Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 16
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 16 menning Gömlu, góðu dagar Segja má að dulúð liðinna tlma svífi yfir vötnum í Gerðarsafni í Kópavogi um þessar mundir en listamenn- irnir sem þar sýna, Haukur Harðarson, Nobuyasu Yamagata og Sigríður Rut Hreins- dóttir, leita öll með ein- hverjum hætti til for- tíðarinnar í sköpun sfnni. Haukur sýnir dular- fullar „fornminjar" í austursalnum - kistur og krukkur fullar af ljósum sandi. Lág- myndir af goðsagna- kenndum mönnum og dýrum prýða kistulok- in sem liggja á gólfinu. Upp úr sandinum gægj- ast sömuleiðis fuglar, skáldfákar og aðrar kynjaskepnur. Yflrskrift sýningarinnar, Frelsi og ijötrar, gefur ýmislegt í skyn en ég átta mig ekki alveg á boðskapnum. Ef til vill má líta á hina mörg þúsund ára gömlu hefð sem listin hvílir á sem fjötra en þar sem þetta eru forn- aldarverk í nútímaútgáfu er ólíklegt að Hauk- ur sé að reyna að brjóta þá af sér. Kannski hann vilji endurvekja frelsi löngu liðins tíma sem liggi graflnn í þessum steinkistum. Lýs- ingin í salnum er takmörkuð, minnir mjög á sótt aftur í aldir - myndskreyt- ingar handrita voru kallaðar lýs- ingar - og því til áréttingar er eitt verkið málað á bókfell. Listamanninum liggur mikið á hjarta. í texta með sýningunni kemur fram að hann líti á bók- stafinn sem tákn fyrir menning- una. Hann virðist upptekinn af sjálfseyðingarhvöt mannskepn- unnar því í myndunum eru aug- ljós tákn um græðgi, eiturlyija- neyslu, striðsrekstur, mengun og fleira því líkt. f textanum seg- ir ennffemur að orðið lýsing þýði líka ljós sem feli í sér lífs- von og trú til framtíðar. Hún birtist til dæmis í myndinni af Kristi sem gengur ofar skýjum á grannri linu með manninn í fanginu, en þar má ekki miklu skeika ef vel á að fara. Verk eftir Hauk Harðarson. fornminjasafn, aðeins daufir ljóskastarar sem lýsa upp verk- in. Þetta eru áferðarfaUeg og vel unnin verk sem gaman er að skoða. Þau jaðra við að vera kítsuð, myndu sjálfsagt slá í gegn í blómabúðum. En það svo sem er ekkert slæmt. Súrrealískur blær Á neðri hæð safnsins sýnir Sigríður Rut þrettán myndir, nostursamlega málaðar með mikilli olíu í djúpum litum. Þær hafa eitthvað mikið við sig, einhvern gamaldags ljóðrænan og súrrealískan ævintýrablæ. Konuandlit gægist út úr trjá- stofni, búklaus barnshönd snertir hauslausan konulík- ama, fiflar teikna andlit og fólk með leggnum. Það er gróður af einhverju tagi í öllum myndun- um, blóm, tré og lauf en einnig bregður fyrir flugum, fuglum og konum. Nátt- úran hefur sál, hún er fúll af ljósálfum og blómálfum og það búa góðir _____________ andar í trjám, stokkum og steinum. Þetta eru fallegar og hljóð- látar myndir, fullar af hlýju og notalegri nálægð. Nobuyasu Yamagata: Úr Lýsingu. Myndlist Áslaug Thorlacius Sigríður Rut Hreinsdóttir: í eigin heimi. Bókstafur tákn menningar Yamagata sýnir oliumálverk í vestursaln- um. Sýningin ber heitið „Lýsing" en þá yfir- skrift hefur hann haft á sýningum sínum frá árinu 1992 og er þessi sú fimmta. Nafnið er Þetta er skrýtin sýning sem ber það svolítið með