Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 6
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
Ódýrar jólagjafir
Könnur meö nöfnum
Leir Postulín
Höföatúni 4 síml 552 1194
UTILJOS
ótrúlegt verð!
Verð:
1.390.
Fæst í svörtu
og hvítu
Verð:
1.490.
Fæst í svörtu
og hvítu
Verð:
1.290.
Fæst í svörtu
og hvítu
K
Verð:
Fæst í svörtu
og hvítu
RAFSOL
SKIPHOLT 33 • REYKJAVÍK
SÍMI: 553 5600
Neytendur
Jólaklipping á landsbyggöinni:
387% verðmunur
á klippingu barna
Neytendasamtökin könnuðu ný-
lega verð á ýmiss konar þjónustu á
27 hársnyrtistofum á Vestíjörðum,
Eyjafjarðarsvæðinu og á Selfossi. I
ljós kom að mikill verðmunur er á
þessari þjónustu á þeim stofum sem
könnunin náði til og má ætla að
hann endurspegli mjög breytilegt
verð um land allt, eins og raunar
var staðfest í könnun Samkeppnis-
stofnunar á verði á þessari þjónustu
á höfuðborgarsvæðinu sem nýlega
var birt í DV.
Margar hársnyrtistofur gefa upp
verð frá einhverri ákveðinni upp-
hæð og meta síðan sérstaklega þau
tilvik þegar beðið er um þjónustu
umfram það sem þær telja eðlilegt.
Innifalið í verði er efni en ekki er
lagt mat á gæði þeirra efna sem not-
uð eru.
Flestar stofumar bjóða elli- og ör-
orkulífeyrisþegum afslátt frá 10%
og allt upp í 25%.
Mismunandi verð
Mestur reyndist verðmunurinn
vera á barnaklippingu á milli þeirra
stofa sem kannaðar vom. Bama-
klipping kostar minnst 300 krónur
hjá hársnyrtistofunni Ametyst á
ísafirði en mest
1460 krónur hjá
Hártískunni á Ak-
ureyri.
Munurinn var
minni á verði
klippingu kvenna
og karla en þó um-
talsverður. Ódýrast
er fyrir karlmenn
að láta klippa sig á
Hárgreiðslustofu
Önnu á Selfossi og
Hjá Kellý á Pat-
reksfirði. Þar kost-
ar herraklippingin
1200 krónur. Dýr-
ast er hins vegar
fyrir karlmenn að
láta klippa sig hjá
hársnyrtistofunum
Passion og Medullu
á Akureyri og á hársnyrtistofunni
Jódý á Dalvík. Þar kostar herrra-
klippingin 1700 krónur. Munurinn á
hæsta og lægsta verði á herraklipp-
ingu er því 42%.
Munurinn á hæsta og lægsta
verði á dömuklippingu er 54%.
Ódýrast er fyrir konur á lands-
byggðinni að láta klippa sig Hjá
Kellý á Patreksfirði fyrir 1300 krón-
Jólaklippingin
- á landsbyggöinnii-
Klipping kvenna
Klipping kaiia
■£. 2000 kr.
£
•a
JC
S
1300 kr. I
■é-e 1700 kr.
© £
3 3
X *
> < <
£ c m
Q o =
1200 kr.
Lægsta
■°3i
£
O >,
V) =
► ®
co *
i ‘<5.
Lægsta
Klipping bama
Litun í stutt hár
f 1460 kr.
Hæsta
3000 kr.
300 kr.
V)
I
.
Lægsta
I
E
<
f|p|®
1600 kr. o-
T?Wi' í
Lægsta
Strípur í stutt hár
Permanent í stutt hár
Jólaklippingin
er mjög misdýr
eftir því hvert
er farið.
ur en dýrast er fyrir konur aö láta
klippa sig á Medullu á Akureyri þar
sem klippingin kostar 2000 krónur.
Litun og liðun
Mörgum fmnst ómissandi að láta
setja fallegan lit eða strípur í hárið eða
jafnvel fá sér fallega lokka fyrir jólin.
Ef skoðað er verð á litun í stutt
hár kemur í ljós að 88% munur er á
hæsta og lægsta verði í þessum
verðflokki. Ódýrast er að láta lita
hárið á Stínukoti á Patreksfirði fyr-
ir 1600 krónur en dýrast á Osone á
Selfossi fyrir 3000 krónur.
Hundrað prósent verðmunur er á
strípum í stutt hár. Þær em
ódýrastar á 1900 krónur á Ametyst
á ísaflrði og Hjá Kellý á Patreks-
flrði en dýrastar á Osone á Selfossi
á 3800 krónur.
Að lokum má nefna að 87% verð-
munur er á permanenti í stutt hár.
Ódýrast er það hjá Stínukoti á Pat-
reksfirði á 2300 krónur en dýrast á
Verónu á Selfossi á 4300 krónur.
Það er því ljóst að rétt er að skoða
verðið vel áður en farið er í jóla-
klippinguna.
-GLM
Italskur ís fyrir jólin
Hvemig væri að búa til ítalskan
ís fyrir jólin? Hann gerir öragglega
lukku hjá allri fjölskyldunni því ís-
inn er bæði ferskur og góður.
Uppskrift:
5 1/2 dl mjólk
EINKAR
ÁHUGAVERÐ
OG EIGULEG
BÓK
Fjöldi þjóðþekktra manna og kvenna
sýnir á sér nýja hlið og segir frá atviki
eða fólki sem ekki gleymist.
Einstök bok - gefin ut til styrktar Bornaspítola
Hringsins og forvarnastarfi meðal barna.
STOÐ OG STYRKUR
tfgMÉBÉBÉÉMMHHMlMI
Ólíkindalæti
Ýmsar kenningar eru á lofti um það
hvernig skipist í sæti á lista Framsóknar-
flokks á Vestfjörðum eftir að Kristinn H.
