-
töku B-vítamína almennt. Lækn-
ingaskammtur Bl-vítamínsins er
um 10-20 mg á dag i nokkrar vik-
ur.
-GLM
Bókajól:
Bækur við allra hæfi
Jólin nálgast óðfluga og margir
eru eflaust farnir að velta fyrir sér
hvað gefa skuli vinum og vanda-
mönnum í jólagjöf. Bækur eru
ómissandi í jólapakkana á mörgum
heimilum en þær em misdýrar.
Neytendasíðan kynnti sér bóka-
markaðinn fyrir þessi jól með tilliti
til verðs bókanna. Verð bókanna er
viðmiðunarverð sem gefið er upp í
Bókatíðindum 1998.
Ævisögur
Ævisögur og alls kyns endur-
minningar eru gríðarlega vinsælar í
jólapakka landans. Verð á þeim er
hins vegar talsvert misjafnt. Erlend-
ar ævisögur og endurminningar era
yfirleitt ódýrari en þær íslensku en
sjálfsagt hafa endurminningar
þekktra fslendinga meira aðdráttar-
afl heldur en minningar erlendra
manna og kvenna. í Bókatíðindum
íslenskra bókaútgefenda eru að
finna tvær erlendar ævisögur á inn-
an við 1500 krónur. Annar vegar er
um að ræða „Á mörkum manna-
byggða - ævisaga James Hunt-
ington“ og hins vegar Villtir svanir
- fjölskyldusaga Jung Chan. Rétt er
þó að geta þess að Villtir svanir hef-
ur áður komið út á íslensku.
Ævisögur og endurminningar ís-
lendinga kosta flestar á bilinu
3.200-4.500 krónur. Þær bækur sem
skera sig úr í þessum hópi og era í
dýrari kantinum eru flestar bækur
Mörgum finnst bókalestur fram á rauða nótt vera ómissandi hluti jólahátíðarinnar.
um vel þekkta íslendinga. Þar má
t.d. nefna ævisögu Steingríms Her-
mannssonar á 4.480 krónur, ævi-
sögu Þorvaldar í Síld og fiski á 3.980
krónur, ævisögu Pétur Benedikts-
sonar á 4.480 krónur og ævisögu
Steingríms St. Th. Sigurðssonar,
einnig á 4.480 krónur.
íslenskar skáldsögur
Erfiöara er að skipta íslenskum
skáldverkum niður í ákveðna verð-
flokka. Talsvert er um endurútgefn-
ar bækur i þessum flokki sem sum-
ar era ódýrari en nýútkomnar bæk-
ur og einnig virðast sum smásagna-
söfn vera talsvert ódýrari en skáld-
sögrn-.
Þó má segja að algengt verð á ís-
lenskum skáldsögum sé á bilinu
3.200 krónur til 3.900 krónur. Ekki
virðist skipta öllu máli um hvaða
höfunda er að ræða því bækur
yngri og óþekktari höfunda era á
sama verðbUi og bækur eldri höf-
unda. Eins og áður sagði era smá-
sagnasöfn og greinasöfn mörg hver
talsvert ódýrari en skáldsögumar
en verðbU þeirra er þó mjög breitt
og kosta þau frá 1100 upp í rúmlega
4000 krónur.
Þýddar skáldsögur
Mikið úrval þýddra skáldsagna er
á markaðnum fyrir þessi jól og er
verð þeirra mjög mismunandi eða
aUt frá tæplega 1.000 krónum upp í
tæplega 4.500 krónur. Talsvert er
vun endurútgefnar bækur og smá-
sagnasöfn sem era talsvert ódýrari
en skáldsögurnar. Meðalverð
þýddra skáldsagna er þó einhvers
staðar á bUinu 2500-3600 krónur.
Barnabækur
Ánægjulegt er að sjá hversu gott
úrval er af bama- og unglingabók-
um fyrir þessi jól. Segja má að með-
alverð íslenskra skáldsagna fyrir
börn og unglinga sé á bUinu
1.500-2.000 krónur. f þessum flokki
má einnig finna talsvert ódýrari
bækur og era flestar bækur fyrir
smábörn t.d. ódýrari.
Erfitt er að setja fram eitthvert
meðaltalsverð á þýddum barnabók-
um því þær spanna mjög breitt
svið eða aUt frá einfoldum smá-
bamabókum á 262 krónur upp í
myndskreytt ævintýri H.C. Ander-
sens á 3.850 krónur. Þó má segja að
meðalverð þýddra skáldsagna fyrir
böm og unglinga sé svipað og með-
alverð íslenskra skáldsagna fyrir
sama hóp.
-GLM
Þessi réttur hentar bæði vel sem iéttur hádegisverður eða meðlæti með
fisk- eða kjötréttum.
Risotto með
grænmeti
Þessi réttur hentar prýöisvel
bæði einn og sér með góöu brauði
eða sem meðlæti með fisk- og kjöt-
réttum.
Uppskrift:
2 stk. af meðalstóra kínakáU
2 msk. smjör
1/2 laukur, brytjaður smátt
1 gulrót, söxuð i teninga
1 sellerístilkur, smátt saxaður
400 g hrisgrjón, ósoðin
150 g frosnar grænar baunir
1 þykk skinkusneið
salt og pipar.
Aðferð:
1) Skerið græna hluta kálsins í
mjög þunna strimla og hvíta hlut-
ann í litla teninga.
2) Hitið smjörið á stórri pönnu
og steikið laukinn, gulrótina, seU-
eríið og kálið í tvær mínútur.
3) Steikið nú hrísgrjónin, baun-
imar og skinkuna þar til grjónin
eru gegnsæ, hrærið í á meðan.
4) Færið aU yfir í eldfasta skál
og hellið 3 boUum af sjóðandi vatni
yfir. Kryddið meö salti og pipar og
blandið öUu vel saman.
5) Setjið lok á skálina og stingið
henni i 220' C heitan ofn. Eftir 15-
20 mínútur er rétturinn tUbúinn
og borinn fram heitur.
(Litlu matreiðslubækumar).
-GLM