Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 12
Jólatónlelkar X-lns og Fókuss verða i Bíó-
borglnnl á miðvikudagskvöldiö. Þar verður
hellingur af hljóm-
sveitum og lista-
mönnum eins og til
dæmis Bellatrix,
Botnleðja, Ensími,
Unun, Súrefni, Jón
Atli, Þossi, Hallgrím-
ur Helga og Mikael Torfa. Miðar eru seldir á
www.visir.is og þeir kosta 977 krónur.
Elf-19 og Skýjum ofar ætla að standa fyrir
samkomu á Bíóbarnum á sunnudaginn. Þar
munu DJ Addi, Eldar, Reynir spila drum &
bass og experimental breakbeat-tóna.
Skemmtunin hefst klukkan nlu.
Vegamót. DJ Jól verður I kvöld en DJ Herb
Legowitz á morgun.
Ellen Kristjáns verður i Kaffileikhúsinu á
morgun ásamt fjölda góðra tónlistarmanna.
Tónlist Ellenar, sem er bóhemlsk blanda af
beatnik, swing og seiðmögnuðum blues, hefst
með Ijúfum nótum klukkan ellefu.
Hinir einu og sönnu Svensen & Hallfunkel
halda uppi brjálaðri stemningu alla helgina á
Gullöldlnni.
Lágmenningunni verðurgert hátt undir höfði á
Astró I kvöld, svona svipað og á 22 fyrir viku.
Tvíhöfði segir lágkúrulega brandara, Hallgrim-
ur Helga les upp úr bók sinni og líka þeir Mik-
ki Torfa og Jón Atli auk þess að vera með ein-
hverjar lágkúrulegar uppákomur.
Rúnar Þór verður á Rauöa Ijónínu í kvöld og
annað kvöld.
Rúnar Júl verður hins vegar á Péturs-pöbbn-
um um helgina.
Klúbburinn. „Ladles Night" I kvöld. Húsið
verður opnað klukkan ellefu og þá verður tek-
ið á móti gestum með drykkjunum HIV og
Veirunni. ítölsku folarnir Carlos og Antonio
dansa erótískt, DJ Gummi Gonzalez verður í
aðalsalnum og Pétur Örn trúþador á prívatinu.
Stjómin veröur I Lelkhúskjallaranum i kvöld
og annað kvöld.
Gaukur á Stöng. í kvöld verður útgáfuteiti
með Spírabræörum og á eftir tekur Sól Dögg
við. Sól Dögg ætlar
líka að vera á
Gauknum annað
kvöld en á sunnu-
dags- og mánudags-
kvöld leika Andrea
Gylfa og Blúsmenn
hennar. Þriðjudagskvöldið verður tónleika-
kvöld undir yfirskriftinni Stefnumót. íslensk
raftónlist verður I öndvegi höfð og Sjón og
Baldur Baldursson kynna samvinnuverkefnið
sitt Kanildúfur. Biogen leikur lifandi tilrauna-
kennda electrotónlist og Early Groovers kynn-
ir fyrstu breiðskífu sína.
i aðalsal Kringlukrárinnar leikur hljómsveitin í
hvítum sokkum alla helgina. Vlöar Jónsson
verður þarna líka og eftir helgi tekur Gunnar
Páll við.
Hljómsvelt Gelrmundar Valtýssonar leikur i
kvöld I Naustkjallaranum en DJ Skugga-Bald-
ur spilar á morgun.
Hitt húsiö verður meö síödegistónleika í dag
klukkan fimm. Hljómsveltin Unun verður á
sviöinu og það kostar ekkert inn.
Jón Moller verður á Fjörukránnl um helgina og
leikur jólalög af fingrum fram fyrir matargesti.
Svo verða jólalegar víkingaveislur I Fjörugarð-
inum.
Grand Hótel v/Slgtún. Gunnar Páll verður á
sínum staö um hlegina meö dægurlaga-
perlurnar sínar.
KOS klikkar ekki og leikur á Næturgalanum í
kvöld og annað kvöld.
Kaffl Reykjavík býöur
upp á hljómsveitina 8-
vlllt I kvöld og annað
kvöld. Á sunnudags-
kvöldið mæta svo Ruth
Reglnalds og Blrglr
Birgls en á mánudags-
og þriðjudagskvöld ætl-
ar hann James aö halda uppi stuöinu.
Á Fógetanum verður Flörlngurlnn um helgina
en á sunnudagskvöldiö ætlar hljómsveitin
Sesslon að flytja írska tónlist, órafmagnað.