sér að vera máluð á löngum tíma. Elstu myndimar eru ffá 1992-93 og þær yngstu varla þornaðar og því eru þær nokkuð ólíkar inn- byrðis. Ekki eru þær beinlínis fallegar en ég býst heldur ekki við að það sé meiningin. í einu homi salarins er gler- skápur sem stingur dálítið í stúf. Þar hanga tvær „kven“-fiðlur sem listamaðurinn hefur smíðað, sannkölluð dvergasmíði. Guðný Guð- mundsdóttir mun hafa leikið verk eftir Atla Heimi á aðra þeirra á opnunardaginn. Synd að missa af því. Væn og græn Gunnlaugur Guðmundsson bassaleikari hef- ur ekki setið auðum höndum frá því að hann hélt út til Hollands fyrir nokkrum árum. Árið 1996 kom hann hingaö á RúRek-hátíð með píanó- tríói Wolfert Brederode, sem gaf svo stuttu seinna út plötu sem hefur fengið ótrúlega litla kynningu í fjölmiðlum hérlendis. Og nú síðastliðið haust kom út plata með annarri hljómsveit sem Gunn- laugur spilar með, Flori- an Zenker/Christian Kappe 4tet. Hana skipa fjórir ungir menn, Flori- an Zenker gítarleikari, Christian Kappe trompet- leikari, „Gulli Gud- mundsson" bassaleikari og Eddy Lammerding trommuleikari. Þessi hljómsveit hefur verið að gera garðinn frægan í Hollandi og Þýskalandi, hefur spflað á djasshátíð- um víða í Evrópu, m. a. á Gunnlaugur Guðmundsson bassaleikari Norðursjávarhátíðinni í Haag. Árið 1997 vann hljómsveitin bæði djasssamkeppni Hollands og Þýskalands. Á nýliðnu ári kynntu þeir síðan plötu sína, It's Green, á alþjóðlegu djasshátiðinni í Bogotá. Gítarleikarinn Florian Zenker á flest lögin á plötunni, 6 lög af 8, en þeir Gunnlaugur og trompetistinn Christian Kappe eiga hvor sitt lag. Platan hefst á titiflaginu „It’s Green“, sem er all- hraður ópus í 7/8 takti. Næst er svo lag Gunn- laugs, „Dextrot--------- estrone“, fallegt lag í rólegri kantinum. Tónlist þeirra er ------- nútímaleg, angi af bebop-meiðinum eins og raunar mik- ið af djasstónlist samtím- ans. En þrátt fyrir nú- tímalegt yfirbragð er hún engan veginn það sem kalla mætti „framúr- stefnuleg“, þ. e. tónlistin inniheldur laglínu, hljóma og takt og stendur að því leyti föstum fótum í hefðinni. Ég veit vitaskuld ekki hvað þeir félagar myndu segja sjálfir um sína tónlist, en ég held að flestir spilarar nú til dags séu yfirleitt ekki mikið að spekúlera hvaðan hitt og þetta er komið, heldur spila bara sína músík. Flest sem spilað er á sínar rætur hér og þar, og er þess vegna núorðið hægt að vísa í Ornette Coleman eða Cecil Taylor rétt eins og Charlie Parker, og vera með því hluti af þeirri hefð sem djassinn hefur áunnið sér. En greinilegt er að þeir félag- amir leggja áherslu á samspilið, þótt þeir skiptist á sólóum. Eins er spil þeirra allt mjög fágað og tæknilega vel útfært, og sköpunar- ------------------------- kraftinn vantar ekki. Þetta er i fáum orð- um sagt tónlist í háum gæðaflokki, eins og reyndar mátti búast við af verð- launasveit eins og þessari. Ég ætla að vona að þessi plata fái þá athygli hér heima sem hún á skilið - það geng- ur ekki að við skulum varla vita af því þegar landar okkar eru að vekja eftirtekt erlendis fyr- ir að gera góða hluti. Hljómplötur Ársæll Másson Útvarp