Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Síða 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
Sviðsljós
Cameron borðar
með vinunum
Fræga og ríka fólkið verður
stundum að borða. Að minnsta
kosti er leikkonan Cameron Diaz
með þeim
ósköpum gerð.
Og þegar maöur
nennir ekki að
elda ofan í sig
og kunningjana
fer maður bara
út að borða. Það
er einmitt það
sem stúlkan gerði í Los Angeles á
dögunum. Ekki þó á Holtinu eða
hvað það nú heitir þeirra Engla-
borgarbúa heldur á ómerkilegri
takóbúllu. Cameron er líka þekkt
fyrir að láta ekki berast á. Hún
býr í ósköp venjulegri ibúð og ek-
ur um á fjögurra ára gömlum
Benz. Svörtum að vísu.
Taylor dreymir
um að gifta sig
Nei, ilmvatnsdrottningin og
leikkonan Elizabeth Taylor lætur
aldurinn ekki flækjast fyrir sér
þegar ástin er
annars vegar.
Þessa dagana er
hún að íhuga að
ganga í hjóna-
band í níunda
sinn, hvorki
meira né
minna. Sá ham-
ingjusami, ef af verður, heitir
Rcd Steiger. Hann er á svipuðum
aMri, sennilega eitthvað eldri þó,
og er gamalfrægur og virtur
kvikmyndaleikari. Þau Rod og
Elizabeth hafa þekkst í fjölda ára
en það var ekki fyrr en í febrúar
síöastliðnum að ástarneistar fóru
á fljúga milli þeirra. Þau hittust
þá í einhverri matarveislunni.
DV
Friðrik og Maria Montell notuðu tækifærið þegar Danadrottning fór í afmæli Bretaprins:
Voru um nótt í
höll drottningar
Svo virðist sem Friðrik krón-
prins af Danmörku og söngkonan
Maria Montell séu tekin saman á
ný ef marka má frásagnir dönsku
slúðurblaðanna. Söngkonan mun
hafa gist í Amalienborg þegar Frið-
rik var heima í Danmörku í helgar-
leyfi frá störfum sínum í París.
Sumir sem þekkja til málanna
segja að Friðrik og Maria hafl
aldrei slitið sambandinu fyrir fullt
og allt.
Þegar Margrét Þórhildur Dana-
drottning og Henrik prins héldu um
miðjan síðasta mánuð til Englands
í 50 ára afmælisveislu Karls Breta-
prins var Friðrik prins þjóðhöfð-
ingi Danmerkur á meðan. Hann
hafði komið frá París á föstudegi og
skemmti sér í Árósum um kvöldið.
Á laugardeginum og sunnudegin-
um skrapp prinsinn á veiðar með
nokkrum góðum vinum sínum.
Um kvöldmatarleytið á sunnu-
deginum kom Friðrik til Amalien-
borg. Samkvæmt frásögnum
danskra blaða mun Maria hafa
komið til hallarinnar á bíl sínum
stuttu seinna. Sólarhring seinna yf-
irgaf Friðrik höllina og ók til flug-
vallarins.
Fimmtán mínútum seinna kom
Maria út úr höllinni. Turtildúfum-
Friðrik krónprins af Danmörku getur ekki gleymt söngkonunni Mariu
Montell. Hún sagði honum upp í sumar en þau eru farin að hittast á ný.
Símamynd Reuter
ar virðast gera allt til að halda sam-
bandinu, sem sagan segir að Maria
hafi slitið síðastliðið sumar,
leyndu.
Víst þykir að Margrét Dana-
drottning hafi ekki haft hugmynd
um að Maria væri væntanleg til
hallarinnar. Þetta var reyndar ekki
í fyrsta sinn sem Maria gisti i höll-
inni en drottningin hefur aldrei hitt
söngkonuna.
Dönum var ljóst að Maria hefði
gert sér grein fyrir að drottningin
myndi aldrei sætta sig við hana
sem tengdadóttur. Þess vegna hefði
hún slitið sambandinu við Friðrik.
Voru Danir jafnvel farnir að velta
því fyrir sér hvort ekki yrði séð til
þess að prinsinn hitti einhverjar
frambærilegar franskar stúlkur.
En ástin til Mariu virðist enn
vera heit. Það þykja endurfundirnir
á Amalienborg sýna. Prinsinn virð-
ist meta ástina til söngkonunnar
meira en ráðleggingar móður sinn-
ar, að mati danskra blaða.
Ekkert mun hafa frést af við-
brögðum Margrétar Þórhildar við
endumýjuðum kynnum sonar
hennar og söngkonunnar. Menn
þykjast þó vita að drottningin sé
ekki yfir sig hrifin og vonist til að
ástin kulni hið skjótasta.
56 síðna glæsileg
Jólagjafahandbók
fylgir DV á morgun
Charlie Sheen
heim af stofnun
Charlie Sheen, sonur ieikarans
Martins Sheens, er nú kominn heim
eftir mcngra mánaða dvöld á með-
ferðarstofnun fyrir fikniefnaneyt-
endur. Dómari úrskurðaði að
Charlie skyldi fara í meðferð eftir
að hann hafði tekið of stóran
skammt af eiturlyfjum. Charlie
hafði verið á skilorði eftir að hafa
barið unnustu sína. Nú hefur
dómarinn úrskurðað að meðferðin,
sem hófst í maí síðastliðnum, hafí
skilað nógu góðum árangri til að
Charlie megi fara heim.
Við brottfórina þakkaði Charlie
sérstaklega föður sínum sem hvatt
hafði lögregluna til að handtaka
soninn eftir að hann tók of stóran
skammt. Charlie kvaðst hafa verið
reiður út í pabba sinn í fyrstu. Svo
heföi hann gert sér grein fyrir að
faðirinn hefði bjargað lífi hans.