I kvöld og annað kvöld ætlar Bjarnl Tryggva
að trylla lýðinn á irsku kránni Dubllner. Um
sunnudagskvöldið sjá svo þeir Dan Cassldy
og Kenny Loga.
í kvöld veröur hinn sívinsæli ABBA söngflokk-
ur á Broadway og á eftir þeim ætla Land og
synlr að halda uppi gleði I aðalsal hússins. I
Ásbyrgi verða Lúdó og Stefán. Annað kvöld
tekur hljómsvelt Geirmundar Valtýssonar við
og á sunnudaginn verður svo jólaball Bylgj-
unnar frá þrjú til fimm. Fritt inn fyrir alla.
Að vanda skemmtir Llz Gammon gestum Café
Romance og Óperu fram eftir kvöldi.
Hljómsveitin Hersveltin leikur á Catalinu í
Kópavogi alla helgina.
Gömlu dansarnir veröa á skemmtistaðnum
Álafoss föt bezt I Mosfellsbæ I kvöld. Harm-
óníkuhljómsveitin Léttir sprettlr leikur fyrir
dansi og annað kvöld ætlar vestmannaeyska
hljómsveitin Dans á rósum að rokka feitt.
Og það verður meira um að vera I Mosfells-
bæ. í Ásgaröl verður ball I kvöld meö hljóm-
sveit Blrgis Gunnlaugs. Á sunnudagskvöld
verður svo dansað með Caprí-tríólnu.
Pras úr The Fugees gaf nýlega
út sólóplötuna „Ghetto Superstar"
og varð með því síðasti Fúgarinn
til að gera sóló á árinu en hin eru
öll búin að vera að hamast við þá
yðjuna með vægast sagt ágætis
árangri. Pras toppar að vísu
félagana því nú er stefht að því að
gera bíómynd samnefnda plötunni
og fer Pras með aðalhlutverkið en
Wyclef Jean og Lauryn Hill koma
einnig við sögu í einhverjum
hlutverkana. Það verður allavega
enginn svikinn af því að sjá
Lauryn á sviði, hún myndast
allavega vel og hefur þokkalega
þétta rödd stelpan.
Myndin fjallar um rappara
(ótrúlegt en satt) sem reynir eins
og hann getur að rappa sig út úr
einhæfa lífinu í fátækrahverfum
New York-borgar. Allt mjög
heillandi og týpískt rappa
eitthvað. En þessir rapparar eiga
auðveldast með að leika hlutverk
sem eru mjög nærri þeim í
raunveruleikanum. Ætli Lauryn
verði ekki með barn á brjósti í
myndinni og rapparinn lætur sig
kannski dreyma um að halda
tónleika i Laugardalshöll íslands.
Það væri kannski of orginal.
Það er Madguy, kvikmyndafyr-
irtæki Madonnu, sem sér um
framleiðsluna og hefjast tökur á
komandi vori. Þá ætti myndin
líklegast að koma í hús árið 2000
og tveimur árum seinna verður
ísland fíkniefnalaust (bara svo
fólk sé með það á hreinu).
Rorniie í slagtogi
með rokkurum
Ronnie, í slagtogi með rokk-
urum Ronnie Spector, var for-
ingi The Ronettes á þeim tíma
er „girl-group“ tónlistin ríkti
í poppinu. Sveitin varð
heimsþekkt fyrir slagarann
„Be my baby“ sem hinn
goðsagnakenndi Phil
Spector, eiginmaður
Ronnie, samdi. Það eru 35
ár síðan Ronettes var á
toppnum en Ronnie er
enn að og enska rokkút-
gáfan Creation gefur út
með henni nýtt efni í jan-
úar. Creation er þekktast
fyrir að hafa Oasis á sínum
snærum.
Platan með Ronnie verður
4-laga og hefur m.a. að geyma
Beach Boys-lagið „Don't
Worry Baby“.
Aðalsprauta Fjörulall-
anna samdi það einmitt fyr-
ir Ronnie á sínum tima en
var of hrædd við eiginmann
hennar til að bjóða henni
afnot af laginu. Lagið
heyrðist síðast sem
bútur í lagi með Gar-
bage. Gamla Ramones-
rörið Joey Ramone
hljóðvann þessa plötu
Ronnie og sú gamla mun
troða upp í London í janúar.