nýrrar aldar Útvarpsstöðin Bylgjan efnir til hæfi- leikakeppni um gerð útvarpsþátta í sam- vinnu við Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins og íslenska erfðagreiningu. Leitað er að efnilegu fólki sem vill spreyta sig á að búa til efni fyrir útvarp og er meiningin að keppendur skili til Bylgjunnar handriti að klukkustundarlöngum útvarpsþætti, frum- legum og metnaðarfullum. Dómnefnd fer yfir allar umsóknir og velur úr þau hand- rit sem uppfyfla kröfumar. Skilafrestur er til 8. febrúar næstkom- andi. Meiri Poulenc Ekkert lát er á spennandi tónleikum í höfuðborginni. Þriðju tónleikar Poulenc- hátíðarinnar verða annað kvöld kl. 20.30 í Iðnó. Þá verður flutt Sónata fyrir flautu og píanó, FiancaiUes pour rire fyrir sópran og píanó - og sópransöng- kona kvöldsins er engin önnur en Þóra Einars- dóttir - Sónata fyrir óbó og píanó, VillaneUe fyrir pikkolóflautu og píanó, J Sónata fyrir píanó, flór- Ihent, og Sextett fyrir flautu, óbó, klarínett, fagott, hom og pianó. Francis Poulenc er vinsælasta tónskáld Frakka á þessari öld. Hann vann fyrir sér með því að leika á píanó á kaffihúsum Parísarborgar og var lengi vel ekki tekinn alvarlega sem tón- skáld - verkin þóttu of léttvæg og fyndin. Nú þykja verk hans hin merkustu en það breytir því ekki að þau era ennþá létt og afar skemmtUeg. Úr hverju dóu forn- menn? Okkur fmnst sjálfsagt flestum að svariö við spumingunni í fyrirsögninni sé: þeir vora drepnir. En tilfeUið er að sumir fengu næði til að látast á sóttarsæng og Sigurður Samúelsson læknir hefur um margra ára skeið rýnt i fornsögumar tU að komast að því hvaða sjúkdómar hrjáðu hetjumar. Nú er komin út eftir hann bókin Sjúkdómar og dánarmein íslenskra fommanna þar sem í fyrsta sinn er gerð tilraun á prenti tU læknisfræðflegrar greiningar á sögu- persónum fomsagna eftir nútímaþekk- ingu. í frétt frá útgefanda er bent á að sum- ar lýsingar íslenskra fomrita á sjúkdóm- um og dánarmeinum megi telja þær fyrstu sem skrásettar era í heimsbókmenntunum. Sigurður segir aö hann hafi af tílviljun fariö að lesa fomritin með tiUiti tU sjúkdóms- lýsinga og hafi bisk- upasögumar fljótlega orðið mestu og bestu uppsprettumar, „sérlega hvað varðar lýs- ingu á sjúkdómseinkennum, svo og um helgidóma og helgiathaftiir sem um hönd vora hafðar tU lækninga". Sigurður varð fyrstur til að benda á að líkindi væra til þess að veirur hefðu borist meö landnáms- mönnum hingað tU lands. „Þessa skoðun styður frásögn um þá sjúkdóma af veira- kyni sem greint er frá í þessu riti,“ segir Sigurður. Háskólaútgáfan gefur bókina út. Kveikjur Kristinn Snævar Jónsson hefur gefið út geisladiskinn Kveikjur með eigin lögum og textum. Tónlistin er blanda af stílteg- undum og efni text- anna tilfinningarík- ar hugsýnir og hvatningar til að huga að náttúr- unni og virða mannlegar til- finningar. Flytjendur era Ari Jóns- son, Arnar Freyr Gunnarsson, Birgir Haralds- son, Ásgeir Óskarsson, Jóhann Ás- mundsson, Kristinn Svavarsson og Vil- hjálmur Guðjónsson sem einnig útsetti lögin og stjómaði upptöku. Japis dreifir. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.