Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999
Útlönd
Stuttar fréttir dv
^ Ekkert lát á bardögunum í Kosovo:
Óbreyttir borgarar
limlestir og myrtir
Serbneska lögreglan barðist í gær
við frelsisher Kosovo-Albana í bæn-
um Racak sem er í 25 kílómetra fjar-
lægð frá höfuðborginni Pristínu.
Eftirlitsmenn Öse, þorpsbúar og
fréttamenn voru tilneyddir til að
leggja á flótta undan kúlnahríðinni.
Aðeins örfáir öldungar urðu eftir í
þorpinu.
Lík fjörutiu og fimm óbreyttra
borgara fundust á laugardag i
skurði í grennd þorpsins Racak.
Flest fórnarlambanna höfðu verið
skotin á stuttu færi og nokkrir lim-
lestir.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, fordæmdi morðin harðlega og
sagði þau augljóslega vera alvarlegt
brot á samkomulagi serbneskra yf-
irvalda við Nató.
Þá sagðist Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
hvetja Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslaviu, til þess að handsama þá
sem bæru ábyrgð á morðunum og
láta þá taka afleiðingum gjörða
sinna.
Serbneska lögreglan hóf liðssöfn-
uð í gær eftir að liðsmenn frelsis-
Porpsbúar í Racak syrgja iátna
ástvini sína. Símamynd Reuter
hersins hófu skothríð. Engar upp-
lýsingar lágu fyrir í gærkvöld um
hvort mannfall heföi orðið i þeim
bardögum.
íoktóber síðastliðnum gaf Atl-
antshafsbandalagið hersveitum sín-
um leyfi til að skjóta á hernaðar-
mannvirki í Júgóslavíu ef stjóm-
völd í Belgrad yrðu uppvis að því að
fara á bak orða sinna í deilunni við
aðskilnaðarsinna í Kosovo.
Þegar leitað var eftir því við
bandarísk stjórnvöld í gær hvort
þau hygðust þrýsta á
hernaðaraðgerðir neituðu þau því.
Ibrahim Rugova, foringi frelsis-
hers Kosovo-Albana hvatti í gær til
þess að herir Nató gerðu
umsvifalaust árás. Hann sagði
fjöldamorðin óhugnanlegan glæp
sem kallaði einnig á skjót viðbrögð
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Fulltrúar Atlantshafsbandalags-
landanna sextán hittust á neyðar-
fundi í Brussel i gær. Hugðust full-
trúarnir ræða hugsanleg viðbrögð
við morðunum og var fundurinn
haldinn fyrir tilstuðlan Madeleine
Albright. Æðstu embættismenn í
Washington komu einnig saman i
gærkvöld til þess að ræða stöðuna.
Heimildir innan Nató hermdu í
gærkvöld að ólíklegt væri að herir
bandalagsins myndu grípa til vopna
að svo stöddu.
Albönsk kona fórnar höndum eftir aö hún komst að því aö bróöir hennar var einn hinna 45 Kosovo-Albana sem voru
myrtir í þorpinu Racak í Suður-Kosovo um helgina. Líkin fundust í skurði á hæð skammt utan þorpsins. Hermenn
Júgóslavíuhers hafa nú umkringt þorpiö. Símamynd Reuter
Fluttur fárveik-
ur á spítala
Boris Jeltsíns Rússlandsforseti
var í gær fluttur fárveikur á spitala
í Moskvu. Jeltsín mun vera með
blæðandi magasár sem hugsanlega
má rekja til mikillar neyslu hans á
aspiríntöflum. Forsetinn veröur
rúmfastur á næstunni og þarf
hugsanlega að fara í aðgerö vegna
sjúkdómsins.
Aðstoðarmenn forsetans til-
kynntu í gærkvöld að Jeltsín væri
úr allri hættu. Andstæðingar for-
setans tala nú um að flýta beri for-
setakosningum sem áætlaðar eru
um mitt næsta ár.
Clinton heldur
stefnuræðu
Bill Clinton heldur stefnuræðu
sína á morgun og verður henni sjón-
varpað beint. Ræðan verður söguleg
vegna þess að forsetinn heldur ræð-
una á sama tíma og réttarhöld yfir
honum standa yfir. Stuðningsmenn
Clintons blása á þá sem gagnrýna
tímasetninguna og segja forsetann
saklausan uns sekt hans sé sönnuð.
Búist er við að 50 milljónir manna
muni hlýða á ræðuna.
