Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Side 2
2 MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 Fréttir Stuttar fréttir i>v Útihús í Berjanesi og á Steinum undir Eyjafjöllum eyðilögðust í veðurofsanum: Milljónatjón en hús- in fást ekki tryggð DV, Eyjafjöllum: Þetta er tjón upp á milljónir, þetta er hlaða sem er 8 metra víð og 17 metra löng og hún er öll ónýt, veggir, þak og stór hluti af heyinu og þar að auki rifnaði af fjórum sperrubilum af ijósinu, einnig af fjárhúsi hinum megin við hlöðuna," sagði Vigfús Andrésson, bóndi í Berjanesi undir EyjafiöUum, við DV. Hann sagði að óveðrið hefði komið eins og hendi væri veifað, hann hefði verið að koma úr Reykjavík seint á fóstudagskvöld og þá hefðu fyrstu vindhviðurnar verið að skella á hús- inu hjá honum. Vigfús sagði að hlað- an hefði byrjað að gefa sig um nótt- ina og restin af henni fokið á laugar- deginum. Veðurhamurinn hefði ver- ið hreint ótrúlegur. Kominn hálfur út um gluggann „Það rak á þessar feikna vindhvið- ur og á milli þeirra var stundum allt að þvf blæjalogn. í logninu varð loftþrýstingurinn svo mikill að maður fékk hellu fyrir eyrun, nálin á loftvoginni hér uppi á veggnum dans- aði upp og niður meðan á þessu stóð. í einni vindhviðunni brotnaði gluggi hér uppi á lofti og við fórum strax að reyna að negla fyrir hann. Þá vildi ekki bet- m- til en svo að í einni helgina. vindhviðunni feyktist hlerinn út úr höndunum á okkur og hamar sem ég hélt á þeyttist út í buskann og við höfum ekki fundið hann enn. Ég var komin hálfur út um gluggann þegar strákurinn minn náði taki á mér,“ sagði Vigfús. Einnig fuku rúður úr dráttarvél Vegna rafmagnsleysis varð Kristján Guðmundsson, bóndi á Steinum III, að handmjólka kýrnar um DV-myndir NH og rétt sem stóð undir fjósveggnum tvístraðist. Rafmagnslaust og kalt í Berjanesi var búið að vera raf- magnslaust frá því snemma aðfaranótt laugardags og orðið kalt í Vigfús Andrésson í rústum fjóshlöðunnar að Berjanesi. DV-mynd NH húsinu og þegar fréttaritari kom þangað um hádegi á sunnudag var hitinn inni í húsinu 6 stig. Fyrir Vig- fús er tjónið mikið en var tryggt hjá honum? Nei, héma fæst ekki tryggt og bóndi hér í sveitinni er með bréf frá tryggingafélögunum þar sem segir: „Útihús ekki foktryggð undir Eyja- fjöllum." Þvi er skaðinn enn meiri. Þetta er svipað eins og tryggingafélög myndu segja að þau tryggðu ekki báta í Grindavík af því þeir sökkva frekar en á Akureyri eða vegna þess að bílaárekstrar eru fleiri í Reykja- vík en undir Fjöllunum þá tryggjum við ekki bílana í Reykjavík. Þetta nær náttúrlega ekki neinni átt,“ sagöi Vigfús Andrésson í Betjanesi. 17 vindstig Á Steinum undir Eyjafjöllum fauk þak af fjóshlöðu í heilu lagi og feykt- ist yfir útihús, vélar og bila. Að sögn Sigurjóns Pálssonar, bónda á Stein- mn, fór þakið aðfaranótt laugardags- ins. Þá, og þegar veðrið náði sér upp aftur á laugardagskvöldið, brotnuðu margar rúður í bílum og vélum. Ekk- ert hey var í hlöðunni á Steinum en þar var fóðurbætir geymdur ásamt fleiri hlutum. Ljóst er því að millj- ónatjón hefur orðið á Steinum á hús- um, tækjum og fóðri. Menn og skepn- ur virðast hafa sloppið heil úr þessu feiknaveðri. í sjálfvirkri