Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 10
Plötu- dómar Bubbi - Arfur irkirk „Bubba hlýtur að líða vel!“ -ps Magga Stína - An Album irkkk „Tónlistin á þessari plötu er næstum því yfirþyrmandi æðisleg." -glh Tvíhöfðl - Til hamingju! kkkk „Ógeösiega fyndið!* -glh 200.000 Naglbítar - Ne- ondýrln kkkk „Mikil- vægari en D-vítamín. Ref- ur fyrir rass. Perlur fyrir svfn." -ae Bang gang - You kkk „Ein- faldlega góð poppplata" -glh Súrefnl - Wide nolse kkk „Súrefni eru á góðu flugi og þetta er flott plata." glh Mix master Mlke - Antl-theft device: kkk „Mér líkaði þara vel viö diskinn og mæli með Þjófavörn fyrir alla þá sem fila tónlist af þessu tæi." ghg Lög viö Ijóð Dlddu - Strok- Ið og sleglð kkk „Maður þarf ekki að vera víðþuxa unglingur til að hafa gaman af gripnum." -ae Ensíml - Kafbátamúsík ★★★ „Ensími er ferskt band og þessi plata er lamin áfram af greinilegum áhuga og ánægju." -glh Sigur Rós - Vonbrigði kkk „Hér tekur íslenska tölvu„dans“tónlistin stórt skref fram á við." -glh Lhooq - Lhooq kkk „Lhooq er virkilega kúl." -ps Unun - Ótta kkk „Unun er rammíslensk og kemur út öll sterkari." -ps Rúnar Júlíusson - Farands- skugglnn ★★★ „Rokkari af Guðs náð" -ae Bellatrix - g ★★★ „Samruni hefð- bundinna rokklaga við teknóblæ- brigði og útkoman er nokkuð mis- jöfn." -ps Ragnar Sólberg - Uppllfun! kkk „Ágætis rokkplata en ungæðisleg í hugsun." -glh Ný dönsk - Húsmæðragarðurinn kk „Maður hefðí vonast til að eftir fimm ára fjarveru hefði hljómsveitin upp á eitthvað nýtt að bjóða." -ae Ummhmm - Haust ★★ „Krakkarnir í Umm- hmm eru á ágætu róli í sínu afmarkaða rauð- vfnsgutli" Sóldögg ★★ „Gott popp og pirrandi miðjumoð" -glh || dálítið upp á þroska rokks- J ins" -gih Ýmsir flytjendur - Nelstar ★★ „Þetta eru lyftulög unga fólksins" glh Ýmsir flytjendur - Popp í Reykjavík kk „Bragðdaufar eftirlíkingar af því sem þyk- ir/þótti fint úti í heimi." -ae Lög vlð IJóð Stelns Steinarrs - Heimurinn og ég ★ „Algerlega laus við frumleika, áræði eða nokkuð sem gæti lyft henni upp úr flatneskjulegum útsetningum." -ae Jóel Pálsson, 26-ára saxófón- leikari, gaf nýverið út diskinn „Prím“ með frumsömdum djassi. Útgáfutónleikarnir verða fimmtu- daginn 17. desember í Iðnó og að- alástæðuna fyrir þessari töf segir Jóel þá að hann vildi hafa sömu spilarana og á plötunni og tveir úr hópnum búa erlendis en eru hér um jólin. En er djass ekki dautt fyrirbœri? „Engan veginn", segir Jóel og er ekki í minnsta vafa. „Djassinn er tónlist framtíðarinnar. Nei, án gríns, þetta er svo víðtækt orð að það er erfitt að skilgreina tónlist- ina með þessu eina orði. Djass er alveg frá dixíland út í avant-garde og einhverja hljóðskúlptúra. Ég er viss um að þegar nýjabrumið fer af tölvubyltingunni og allt verður orðið tæknivæddara og geril- sneyddara eykst þörfin á náttúr- legri sköpunarframleiðslu. En það „Við vorum á Sir Oliver áður en erum nú á Glaumbar," segir Pétur Örn Guðmundsson, einn af for- sprökkum hinna margrómuðu Bítla. Og eruói þá með sjóv og svona? „Þetta hefur bara verið svona gagnvirkur margmiðlunarhópur. Blanda af músík og fiflaskap. Við má auðvitað tileinka sér nýmóð- ins sánd og það sem tæknin býður upp á. Fyrst og fremst hef ég áhuga á að gera nýja tónlist, sama í hvaða flokk menn vilja setja hana.