Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 29
Ungu leikararnir Sögusögnum og Hairshirt þar sem mótleikkona hennar er Neve Campbell sem lék á móti henni í Scream 2. 4. Joshua Jackson Joshua Jackson hefur undanfar- in tvö ár leikið í vinsælli sjón- varpsseríu í Bandaríkjunum, Daw- son’s Creek. Með fram hefur hann verið að leika í kvikmyndum eins og hann hafði gert áður en hann fór í sjónvarpið. Jackson lék í sinni fyrstu kvikmynd, Crooked Hearts, árið 1991og lék í framhaldi nokkur lítil hlutverk í kvikmyndum. í Scr- eam 2 leikur hann einnig eitt auka- hlutverkið. Fljótlega fáum við að sjá hann í Apt Pupil, sem leikstýrt er af Bryan Singer (The Usuual Suspect), þar sem mótleikarar hans eru Ian McKellan og Brad Renfro og Cruel Intentions, sem er nútíma- útfærsla á Dangerous Liaisons. Þar eru mótleikarar hans Sarah Michelle Gellar og Ryann Philippe. -HK Roth og Mr. Holland’s Opus á móti Richard Dreyfuss. Fyrsta stóra hlutverk hennar í kvik- mynd var i Fun, sem frumsýnd var á Sundance-kvikmyndahá- tíðinni 1995. Fyrir leik sinn í henni fékk hún sérstök gagn- rýnendaverðlaun á hátiðinni. Witt var undrabarn á píanó og vann til margra verðlauna fyrir píanóleik allt frá sjö ára aldri. Þegar hún var 14 ára fékk hún sitt fyrsta hlutverki í Dune, sem David Lynch leikstýrði. Hann fékk henni síðan hlutverk i Twins Peaks. 3. Rebecca Gavheart Rebecca Gayheart var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún fékk inni á hinum virta leik- skóla Lee Strasberg Institute. Með skólanum fékk hún hlut- verk í auglýsingum og varð þekkt sem Noxzema-stúlkan. Eftir að hafa leikið nokkur ár í sjónvarpi fékk hún hlutverk í Somebody Is Waiting á móti Gabriel Byrne og Nastassja Kinski og Nothing to Loose á móti Tim Robbins og Martin Lawrence. Hún fékk svo í kjöl- farið stórt hlutverk í Scream 2. Nýlega lauk hún við leik i Hang- man’s Daughter, sem er fram- hald af hinni gráglettnu hryll- ingsmynd From Dusk Till Dawn Jared Leto Jared Leto byrjaði feril sinn i hinni rómuðu sjónvarpsseríu My So Called Life og á það sam- merkt með Claire Danes að hafa stigið sín fyrstu skref til frægðar í henni. Hann hefur verið iðinn við kolann á þeim fáu árum sem hann hefur verið að leika og hef- ur þegar leikið í mörgum kvik- myndum, má þar nefna Switchback, The Last of the High Kings, Basil og How to Make an American Quilt. Næstu tvær kvikmyndir hans eru The Thin Red Line, stríðsdramað mikla sem leikstýrt er af Ter- ence Malick, þar eru mótleikar- ar hans meðal annars Sean Penn, John Travolta, George Clooney, Woody Harrelson og Nick Nolte, og Fight Club, sem David Fincher leikstýrir. Mót- leikarar hans þar eru Brad Pitt og Edward Norton. Alicia Witt Síðastliðin fjögur ár hefur Alicia Witt leikið í sjónvarpsser- íunni Cybill þar sem hún leikur dóttur Cybill Shepard. Kvik- myndahlutverk hennar eru ekki mörg. Það má sjá henni bregða fyrir í Four Rooms á móti Tim 11. desember 1998 f Ó k U S 29

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.