LS 3 L e n V) k 1 l i s t i N n|
NR. 302
Sæti Vikur LAG
vikuna 11.12-18.12. 1998
FLYTJANDI n/12 4/12
10 8
11
12
13
14 8
15 1
16 13
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35 10
36
37
38
39
40
SWEETESTTHING ................................U2
FLY AWAY............................LENNY KRAVITZ
DAYSLEEPER................................R.E.M.
REM0TE C0NTR0L.......................BEASTIE B0YS
BELIVE......................................CHER
T0P 0FTHE W0RLD ..........................BRANDY
SKYZ0 ............................SÚREFNI & H0SSI
THE EVERLASTING ...........MANIC STREET PREACHERS
BLÓMARÓSAHAFIÐ .........................NÝ DÖNSK
THANKU..........................ALANIS M0RISSETTE
DRAKÚLA .............................SKÍTAMÓRALL
WHATS THIS LIFE F0R........................CREED
ÁSTARFÁR............................LAND 0G SYNIR
DREYMIR .............................LAND0GSYNIR
HANDA ÞÉR ... .EINAR ÁGÚST & GUNNAR ÓLA. ( ÚR SKÍTAM.J
D00 W0P (THATTHING)..................LAURYN HILL
W0ULD Y0U...........................T0UCH AND G0
ÉG ER AÐ DRUKKNA.......................BOTNLEÐJA
W0ULD Y0U...........................T0UCH AND G0
H0MESICK..........................DEAD SEA APPLE
l'MYOURANGEL ...............R. KELLY & CELINE DI0N
NEVER THERE.................................CAKE
STJÖRNUR ....................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
PRETTYFLY..............................0FFSPRING
HEYN0WN0W...............................SWIRL360
BIGBIGW0RLD ..............................EMILIA
I BELIEVE IN L0VE ..........HERBERT GUÐMUNDSSON
G00DBYE ..............................SPICE GIRLS
HUMAN BEINGS ...............................SEAL
SILVERLIGHT........................... BELLATRIX
GYN&T0NIC .............................SPACEDUST
L0VERB0Y .....N0RTHEM LIGHT 0RCHESTRA 8, PÁLL ÓSKAR
IFY0U BUYTHIS REC0RD....................TAMPERER
ÉG FINN ÉAÐ..............................SUÐMENN
SACREDTHINGS..........................BANG GANG
GIRLS NIGHT 0UT.............................ALDA
WHEN YOU’RE G0NE ............BRYAN ADAMS & MEL C.
VILLTUR..................................SÓLDÖGG
BABY 0NE M0RE TIME ...............BRITNEY SPEARS
0RANGE MEAD0WS
.ARIA
1 2
5 -
2 1
9 -
6 6
4 3
8 8
1 II V T T
14 -
3 5
12 14
7 4
26 -
19 6
ItlVTT
10 7
18 37
22 26
32 -
23 27
13 9
33 -
25 31
20 22
IHSTT
27 28
40 -
30 -
15 13
15 11
35 35
38 40
34 -
17 12
llliTT
29 30
24 16
16 11
1IIV T T
I in T T
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkePni Bylqjunnar og DV. Hringt er
f 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu.
Bnnig getur fálk hringt f sfma 550 0044 og tekið þátt í vali
listans. Islenski listinn er Frumnuttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og er birtur á hverjum föstudegi f DV. Listinn
er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
16.00. Ustinn^ er birtur, að hluta, f textavarpi M7V sjánvarps-
stöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express f Los Angeles. Einnig hefur hann
áhrif á Evrápulistann sem birtur er f tönlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandarfska tánlistarblaðinu BiDboard.
Yhrumsjén me8 sko8anakðnnun: HaTIdára Hauksdóttlr - Framkvæmd könnunan Marka8sdeild DV - Tökruvinnsla: D6d6
Handrit, heimildaröflun og yflrumsjón me8 framleiSslu: ívar GuSmundsson - Taeknistjém og framleiSsla: Forstelnn Asgeirsson og Káinn Stelnsson
Útsendingastjöm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jöhannsson og Ragrtar PáH Ólafsson - Kynnir í útvarpi: ívar GuSmundsson
plötudómur
Sálin hans
Jóns míns - Gullna hliðið: ★★
Þegar Davíð frá Fagraskógi orti
Sálina hans Jóns míns varð það
strax feikivinsælt og sat lengi vel
á toppi X-domínóslista vinsælustu
kvæða þess tíma. Því var það ekki
svo galin hugmynd að nefna
hljómsveit eftir ljóðabálkinum
góða. Það var og gert og hefur
hljómsveitin sú notið gifurlegra
vinsælda frá upphafi ferils síns.
