Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 27
) > ) ) ) ) ) Kurt Russell Ástæðan fyrir þessum langa leik ferli er að Russell byrjaði að leika níu ára gamall. Þegar Russel vai tólf ára var hann meðal annars að alpersónan í sjónvarpsþætti. Á þess um árum var hann ein aðalstjarnan hjá Disney, lék þar hvert hlutverkið á fætur öðru. Það þarf ekki að fara langt til að sjá hvar Russell hefur fengið leikhæfileikana. Faðir hans. Bing Russell, var á árum áðui þekktur karakterleikari og lék með al annars lögreglustjórann í hinni vinsælu sjónvarpsseríu Bonanza Það var þó aldrei ætlun Kurts Russells þegar hann komst til vits og ára að verða leikari. Hann hafði mikinn áhuga á hafnabolta, áhugi sem hann hafði einnig frá föður sín- um sem hafði leikið hafnabolta á yngri árum. Þótti Kurt Russell vel liðtækur í íþróttinni, svo góður að hann fékk tilboð um að gerast at- vinnumaður. Tilboð sem hann tók. Ferill hans sem atvinnumaður í hafnabolta varð þó ekki langur. Meiðsli gerðu það að verkum afi hann varð að leggja kylfuna frá sér og sneri hann sér þá af fullum Enginn Elvis krafti að kvikmynda- og sjónvarps- leik, atvinnu sem hann hafði aldrei yfirgefið að fullu, sem sést á því að á þeim þremur árum sem hann lék hafnabolta lék hann í fimm sjón- varpsmyndum. Kurt Russell sló í gegn þegar hann lék Elvis í samnefndri sjón- varpsmynd um kappann árið 1979. Þetta hlutverk þótti mikil áhætta og höfðu margir neitað að leika Elvis þegar Kurt Russell tók það að sér. Elvis var mikill sigur fyrir Kurt ) Russell þótt hann syngi ekki sjálfur, það var kúrekasöngvarinn Ronnie McDowell sem fenginn var til að sjá i um sönginn. Raunin hefur orðið sú að Elvis er einhver vinsælasta sjón- varpskvikmynd sem gerð hefur ver- . ið og er sýnd að staðaldri i banda- rísku sjónvarpi og úti um allan heim og enn þann dag í dag hefur enginn túlkað Elvis betur en Kurt Russell. Hann sló í gegn í kvikmyndum tveimur árum síðar þegar hann lék Þegar það er haft í huga að Kurl Russell hefur verið starfandi leikari f tæp fjörutíu ár væri hægt að halda að hann sé eítthvað eldri en hann lítur út fýrir að vera, svo er þó ekki því hann er fæddur 17. mar* 1951. í kvikmynd Johns Carpenters, Escape in New York, frábærri fram- tíðarkvikmynd sem naut mikilla vinsælda. Russell og Carpenter hafa síðan gert saman þrjár kvikmyndir, The Thing, The Big Trouble in Little China og Escape from L.A. Ferill Kurt Russels hefuir ein- kennst af leik í miklum hasarmynd- um og tilraunir hans til að leika gamanhlutverk (Captain Ron) eða dramatísk hlutverk (Winter People) hafa mistekist. Það reyndist örlagarík ákvörðun að láta Goldie Hawn leika á móti Kurt Russell í Swing Shift. Þau urðu ástfangin á stundinni og hafa búið saman síðan. Eiga þau saman einn son, Wyatt. Fyrir átti Russell eina dóttur, Boston, með fyrri eiginkoni sinni, leikkonunni Season Hubley. í við- tölum er Kurt Russell ekki mikið fyrir að tala um samband sitt og Goldie Hawn. í einu slíku sagði hann: „Auðvitað elska ég Goldie. Hvernig væri hægt annað? Allir eru hrifnir af henni. Ég elska hana og ég vona að svo verði áfram, en ég vil ekki veita Ég- elska-Goldie viðtal." -HK Kvikmyndir Kurt Russels eftir að hann fullorðnaðist: The Ðeadíy Tower 1975 • The Guest 1976 • Used Cars 1980 • Escape from New York 1981 • The Thing 1983 • Silkwood 1983 • Swing Shsft 1984 • ihe íÁean Season 1985 • ihe Best of imes 1986 • Big írouble in Litfle China 1986 • Overboard 1987 • iequíía Sur.rise 1988 • \¥inter People 1989 • sango and Cash 1989 • Backdraft 1991 • önlawíu! Eníry 1992 • Captain Ror 1992 • tombsíone 1993 • Síargate 1_994 • Executive Decision 1996 • Escape from Los Angeíes 1996 • Breakdown 1997 • Soídier 1998 • Bíódómur Stjörnubíó - Knock Off ★ Björgun óbreytts Ryans ★★★★ Strið I sinni dekkstu mynd er þema þessa mikla kvik- myndaverks. Stórfenglegt byrjunaratriöi gæti eitt sér staðiö undir ómældum stjörnufjölda en Steven Spielberg er meiri maður en svo aö hann kunni ekki að fylgja þessu eftir og í kjöl- farið kemur áhugaverð saga um björgun mannslifs, saga sem fær endi í öðru sterku og löngu lokaatriði þar sem barist er gegn of- ureflinu. -HK Kringlubíó The Avengers ★ Herra Steed og frú Peel eru leyni- þjónustumenn sem eiga í höggi við veðurspámann sem hefur tekið að sér veð- urstjórnun svo það er allra veðra von. En skrautlegt veðurfar er ekki nóg til að halda uppi heilli mynd og vandamálið hér er að þegar svona mikið hangir á stílnum þá verður sá að ganga upp; virka smart og kúl en ekki vand- ræðalega