veðurstöð við Steina mældist 17 vindstiga hviða á laugardeginum. -NH Töpuðu tugum milljóna á viðskiptum við Rúnir og Brúnir sf.: Níu ákærðir í stórsvikamáli - þóttust hafa milligöngu fyrir nemendafélög framhaldsskóla Ríkissaksóknari hefur höfðað tvö umfangsmikil sakamál á hendur átta reykvískum karlmönnum og einum búsettum í Noregi þar sem þeir eru ákærðir fyrir kerfisbundin tugmiiljóna króna fjársvik og skjalafals gegn fjölda fyrirtækja víðs vegar um landið á árunum 1996 og ‘97. Tugir tonna af matvörum, mikið af byggingarvörum, áfengi og tóbaki, bílar og margt fleira var það sem svikið var út og ekki greitt fyr- ir af hálfu sameignarfélaganna Rúna og Brúna. Markmiðið með stofnun þeirra virðist, miðað við sakargiftir, hafa verið að svíkja sem mest út og þræta svo fyrir allt sam- an. Réttarhöld í málunum eru gríð- arlega flókin, tugir vitna leiddir fyr- ir dóm í hvoru máli og sakborning- ar neita að miklu leyti sökum. Þar kannast menn m.a. ekkert við að hafa sett nöfn sín á fjölda innstæðu- lausra tékka. Tugir tonna af kjötvörum og fiski, áfengi, bílar og fleira Sem dæmi um svikin hljóðar 1 ákæruliður af 13 þannig að þremur af níumenningunum eru gefin að sök 6,9 miiijóna króna fjársvik og skjalafals með því að hafa blekkt ýmis fyrirtæki með því að segja að Rúnir sf. hefðu miliigöngu fyrir nemendafélög ýmissa framhalds- skóla sem ætluðu vörurnar til end- ursölu í fjáröflunarskyni. Salan fóru yfirleitt fram í síma þannig að viðskiptaaðilar sáust ekki. Kaup- endur spurði gjarnan hvort ekki mætti skrifa ávísun nokkrar vikur fram í tímann. Fyrirtækin sam- þykktu það oftast eftir að hafa kann- að „hreinar" kennitölur sem upp voru gefnar. Á gjalddögum reyndust síðan engar innstæður á reikning- unum. Með þessu móti er mönnunum gefið að sök að hafa svikið út 5,1 tonn af lambakjöti, að andvirði 2,1 milijón, frá Sláturfélaginu Barðan- um á Þingeyri. Kjötið seldu þeir síð- an Nóatúni í þrennu lagi fyrir sam- tals 1,7 milljónir króna. Nokkru síð- ar voru 3,2 tonn af ýsu, að andvirði 1,1 milljón króna, svikin út frá Út- gerðarfélagi Akureyringa og seld einstaklingi fyrir 469 þúsund. Tæp 4 tonn af kjúklingum voru svikin út frá Reykjagarði, Alifuglabúinu Fögrubrekku í Akraneshreppi og Vori í Villingaholtshreppi fyrir and- virði um 2 milljónir króna og selt ýmsum aðilum á um 1,3 miiijónir. Ágóða fyrir kjúklingabita átti að nota í skólaferðalög Vélsleði var einnig svikin út frá Merkúr í Skútuvogi, Toyota Hiluxjeppi frá P. Samúelssyni, tölvubúnaður með kaupleigu frá Glitni og margt fleira. Annað dæmi lýtur að því að tveir af níumenning- unum blekktu starfsmann Fjöreggs í Eyjafirði til að láta af hendi 2513 kíló af kjúklingabitum sem send voru suður með vöruflutningabíl. Kaupin voru gerð undir þvi yfir- skini að Rúnir sf. væru að útvega framhaldsskólanemum kjúklinga- bitana til að selja vinum og vanda- mönnum - ágóði yrði notaður til skólaferðalaga. Húsasmiðjan, BYKO, Bónus, Eð- alfiskur, Harpa hfi, Kjötumboðið hf., ÁTVR, Penninn sfi, Hekla hf. og Samvinnusjóður íslands voru meðal annarra sem urðu fyrir þessum tug- milijóna króna svikum, oftast með tékkum, skuldabréfum eða víxlum. Annað málanna hefur verið tekið til dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur en vitnaleiðslur hefiast á næstunni í þvi siðara. -Ótt Á laugardaginn var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um að bíl hefði verið ekið út af við Skothúsveg og væri hann við það að velta út í Tjörnina. Betur fór en á horfðist og var bíllinn dreginn upp á götuna. DV-mynd HH Diplómat í Afríku Unnið er að því að fá aðstöðu fyrir íslenskan diplómat í sendi- ráði Dana og Norðmanna í Mó- sambik. Halldór Ásgrimsson ut- anríkisráðherra segir mjög mikilvægt fyrir íslend- inga að fá slíka aðstöðu í Afríku. Sjónvarpið greindi frá þessu. Engin loðnuveiöi Lítið sem ekkert hefur veiðst af loðnu um helgina en veður á mið- unum hefur verið afleitt, 8 til 9 vindstig. Stór hluti loðnuveiðiflot- ans var í höfn á Norðfirði í gær- kvöld og aðeins tvö skip á sjó, Öm KE 13 og Víkurberg GK 1, sam- kvæmt upplýsingum Tilkynninga- skyldunnar. Dómur vegna vinnuslyss Héraðsdómur Suðurlands dæmdi fyrir skömmu tsfélag Vestmanna- eyja til að greiða verkamanni sin- um um 1,2 milljónir króna ásamt vöxtum vegna vinnuslyss. ísfélagið hélt því fram að aðgæsluleysi mannsins heiði orsakaö slysið, en dómurinn samþykkti það ekki. RÚV greindi frá. Umhyggja styrkt Flugfélag Islands hf. sendi ekki jólakort til viðskiptavina sinna fyr- ir síðustu jól - en notaði peningana, sem til þess hefðu farið, til að styðja við bakið á styrktarsjóði Umhyggju sem er félag til stuðnings langveik- um börnum. Sjóðurinn var stofnað- ur fyrir tveimur árum. Ný frjóvgunartækni Guðmundur Arason, læknir á Landspítalanum, segir að búast megi viö að ný tækni við frystingu eggja verði komin í notkun og farin að nýtast islenskum konum innan nokkurra ára. Stöð 2 greindi frá þessu. Verðbólguspá FBA Talsmenn FBA segja að gagnrýni á verðbólguspá bankans sé á mis- skilningi byggð. Bankinn spáir nokkuð hærri verðbólgu en Seðlabankinn óg Þjóðhagsstofnun. Astæðan er að FBA býst við meiri verðhækkunum á vörum og þjónustu á árinu. Stöð 2 greindi frá. Árangur af kornrækt Kornrækt skUar góðum árangri í Borgarfirði og hefur hún minnkað fóðurkostnað bóndans í Ásgarði um helming. Nyt mjólkurkúnna sem fá fóðrið hefur jafnframt aukist. Stöð 2 greindi frá þessu. Nýr slökkviliðsbíll Brunavamir Rangárvaliasýslu hafa tekið i notkun nýjan slökkvi- liðsbO sem er einn hinn fullkomnasti á landinu. Þar með er bætt úr brýnni þörf því eldri slökkvUiðsbílar voru orðnir lúnir. Stöð 2 sagði frá. Málþing um Jón Leifs Á þessu ári eru hundrað ár liðin frá fæðingu tónskáldsins Jóns Leifs. Af því tUefni var efnt til tónleika og málþings um Jón i Gerðubergi um helgina. Sjónvarpið sagði frá þessu. Veður skemmir prófkjör í báðum Norðurlandskjördæm- unum, eystra og vestra, stóð yfir prófkjör hjá framsóknarmönnum á laugardag og sunnudag og átti að ljúka í gærkvöld. Veðrið setti hins vegar strik í reikninginn og nú hef- ur verið ákveðið að prófkjörunum ljúki ekki fyrr en á þriðjudag. Gyiliboð Pétur Blöndal alþingismaður segir að tUboð fiármálafyrir- tækja úm háa ávöxtun á viðbót- arlifeyrisspam- aði séu gyUiboð. Ekki er raunhæft að hans mati að bjóða hærri lang- tímavexti en 3-4%. Sjónvarpið greindi frá. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.