“ Hvað ertu aö pœla á „Prím"? „Mig langaði að gera órafmagn- aða plötu - að undanskildum Hilmari gítarleikara, sem mátti setja í samband. Platan er aðal- lega sönnunargagn, afhjúpun. Ég lít á hana sem nafnspjald og hún er ágætur þverskurður af hluta af því sem ég verið að pæla í að und- anfómu. Ég fæ með mér bestu hljóðfæraleikara landsins og hljóðfæraskipanin er mjög mis- jöfn eftir lögum. Þeir setja mikinn svip á plötuna - sessjónin voru mjög opin. Það sem gerðist var látið standa og ég er viss um að útgáfutónleikarnir verða allt öðruvísi en platan." erum allavega að skemmta sjálfum okkur en það er líka fastur hópur sem mætir. Þetta eru að verða komnir 30 sunnudagar í röð sem við höfum verið að spila.“ Þar á meðal fengu piltarnir The Boys frá Noregi einu sinni með sér. En þeir eru orðnir unglingar og næstum því farnir að raka sig. Eru Hvernig á aó hlusta á plötuna? „Maður á ekki að setja sig í neinar stellingar - ég held það eigi við um alla músík. Það er mjög misjafnt hvernig fólk hefur tekið þessari plötu, sumum finnst hún léttmeti, öðr- um finnst þetta erfið músík.“ Mun betra en að grafa skurði Ég hef aldrei almennilega skilið djass. Þarf einhvers konar þjálfun til aó ná djassi? „Ja... Fólk hlustar á tónlist á mjög misjöfnum forsendum. Fyrst og fremst finnst mér að tónlist eigi að vera skemmtileg og mér finnst ekkert verra þótt hún kitli einhverjar heilastöðvar í leiðinni - það þarf að vera eitthvað óvænt í henni.“ Hefurðu alltaf veriö djassgeggjari? kannski hinir einu sönnu Bítlar og þess vegna tóku þeir Pétur og félag- ar þeim bræðrum opnum örmum. Hvernig tónlist spiliói? „Við spilum ekki bara bítlalög. Nafnið var fyrst og fremst hugsað sem pöbblissitístönt." Þeir eru sem sagt alls ekki ein- hver ný Sixties-hljómsveit og ættu „Já, en ég spila flesta músík, popp í leikhúsum og hef jafnvel spilað með sinfóníunni. Öll mús- ík er fín og ég sé enga ástæðu til að míga yfir neitt af þessu, ég er enginn fanatiker. Mín ástríða felst í því að semja og spila mús- ik sem er krefjandi fyrir flytjend- ur. Það er kikkið sem ég fæ út úr þessu.“ Lifir þú á músík? „Já, og ég tel mig geysilega heppinn. Það eru algjör forrétt- indi að geta lifað á þessu - þetta er allavega mun betra en að grafa skurði. Ég hef lifað á þessu í fjög- ur ár og það er frábært eins lengi og ég get gert nákvæmlega þá músik sem ég vil með fram hinu. Það er kostur að vera innan um músfk alla daga, sama hvaða músik sem það svo annars er.“ -glh Bítlana skipa þeir Vilhjálmur Goöi, Bergur Geirsson, Karl Olgeir og Pét- ur Örn Guðmundsson. ekki að þurfa að óttast þá líkingu. Er plata vœntanleg? „Það hefur ekki verið í deigl- unni, þannig séð. Við höfum hing- að til bara verið að leika okkur en það er ekki útilokað. Við höfum annars ekkert rætt þetta og erum allir á fullu í öðru,“ segir Pétur að lokum. -MT Bítlarnir eru að slá í gegn á Islandi. Á hverju sunnudagskvöldi mæta þeir á Glaumbar og sprella. Þeir spila allt frá Helter Skelter og yfir í Titanic-lagið. Þess á milli fíflast þeir og eru með uppistand. Það er sem sagt mikið um hlátur og alíslenskan kjánaskap á tónleikum hjá þeim Bítlum. 10 f ÓkUS 11. desember 1998 FÓKUSMYND: HILMAR ÞÓR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.