Gunnarsson, allaballi til margra ára, tók
nýja trú og gekk í Framsókn. Gunnlaug-
ur Sigmundsson, alþing-
ismaður og fyrsti maður
framara fyrir vestan, hef-
ur látið misfriðlega og
ýmist sagt Kristin fiska í
öðru sæti eða lýst sig til-
búinn til að hætta fyrir
þrítugan velmenntaðan
ungliða. Þær kenningar
heyrast að þetta séu ólíkinda-
læti hin mestu og Gunnlaugur hafi löngu
ákveðið að taka fyrsta sætið og Kristinn
fari í annað sæti. Vísbending um þetta er
að þeir félagar Kristinn og Gunnlaugur
hafa sameiginlega boðað sína menn í hér-
aði til teitis á ísafirði í kvöld. Steingrím-
ur Hermannnsson mun lesa upp úr ævi-
sögu sinni við þetta tækifæri. í boðsbréfi
segir að meiningin sé að „hrista menn
saman“. Kvóti verður á jólaglögginu og
fær hver framari tvö glös ...
Árni í klandri
Hin skrautlega deila alþingismannsins
Árna Johnsens og söngvarans Páls Ósk-
ars Hjálmtýssonar tekur nú á sig nýja
mynd. Páll Óskar sakar Áma um að hafa
gengið í skrokk á kærasta sínum þar sem
þeir létu vel hvor að öðrum
baksviðs á'þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum. Ámi hefur
sagt þetta rangt og atlotin
hafi átt sér stað á sviðinu.
Nú hefur öflugt vitni
komið til liðs við Pál
Óskar. Emilíana Torr-
ini söngkona segir í við-
tali við Séð og heyrt að hún hafi verið
vitni að atburðinum og Ámi hafl tryllst og
ráðist á ástmann Páls Óskars. Árni John-
sen sagði ósatt en Páll Óskar hefur engu
logið, segir Emilíana. Nú er bara að sjá
hvort Áma tekst að hemja sleppibúnaðinn
í framtíðinni og hvernig hann klórar sig
frá málinu...
Miðaldra
6 eggjarauður
4 msk. niðursoðin kirsuber
(Amarena ef þau fást) í eigin safa,
gróflega brytjuð.
Aðferð:
1) Þeytið saman eggjarauðumar
og sykurinn í ljósa, þykka soppu.
2) Hitið mjólkina að suðumarki
og þeytið hana síðan saman við
eggjahræruna.
3) Hellið þessari blöndu aftur í
pottinn, lækkið hitann og þeytið
stanslaust í á meðan sýður eða þar
til blandan er orðin nægilega þykk
til að tolla aftan á matskeið.
4) Takið af hitanum, blandið söx-
uðum kirsuberjunum ásamt safan-
um saman við og kælið.
5) Þeir sem ekki eiga ísvél, setjið
þá blönduna i grunna skál og setjið
hana í frysti. Þegar blandan er farin
að stífna er hrært upp í henni til að
brjóta upp ískristallana. Frystið
áfram og hrærið síðan aftur. Setjið
loks lok eða plast yfir skálina og lát-
ið fijósa að fullu. -GLM
Amarena er ítölsk tegund af plómu-
lituðum kirsuberjum. Kirsuber eru
sérlega gómsæt í ís en vitanlega má
nota önnur ber sem auðveldara er
að nálgast.
Svo sem sandkorn hafa greint frá hafa
fundir borgarstjórnar breyst frá því að
vera friðsælir og hljóðh í argandi vígvöll.
Ungliðar sjálfstæðismanna, þeir Eyþór
Amalds og Guðlaugur Þór Þórðarson,
hafa gengið svo hart fram
að borgarsljóra hefúr þótt
nóg um atganginn. Á dög-
unum þegar umræðan um
hækkað útsvar stóð sem
hæst var Ingibjörgu
Sólrúnu nóg boðið og
hún kallaði óþekktar-
ormana stuttbuxna-
stráka og stuttbuxnadeild jöfnum höndum
í ræðu sinni. Efth stuttbuxnaræðu borg-
arstjóra fór Guðlaugur Þór í pontu og lýsti
því að athyglisvert væri að hlusta á mál-
flutning þessarar nær miðaldra kvenna-
listakonu. Sagnh herma að borgarstjóran-
um, sem er á besta aldri og nokkuð fyrir
augað, hafi ekki verið skemmt undir
þeirri ádrepu...
Fyrrverandi sonur
Áfram heldur syrpa ummæla íþróttaf-
réttamanna sem oft fara fram úr sjálfum
sér í hita leiks. Áður hafa verið rifjuð upp
ummæli þeirra Bjama Felixsonar og
Valtýs Bjöms Valtýssonar en nú er komið
að fréttamanni Sjónvarps-
ins Samúel Emi Erlings-
syni.
„Hann skrúfaði boltann
bak við hægi-a eyra mark-
mannsins ...“, var sagt á
góðri stundu. Þá fór per-
sónulýsing á leikmönn-
um í þennan farveg. „Allh leikmenn
liðsins eru á annan meter...“ Nákvæm lýs-
ing á hefðbundinni hornspyrnu var á
þessa leiö: „KR-ingar eiga homspymu á
mjög hættulegum stað...“ Einhverjum sem
hélst illa á bolta lýsti Samúel öm svo:
„Hann missti boltann jafnóðum strax ...“
Telja verður að frumlegasta komment
hans hafi fallið þegar hann rauf tengsl fóð-
ur og sonar með eftirminnilegum hætti:
„Fyrrverandi sonur þjálfarans er á leið í
annað félag...!“
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is