Nú, tíu árum síðar, er kominn
út safndiskurinn „Gullna hliðið"
og inniheldur hann þrjátiu lög.
Smellina alla og eitthvað af „Þess-
um þungu höggum" líka, auk
tveggja nýrri laga. Kætast þá
væntanlega Sálarunnendur, sem
sjálfsagt eru löngu búnir að spila
gat á gömlu plöturnar, og einnig
er hér guliið tækifæri fyrir nýrri
aðdáendur að kynna sér sveitina
án þess að þurfa að hlusta á lög
sem þeir hafa ekki heyrt áður.
Sálin byrjaði, eins og vinsældir
Mosa Frænda, sem hugarfóstur
Þorsteins J„ sem vantaði partí-
band til að spila Blues Brothers
lög í Sigtúni. Hmm. Eftir tölu-
verðar mannabreytingar stóðu
eftir Stefán Hilmarsson, fyrrum
Sniglabandingi, og Guðmundur
Jónsson, þekktur úr hljómsveit-
unum Hörmung, Janus, Kikk og
ekki síst Tíbet Tabú. Þeir hóuðu
saman mannskap og hleyptu af
stað einni mestu hittmaskínu síð-
ari ára. Á íslandi.
Frá soulsmellnum „Á tjá og
tundri" og Mallorkastuðinu í
„Kanínunni" að lifsþreytunni í
„Stjörnum" er löng leið. Saga
sveitarinnar er rakin í veglegum
bæklingi sem fylgir plötunni.
Meira um það síðar.
Það er greinilegt að frá upphafl
hefur Sálin átt að brynna ball-
þyrstum Frónverjum með brenni-
vínspyttlu í buxnastrengnum.
Stuðið i öndvegi og listrænn
metnaður laminn í rot fyrir utan
Valaskjálf. „Kanínan" fyrrnefnda
er kannski besta dæmið um það.
Bandið á fullu og Stefán skrækir
eins og fermingarstrákur í
spreng. Með velgengninni jókst
svo sjálfstraustið, „Hvar er
draumurinn" hefði aldrei getað
orðið annað en megahitt og þrátt
fyrir að hljómurinn á því hafi elst
illa gaf það tóninn fyrir það sem
koma skyldi; gæðapopp með svo
smitandi viðlögum að hvorki
prestar né pönkarar gætu komið
Það er ekki heiglum hent að tolla
í tískunni árum saman.
þeim út úr hausnum á sér. Að
minnsta kosti ekki fyrir næstu
verslunarmannahelgi.
“Ábyggilega" var kannski Sálin
eins og best hún gerðist. Lagið
virðist allt að því fáránlega einfalt
í fyrstu, með hefðbundinni bassa-
línu og tralli í viðlögum en það
syngur í höfðinu á manni löngu
eftir að það er búið. „Sódóma"
stendur einnig upp úr, frekar
óvenjulegt lag fyrir Sálina og fer
saman við einn besta texta Stef-
áns.
Það er ekki heiglum hent að
tolla í tískunni ánun saman og
bera sum lög mikinn lit af því
hvað var vinsælt það og það árið.
„Hvar er draumurinn" er ansi
líkt Duran Duran og „Krókurinn"
er sorglega augljós Red Hot Chili
Peppers stæling. Engin dauða-
synd en gefur samt í skyn að vin-
sældir hafi skipt þá félaga full-
miklu máli á tíðum.
Það er mikið lagt í „Guilna
hliðið“ og því vekur það furðu
mína að í annars glæsilegum
bæklingi vantar í texta á tveimur
stöðum og auk þess verður „Fann-
fergi hugans" að „Fanngergi" á
bakhlið plötunnar. Einnig hefði
verið þægilegt að hafa upplýsing-
ar um af hvaða plötum lögin voru
upprimalega.
Hvað um það, þó „Gullna hlið-
ið“ væri gullhúðað breytti það
ekki þeirri staðreynd að þetta er
einungis miðlungsplata popp-
hljómsveitar sem nær alltaf hefur
siglt lygnan sjó og haft það eitt að
markmiði að vera sem vinsælust.
Og þegar vinsældirnar fjara út er
draumurinn búinn. Ari Eldon
12
f Ó k U S 11. desember 1998