Bréfið frá Elvis
39 ár á leiðinni
Aðdáandi Elvis heitins Presleys
fékk á dögunum í hendur bréf frá
honum sem hafði verið 39 ár á leið-
inni. Viðtakandinn, Karen Golz,
hafði beðið Elvis að senda sér eig-
inhandaráritun á 11 ára afmæli
sínu árið 1960. Aldrei kom bréfið
og viöurkenndi Karen að hafa grát-
ið á afmælisdaginn.
Við Presley var þó ekki að
sakast því hann svaraði bréfinu
um hæl en það dagaði uppi hjá
leigusala hans í Oberhausen í
Þýskalandi þar sem söngvarinn
gegndi herþjónustu. Bréfið fannst
svo þegar leigusalinn lést nýlega og
var sent Karen um hæl.
HÁRTOPPAR
Fráj BERGMANN?
og HERKULES
Margir j
verðflokkar r l
Rakarastofan
Klapparstíg
Sex rænt í Jemen
Fjórum ferðamönnum, tveimur
Bretum og fjórum Hollendingum,
var rænt í Jemen í gær. í hópnum
eru að minnsta kosti tvö börn.
Bóndi tekinn af lífi
Kínverskur bóndi var tekinn af
lífi á föstudag fyrir að stela verð-
lausu búddalíkneski. Á síðasta ári
voru 1.876 liflátnir í Kína sem eru
fleiri en alls staðar annars staðar
í heiminum.
Sprengja við sendiráð
Minni háttar sprengja sprakk
við bandaríska sendiráðið í
Moskvu í gær. Bifreið og varðskýli
lögreglu skemmdust nokkuð.
Breytt lávarðadeild
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, mun í vikunni mæla fyrir
frumvarpi sem
ætlað er að fella
brott erfðarétt
aðalsmanna til
setu í Lávarða-
deildinni. Alls
eiga 1300 full-
trúar sæti í Lá-
varðadeildinni
og þar af eru
300 í skjóli erfðaréttar. Blair vill
stofna nefnd sem endurskoði regl-
ur um deildina og færi hana í átt
til nútímans.
Fjórir myrtir
Múslímskir uppreisnai-menn i
Alsír skáru fjóra fjárhirða á háls
um helgina. Alls hafa 140 verið
drepnir síðan Ramadan hófst en á
sama tíma í fyrra var tala látinna
í kringum tólf hundruð.
Kólerufaraldur
Kólera geisar á Tansaníu og
hafa 56 látist af völdum sjúkdóms-
ins. Talið er að á sjötta hundrað
manns séu nú veik af kóleru.
Chagall boðinn upp
Gríðarlegur fjöldi fólks mætti á
sýningu á verkum málarans
Chagalls í Sviss um helgina. Á
sýningunni voru 40 olíumálverk
sem ekki hafa komið fyrir sjónir
manna áður og var söluandvirði
þeirra áætlað um 700 milljónir.
Ræða efnahag Brasilíu
Fjármálaráðherra Brasilíu,
Pedro Malan, átti fund með fulltrú-
um Alþjóða-
gjaldeyrissjóðs-
ins og starfs-
mönnuníbanda-
ríska fjármála-
ráðuneytisins
um helgina.
Malan ræddi m.
a. aðgerðir síð-
ustu viku þegar
gjaldmiðillinn var látinn fljóta
vegna mikils dollaraflótta. Aðgerð-
in þykir hafa tekist þvi gjaldmið-
illinn lækkaði minna en gert hafði
veriö ráð fyrir.
Viagra banvænt
Kynlífsmeðalið Viagra hefur
átt þátt í dauða fimm Breta á að-
eins sex mánuðum. Þetta kom
fram í breska dagblaðinu
Independent um helgina. í Banda-
ríkjunum hefur pillan góða verið
sett í samband við 69 dauðsfoll.
w
SKATTAR OG FJARMÁL
Þann 27. janúar mun aukablað um skatta og
fjármál fýlgja DV.
Þar verður fjallað um flest það sem
viðkemur sköttum og fjármálum
heimila og einstaklinga.
Umsjón efnis:
Jóhanna Á. H. Jóhannsdóttir
í síma 550 5930,
netfang dvritst@ff.is
Umsjón auglýsinga hefur Gústaf
Kristinsson í síma 550 5731
Auglýsendur athugið!
Síðasti skiladagur auglýsinga
er fimmtudagurinn 21. janúarl