tilgerðarlegur. -úd Laugarásbíó Blade ★★★ í Blade eru vampírurnar hátækni- væddar og sjálfur er hann eins hip og nokkur vampírubani getur verið. Sérstaklega er byrj- unin og fyrri hlutinn vel heppnaður, en svo fer þetta einhvern veginn allt að þynnast, en það má vel skemmta sér hér, og með fínum splatt- ersenum og góðum húmor þá er hún næstum því þriggja stjarna virði. -úd The Truman Show ★★★ The Truman Show er enn ein rós I hnappagat Peters Weirs. Hún er ekki besta kvikmynd hans en á meðal þeirra bestu, virkilega góð og áleit- in kvikmynd sem byggð er á snjallri hugmynd. Jim Carrey hefur hingað til tekist best upp í försum en sýnir hér agaðan leik I erfiðu hlut- verki þótt ekki verði úr nein snilld. -HK Dance with Me ★★ -HK Regnboginn There’s Something about Mary ★★< Fjórir lúðar eru ástfangnir af sömu Mary. Cameron Diaz er f toppformi, Matt Dillon alveg ótrúlega skemmtilegur sem slímugur einkaspæjari og Ben Stiller er fæddur lúöi. En nú er ttmi lúðanna og þrátt fyrir að pólitlsk rétthugsun sé þeim bræðrum eitur I beinum er greinilegt að ekki þykir nógu PC lengur að láta lúöana tapa, líkt og þeir gerðu I Dumb and Dumber. Og á því tapa þeir. -úd Dr. Doolittle ★★★ Það kom mér á óvart hversu lítiö púður var I handriti Nats Mauldins og Larrys Levins en sagan sem slík hefði átt að tryggja fjörmeiri og eftirminnilegri mynd. Gaman er að ærslunum I Eddie Murphy en Dagfinnur olli mér vonbrigðum. -ge Stjörnubíó Urban Legend ★★★ Urban Legend er ekkert meistarastykki en hún er hiklaust þriggja stjörnu hrylla. Byrjunin var virkilega smart, og lokasenan vlsar hamingjusamlega, og alger- lega óskammfeilið, I möguleikann á heilli syrpu af Urban Legends. -úd Knock Off ★ Hér er á ferðinni þessi líka fína þriðja klassa eftirlíking af Hong Kong-mynd- um, en ólíkt eftirllkingunum sem hún fjallar um, þá heldur hún ekki út nógu lengi til að selja sig. Ég veit eiginlega ekki fýrir hvað þessi mynd á að fá stjörnu, I sumum kvikmynda- handbókum er notast við kalkún I tilfellum sem þessum. -úd Can't Hardly Wait ★★ Þessi unglingamynd sver sig I ætt við gleðimyndir á borð við Grea- se að þvl leyti sem hún fjallar um útskriftarár- gang menntaskóla, paranir og afparanir. Þarna er á ferðinni tilraun til að vinna með Kalkún Leikstjórn: Hark Tsui. Aðalhlutverk: Jean- Claude Van Damme, Rob Schnelder, Lela Rochon, Michael Wong, Paul Sorvino. Hér er á ferðinni þessi líka fina þriðja klassa eftirlíking af Hong Kong-myndum, en ólíkt eftirlík- ingunum sem hún fjallar um, þá heldur hún ekki út nógu lengi til að selja sig. Hinn ágæti leikari Jean-Claude Van Damme hefur oft náð að senda frá sér ágætis tveggja stjörnu béur, sem má vel skemmta sér yfir. Hérna bregst honum hins vegar sú bé-bogalist og hrynur niður í einhvem óskil- greindan ö-flokk. Ég veit eiginlega ekki fyrir hvað þessi mynd á að fá stjörnu, í sumum kvikmynda- handbókum er notast við kalkún i tilfellum sem þessum (sem segir sitt um jólasteikina). En „plottið" er sumsé svona: Marcus Ray (Van Damme) og félagi hans Tommy Hendricks (Rob Schneider) starfa ötullega í eftirlíkinga- bransanum í Hong Kong. Þegar þeir flækjast óvænt í einhver glæpamál kemur í ljós að Tommy er í raun CIA, og Ray verður líka að vera með í löggu- leiknum til að berjast gegn rúss- nesku mafíunni sem ætlar sér að sprengja okkar ástkæru Banda- ríki með örsprengjum. Sprengj- umar eru faldar í því heilagasta af öllu heilögu, gallabuxum, og þannig er þeim smyglað milli landa. Ææ, og svo eru svikarar alls staðar og allt er þetta hið versta mál. Til að halda aumu plotti gang- andi eru endaláusar sviptingar hvað varðar hverjir eru með hverjum og hverjir eru vondu kallamir. Allir svíkja alla og all- ir era stöðugt að skipta um hlut- verk, sem var dálítið neyðarlegt, þvi fæstir gátu valdið þeim hlut- verkum sem þeim var úthlutað til að byrja með. Van Damme fer úr við hvert tækifæri (og stundum án þeirra) og virðist halda að það sé bara ekkert farið að slá í sig. Það er eiginlega ekkert meira um þetta að segja annað en að utan um herlegheitin er svo klambrað pólitískum og sögulegum ramma með því að staðsetja hasarinn á sama tíma og Hong Kong flutti sig milli stjórnarfara. Hvað sá rammi kemur málinu er hvers manns ágiskun. Úlfhildur Dagsdóttir þetta menntaskólalokaballs-form, en þessi sjálfsmeðvitund gengur þvl miður ekki nógu langt, og klisjurnar hlaðast æ hraðar upp eftir því sem líður á myndina. -úd meira á www.visir.is > 11. desember 1998 f Ó k U S 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.